Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fékk sér húðflúr með mynd af pabba Persónuleg húðflúr eru að verða vinsælustu húðflúrin sem fólk fær sér um þessar mundir, segir Össur Hafþórsson einn af skipuleggjendum húðflúrhátíðar sem haldin er á Bar 11 um helgina. Hann tekur dæmi um stelpu sem kom til hans með mynd af pabba sínum og vildi að hún yrði flúruð á. 8.6.2012 17:04
Rekstrarniðurstaða neikvæð um rétt rúman milljarð Óendurskoðaður árshlutareikningur A- hluta Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - mars 2012 var lagður fram í borgarráði í gær. Til A hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, og eignasjóð. 8.6.2012 15:55
Borgin kaupir Alliance húsið á 340 milljónir Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær kaupsamning sem Reykjavíkurborg hefur gert um kaup á Alliance húsinu og meðfylgjandi lóðarréttindi að Grandagarði 2 samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 8.6.2012 15:24
Umferðartafir vegna bílveltu á Miklubraut Bíll valt á Miklubraut, rétt við Ártúnsbrekkuna, nú rétt eftir klukkan tvö í dag. Varðstjóri hjá sjúkraliðinu sagði í samtali við Vísi að bíllinn væri á hliðinni en allir væru komnir út. Enginn slasaðist í veltunni en eitthvert magn af olíu lak niður og þreif slökkviliðið það upp. 8.6.2012 14:58
Emma Watson kemur hugsanlega til Íslands með Russel Crowe Viðræður standa yfir við Emmu Watson um að hún taki að sér hlutverk í mynd Darren Aronofskys um Örkina hans Nóa. Myndin verður að hluta til tekin upp hér á Íslandi. Nú þegar hefur verið samið við Russel Crowe um að taka að sér hlutverk Nóa. Enn hefur ekki verið ráðið í hlutverk skúrksins né heldur í hlutverk eiginkonu Nóa. Búist er við því að Jennifer Connelly muni hampa hlutverki eiginkonunnar. Emma Watson er þekktust fyrir hlutverk sitt í myndunum um galdrastrákinn Harry Potter. 8.6.2012 14:33
Valtýr Sigurðsson: Óvenjuleg og kaldrifjuð árás Valtýr Sigurðsson, fyrrverandi ríkissaksóknari, sagðist ýmsu vanur þegar hann bar vitni í réttarhöldunum yfir Guðgeiri Guðmundssyni í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann bætti við að hann hefði þekkt Skúla Eggert Sigurz lengi, en hrottafengin árás Guðgeirs á vinnufélaga Valtýs hefur haft mikil áhrif á hann. 8.6.2012 14:25
Guðgeir vildi að hann hefði eytt meiri tíma í World of Warcraft "Ég íhugaði mikið að fremja sjálfsmorð," sagði Guðgeir Guðmundsson í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun Þar sem réttað er yfir honum út af lífshættulegri árás en hann stakk Skúla Eggert Sigurz ítrekað með hnífi þannig að minnstu munaði að Skúli létist af áverkum sínum.m. 8.6.2012 13:39
Fjögur ný hringtorg á þjóðvegi í Árnessýslu Hringtorg við Borg í Grímsnesi er eitt af fjórum nýjum hringtorgum í Árnessýslu sem Vegagerðin hyggst láta gera í sumar við nokkra umferðarþyngstu ferðamannavegi Suðurlands. Þrjú þeirra eru á Biskupstungnabraut, eitt við Borg og tvö við Reykholt, en fjórða torgið verður í austurjaðri Selfoss, við gatnamót Gaulverjabæjarvegar. Framkvæmdir eru þegar hafnar við torgin við Reykholt en þau eiga að vera tilbúin 15. ágúst. 8.6.2012 12:30
Skúli Eggert: Fæ ekki martraðir, en hugsa mikið um þetta Skúli Eggert Sigurz, framkvæmdastjóri Lagastoða, var á leiðinni út af lögfræðiskrifstofunni þegar Guðgeir Guðmundsson kom þangað hinn örlagaríka dag sem hann stakk Skúla fimm sinnum með beittum veiðihníf. Þetta kom meðal annars fram í málflutningi Skúla í aðalmeðferð Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun. 8.6.2012 11:26
