Fleiri fréttir

Fimm dæmdir fyrir kókaínsmygl

Fimm einstaklingar voru dæmdir sekir fyrir að hafa smyglað til landsins kókaíni í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Sá sem hlaut þyngsta dóminn fékk tveggja ára fangelsi og tvo mánuði, það var Giovanna Soffía Gabríella Spanó, en hún lét meðal annars móður sína flytja fíkniefni á milli landa án hennar vitundar.

Mikil viðurkenning ef Reykjavík verður fyrir valinu

Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík segir að það yrði mikil viðurkenning fyrir Reykjavík ef Out Games leikarnir, sem stundum hafa verið kallaðir Ólympíuleikar samkynhneigðra, færu fram í borginni árið 2017. En í gær var ákveðið að valið stæði á milli Reykjavíkur og Miami Beach í Bandaríkjunum. Búast mætti við átta til tíu þúsund þáttakendum og öðrum gestum á leikana.

Dó eftir að hafa fallið niður af Dronning Louises brúnni

Fyrir tæpum sex árum síðan drukknaði grænlenskur maður í vatninu fyrir neðan Dronning Louises brúnna. Á þessum sama stað bjargaðist 27 ára gömul kona eftir að hafa fallið í ískalt vatnið þar um siðustu helgi. Síðustu vikuna í janúar 2007 drukknaði grænlenskur maður í vatninu eftir að hann hafði fallið í vatnið. Hann var mjög ölvaður og hafði verið að reyna að standa uppi á grindverki á brúnni.

Fékk fyrsta sætið í afmælisgjöf

"Það er greinilegt að Gísli hefur brennt sig inní þjóðarsálina og fólk er áhugasamt um hann," segir Ingibjörg Reynisdóttir, rithöfundur og leikkona, en bók hennar Gísli á Uppsölum, fór í fyrsta sætið á lista Félags bókaútgefanda yfir mest seldu bækurnar í síðustu viku. Þannig velti hún úr sessi gamalkunnum kóngi, honum Arnaldi Indriðasyni, sem gaf út Reykjavíkurnætur þetta árið.

Formaður Sjálfstæðisflokksins mættur til að bera vitni

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er mættur í Héraðsdóm Reykjavíkur til þess að gefa skýrslu í Vafningsmálinu. Með Bjarna í för var Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður hans. Áður en Bjarni gaf skýrslu var Þór Sigfússon í vitnastúkunni. Þór var forstjóri Sjóvár, en það var eitt aðalfyrirtækið í eigu Milestone.

Reyndist ekki vera Laugardalshrottinn - fær bætur frá ríkinu

Íslenska ríkið var dæmt til þess að greiða manni eina og hálfa milljón króna í dag fyrir að hafa haft hann ranglega í gæsluvarðhaldi í 108 daga. Maðurinn var handtekinn í október árið 2010 grunaður um að hafa ráðist á unga stúlku í Laugardalnum um miðjan dag og veitt henni alvarlega áverka. Meðal annars átti hann að hafa barið hana í höfuðið með grjóti.

Ökumanns leitað - ók á fimmtán ára pilt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns sem ók dökkvínrauðum jeppa á fimmtán ára pilt á reiðhjóli í Skólabæ við Árbæjarskóla um klukkan 10.20 föstudagsmorguninn 30. nóvember.

Vitnakvaðning gefin út vegna Karls Wernerssonar

Karl Wernersson, sem var stærsti eigandi Milestone, mætti ekki í Héraðsdóm Reykjavíkur til að bera vitni í Vafningsmálinu þótt gert hafi verið ráð fyrir honum á vitnalista. Símon Sigvaldason dómari upplýsti því fyrir réttinum núna eftir hádegi að vitnakvaðning hafi verið gefin út. Hann mun því mæta í réttinn á fimmtudag.

Hætta á nýrri bólu á fasteignamarkaði

Greiningardeild Arion banka gerir ráð fyrir að raunverð á íbúðahúsnæði muni hækka um 4-5% næstu tvö árin. Skýrsla Greiningadeildar Arionbanka um fasteignamarkaðinn kom út í dag. Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður Greiningadeildarinnar, sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis að ekki væru enn komin merki um að bóla væri að myndast á fasteignamarkaði, en sú hætta væri vissulega fyrir hendi vegna gjaldeyrishaftanna.

Uppsagnirnar grafalvarlegt mál: Um fimmtungur hjúkrunarfræðinga sagði upp

Uppsagnir hjúkrunarfræðinganna á Landspítalanum eru grafalvarlegt mál og er verið að vinna í því með aðkomu fjármála- og velferðarráðherra. Um 254 hjúkrunarfræðingar í 193 stöðugildum sögðu upp, en alls starfa 1348 hjúkrunarfræðingar á spítalanum. Það er því um fimmtungur hjúkrunarfræðinga sem sagði upp. Uppsagnirnar taka gildi þann 1. mars næstkomandi.

