"Ekki boðlegt að búið sé að taka Alþingi Íslendinga í gíslingu" Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 19. maí 2012 12:11 Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar. mynd/365
Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir sjálfstæðismenn og framsóknarmenn halda þinginu í gíslingu vegna umræðu um þjóðatkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá. Umræðan hefur nú staðið í tæpar 37 klukkustundir en sjálfstæðismenn segja að ekki sé um málþóf að ræða. Þegar þingfundi á Alþingi lauk á miðnætti í gær höfðu umræður um tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá staðið í rúmar 35 klukkustundir, umræða hófst síðan aftur klukkan hálf ellefu í morgun og voru tólf á mælendaskrá nú fyrir fréttir og sér fyrir endann á umræðunni. Magnús Orri Schram er þingflokksformaður Samfylkingarinnar „Já, ég vil nú bara segja að það er í raun og veru ekki boðlegt að það sé búið að taka alþingi Íslendinga í gíslingu. Hér er bara verið að tala um það að eiga samtal við þjóðina að rita nýja stjórnarskrá, það eru sex lykilatriði sem við teljum rétt að leita til þjóðarinnar með í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu," segir Magnús Orri. Ragnheiður Elín Árnadóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir að ekki sé um málþóf að ræða heldur sé enn margt ósagt um þetta stórmál. „Ef maður lítur til þingsögunnar þá er það til dæmis núverandi forsætisráðherra sem á metið þar, ein ræða tæpar 11 klukkustundir. Þessi umræða, bæði fyrri og síðari umræða, hefur staðið í 30 klukkustundir svo ég held að hún sé hvergi nærri að komast í hóp lengstu í þingsögunni," segir hún. Samkvæmt þingskaparlögum hafa níu þingmenn rétt á því að leggja fram tillögu um að umræðu ljúki eftir ákveðið langan tíma og þannig sé hægt að stöðva málþóf. Magnús Orri kannast ekki við að þetta hafi verið rætt í þinginu í tengslum við þessa umræðu. „Ég vona að til þess þurfi ekki að koma en það er ljóst að ég tel rétt að þingið, lýðræðislega kjörinn meirihluti, fái að skipa málum eins og þeir telji best. Og í þessu máli um þá getur farið svo á ákveðnum tímapunkti telji þingmenn það sé hyggilegast ef haldið verður áfram að taka þingið í gíslingu eins og við höfum upplifað hér undanfarna sólarhringa," segir
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Fleiri fréttir Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu Sjá meira