Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kýldi mann af engu tilefni fyrir framan lögregluna Klukkan hálf sex í morgun var maður handtekinn við stjórnarráðið í Lækjargötu eftir að lögreglumenn horfðu á hann kýla annan mann af engu tilefni. Tekin verður skýrsla af honum í dag. Sá sem varð fyrir árásinni leitaði sér aðstoðar á slysadeild. 20.5.2012 10:01
Rappar gegn kvenfyrirlitningu Þórdís Nadia Semichat sendi frá sér sitt fyrsta lag og myndband, Passaðu þig, í síðustu viku. Hún segir íslenska hipphoppheiminum vera stjórnað af karlmönnum og vill veg kvenna meiri í dægurmenningunni. Kjartan Guðmundsson ræddi við hana. 19.5.2012 22:30
Orkídea sem óx upp úr kolabing Bryan Ferry er rokkari sem sagt er að líklegri sé til að endurinnrétta hótelherbergi en rústa því. Eftir 40 ár í bransanum sækir hann Ísland heim fyrsta sinni í tilefni Listahátíðar í Reykjavík. Sif Sigmarsdóttir hitti hann fyrir í London þar sem hún komst að eigin raun að ástæðum þess að hann telst enn kvennagull og hvers vegna hann myndi sóma sér vel sem konungur Frakklands. 19.5.2012 21:45
Fékk ævilangt fangelsi í Kína Dómstóll í Kína hefur dæmt Lai Chanxing í ævilangt fangelsi. Lai var framseldur frá Kanada til Kína á síðasta ári, eftir að kínversk stjórnvöld höfðu lofað Kanadamönnum því að hann yrði ekki tekinn af lífi. 19.5.2012 20:15
Getur ekki gert upp á milli Clapton og Simon: "Ég elska þá alla" Heimsþekktur trommuleikari ráðleggur upprennandi trommurum að fylgja hjarta sínu og ástríðu. Hann vill ekki gera upp á milli Eric Clapton og Paul Simon. 19.5.2012 19:32
Enginn með fyrsta vinning Enginn var með allar lottótölurnar réttar í útdrætti kvöldsins. Fimm voru þó með fjórar jókertölur í réttri röð og fá þeir 100 þúsund krónur í sinn hlut. 19.5.2012 19:25
Gunnar Bragi: Ríkisstjórnin er að hita upp fyrir kosningar Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir ríkisstjórnina nota nýja fjárfestingaráætlun til að hita upp fyrir kosningar. Markmið hennar sé að safna að sér smáframboðum til stuðnings við mikilvæg mál. 19.5.2012 18:59
Vonast til að samningaviðræðum verði lokið á mánudag Þór Saari þingmaður Hreyfingarinnar vonast til að samningaviðræðum við ríkisstjórnina um stuðning í ákveðnum málum verði lokið á mánudaginn. Ríkisstjórnin sé með tilboð á borðinu. 19.5.2012 18:42
Búinn að vera í björgunarsveitinni síðan 1979 - aldrei lent í öðru eins Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli í gær en hátt í tvö hundruð björgunarsveitarmenn og viðbragðsteymi voru kölluð út. Farþegar héldu þó ró sinni og aðeins örfáir þurftu á áfallahjálp að halda. 19.5.2012 18:36
Banaslys í Skorradal Banaslys varð á malarveginum á milli Indriðastaða og Hreppslaugar í Skorradal um klukkan þrjú í dag þegar að jepplingur valt. Öldruð hjón voru í bílnum og var ökumaðurinn, konan, úrskurðuð látin á slysstað. 19.5.2012 17:13
Elfa Dögg verður áfram í meirihlutanum - allir sáttir og sælir Sjálfstæðismenn í Árborg náðu samkomulagi í dag um að Elfa Dögg Þórðardóttir, bæjarfulltrúi flokksins, starfi áfram með meirihlutanum. Helgi S. Haraldsson, fulltrúi B-listans, kemur þá ekki inn í meirihlutann eins og stóð til á tímabili. 19.5.2012 16:42
Sigmund látinn Uppfinningamaðurinn og skopmyndateiknarinn Sigmund Jóhannsson Baldvinsen lést í morgun, áttatíu og eins árs að aldri eftir erfið veikindi. Þetta kemur fram á vef eyjafrétta. Sigmund fæddist í Noregi árið 1931 og kom til Íslands þriggja ára gamall. Sigmund var einna þekktastur fyrir skopmyndir sínar í Morgunblaðinu en hann var menntaður vélstjóri og fann meðal annars upp sjálfvirkan sleppibúnað fyrir gúmmíbjörgunarbáta. Sigmund lætur eftir sig eiginkonu, Helgu Ólafsdóttur, og þrjá syni, þá Ólaf Ragnar, Hlyn og Björn Braga. 19.5.2012 15:57