Umræðan um óhappið einkennist af gysi

Umfjöllun danskra fjölmiðla af óhappi ungrar konu sem féll af Dronning Lousie brúnni í ískalt vatnið fyrir neðan einkennist að gysi. Unnusti konunnar segir að aldrei hefði verið fjallað um málið á þennan veg ef konan hefði verið dönsk en ekki íslensk.

Steingrímur segir að afgreiðslu fjárlaga sé stefnt í hættu

Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra, segir að málþóf sjálfstæðis- og framsóknarmanna í umræðu um fjárlagafrumvarpið stofni afgreiðslu þessi í hættu og sé án fordæma í þingsögunni. Setja þurfi íslenska ríkinu fjárlög svo hægt verði að borga út laun í janúar.

Fauk á flugvél

Lögreglunni á Suðurnesjum barst á sunnudag tilkynning frá stjórnstöð Öryggisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli þess efnis að flutningsvagn hefði fokið til og lent á hreyfli flugvélar Icelandair.

„Þetta er skítaflétta“

Hver tók ákvörðun um að breyta undirrituðu skjali á síðustu stundu og veita Milestone tíu milljarða lán í stað Vafnings? Það virðist vera mesta ráðgátan í sakamáli gegn Lárusi Welding og Guðmundi Hjaltasyni.

Drekinn fær norskan gæðastimpil

Norska ríkisolíufyrirtækið Petoro mun taka þátt í olíuleit á Drekasvæðinu. Staðfestir að líkurnar á að olía finnist séu svo miklar að ástæða sé til að hefja leit, segir orkumálastjóri. Tvö fyrirtæki sem munu fá rannsóknarleyfi höfnuðu því að veita Orkusto

Byggt í Úlfarsárdal fyrir 3,7 milljarða

Íbúðahverfið í Úlfarsárdal og Grafarholti verður sex sinnum minna en gert hefur verið ráð fyrir. Ný sundlaug, samþættur leik- og grunnskóli og íþróttahús verða reist. Uppbyggingin verður fjármögnuð með framlagi úr borgarsjóði og sölu lóða.

Loftvarnaeldflaugar sendar til Tyrklands

Atlantshafsbandalagið bregst við beiðni Tyrkja um að fá Patriot-loftvarnaflaugar til að verjast hugsanlegum árásum frá Sýrlandi. Farið yfir „rautt strik“ ef Assad Sýrlandsforseti beitir efnavopnum, segir Hillary Clinton. Rússar hafa efasemdir.

Tré víða orðin of há til að þola óveður

Vegna aukinnar hæðar trjáa er þeim hættara við að fjúka um koll í vondu veðri. Verður viðvarandi vandamál, þótt ánægjulegt sé að tré hækki, segir sérfræðingur Skógræktarinnar. Standa þarf rétt að grisjun skóga eða sleppa henni alveg.

Gæti stefnt í óefni vegna uppsagnanna

Vísbendingar eru um að einn af hverjum tíu hjúkrunarfræðingum sem starfa á Landspítalanum hafi sagt upp störfum. Staðfestar tölur boðaðar í dag eða á morgun. Hjúkrunarfræðingum svíður að laun annarra en heilbrigðisstarfsmanna hækki.

Áfangi í baráttunni gegn krabbameini

Vísindamenn við Lífvísindasetur Háskóla Íslands undir forystu Eiríks Steingrímssonar, prófessors við læknadeild, hafa í samstarfi við erlenda vísindamenn greint byggingu stjórnprótíns sem gegnir lykilhlutverki við myndun sortuæxla. Niðurstöðurnar eru mikilvægur áfangi í leitinni að lækningu við þessari tegund krabbameina.

Bíða bara vegabréfsáritunar

Útlit er fyrir að að íslensk fjölskylda, sem hefur verið föst í Kólumbíu í tæpt ár, sé á leið heim á allra næstu dögum. Þau bíða aðeins eftir vegabréfsáritun, sem er á leið frá Íslandi í sænska sendiráðið í Bogotá.

Keppni um forsíðu aðfangadags

Fréttablaðið efnir til samkeppni á meðal lesenda sinna um jólalegar myndir og verður sú besta forsíðumynd Fréttablaðsins á aðfangadag. Aðrar góðar jólamyndir lesenda verða birtar inni í blaðinu á aðfangadag. Í hlut sigurvegara kemur einnig veglegur vinningur frá Sjónvarpsmiðstöðinni en önnur og þriðju verðlaun eru gjafakort í Borgarleikhúsið.

Fleiri eiga að læra kínversku

Sænskir nemendur eiga að fá að læra kínversku í bæði grunn- og framhaldsskólum. Allir grunnskólar eiga að bjóða tvö af eftirfarandi fjórum tungumálum: spænsku, frönsku, þýsku og kínversku. Framhaldsskólarnir eiga að bjóða öll fjögur.

