Sýrlensku börnin örmagna HJH skrifar 5. september 2012 12:20 Börnin í Sýrlandi eru örmagna þegar þau koma í flóttamannabúðir. mynd/ afp.
Börn sem flýja heimkynni sín í Sýrlandi eru örmagna þegar þau koma í flóttamannabúðir í nágrannaríkjum. Þetta segir barnaverndarfulltrúi UNICEF í Jórdaníu. Samtökin hafa blásið til neyðarsöfnunar fyrir þessi stríðshrjáðu börn. Mikill straumur flóttafólks liggur nú frá Sýrlandi og á hverjum degi leita þúsundir barna og fjölskyldur þeirra skjóls í nágrannaríkjunum. Aðstæður í flóttamannabúðum þar eru algjörlega óbærilegar að sögn Sigríðar Víðis Jónsdóttur, upplýsingafulltrúa UNICEF á Íslandi. „Helmingur flóttafólksins eru börn og eins og staðan er núna þá eru yfir 200 þúsund manns búnir að flýja Sýrland, farnir yfir til nágrannaríkjanna. Að auki eru milljón manna á vergangi innanlands í Sýrlandi. Og aftur þá er helmingurinn af þessu fólki börn," segir Sigríður. Söfnunarfénu verður varið í að lina þjáningar barnanna og gera aðstæður þeirra bærilegri. „Framlögin fara í að veita þessum börnum sálræna aðstoð, heilsugæslu, bólusetja börn, tryggja hreint vatn, dreifa hreinlætispökkum og svo framvegis. Svo náttúrulega innanlands í Sýrlandi, þá þurfum við líka að ná til þeirra barna sem þar hafa meðal annars flúið og dvelja í skólum og öðrum byggingum. Þau þurfa aðstoð og við getum sannarlega gert eitthvað til að koma þeim til hjálpar," bætir Sigríður við. Steina Björgvinsdóttir barnaverndarfulltrúi er nú að störfum í Jórdaníu, nágrannaríki Sýrlands, og hefur hún heimsótt margar flóttamannabúðir. „Hún var meðal annars að að lýsa því fyrir mér hvernig börnin eru örmagna mörg hver þegar þau koma yfir landamærin og yfir í flóttamannabúðirnar," segir Sigríður. UNICEF hvetur Íslendinga til að senda sms með skilaboðunum „unicef" í söfnunarsímanúmerið 1900 og styrkja þannig hjálparstarfið um 1500 krónur. Einnig er hægt að leggja söfnuninni lið á heimasíðunni www.unicef.is. „Þörfin er gríðarleg og við þurfum bara eins mikið af framlögum og okkur unast að ná í," segir Sigríður Víðis Jónsdóttir.
Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Sjá meira