Varast gullgrafaraástand í ferðaþjónustu 8. júní 2012 06:00 Ferðamenn við Skógafoss Búist er við allt að 700 þúsund erlendum ferðamönnum í sumar. Fréttablaðið/Vilhelm
Ör fjölgun ferðamanna hér á landi er verkefni sem nauðsynlegt er að horfast í augu við, að mati Ólínu Þorvarðardóttur, þingmanns Samfylkingar. „Það er mikill ágangur á vinsæla staði og nýleg skýrsla sýnir að það er vaxandi óánægja meðal ferðamanna með mannmergðina,“ segir Ólína. „En þetta verður að vera sameiginlegt verkefni stjórnvalda og ferðaþjónustunnar.“ Að mati Ólínu verður ferðaþjónustan í landinu að horfast í augu við að það sé ekki einungis verkefni stjórnvalda að byggja upp þá auðlind sem Ísland er fyrir ferðamenn. Brýnt sé að halda nánu samstarfi beggja aðila í uppbyggingu ferðamannastaða. „Ég held að ferðaþjónustan þurfi að taka sér tak og leggja sitt af mörkum. Stjórnvöld hafa verið að sinna þessum málum, meðal annars með átökum til að tryggja jafnari dreifingu ferðamanna yfir árið,“ segir hún. „En það má ekki ríkja gullgrafaraástand í ferðaþjónustunni, sem að mínu mati hefur verið ákveðin tilhneiging til.“ Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir nauðsynlegt að fá frekara fjármagn frá stjórnvöldum inn í framkvæmdir við vinsælustu staðina á landinu. „Auðvitað er nauðsynlegt að hafa þessa hluti í lagi. En það kostar peninga og það hefur því miður ekki verið sett mikið í rannsóknir eða uppbyggingu á ferðamannastöðum,“ segir hún. „Þetta eru gríðarlega mikilvæg mál. Þegar ferðaþjónustan er orðin svona öflug verður stjórnsýslan að taka það alvarlega og setja peninga í hana eins og hefur verið gert við aðrar atvinnugreinar.“ - sv
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Fleiri fréttir Arion hækkar vexti á ný Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Sjá meira