Kristbjörg kemur til hafnar - myndir Neta- og dragnótabáturinn Kristbjörg VE kom til hafnar í Vestmannaeyjum í hádeginu í dag en báturinn varð vélarvana við Meðallandsbugt við Skarðsfjöruvita á tíunda tímanum í gærkvöldi og rak í átt að landi. 19.5.2012 15:24
Oft auðvelt að brjótast inn Oft er auðvelt fyrir þá sem kunna til að brjótast inn í tölvukerfi sem stýra eftirlitsmyndavélum. Þannig má nálgast upptökur úr vélunum og dreifa þeim, eða stöðva upptökur tímabundið, að því er fram kemur í nýjasta eintaki Vírsins, fréttabréfi áhættuþjónustu Deloitte. 19.5.2012 15:00
Kanadískur ferðamaður krotaði á hurðir og veggi Klukkan hálf sex í morgun var 38 ára gamall kanadískur ferðamaður stöðvaður af við eignaspjöll í miðbæ Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu gekk maðurinn á milli húsa við Laugaveg og nágrenni og krotaði á hurðir og veggi. Hann var með farsíma meðferðis og sýndi lögreglumönnum nokkuð margar myndir af eignaspjöllunum en ekki hefur tekist að staðsetja allt krotið. Málið er í rannsókn hjá lögeglu. 19.5.2012 14:41
Þýska ferðakonan fundin Ferðakonan sem björgunarsveitir voru að leita að er fundin. Björgunarmaður á sexhjóli fann konuna rétt við Rauðasand og amaði ekkert að henni. Konan er frá Þýskalandi en búsett hér á landi. Björgunarsveitir voru komnir á svæðið og leit var hafin af göngumönnum, leitarmönnum á sexhjóli og á sjó. 19.5.2012 14:23
Erlend ferðakona týnd á Vestfjörðum Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á sunnanverðum Vestfjörðum voru kallaðar út um eittleytið til leitar að erlendri ferðakonu. 19.5.2012 14:17
Útsýnið stórkostlegt í fyrstu fjallgöngunni Viktor Theodórsson er tíu ára gamall hreyfihamlaður drengur sem gekk í fyrsta sinn á Akrafjall í síðustu viku með samnemendum sínum á útivistardegi Grundaskóla á Akranesi. Gangan gekk vel þrátt fyrir fötlun hans og segir hann hana hafa verið skemmtilega. 19.5.2012 14:00
Myndband af lendingunni Flugmenn urðu ekki varir við neitt þegar hjól undan farþegþotu Icelandair á leið til Orlando í gærkvöld fór af í flugtaki. Búið er að skikpta um lendingarbúnað á vélinni sem fer aftur í notkun seinna í dag. 19.5.2012 13:53
Árleg vorhátíð Austurbæjarskóla haldin í morgun Árleg vorhátíð Austurbæjarskóla hófst í morgun með skrúðgöngu frá skólanum. Í göngunni voru tveir trommuvagnar og var þeim ekið út úr gömlu spennistöðinni áður en gangn hófst. Á heimasíðu skólans segir að í stað orku til heimilisnota streymdi orka hrynsins út úr þessu gamla gímaldi og knúði gönguna áfram. Nemendur í 1. til 4. bekkjar voru með uppblásnar blöðrur, gular, rauðar, grænar og bláar í stíl við einkennisliti þessara árganga. Að lokinni göngu var dagskrá í skólaportinu þar sem boðið var upp á grill, basar og kaffihús. Á meðfylgjandi mynd hér til hliðar má sjá krakkana á Skólavörðustígnum. 19.5.2012 13:48
Kristbjörg komin til Vestmannaeyja Neta- og dragnótabáturinn Kristbjörg VE kom til hafnar í Vestmannaeyjum nú í hádeginu. 19.5.2012 13:13
Lög gegn barnaníði hert til muna Bannað verður með lögum að framleiða klámfengið efni þar sem leikendur herma eftir barni, þó þeir hafi náð átján ára aldri. Einnig verður bannað að mæla sér mót við barn undir 15 ára aldri í kynferðislegum tilgangi, hvort sem það er á Netinu eða utan þess. 19.5.2012 13:00
"Ekki boðlegt að búið sé að taka Alþingi Íslendinga í gíslingu" Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir sjálfstæðismenn og framsóknarmenn halda þinginu í gíslingu vegna umræðu um þjóðatkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá. Umræðan hefur nú staðið í tæpar 37 klukkustundir en sjálfstæðismenn segja að ekki sé um málþóf að ræða. 19.5.2012 12:11
