Fleiri fréttir

Klámmyndaleikari eftirlýstur vegna morðmáls

Klámmyndaleikari og meintur morðingi er nú eftirlýstur af Alríkislögreglunni Interpol. Luka Rocco Magnotta, 29 ára klámmyndaleikari, er grunaður um að hafa myrt mann og sent líkamsparta hans með pósti á skrifstofur stjórnmálaflokks í Kanada.

Mark Zuckerberg lék í kínverskum glæpaþætti

Mark Zuckerberg er margt til listanna lagt. Ekki nóg með að hafa stofnað vinsælasta samskiptamiðil veraldar og stýrt honum í gegnum hlutfjárútboð á dögunum þá er hann einnig ágætis leikari.

Segja nákvæmlega fyrir um árekstur vetrarbrauta

Geimvísindamenn hafa reiknað út nákvæmlega hvenæra vetrarbrautin okkar mun rekast á næstu vetrarbraut, Andromedu, með hjálp Hubble geimsjónaukans. Þyngdarafl dregur vetrarbrautirnar tvær saman og áreksturinn mun hefjast eftir eina fjóra milljarða ára. Tveimur milljörðum ára síðar verða þær orðnar ein heild.

Hlaupið fyrir krabbameinssjúka - myndir

Heilsuhlaup krabbameinsfélags Íslands var haldið í 21. sinn í dag. Veðrið lék við hlaupagarpana sem alls voru 300. Geir Gunnlaugsson, landlæknir, ræsti hlaupið og hvatti þáttakendur til dáða. Kári Steinn Karlsson og Eva Margrét Einarsdóttir voru fljótust að hlaupa 10 km.

Ástþór segir galla á kosningakerfinu

Á morgun verður tilkynnt hverjir hafa skilað inn fullgildu framboði og verða í framboði til embættis forseta Íslands. Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, hefur verið andvaka vegna þess að stuðningsmannalistar hans hafa ekki fengið formlega staðfestingu og því er mögulegt að framboð hans verði ekki talið fullgilt.

Þóttist vera látinn til að blekkja morðingja

Sýrlenskur piltur greip til örþrifaráða þegar vígamenn myrtu fjölskyldu hans í bænum Houla í síðustu viku. Hann makaði blóði bróður síns á föt sín til að blekkja morðingjana.

Tvöfalt meiri álagning á bensín á Íslandi

Álagning olíufélaganna á bensínverð er tvöfalt meiri á Íslandi en í Svíþjóð og 30% meiri en í Danmörku. Þetta sagði Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis í dag.

Dýrt að grilla í sumar

Grillveislurnar verða dýrari í sumar en síðustu ár. Þetta kemur fram í úttekt Viðskiptablaðsins sem kom út í dag. Helstu kjötafurðir hafa hækkað um allt að 24% á síðustu tólf mánuðum. Menn eru ekki sammála um hvað valdi hækkuninni.

Sæstrengur til skoðunar af fullri alvöru hjá báðum ríkjum

Heimsókn orkumálaráðherra Bretlands til Íslands staðfestir að sæstrengur milli landanna er kominn til skoðunar fyrir alvöru. Ráðherrann átti viðræður við utanríkisráðherra og Landsvirkjun um málið í dag. Breski orkumálaráðherrann, Charles Hendry, hóf daginn á ráðstefnu í höfuðstöðvum Arion banka.

Framtíðarsýnin breyttist á Sveinstindi

Ellert Grétarsson ljósmyndari hefur breyst úr virkjunarsinna í náttúrurverndarsinna og nú vekur hann athygli á fegurð Reykjanessins í nýrri bók. "Ef Reykjanesinu verður breytt í eina samfellda iðnaðarlóð skerðir það alla útivistar- og ferðamöguleika þar fyrir höfuðborgarbúa, heimafólk og gesti. Ríflega 80% erlendra ferðamanna eru hingað komnir til að upplifa ósnortna náttúru, þeir eru ekki að koma til að skoða borstæði og háspennulínur,“ segir Ellert Grétarsson, ljósmyndari og stuðningsfulltrúi, sem hefur gefið út bókina Reykjanesskagi – Ruslatunnan í Rammaáætlun. Aðallega er um vefútgáfu að ræða sem hefur vakið athygli og viðbrögð og er á slóðinni http://issuu.com/ellertg/docs/nsve1. Í samvinnu við Landvernd var bókin prentuð í litlu upplagi og í gær afhenti Ellert alþingismönnum eintök.

