Kalli í Pelsinum setur Apótekið á sölu BBI skrifar 9. júní 2012 11:33 Mynd/E. Ól.
Karl J. Steingrímsson, betur þekktur sem Kalli í Pelsinum, hefur boðið Austurstræti 16 eða Apótekið til sölu eða leigu. Húsið er fimm hæðir auk kjallara og rishæðar, alls einir 2773 fermetrar. „Þetta eru miklar tilfinningar," segir Karl sem getur ekki gefið neina verðhugmynd á þessu stigi málsins. „Það gerist ekki neitt fyrr en maður fær tilboð," segir Karl. Enn sem komið er hafa engin tilboð borist en nokkuð er um fyrirspurnir. Eignin eins og hún leggur sig er til sölu en Karl gæti þó einnig hugsað sér að selja hluta hússins í einu. „Maður vill detta niður á einhvern sem langar að eiga húsið," segir Karl. Slitastjórn Landsbankans hefur verið til húsa í efri hæðum hússins. Nú í október rennur sá samningur út og því vill Karl koma húsinu í nýjar hendur. Karl birti auglýsingu í Fréttablaðinu í dag. Þar er húsinu lýst sem einni af perlum íslenskrar byggingarlistar. Um er að ræða fyrsta stórhýsi Guðjóns Samúelssonar sem teiknaði á ferli sínum margar af þekktustu byggingum landsins m.a. aðalbyggingu HÍ og gamla Landspítalann. Húsið var byggt á árunum 1916-1918. Reykjavíkurapótek og Bæjar- & Borgarskrifstofur voru í húsinu upp úr 1929 þar til Ráðhúsið var tekið í notkun og apótekið lagði niður starfsemi 1999. Frímúrarareglan hafði samkomusal í húsinu og enn má sjá merki þeirra á gafli hússins.
Mest lesið Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmtu greinarinnar Erlent Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Erlent „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Innlent Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Erlent Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Innlent Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Innlent Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Fleiri fréttir Óvíst hversu mörg börn sækja ekki skóla þrátt fyrir skólaskyldu Ók bifreið utan í þrjár aðrar á gatnamótum „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Sjá meira