Réttargæslumaður á erfitt með að horfa á Guðgeir 31. maí 2012 14:36 Guðgeir þegar hann var leiddur fyrir dómara í mars. „
Það er mjög skrýtið, það er erfitt að horfa á hann," segir Brynjar Níelsson lögmaður og réttargæslumaður Skúla Eggerts Sigurz, en þeir eru ennfremur góðir vinir. Þá störfuðu þeir saman á lögfræðistofunni Lagastoðum, þar sem Guðgeir Guðmundsson stakk Skúla fimm sinnum. Brynjar gætir hagsmuna Skúla í réttarsalnum og þarf að sitja gegnt honum í málinu. Brynjar, sem er ýmsu vanur úr réttarsölum landsins, segir það skrýtið að sitja á móti Guðgeiri og erfitt að horfa til hans þegar hann er spurður hvernig það sé að sitja í réttarhöld yfir manni sem skaðaði vin hans svo alvarlega. Þannig mátti sjá Brynjar fletta tímariti í þingfestingu málsins í stað þess að fylgjast með viðbrögðum Guðgeirs, sem játaði í dag að hafa stungið Skúla, þó svo hann gangist ekki fyllilega við því að hafa ætlað að bana honum. Þegar Brynjar er spurður hvað honum finnist um þá afstöðu Guðgeirs svarar hann: „Það er enginn óvissa um það að hann ætlaði að drepa hann. Það er í raun röð tilviljana sem varð til þess að Skúli lifði árásina af." Þannig kom fram í ákæruskjali að Skúli missti 50 lítra af blóði eftir árásina. Brynjar segir að í slíkum tilfellum sé algengast að hjartað í viðkomandi stoppar. „Það sem bjargaði honum var að hann komst fljótt undir læknishendur," segir Brynjar sem bætir við að það hafi ekki vantað nema örfáa sentimetra að ein hnífstungan hefði náð inn að hjarta. Skúli er enn illa farinn eftir árásina. Það er langt í að hann geti farið að vinna aftur og ýmis óþægindi hrjá hann. „Svo varð bakslag á dögunum," segir Brynjar en Skúli hafði verið útskrifaður af spítala fyrir nokkrum vikum. Síðan þurfti að leggja hann aftur inn, en hann útskrifaðist svo aftur í gær. Það er því ljóst að það er langur vegur að fullum bata fyrir Skúla þrátt fyrir að tæplega þrír mánuðir séu liðnir frá árásinni. „Maður verður bara að gæta sín á því að festast ekki í sorginni," segir Brynjar og bætir við: „Þetta er bara ein af þessum tragedíum sem lífið býður upp á."
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Sjá meira