Fleiri fréttir

Þórólfur Árna: Fásinna að fara gegn sitjandi forseta

Þórólfur Árnason, stjórnarformaður Isavia og fyrrverandi borgarstjóri, segir að hann hafi haft áhuga á að bjóða sig fram til embættis forseta sl. vor og hafi verið kominn með öflugan hóp stuðningsmanna á bak við sig. Hann hafi hins vegar metið það svo að það væri fásinna að fara gegn sitjandi forseta, Ólafi Ragnari Grímssyni.

Fylltu á þyrluna á næstu bensínstöð

Tveir ausutrrískir ævintýramenn eru á ferð og flugi um landið á eigin þyrlu og taka bílabensín á hana á næstu bensínstöð við þjóðveginn, þegar á vantar.

Michael Douglas kemur líklega til Íslands

Viðræður standa nú yfir við stórleikarann Michael Douglas um að hann taki að sér að leika Ronald Reagan í nýrri kvikmynd sem mun fjalla um leiðtogafund Reagans og Gorbachev í Reykjavík árið 1986.

Framleiðsluverð lækkaði í júlí

Framleiðsluverðsvísitalan í júlí var 209,3 stig og lækkaði um 3,3% frá júní. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir lækkaði um 1,7% frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju lækkaði um 6,4%. Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,9% og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 4,4%.

Vantar yfir 1.000 kennara á leikskóla til að uppfylla lög

Aðsókn í leikskólakennaranám hefur minnkað eftir að það var lengt í fimm ár. Árið 2007 hófu 109 nemendur nám við Kennaraháskólann, en í fyrra aðeins 28. Þrátt fyrir fjölgun við Háskólann á Akureyri hefur nemendum fækkað í heild. Á sama tíma hefur eftirspurnin aukist.

Gengi Svedda tannar handtekið í Hollandi

Þrír nánir samverkamenn fíkniefnasmyglarans Sverris Þórs Gunnarssonar, Svedda tannar, voru handteknir í Amsterdam í Hollandi 18. ágúst síðastliðinn eftir að rúmlega tvítug íslensk kona sakaði þá um að ætla að selja hana í vændi í Brasilíu.

Óttast að Bandaríkin loki á siglingar héðan til Ameríku

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, kveðst hafa verulegar áhyggjur af aukinni ásókn hælisleitenda sem reyna að komast um borð í Ameríkuskip félagsins. Í bréfi til innanríkisráðuneytisins segir Gylfi alvarlega stöðu koma upp sleppi laumufarþegi með skipi vestur um haf.

Íslenskir Vítisenglar gætu misst stöðu sína innan samtakanna

Vísbendingar eru um að starfsemi Vítisengla hérlendis hafi dregist verulega saman í kjölfar nokkurra umfangsmikilla lögregluaðgerða og dómsmála á síðustu misserum. Fullgildum félagsmönnum hefur fækkað um meira en helming, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins, auk þess sem félagsskapurinn hefur verið í fjárhagskröggum.

Ökumaður tekinn á 125 km hraða í Ártúnsbrekku

Lögregla stöðvaði ökumann í Ártúnsbrekku upp úr miðnætti, efitr að bíll hans hafði mælst á 125 kílómetar hraða, eða 45 kílómetrum yfir löglegum hámarkshraða. Auk þess gaus kannabislykt út úr bílnum þegar lögreglumenn fóru að ræða við ökumanninn.

Frostanótt gerir berin betri

Síðustu nætur hafa verið kaldar á Norður- og Austurlandi og víða í Reykjavík mátti sjá hrímaða palla í gærmorgun. Flest grænmeti sem ræktað er hér á landi þolir þó stöku næturfrost og sammælast garðyrkjufræðingar um að ein og ein frostanótt geti jafnvel gert berjauppskeru betri. Þó er nauðsynlegt að uppskera rótargrænmeti áður en frostið fer að læsast í jörðu.

Flóðavarnir New Orleans héldu að mestu

Betur fór en áhorfðist þegar fellibylurinn Ísak reið yfir borgina New Orleans í gær. Versta veðrið fór raunar rétt framhjá borginni og allar flóðavarnir hennar fyrir utan eina héldu.

