Innlent

Mikið um ölvunar- og fíkniefnaakstur

Ölvaður ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Sandgerðisvegi í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af veginum og valt.

Maðurinn, sem var einn í bílnum, var fyrst fluttur á heilsugæsluna í Keflavík til aðhlynningar, en síðan í fangageymslur og verður yfirheyrður í dag.

Sex voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt, þrír fyrir ölvunarakstur og þrír fyrir fíkniefnaakstur.

Snemma í gærkvöldi var karlmaður á fimmtugsaldri svo tekinn úr umferð fyrir að aka vespu undir áhrifum fíkniefna og áfengis




Fleiri fréttir

Sjá meira


×