Kate Middleton losnar ekki af sjúkrahúsi í bráð

Mikil gleði ríkir meðal Breta eftir að tilkynnt var í gærdag að Kate Middleton hertogaynjan af Cambridge væri ólétt. Við gleðina blandast hinsvegar áhyggjur af heilsufari hertogaynjunnar.

Þingfundur stóð langt fram á nótt

Gert var hlé á þingfundi klukkan hálf þrjú í nótt, en þá hafði önnur umræða um um fjárlög staðið allan daginn og verður fram haldið klukkan hálf tvö í dag.

Töluverð skjálftavirkni norðaustur af Siglufirði.

Enn er töluverð skjálftavirkni norðaustur af Siglufirði. Á síðustu tveimur sólarhringum hafa mælst þar fimm skjálftar upp á 2 til 2,7 stig og skjálftar mældust enn í nótt. Rólegt hefur hinsvegar verið á öðrum þekktum skjálftasvæðum.

Össur fordæmir nýja landtökubyggð

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fordæmir þá ákvörðun ísraelskra stjórnvalda að heimila nýja landtökubyggð í útjaðri austurhluta Jerúsalem.

Díana var með bulimiu þegar hún varð ófrísk að Vilhjálmi

Kate Middleton er alls ekki fyrsta konan í konungsfjölskyldunni sem á við mikla heilsubresti að stríða á meðgöngunni. Eins og kunnugt er tilkynnti breska konungsfjölskyldan í dag að Middleton, eiginkona Vilhjálms prins, væri óétt. Á sama tíma var tekið fram að hún væri á spítala Kings Edward VII. Ástæðan er sú að hún þjáist af mikilli morgunógleði. Daily Mail segir að þegar Díana heitin prinsessa, móðir Vilhjálms, gekk með hann hafi hún þjáðst af lotugræðgi (e. bulimiu) sem er alvarlegur átröskunarsjúkdómur.

Konunglegi erfinginn kominn á Twitter

Það hefur varla farið framhjá neinum að Kate Middleton er ófrísk en breska konungshirðin staðfesti þetta í dag. Nokkrum mínútum eftir tilkynninguna var einhver sniðugur Twitter-notandi sem notaði tækifærið og bjó til reikning sem heitir einfaldlega, @IamRoyalBaby, eða @Égerhinnkonunglegihvítvoðungur.

Læknafélagið leggst gegn græðara-tillögunni

Læknafélag Íslands segir að samþykki Alþingi þingsályktunartillögu um niðurgreiðslu á heildrænum meðferðum græðara sé það að leggja að jöfnu, hefðbundna, viðurkennda og gagnreynda heilbrigðisþjónustu annars vegar og þjónustu með ósannaða gagnsemi hinsvegar. Slíkt sé ekki ásættanlegt.

Skondið ef drottningin héti Díana árið 2100

"Það hljóta að vera gleðitíðindi í hverri fjölskyldu að von sé á nýju lífi. Í þessu tilviki nær gleðin þó væntanlega vel út fyrir innsta hring ættmenna, ekki síst til bresku pressunnar", segir Hildur Helga Sigurðardóttir, fyrrverandi fréttaritari RÚV á Bretlandseyjum, innt eftir viðbrögðum við fréttinni um væntanlegan erfingja Vilhjálms Bretaprins og Katrínar konu hans.

Vilborg búin að ganga 180 kílómetra

Vilborg Arna pólfari segist hafa lent í ýmsum erfiðum aðstæðum á þeim tveimur vikum sem hún hefur skíðað á Suðurskautslandinu. Allt hafi hins vegar gengið vel og vonast hún til að vera komin á Suðurpólinn innan fjörutíu daga.

Óskuðu Vilhjálmi og Kate til hamingju

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og eiginkona hans Michelle Obama sendu Vilhjálmi prins og Kate Middleton eigkonu hans, hamingjuóskir í dag eftir að breska konungshirðin staðfesti að Kate væri ófrísk.

Aðild Norðmanna sýnir að þeir hafa trú á olíu á Drekasvæðinu

Ákvörðun norskra stjórnvalda að taka þátt í olíuleit á íslenska Drekasvæðinu er fagnað af væntanlegum leyfishöfum, sem segja þetta skilaboð til olíufélaga heims um að mikils sé að vænta. Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra segir að fengur sé að fá Noreg með í verkefnið. Það er í samræmi við samkomulag um gagnkvæman 25 prósenta rétt á afmörkuðu svæði sem norsk stjórnvöld tilnefndu í morgun Petoro til þátttöku en félagið er að öllu leyti í eigu norska ríkisins og var áður hluti af Statoil.

Sjá næstu 50 fréttir