Rúmur helmingur segist ekki vel upplýstur Rúmur helmingur Íslendinga telur sig ekki vel upplýstan um Evrópumál, eða 56%. Þrír af hverjum fjórum Íslendingum telja landa sína heldur ekki vera vel upplýsta um þau mál, ef marka má nýja Eurobarometer skoðanakönnun sem kynnt verður á málþingi í Háskólanum á Akureyri sem hefst klukkan eitt í dag. 8.6.2012 11:16
Grænlendingum ráðlagt að nota pottlok gegn hvítabjörnum Grænlensk stjórnvöld freista þess nú með öllum ráðum að koma í veg fyrir að ísbirnir séu skotnir að óþörfu. Umgengnisreglur hafa verið settar sem banna mönnum að fæða ísbirni og íbúar eru eindregið varaðir við því að elta þá uppi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sjávarútvegs-, veiði- og landbúnaðarráðuneytis Grænlands í tilefni af því að hvítabjörn var skotinn við Nuuk síðastliðinn sunnudag. 8.6.2012 11:15
Þingmenn í myrkri Rafmagn fór af að hluta í húsakynnum Alþingis við upphaf þingfundar í morgun. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, var í pontu að ræða störf þingsins þegar ljósin slokknuðu. Hann og aðrir þingmenn létu þetta lítið á sig fá, enda var enn hægt að tala í hljóðnemann úr ræðustól. Innan við tíu mínútum síðar voru ljósin komin aftur á. 8.6.2012 10:52
Þingmaður missti bílpróf vegna ölvunaraksturs Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi missti bílprófið nýlega eftir að hann var tekinn ölvaður á bíl. Þetta kemur fram í blaðinu í Vikudegi sem kom út í gær. Höskuldur missti bílprófið í átta mánuði. 8.6.2012 09:37
Engisprettufaraldur ógnar lífi íbúa í Malí og Niger Engisprettufaraldur ógnar nú lífi íbúa í Afríkulöndunum Malí og Niger. Bæði þessi lönd glíma við hörmungar fyrir þar sem borgarastríð geisar í Malí og hungursneyð er í uppsiglingu í Niger. Samtökin Amnesty International segja að ástandið í Malí hafi ekki verið verra í fimmtíu ár. 8.6.2012 07:05
Sumarbústaður brann til kaldra kola Mannlaus sumarbústaður Norðlingaholtsmegin við Elliðavatn, brann til kaldra kola í gærkvöldi. Bústaðurinn var alelda þegar slökkviliðið kom á vettvang. Hann var ekki lengur í notkun og ekki var rafmagn tengt í hann þannig að líklegt er að kveikt hafi verið í honum. Ekki er vitað hver var þar að verki. 8.6.2012 06:53
ESB ríki fá leyfi til að setja upp vegabréfaeftirlit Stjórnvöld í ríkjum Evrópusambandsins munu fá leyfi til að setja upp vegabréfaeftirlit við landamæri sín í allt að tvö ár til að stemma stigu við fjölda ólöglegra innflytjanda inn á Shengen svæðið. 8.6.2012 06:41
Um 100 dvergar í kröfugöngu vegna Mjallhvítar Ekkert lát er á mótmælum dverga í Bandaríkjunum vegna þess að enginn dvergur var ráðinn í hlutverk í myndinni Mjallhvít og veiðimaðurinn. 8.6.2012 06:40
Ban Ki-Moon segir Sýrlandsstjórn ekki fara eftir friðaráætlun Ban Ki-Moon aðalritari Sameinuðu þjóðanna segir að sýrlensk stjórnvöld fari ekki eftir þeirri friðaráætlun sem samþykkt var til að binda enda á blóðbaðið í Sýrlandi. 8.6.2012 06:35
Ólæknandi afbrigði af lekanda breiðist hratt um heiminn Nýtt illvígt afbrigði af kynsjúkdóminum lekanda breiðist nú hratt um heiminn. Um er að ræða svokallaða ofurbakteríu þar sem engin þekkt sýklalyf vinna á henni. 8.6.2012 06:31
Bíll valt í Ártúnsbrekkunni Bíll valt í Ártúnsbrekkunni, á móts við Ingvar Helgason, nú rétt eftir klukkan tvö í dag. Varðstjóri hjá sjúkraliðinu sagði í samtali við Vísi að bíllinn væri á hliðinni en allir væru komnir út. 8.6.2012 14:30
Óheimilt hafi verið að semja við Samhjálp Innkaupastofnun og borgarlögmaður hafa staðfest að innkaupareglur borgarinnar voru brotnar þegar samið var við Samhjálp um rekstur gistiskýlisins fyrir karla að Þingholtsstræti 25. Þetta fullyrða fulltrúar VG og Sjálfstæðisflokksins í borgarráði og segja jafnframt ljóst að um sé að ræða meðvitað brot þar sem sviðið hafi skömmu áður samið við Rauðakross Íslands um rekstur gistiskýlis fyrir konur og þá fylgt innkaupareglum í hvívetna. 8.6.2012 12:14
