Ekkert sem bendir til árásar á barn 5. september 2012 06:45 Bakkahverfið í Breiðholti Lögreglan segir allt benda til þess að maður hafi borið ljúgvitni um líkamsárásarmál í Bökkunum á föstudag.
Rannsókn lögreglu á meintri líkamsárás gegn sex ára dreng í Breiðholti á föstudag hefur engan árangur borið. Samkvæmt upplýsingum frá Gylfa Sigurðssyni, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni í Kópavogi, bendir allt til þess að atvikið hafi ekki átt sér stað. Þórarinn Engilbertsson knattspyrnuþjálfari sagði í samtali við Fréttablaðið á sunnudag að hann hefði orðið vitni að, og stoppað, grófa líkamsárás á fótboltavelli í Bökkunum í Breiðholti á föstudag, þar sem fjórir tólf til þrettán ára drengir hefðu handleggs- og kinnbeinsbrotið sex ára dreng vegna bolta. Þórarinn sagðist þá hafa verið í töluverðu sambandi við foreldra litla drengsins, sem „ætluðu að leysa málið innbyrðis, án aðkomu lögreglu“. Hann sagði skólayfirvöld og alla sem hlut áttu að málinu, vita hverja um ræddi. Þórarinn dró úr vitnisburði sínum í samtölum við fjölmiðla á mánudeginum. Þá sagði hann barnið hafa tognað og hlotið heiftarlegar blóðnasir, en ekki beinbrotnað. Hann var kallaður til yfirheyrslu hjá lögreglu, þar sem hann sagðist ekki getað gefið neinar upplýsingar um foreldra drengsins eða annarra sem hlut áttu að máli. Lögreglan hefur haft samband við sjúkrahús, leik- og grunnskóla á svæðinu, en enginn kannast við umrætt atvik. Allar þær upplýsingar sem Fréttablaðið hefur greint frá um áverka sem barnið á að hafa hlotið, koma frá Þórarni. „Ég viðurkenni að hafa ýkt um meiðslin, en restina stend ég við,“ segir Þórarinn. Hann segir starfsferil sinn settan að veði ef hann segist hafa verið að segja fjölmiðlum og lögreglu ósatt. Fréttablaðið harmar að hafa fallið í þá gryfju að treysta orðum ósannsöguls heimildarmanns. - sv
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Innlent Fleiri fréttir Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Sjá meira