Fá fiskiskip á sjó við landið

Aðeins 260 fiskiskip eru á sjó við landið, sem er óvenju lítið, sérstakleg í ljósi þess að þokkalegt sjóveður mun vera á öllum miðum.

Atvinnuvegirnir í eitt ráðuneyti

Öllum atvinnugreinum á að gera jafn hátt undir höfði í nýju atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Með skipan þess er brugðist við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Fullyrða enn að minna gangi af makríl

Fulltrúar norskra og evrópskra útgerða funduðu með Maríu Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB, á mánudag til að undirbúa fund í makríldeilunni við Íslendinga 3. september. Þeir héldu því fram á fundinum með Damanaki að minna hefði gengið af makríl inn í íslensku lögsöguna en árið 2010 og 2011.

Repúblikanar þinga í skugga fellibyls

Meðan fellibylurinn Ísak herjaði á íbúa New Orleans fylgdust repúblikanar almennt í Bandaríkjunum spenntir með landsþingi flokksins í Tampa, þar sem allir helstu leiðtogar flokksins flytja ræður.

Hvetur landsmenn til að flýja

„Við eigum í stríði sem nær til heimshlutans og heimsins alls, þannig að við þurfum tíma til að ná sigri,“ sagði Bashar al-Assad Sýrlandsforseti í útvarpsviðtali í gær.

Hélt 250 rottur á heimili sínu

Talið er að allt að 250 rottur hafi haldið til á heimili fullorðinnar konu á Helsingjaeyri í Danmörku áður en heilbrigðisyfirvöld tóku til sinna ráða fyrir skemmstu. Konan hafði að sögn danskra miðla haldið rotturnar líkt og um gæludýr væri að ræða. Ábending barst um músagang við húsið, en konan var þá á sjúkrahúsi.

Sagðist vita hver myrti Palme

"Ekki gleyma að rannsaka þetta ef ég dey skyndilega,“ skrifaði Eva Rausing í tölvupósti til sænska blaðamannsins Gunnars Wall. Svo bætti hún við: "Bara grín, vona ég!“

Gagnrýna dóm yfir Pussy Riot

Mannréttindaráð Rússlands gagnrýnir dóminn yfir þremur konum úr pönkhljómsveitinni Pussy Riot, sem fengu tveggja ára fangelsi fyrir að efna til mótmæla gegn Vladimír Pútín forseta í helstu kirkju landsins.

Þjófur í formi stal iPhone

Þjófur, hugsanlega í góðu formi, stal svörtum iPhone-síma úr læstum skáp í líkamsræktarstöð í Dalsmára um hálf tvö leytið í dag. Leitað er að þjófinum samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Ríkisráð kemur saman á morgun

Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman á Bessastöðum klukkan tvö á morgun. Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu er um að ræða hefðbundinn ríkisráðsfund þar sem ráðherrar munu leggja fram mál fyrir forsetann til endurstaðfestingar. Þá mun Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra bera upp tillögur sem varða ráðuneytabreytingar, en eins og fram hefur komið stendur til að gera nokkrar breytingar nú í haust. Þær fela meðal annars í sér að iðnaðarráðuneytið verður lagt niður. Verkefni þess munu flytjast til umhverfisráðuneytis annars vegar og nýs atvinnuvegaráðuneytis hins vegar.

Farþegarflugvél rænt í Hollandi

Talið er að farþegaflugvél sem lenti á Schiphol-flugvell í Amsterdam fyrir skömmu hafi verið rænt. Flugvélin fór frá Malaga á Spáni í morgun. Lögreglumenn hafa umkringt vélina en farþegarnir eru ennþá um borð. Beðið er eftir samningamanni lögreglu til að ræða við flugstjóra vélarinnar. Vélin er í eigu Vueling, en forsvarsmenn fyrirtækisins neita því að vélinni hafi verið rænt. Talsmaður flugfélagsins segir að misskilningur sé kominn upp vegna samskipta flugstjórans við flugturninn. En hollenska lögreglan staðfestir aftur á móti við fréttastofuna Reuters að um flugrán sé að ræða. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Lýst eftir ökumanni

Lögreglan leitar nú ökumanns Mercedes Benz-bifreiðar sem ekið var á ljósgráan Skoda Octavia á Hafnarfjarðarvegi um tíuleytið í gærmorgun. Bílunum var ekið suður Hafnarfjarðarveg en slysið átti sér stað við Álftanesveg.