Segir Ólaf Ragnar hafa styrkt stöðu sína enn frekar eftir þáttinn í gær Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur, telur að Ólafur Ragnar Grímsson hafi aðeins styrkt stöðu sína eftir umræðuþátt með forsetaframbjóðendum í gærkvöldi. Þóra Arnórsdóttir hefur hins vegar saxað á forskot Ólafs Ragnars samkvæmt nýrri könnun og munurinn á milli þeirra er nú sjö prósentustig. 8.6.2012 12:00
Segist hata lögfræðinga "Ég hata lögfræðinga," svaraði Guðgeir Guðmundsson þegar Skúli Eggert Sigurz spurði hvað gengi að honum á lögfræðistofunni Lagastoðum í mars síðastliðnum. Þá hafði Guðgeir stungið Skúla að minnsta kosti einu sinni í snarpri en gríðarlega ofbeldisfullri árás. 8.6.2012 10:48
Hálendisvegir opnaðir Vegagerðin er byrjuð að opna hálendisvegina einn af öðrum og er það heldur fyrr en í meðal ári. Nú síðast var vegurinn að Langasjó opnaður og og fjallabaksleið nyrðri, en syðri Fjallabaksleið er enn lokuð. Það er líka búið að opna Dómadalsleið og nú er opið í Landmannalaugar eftir öllum leiðum. Búið er að opna veginn inn í Laka, en Kjalvegur er aðeins jeppafær, enn sem komið er. Það er líka búið að opna veginn upp í Veiðivötn. Að sögn Bjarna Jónssonar vegaverkstjóra eru þessir vegir opnaðir heldur fyrr en í meðalári þar sem frost fór fyrr úr jörðu en vant er, en það er forsenda þess að óhætt sé að opna hálendisvegina. Öðrum kosti myndu þeir vaðast út í aurbleytu. 8.6.2012 10:41
Skúli ber vitni gegn árásarmanninum Skúli Sigurz sem hlaut alvarleg sár þegar hann var stunginn á lögmannsstofunni Lagastoð í mars ber vitni gegn árásarmanninum, Guðgeiri Guðmundssyni. Aðalmeðferð í málinu hófst klukkan níu og stendur fram eftir degi. Í ákæru er Guðgeiri gefið að sök tilraun til manndráps með því að stinga Skúla ítrekað. Þá er hann jafnframt sakaður um alvarlega líkamsárás þegar hann stakk Guðna Bergsson lögmann í lærið þegar Guðni hugðist koma Skúla til bjargar. 8.6.2012 10:18
Olíuvinnsla skal háð ströngustu reglum Árið 2025 má búast við olíuvinnslu á þremur svæðum norðan Íslands. Samkomulag við Grænlendinga og Norðmenn um víðtækt samstarf er komið á dagskrá stjórnvalda. Afrakstur olíuvinnslu er best geymdur í sérstökum auðlindasjóði. 8.6.2012 10:00
Nefndirnar ætla að skila í haust Rannsóknarnefnd um fall sparisjóðanna mun skila Alþingi lokaskýrslu í fyrsta lagi þann 1. september næstkomandi. Nefndarmaður á þó frekar von á því að skilin dragist fram eftir árinu 2012. 8.6.2012 09:00
Mismunun sögð ríkja í skjóli laga um stjórnun fiskveiða Sjálfstæðar fiskvinnslur gagnrýna að ekkert í fiskveiðistjórnunarfrumvarpi lúti að því að jafna samkeppnisstöðu vegna hráefniskaupa. Mismunandi reglur um kaup á afla halli á fiskverkanir án útgerða. Vilja fá allan fisk á markað. 8.6.2012 08:00
Lánið var í erlendum myntum Húsnæðislán Íslandsbanka í erlendri mynt eru ekki ólögmæt gengistryggð lán. Hæstiréttur staðfesti í gær niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands þar að lútandi í máli hjóna sem tekið höfðu slíkt lán hjá bankanum. 8.6.2012 07:15
Líkamsárás í beinni Ilias Kasidaris, þingmaður fasistaflokksins Gylltrar dögunar, réðst í gærmorgun í beinni sjónvarpsútsendingu á Liönu Kanelli, þingkonu gríska kommúnistaflokksins. 8.6.2012 07:00
Brúnin er að lyftast á Íslendingum Íslendingar hafa orðið sífellt ánægðari með sinn hag síðustu misseri. Fleiri Íslendingar segjast dafna og færri eiga í basli en áður og þá hefur andleg líðan farið batnandi. Þetta leiðir ný könnun Capacent Gallup á líðan Íslendinga í ljós en Capacent hefur mælt stöðu og andlega líðan Íslendinga frá því í maí 2010. 8.6.2012 07:00
