Bjargað eftir fjóra tíma í miðri jökulá 5. september 2012 07:00 TF-LÍF Þyrlan lenti með hinn látna á Höfn í Hornafirði skömmu eftir miðnætti. Myndin er úr safni.Fréttablaðið/vilhelm
Fimm hestamönnum var bjargað af eyri í miðri Jökulsá í Lóni í fyrrakvöld við vondar aðstæður. Þeir höfðu fyrr um kvöldið horft á eftir félaga sínum niður ána eftir að hesti hans skrikaði fótur í grjótinu í ánni. Maðurinn fannst látinn undir miðnætti. „Þetta var tæpt, en það hafðist,“ segir Henning Aðalmundarson, sem var í áhöfn TF-LÍF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem kom mönnunum fimm til aðstoðar. „Þeir voru mjög fegnir björguninni.” „Það voru skítaaðstæður og mjög þröngt þarna niðri. Við vorum búnir að fara nokkra hringi og reyna að komast að þeim en þurftum alltaf frá að hverfa. Svo vorum við eiginlega hættir við en ákváðum að reyna einu sinni enn af því að okkur fannst alveg skelfilegt að þurfa að skilja mennina eftir þarna,“ segir Henning. Fimmmenningarnir höfðu þá hírst á eyrinni í vel á fjórðu klukkustund og voru sumir orðnir mjög kaldir og hraktir. Ómögulegt er að segja til um hvernig þeim hefði reitt af ef ekki hefði tekist að lenda þyrlunni á eyrinni á tólfta tímanum. Henning segir að þangað til lendingin heppnaðist hafi þeir eingöngu notað nætursjónauka. „Karlarnir á eyrinni vissu eflaust ekkert hvað við vorum að gera eða hvort við værum yfirleitt búnir að finna þá.“ Þess vegna hafi mennirnir kveikt á neyðarblysi. „Það gerði illt verra því að það blindaði allt um borð hjá okkur. Þetta hefði getað verið alveg fatalt ef við hefðum verið í lendingu en slapp. Það bjargaði öllu að við vorum í sambandi við björgunarsveitarbíl uppi á Illakambi sem sagði okkur til,“ bætir Henning við og segir aðstoðina frá Björgunarfélagi Hornafjarðar hafa verið ómetanlega. Þegar á eyrina var komið létti áhöfnin á þyrlunni með því að skilja alls konar búnað eftir til að koma mönnunum fimm fyrir. „Annars var hætta á að þyrlan færi ekki á loft,“ segir Henning. Að björgunaraðgerð lokinni var tekið til við að leita að manninum sem áin tók. Hann fannst undir miðnætti og var látinn. Maðurinn er á fimmtugsaldri en ekki er unnt að greina frá nafni hans að svo stöddu. Talið er að hestarnir séu allir heilir en þeir verða sóttir á næstu dögum. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Fleiri fréttir Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sjá meira