Innlent

Bílslys við Skipanes

BBI skrifar
Mynd af vettvangi
Mynd af vettvangi Mynd/elly
Bílslys varð við Skipanes nálægt Borgarnesi seinnipartinn í dag. Tveir strákar voru í bílnum sem tók veltu og hafnaði utanvegar þegar ökumaður missti stjórn á honum.

Hvorugur mannanna slasaðist alvarlega en þeir voru sendir á slysavaktstofuna á Akranesi til aðhlynningar. Grunur leikur á að bílstjórinn hafi verið undir áhrifum áfengis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×