Norðmenn íhuga harðar aðgerðir vegna makríldeilunnar Norsk stjórnvöld íhuga harðar aðgerðir gegn Íslendingum og Færeyingum vegna makríldeilunnar, að því er Fiskifréttir greina frá. 8.6.2012 06:59
Helmingur veiðigjalds renni til þeirra sem afla teknanna Stjórn Samstöðu, flokks lýðræðis og velferðar, leggur til að helmingur af veiðigjaldi, hið minnsta, renni aftur til þeirra svæða þar sem teknanna er aflað til að styðja við uppbyggingu og innviði samfélaga á landsbyggðinni og atvinnusköpun þar. 8.6.2012 06:56
Romney gengur betur í fjáröflun en Obama Mitt Romney aflaði sér meira fjármagns í kosningasjóði sína í maí en Barack Obama bandaríkjaforseti. 8.6.2012 06:51
Kínamúrinn yfir tvöfalt lengri en áður var talið Kínamúrinn er meir en tvöfalt lengri en áður var talið. Þetta segja kínversk stjórnvöld sem nýlega létu endurmæla múrinn. 8.6.2012 06:49
Mikið um ölvunar- og fíkniefnaakstur Ölvaður ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Sandgerðisvegi í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af veginum og valt. 8.6.2012 06:48
Nakinn fréttamaður flúði frá Kristjaníu Fréttamaður frá dönsku sjónvarpsstöðinni TV2 lenti í miklum vandræðum í Kristjaníu í Kaupmannahöfn í gær. 8.6.2012 06:38
Kostnaðurinn margfaldur eftir nokkur ár Kostnaður ríkisins er margfalt meiri ef vegir fá að grotna niður. Vegamálastjóri segir viðhald þjóðvega komið niður fyrir lágmarksþröskuld. Vegakerfið er að hrynja undan okkur, segir Ólafur Guðmundsson, fulltrúi EuroRAP á Íslandi. 8.6.2012 06:30
Varast gullgrafaraástand í ferðaþjónustu Ör fjölgun ferðamanna hér á landi er verkefni sem nauðsynlegt er að horfast í augu við, að mati Ólínu Þorvarðardóttur, þingmanns Samfylkingar. 8.6.2012 06:00
Telur nauðsynlegt að framselja meiri völd Spánverjum tókst að selja ríkisskuldabréf fyrir 2,1 milljarð evra í gær, aðeins fáeinum dögum eftir að fjárhagsvandræði spænskra banka juku enn á óvissuna á evrusvæðinu. 8.6.2012 05:00
Hillary Clinton ítrekar að Assad verði að víkja Hrottasveitir Sýrlandshers sagðar hafa myrt flesta þorpsbúa í Qubair í kjölfar loftárása á þorpið. Einungis örfáum tókst að komast undan og skýra frá því sem gerðist. Clinton ómyrk í máli um ofbeldið í Sýrlandi. 8.6.2012 03:00
Geta um frjálst höfuð strokið Varðstöðvar, eftirlitsmyndavélar og annar viðbúnaður er horfinn úr þorpinu þar sem blindi andófsmaðurinn Chen Guangcheng var hafður í stofufangelsi í tæp tvö ár. 8.6.2012 02:00
Nú fundin 147 árum síðar Sagnfræðingar í Bandaríkjunum hafa nú fundið læknaskýrslur um dauða Linc-olns, en þær hafa verið týndar í 147 ár. Lincoln dó árið 1865, þegar hann varð fyrir skoti morðingja í leikhúsi í Washington. 8.6.2012 00:00
Sumarbústaður við Elliðavatn alelda Slökkviliðsmenn berjast nú við eld í sumarbústað við Elliðavatn, Norðlingaholtsmegin. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra er bústaðurinn alelda en hann stendur á svokölluðum Selásblett. Enginn hefur fundist inni í bústaðnum. Slökkviliðsmenn reyna nú að verja gróðurinn í kringum bústaðinn. Ein stöð er á staðnum, þar á meðal einn tankbíll með 10 tonn af vatni. Búist er við að slökkvistarf standi yfir eitthvað frameftir kvöldi. 7.6.2012 21:25
Gekk um íbúðarhverfi vopnaður haglabyssu Maður á sextugsaldri gekk um íbúðarhverfi í Reykjavík síðdegis í dag vopnaður haglabyssu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var sérsveit Ríkislögreglustjóra send á staðinn og var maðurinn afvopnaður. Við nánari athugun kom í ljós að ekki var um raunverulegt skotvopn að ræða heldur eftirlíkingu. Ekki er vitað hvað manninum gekk til, en hann var undir áhrifum áfengis og vart viðræðuhæfur. Hann verður látinn sofa úr sér í kvöld og nótt og síðan yfirheyrður í fyrramálið. 7.6.2012 21:52