Ökumaður ákærður fyrir manndráp af gáleysi

Átján ára piltur sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi eftir að hafa orðið Eyþóri Darra Róbertssyni að bana við ofsaakstur, mótmælti ákærunni fyrir dómi í morgun. Í ákæru segir að hann hafi einnig stofnað vegfarendum í hættu "á ófyrirleitinn hátt." Móðir Eyþórs Darra mætti við þingfestinguna í morgun ásamt bróður hans og ömmu.

Áhlaup á Landsbankann

Á annað hundrað manna gerði áhlaup á Landsbankann á Fáskrúðsfirði í dag, að sögn þátttakenda, til að mótmæla lokun útibúsins. Einn þeirra segir gríðarlega reiði meðal bæjarbúa.

Ræður allra forsetaframbjóðendanna á Vísi

Forsetaefnin komu saman í Iðnó í gær á fundi og ræddu stöðu forsetans og hlutverk miðað við hið nýja stjórnarskrárfrumvarp Stjórnlagaráðs. Nú eru framsöguræður allra frambjóðendanna komnar inn á Vísi.

Segir veiðireglu ESB mótsagnakennda og brjóta gegn EES-samningnum

Sérfræðingur í hafrétti segir að löndunarbann og bann gegn sölu sjávarafurða í drögum að reglum Evrópusambandsins feli í sér mun víðtækari bann en EES-samningurinn heimilar. Því sé um að ræða brot á samningnum, samþykki Evrópuþingið regluna.

Vill sauðnaut til Ísafjarðar

Snævar Valentínus Vagnsson hefur óskað formlega eftir því við Ísafjarðarbæ að fá að flytja sauðnaut til Íslands frá Grænlandi og ala þau á Vestfjörðum. Hann telur mögulegt að skapa þeim góð skilyrði, enda mikið landsvæði þar ónotað með öllu.

Strípalingar í umferðinni

Fjórir ungir menn tóku upp á því að afklæðast og spranga svo um Strandveg í Grafarvogi berir á tólfta tímanum í gær. Uppátækið fór fyrir brjóstið á einhverjum vegfarendum og lögreglan var kölluð á svæðið. Þegar lögreglan kom á vettvang voru strípalingarnir á bak og burt og höfðu vel að merkja haft föt sín með sér.

Styrkir til doktorsnema og vísindamanna

Tuttugu og fjórum vísindastyrkjum var úthlutað úr Háskólasjóði H/f Eimskipafélags Íslands og Rannsóknasjóði Háskóla Íslands í Hátíðasal háskólans í dag. Styrkirnir nema samanlagt um 160 milljónum króna.

Drekinn er lentur

Starfsmenn bandaríska fyrirtækisins SpaceX fögnuðu ákaft þegar Dragon-birgðahylkið lenti í Kyrrahafinu við strendur Kaliforníu fyrir stuttu.

Jóhanna kemur heim í fyrramálið

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, tók þátt í leiðtogafundi Eystrasaltsráðsins sem lauk í dag í Stralsund í Þýskalandi. Aðildarríki Eystrasaltsráðsins eru Norðurlöndin fimm, Eistland, Lettland, Litháen, Rússland, Pólland og Þýskaland auk þess sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins á aðild að ráðinu.

Breivik sagður hafa tekið inn lyfjakokteil

Talið er að fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hafi tekið inn blöndu af örvandi lyfjum stuttu áður en hann framdi ódæðisverk sín í júlí á síðasta ári.

Eldur á Hverfisgötu

Búið er að slökkva eldinn sem kom upp í þakplöttum við húsnæði á Laugaveg 105 á þriðja tímanum í dag. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu gekk vel að ráða niðurlögum eldsins sem var minniháttar. Unnið er að reykræstingu á stigagangi í húsinu.

Réttargæslumaður á erfitt með að horfa á Guðgeir

"Það er mjög skrýtið, það er erfitt að horfa á hann,“ segir Brynjar Níelsson lögmaður og réttargæslumaður Skúla Eggerts Sigurz, en þeir eru ennfremur góðir vinir. Þá störfuðu þeir saman á lögfræðistofunni Lagastoðum, þar sem Guðgeir Guðmundsson stakk Skúla fimm sinnum.

Clinton gagnrýnir afstöðu Rússa og Kínverja

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gagnrýndi yfirvöld í Rússlandi og Kína harðlega í dag en hún telur að stefna landanna í málefnum Sýrlands auka verulega möguleikann á því að allsherjar borgarastyrjöld brjótist út í landinu.

Viðurkenna að engin sé ríkisábyrgðin en gera samt óbeint kröfu um hana

Lögmaður í málflutningsteymi Íslands í Icesave-málinu segir að ESB viðurkenni í raun að engin ríkisábyrgð sé á tilskipun um innistæðutryggingar, en samt virðist sambandið gera þá kröfu að ríkið hafi átt að styðja við íslenska tryggingarsjóðinn. Það standist ekki.

