Tugir ættleiðinga í uppnámi 5. september 2012 06:00 Um þrjátíu fjölskyldur bíða þess að komast á námskeið hjá Íslenskri ættleiðingu. Meðan engin námskeið eru haldin er ekki hægt að senda umsóknir fólks um ættleiðingar út. nordicphotos/afp „
Þetta eru um þrjátíu fjölskyldur núna sem eru stopp og vita ekki neitt,“ segir Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ættleiðingar. Félagið hætti að halda námskeið fyrir kjörforeldra í vor vegna fjárskorts, en seta á námskeiðinu er skilyrði fyrir því að hægt sé að gefa út forsamþykki fyrir ættleiðingu og senda umsóknir úr landi. Hörður segir stöðuna bagalega, fólkið sé innlyksa með umsóknir sínar. „Þessu fólki líður auðvitað illa því eins og frægt er vinnur tíminn ekkert með fólki sem er í þessu ættleiðingarferli. Það fer oft seint af stað og er að eldast út úr ættleiðingarferlinu.“ Drög að þjónustusamningi milli innanríkisráðuneytisins og Íslenskrar ættleiðingar liggja fyrir og hafa verið til umfjöllunar í ráðuneytinu. Samkvæmt svari Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra við fyrirspurn Unnar Brár Konráðsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um málið þarf ráðuneytið að meta skyldur Íslenskrar ættleiðingar samkvæmt lögum og greina fjárveitingar með tilliti til þeirra áður en hægt er að ljúka gerð samnings. Samningar hafa verið lausir frá árinu 2009. „Ráðuneytið óskaði eftir því við fjárveitingarvaldið að það fengist framlag í fjáraukalögum í haust og ætlaði einnig að óska eftir hækkun í fjárlagafrumvarpinu, hækkun sem okkur fannst ekki nógu mikil.“ Því sé nú beðið eftir því að fjárlagafrumvarpið verði lagt fram. „Það er ekki búið að leggja það fram og við vitum ekkert hvað kemur út úr því. Á meðan gerir ráðuneytið ekki nýjan þjónustusamning og allt er við það sama. Maður skilur auðvitað að það er ekki hægt að ráðstafa peningum nema að hafa til þess heimild.“ Félagið greindi frá því í vor að það þyrfti um 54 milljónir króna til að geta sinnt því hlutverki sem því er ætlað. Á fjárlögum ársins 2012 var upphæðin 9,2 milljónir. Hörður segir félagið mæta mikilli velvild. „Það eru allir rosalega mikið af vilja gerðir, en hafa bara verið það í svo mörg ár. Þess vegna erum við aðeins að spyrna við núna, við höfum verið í viðræðum við ráðuneytið í þrjú ár en ekkert hefur komið út úr því.“ - þeb
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Trump boðar gjaldtöku á Hormuz-sundi Erlent Fleiri fréttir Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sjá meira