Örfáir farþegar þurftu áfallahjálp Aðeins örfáir farþegar þurftu á áfallahjálp að halda eftir lendinguna í gær. Fréttastofa náði tali af Guðmundi Þór Ingólfssyni, formanni Neyðarnefndar Suðurnesjadeildar Rauða Krossins, á Keflavíkurflugvelli stuttu eftir að vélin lenti. 19.5.2012 12:00
Jóhanna á leið til Chicago Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, fer um helgina til Chicago þar sem haldinn verður fundur leiðtoga NATO ríkjanna. Í sendinefnd Íslands eru utanríkisráðherra, fastafulltrúi Íslands gagnvart NATO, og embættismenn frá forsætis- og utanríkisráðuneytum. 19.5.2012 11:00
Draumur um barn í lausu lofti vegna tafa "Mér finnst fáránlegt að einhverjir karlar í jakkafötum, án þess að ég sé með einhverja fordóma, geti stjórnað því hvort ég fái minn æðsta draum uppfylltan,“ segir Tinna Rúnarsdóttir, sem sér fram á að geta ekki eignast barn ef Íslensk ættleiðing fær ekki fjárveitingar frá ríkinu til að halda nauðsynleg námskeið fyrir verðandi kjörforeldra. 19.5.2012 11:00
Blindi andófsmaðurinn á leið til Bandaríkjanna Chen Guangcheng kínverski andófsmaðurinn sem flúði úr stofufangelsi og leitaði griða í bandaríska sendiráðinu í Peking í síðasta mánuði, er nú á leið til Bandaríkjanna. Nýlegur flótti hans skapaði mikla spennu í samskiptum Kínverja og Bandaríkjamanna en nú virðist sem lausn sé komin í málið. Chen, sem er blindur, fékk nýlega vegabréfsáritun og fór í morgun út á flugvöll ásamt eiginkonu sinni og tveimur börnum. Hann hyggst fara til NewYork og hefja nám. 19.5.2012 10:55
Búið að mynda nýjan meirihluta í bæjarstjórn Árborgar Nýr meirihluti hefur verið myndaður í bæjarstjórn Árborgar. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn náð saman um að bæjarfulltrúi Framsóknar, Helgi S. Haraldsson, gangi til liðs við hreinan meirihluta sjálfstæðismanna. 19.5.2012 10:05
Kristbjörg VE á leið til Vestmannaeyja Neta- og dragnótabáturinn Kristbjörg VE er nú í togi á leið til Vestmannaeyja. Báturinn varð vélarvana á Meðallandsbugt norðan við Skarðsfjöruvita á tíunda tímanum í nótt og rak í átt að landi. 19.5.2012 09:45
Pissuðu á styttur fyrir framan Stjórnarráðið Mikið var um útköll hjá lögreglu í nótt bæði vegna ölvunar og hávaða. Um 20 fíkniefnamál komu upp og tveir aðilar voru kærðir í nótt fyrir brot á lögreglusamþykkt er þeir köstuðu af sér vatni á styttur fyrir framan Stjórnarráðið. 19.5.2012 09:43
Þjófur í Austurbænum - stal bensíni af sláttuvél Um klukkan hálf fjögur í nótt fékk lögreglan tilkynningu um mannaferðir í garði við íbúðarhús í austurbænum í Reykjavík. Þegar lögreglan kom á vettvang var þar maður að stela bensíni af sláttuvél en stuttu áður hafði hann farið inn á heimili í nágreninu og stolið þaðan munum og bifreið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu varð stolna bifreiðin síðan benínlaus og var maðurinn að stela bensíninu af sláttuvélinni til þess að setja á bifreiðina. Maðurinn, sem var ölvaður, var handtekinn og vistaður í fangageymslu en hann er einnig grunaður um ölvunarakstur. 19.5.2012 09:40
Sextán ára ökumaður ölvaður undir stýri Á Selfossi var sextán ára ökumaður tekinn ölvaður undir stýri innanbæjar nú í morgunsárið og á Akureyri var annar ökuleyfislaus ökumaður tekinn grunaður um ölvunarakstur. 19.5.2012 10:25
Fundarsköp bæjarstjórnar í Garði kærð til ráðuneytis Nýkjörinn forseti bæjarstjórnarinnar í Garði, Jónína Holm, lokaði bæjarstjórnarfundi þegar umræða um fundargerð skólanefndar bæjarins var til umræðu á aukafundi á miðvikudag. 19.5.2012 09:00