Foreldrar sex barna sem brunnu inni ákærð fyrir morð

Foreldrar sex barna sem létust í húsbruna í Derby á Englandi á dögunum verða í dag ákærðir fyrir morð. Að lokinni rannsókn á málinu ákvað lögreglan að nægileg sönnunargögn lægju til grundvallar því að ákæra í málinu.

Banaslys á Ólafsfjarðarvegi

Banaslys varð á Ólafsfjarðarvegi, í grennd við Hörgárbrú á tólfta tímanum í gærkvöldi, þegar bíll, sem karlmaður á þrítugsaldri ók, fór út af veginum og valt nokkrar veltur. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, kastaðist út úr honum í veltunum. Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri, þar sem hann var úrskurðaður látinn. Tildrög slyssins eru ókunn, en lögreglan á Akureyri og Rannsóknanefnd umferðaslysa rannsaka málið.

Þriðjungur ók of hratt í Rofabæ

Brot 20 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, við Árbæjarskóla.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer vel af stað

Um 500 manns hafa greitt utankjörfundaratkvæði á öllu landinu vegna forsetakosninganna, sem fara fram þann 30. júní næstkomandi. Þar af eru tæplega 240 búnir að kjósa í Reykjavík.

Íslenskir unglingar reykja minnst allra unglinga í Evrópu

Samkvæmt glænýjum niðurstöðum evrópsku vímuefnarannsóknarinnar European School Survey Project on Alcohol and Drugs (ESPAD) sem kynntar voru í Stokkhólmi í dag hefur dregið mikið úr tóbaksreykingum íslenskra unglinga á síðustu sextán árum, ólíkt því sem gerist að meðaltali í Evrópu.

Guðgeir fyrir dómi: "Ég er skaðvaldur“

"Ég er ekki viss hvort ég ætlaði að drepa neinn,“ sagði Guðgeir Guðmundsson fyrir dómara Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun þegar hann var inntur eftir afstöðu til sakarefna gegn sér. Guðgeir er ákærður fyrir að stinga Skúla Eggert Sigurz, framkvæmdastjóra Lagastoða, fimm sinnum með veiðihníf, þar af voru fjórar stungur lífshættulegar.

Setja al-Assad afarkosti

Stærsti uppreisnarhópurinn í Sýrlandi hefur sett forseta landsins afarkosti. Hópurinn sem kallar sig Hinn frjálsa her Sýrlands, hefur gefið Bashar al-Assad forseta tvo sólarhringa til þess að framfylgja vopnahléi því sem fylkingarnar sættus á fyrir tilstilli Kofi Annans erindreka Sameinuðu þjóðanna á dögunum.

Laxagöngur hafnar

Lax er víða farinn að ganga í helstu árnar, að því er fram kemur á vef Stangveiðifélags Reykjavíkur, en veiðar hefjast í Norðurá á þriðjudagsmorgun. Nú þegar hefur sést til laxa í Elliðaánum, Laxá í kjós, Flókadalsá í Borgarfirði og neðarlega í Hvítá í Borgarfirði hefur sést heil torfa, sem líklega mun dreyfa sér í borgfirsku árnar. Sérfræðingar Veiðimálastofnunar spá góðri veiði í sumar, þótt líklega verði þetta ekki met ár.

Hús Winehouse á sölu

Hús söngkonunnar Amy Winehouse er nú komið á sölu en þar eyddi hún síðustu árum ævi sinnar og þar lét hún einnig lífið fyrir rétt tæpu ári síðan. Fjölskylda hennar hefur nú ákveðið að selja eignina sem er í Camden í London og er verðmiðinn 2,7 milljónir punda, eða um 550 milljónir íslenskra króna.

Hlaupahjólaþjófur handtekinn

Nátthrafn, sem var á röltinu í austurborginni um eitt leytið í nótt ákvað á hraða för sinni. Í því skyni stal hann hlaupahjóli úr kjallaratröppum en var svo óheppinn að til hans sást og kastaði hann frá sér hlaupahjólinu á flóttanum.

Vélhjól og reiðhjól skullu saman

Hjólreiðamaður slasaðist, en þó ekki alvarlega, þegar hann lenti í árekstri við bifhjól við Víkurvegsbrúnna á Vesturlandsvegi í gærkvöldi. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar, en ökumann bifhjólsins sakaði ekki. Ekki er ljóst hvað fór úrskeiðis hjá hjólamönnunum með þessum afleiðingum.

Sjá næstu 50 fréttir