Reyna að skila af sér á þessu ári 5. september 2012 03:30 Vinnan við skýrslurnar hefur þegar tekið lengri tíma en ráð var fyrir gert.Fréttablaðið/gva „
Stefnan er að reyna að klára þetta á þessu ári,“ segir Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari og formaður rannsóknarnefndar sem Alþingi skipaði til að rannsaka fall sparisjóðakerfisins. Sigurður H. Stefánsson, formaður rannsóknarnefndar um starfsemi Íbúðalánasjóðs, gefur sama svar. Báðar nefndirnar voru skipaðar fyrir ári, sú um sparisjóðina í ágústlok og um Íbúðalánasjóð í septemberbyrjun. Íbúðalánasjóðsnefndin átti lögum samkvæmt að skila skýrslu sinni til Alþingis sex mánuðum eftir skipun, eða í byrjun mars, og sparisjóðanefndin átti að skila af sér 1. júní síðastliðinn. Báðar nefndirnar báðu um frest „til haustsins“ eins og það var orðað í fjölmiðlum á þeim tíma, þar sem verkefnið hefði reynst stærra í sniðum en við var búist. Nú er ljóst að skýrslunum verður ólíklega skilað fyrr en í fyrsta lagi undir lok árs. „Skýrslutökurnar taka mjög langan tíma – við erum svolítið í þeim núna,“ segir Sigríður meðal annars um það hvers vegna vinnan hefur tafist jafnmikið og raun ber vitni. Sigurður tekur undir það og segir að mikill fjöldi manna hafi komið í skýrslutöku hjá nefndinni. „Það er óhætt að segja að þetta hafi undið upp á sig.“ - sh
Mest lesið Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Innlent Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl Erlent Hvalfjarðargöng opin á ný Innlent Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Innlent Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Innlent „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Innlent „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Innlent Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Innlent Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Innlent Fleiri fréttir Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gíg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð Ekki þeir sömu og voru handteknir vegna fyrri þjófnaðarins Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Sjá meira