Gerendur þekktir í tveimur af þremur nauðgunarmálum

Lögreglan er með menn grunaða í tveimur af þremur nauðgunarmálum sem komu upp um verslunarmannahelgina í Vestmannaeyjum. Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi, staðfestir þetta í samtali við Vísi. Tekin hefur verið skýrsla af báðum mönnunum og voru þeir látnir lausir að því loknu.

„Hvað ef þetta hefði verið Anders Breivik á upptökunni í Eyjum?"

Lögreglan getur ekki fengið upplýsingar um farsímanotkun meintra hryðjuverkamanna ef hún þarf að fá upplýsingar um farsímanotkun úr ótilgreindum fjölda símtækja á tilteknu tímabili. Það má lesa úr nýjum dómi Hæstaréttar um afhendingu gagna vegna nauðgunarmáls í Vestmannaeyjum og fyrri dómafordæmum.

Lokað fyrir World of Warcraft í Íran

Bandaríski tölvuleikjaframleiðandinn Blizzard hefur lokað fyrir aðgang að fjölspilunarleiknum World of Warcraft í Íran. Er þetta gert í kjölfar hertra refsiaðgerða yfirvalda í Bandaríkjunum gegn Íranstjórn.

Almennir borgarar falla í ónákvæmum árásum

Uppreisnarmenn og öryggissveitir stjórnvalda í Sýrlandi verða að virða mannúðarlög sem mæla fyrir um að koma eigi í veg fyrir mannfall meðal óbreyttra borgara. Þetta segir í nýlegri skýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International.

Misskilningur að flugvél hefði verið rænt

Misskilningur milli flugmanns spænskrar farþegaþotu og flugturnar á Schiphol flugvelli í Hollandi varð til þess að óttast var að þota sem kom til lendingar hefði verið rænt og F-16 herþotur voru sendar til að taka á móti vélinni.

Borguðu 50 evrur þrátt fyrir handtöku

"Ég fékk bara hnút í magann yfir því að ég væri með menn sem stæðu í ólöglegum innflutningi,“ sagði leigubílstjóri á áttræðisaldri sem kom fyrir dómara í morgun í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl hingað til lands í apríl síðastliðnum.

Fíkniefnahundurinn Nelson kom upp um smyglið

Pólskir háskólamenntaðir karlmenn og einn leikskólakennari neita að hafa skipulagt umfangsmikið fíkniefnasmygl til landsins fyrr á þessu ári. Mennirnir eru ákærðir fyrir að smygla 8,5 kílóum af amfetamíni í sjampóbrúsum.

Neita að hafa skipulagt umfangsmikið amfetamínsmygl

Þrír pólskir karlmenn sem grunaðir eru um að hafa flutt inn 8,5 kíló af amfetamíni í sjampóbrúsum til landsins í apríl, neita allir að hafa skipulagt innflutning efnanna. Tveir mannanna voru handteknir í leigubíl eftir komuna til landsins en sá þriðji var handtekinn í Leifsstöð.

Reyndu að selja íslenska konu mansali

Ung íslensk kona fullyrðir að reynt hafi verið að selja hana mansali í vændishús í Brasilíu. Í viðtali við DV í dag segir hún að henni hafi á ævintýralegan hátt tekist að flýja undan Íslendingum í Amsterdam sem ætluu að selja hana manali. Fólkið avr handtekið eftir ábendingu konunnar en einn þeirrra sem sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna málsin er STeinar Aubertson sem var eftirlýstur af Interpol vegna fíkniefnamáls hér á landi.

Truflanir á umferð um Suðurlandsveg vegna kvikmyndatöku

Búast má við truflunum á umferð um Suðurlandsveg í dag. True Nort er með mikinn viðbúnað vegna kvikmyndatöku sem verður á Suðurlandsvegi við Hveradali í dag. Veginum verður lokað reglulega í dag vegna þessa. Bent er á að hjáleið um Þrengslaveg verður opin.

Sjá næstu 50 fréttir