Fimm fangar dánir á níu árum Maður á fimmtugsaldri lést í fangelsinu Litla-Hrauni um áttaleytið á fimmtudagskvöld. Hann hafði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir síbrot þann 16. maí síðastliðinn og var nýbúið að færa hann til fangelsisins þegar hann lést. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins byrjaði maðurinn mjög fljótlega að kasta upp eftir að komið var á Litla-Hraun og hné meðvitundarlaus niður á ganginum. Sjúkrateymi reyndi endurlífgunartilraunir án árangurs og lést maðurinn skömmu síðar. 19.5.2012 08:00
Vonar að biðin fari að styttast Vinna við gerð ívilnunarsamnings íslenskra stjórnvalda við fyrirtæki í eigu kínverska athafnamannsins Huangs Nubo er enn í gangi. Vonir standa til þess að niðurstaða fáist í málið innan skamms. 19.5.2012 07:00
Þóra mælist með mest fylgi Þóra Arnórsdóttir er með rúmlega átta prósentustiga forskot á Ólaf Ragnar Grímsson forseta í nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Könnunin var gerð dagana 8. maí til 18. maí. 19.5.2012 06:30
Ómögulegt að veita öllum starf Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs segir ómögulegt fyrir borgina að ætla sér að tryggja öllum í Reykjavík störf. Ekki hafa verið færri sumarstörf í boði hjá borginni í mörg ár og var 66 prósent umsækjenda hafnað í ár. Ráðið var í 1.384 störf, en umsækjendur voru 4.446. Þeir voru 5.116 í fyrra og ráðið var í 1.949 stöður. 19.5.2012 06:00
Þriggja ára áætlun skapar 4.000 störf Stjórnvöld áforma að leggja ríflega 39 milljarða króna í uppbyggingu í atvinnumálum á næstu þremur árum. Stjórnvöld telja að þetta átak muni skapa um 4.000 bein störf á tímabilinu og minnka atvinnuleysi um 0,4 til 0,6 prósentustig. 19.5.2012 05:00
Obama tekur undir hugmyndir Hollandes Barack Obama Bandaríkjaforseti tekur undir hugmyndir Francois Hollande Frakklandsforseta um að nú þurfi ríki heims að einbeita sér að hagvextinum frekar en að horfa eingöngu á sparnað og aðhald í ríkisfjármálum. 19.5.2012 01:00
Byssum beitt á mótmælendur Herinn í Sýrlandi beitti bæði skotvopnum og táragasi gegn mótmælendum í Aleppo, sem er fjölmennasta borg landsins. 19.5.2012 00:00
Samhæfingarstöð Almannavarna áfram starfandi vegna vélarvana báts Landhelgisgæslunni barst kl. 21:25 í kvöld aðstoðarbeiðni frá neta- og dragnótabát, með tíu manns í áhöfn sem var vélarvana á Meðallandsbug norðan við Skarðsfjöruvita og rak í átt að landi eins og greint var frá á Vísi fyrr í kvöld. 18.5.2012 23:40
Rekinn úr skóla vegna hárklippingar Umdeild hárklipping sem varð til þess að tólf ára gamall piltur í Bandaríkjunum var rekinn úr skólanum hefur nú vakið hrifningu meðal körfuboltamanna. 18.5.2012 23:30
Horfði á bíómynd á meðan flugstjórinn brenndi eldsneyti Örfáir farþegar nýttu sér áfallahjálp Rauða Krossins í kvöld samkvæmt upplýsingum frá fulltrúum áfallateymisins. Farþegi sem fréttastofa ræddi við saqðist hafa horft á bíómynd á meðan beðið var eftir því að lenda. 18.5.2012 23:05
Flugvél með hala í eftirdragi leitar olíu frá Egilsstöðum Norsk flugvél sem dregur hala á eftir sér hóf í dag flugsegulmælingar á Jan Mayen-hryggnum og hefur hún bækistöð á Egilsstöðum næstu fjórar vikur. Þá er rannsóknarskip væntanlegt á Drekasvæðið í næsta mánuði til hljóðbylgjumælinga. Þessar myndir tók Nikulás Bragason á Egilsstaðaflugvelli í morgun þegar áhöfn vélarinnar var að leggja upp í fyrsta flugið. 18.5.2012 22:30
Bátur í nauðum við Skarðsfjöru Bátur er í nauðum við Skarðsfjöru rétt hjá Hjörleifshöfða. Þetta staðfestir Landhelgisgæslan. Búið er að kalla til þyrlu Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitarmenn. Tíu manns eru í bátnum, en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er ekki hætta á manntjóni. Frekari upplýsingar um málið hafa ekki borist. 18.5.2012 22:05