Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu ekki verið rædd í nefndinni Ný tillaga meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis og Guðmundar Steingrímssonar um að þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar fari fram í haust hefur ekki verið rædd í nefndinni. Þetta segir Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefndinni. Hann segir þó að tillagan komi ekki á óvart, en upphaflega vildi meirihlutinn að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram samhliða forsetakosningum. Ekki náðist samkomulag um þá tillögu þegar um hana var rætt í lok mars. 30.4.2012 22:04
Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir 20. október Þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur Stjórnlagaráðs að breytingum á stjórnarskránni mun fara fram í síðasta lagi þann 20. október næstkomandi verði tillaga meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að veruleika. Tillögunni var dreift á Alþingi í dag. Upphaflega stóð til að þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram samhliða forsetakosningum. Ekki náðist samkomulag um það á Alþingi og því hefur ný tillaga að dagsetningu verið lögð fram. 30.4.2012 21:20
Tekinn með 3 kíló af marijúana Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann marijúana við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í dag. Um var að ræða tæplega 3 kílógrömm en marijúanað var ætlað til sölu. Karl um þrítugt var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu. 30.4.2012 23:28
Enginn glæpur að selja lúðu Þrátt fyrir lúðuveiðibann er ekki erfitt að finna lúðu hjá fisksölum, en kílóverð á henni hefur hækkað um fimmtíu prósent frá því fyrir bann. Sumir viðskiptavinir verða þó undrandi að sjá lúðu í fiskborðinu og telja fisksalana hina mestu glæpamenn. 30.4.2012 21:06
Lýsa yfir vonbrigðum með stöðu iðnnáms Hallveig, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar í Reykjavík, lýsir yfir miklum vonbigðum með stöðu iðnnáms í grunnskólum Reykjavíkurborgar í ályktun sem send var fjölmiðlum i kvöld. Félagið segir að Iðnnám í grunnskólum sé nánast ekkert þar sem gríðarlegur niðurskurðar hafi átt sér stað og áhugaleysi borgaryfirvalda hafi leikið þessar mikilvægu greinar grátt. Segjast Hallveigarmenn telja að skortur á iðnnámsgreinum í grunnskólum sé ein af megin orsökum þess að ekki sæki fleiri í að fara í iðnnám eftir að grunnskólanámi hefur verið lokið. 30.4.2012 21:04
Tveggja mánaða prinsessa stal senunni á afmæli afa síns Lítil sænsk tveggja mánaða gömul prinsessa stal senunni í dag þegar Karl Gústaf Svíakóngur hélt upp á 66 ára afmælið sitt. Prinsessan litla er dóttir Viktoríu krónprinsessu. Þetta var í fyrsta skipti sem Viktoría sýnir hana opinberlega og krónprinsessan hélt sjálf á henni við það tækifæri á svölum konungshallarinnar. 30.4.2012 20:19
Stefnt að ákvörðun um kísilver á Húsavík fyrir áramót Stefnt er að því að bindandi samningar um 66 þúsund tonna kísilver á Húsavík verði undirritaðir fyrir áramót. Ráðamenn þýska félagsins PCC eru væntanlegir til landsins í næstu viku til að þoka málinu áfram. Ráðamenn PCC flugu til Norðurlands fyrir síðustu jól til að kynna íbúum Húsavíkur og nærsveita áform sín og þeir eru aftur væntanlegir í næstu viku til að móta betur rammann utan um verkefnið og setja niður tímaáætlun. 30.4.2012 20:15
Dagbók Bin Ladens á Netið Gögn sem fundust á aðsetri Osama Bin Laden munu fara á Netið síðar í þessari viku, að því er sérfræðingur Hvíta hússins fullyrðir. Bandarískir hermenn lögðu hald á gögnin þegar ráðist var inn í virki Bin Ladens í Abbottabad í maí í fyrra og hann tekinn af lífi. Á gögnunum eru meðal annars útprent af samskiptum Bin Ladens við aðstoðarmenn hans og handskrifuð dagbók. Í gögnunum kemur meðal annars fram að Bin Laden hugðist breyta nafni al-Qaeda vegna þess að svo margir hátt settir menn innan samtakanna höfðu verið teknir af lífi. 30.4.2012 20:00
"Leigusalar verða að vanda valið" "Þetta er svakalegt mál og eitt það versta sem ég hef séð,“ segir Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag og ræddi við þáttastjórnendur um réttindi leigusala og þeirra sem taka húsnæði á leigu. 30.4.2012 17:57
Tveir gefa kost á sér Framboðsfrestur til kjörs vígslubiskups að Hólum í Hjaltadal rann út í dag og hafa tvö boðið sig fram. Það eru þau sr. Kristján Björnsson sóknarprestur í Vestmannaeyjaprestakalli og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir sóknarprestur á Möðruvöllum í Hörgárdal. Enn er þó möguleiki á að tilkynning um framboð sé í pósti og því ekki ljóst fyrr en síðar í vikunni hversu margir gefa endanlega formlega kost á sér. 30.4.2012 17:46
Heræfing vegna Ólympíuleikanna í Lundúnum Yfirvöld í Bretlandi vinna nú að undirbúningi fyrir Ólympíuleikana sem haldnir verða í Lundúnum í sumar. Að því tilefni munu land- og sjóher Bretlands standa fyrir hernaðaræfingu í Lundúnum og Weymouth í þessari viku. 30.4.2012 17:03
The Avengers slógu 10 ára gamalt met Ofurhetjumyndin The Avengers kom sá og sigraði á Íslandi um helgina. Ljóst er að Iron Man, Thor, Captain America og félagar heilli Íslendinga enda hópaðist fólk á öllum aldri í þá þrettán kvikmyndasali sem sýndu myndina. 30.4.2012 16:22
Kræklingabændur kafna í eftirlitsgjöldum Eftirlits- og leyfisveitingakerfi, sem stjórnvöld eru að setja upp í kringum kræklingarækt, stefnir í að kæfa greinina í fæðingu. Uppskeruleyfi eitt og sér gæti kostað allt að 280 þúsund krónur á viku sem hjá flestum er meira en verðmæti uppskerunnar. Bóndinn á Gróustöðum við Gilsfjörð, Bergsveinn Reynisson, er einn þeirra sem fóru af stað og hann er nú orðinn formaður Skelræktar, hagsmunasamtaka kræklingaræktenda. 30.4.2012 19:30
Andrea hyggur á forsetaframboð Andrea Jóhanna Ólafsdóttir mun greina frá ákvörðun sinni og áformum um framboð til embættis forseta íslenska lýðveldisins á blaðamannafundi í Norræna húsinu klukkan korter yfir fjögur á morgun. Andrea er fædd 2. ágúst 1972 á Húsavík. Andrea er þriggja barna móðir sem býr ásamt manni sínum, Hrafni H. Malmquist, í Skerjafirðinum. 30.4.2012 17:41
Fundu 30 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í miðborginni um helgina. 30.4.2012 16:54
Blómlegar göngugötur í miðborginni í sumar Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkurborgar samþykkti einróma á fundi sínum í morgun tillögu um göngugötur í Reykjavík í sumar. Að mati samgönguráðs hafa göngugötur í miðborg Reykjavíkur síðastliðin sumur gefið góða raun. Þá telur ráðið að borgarbúar hafi almennt verið ánægðir með það fyrirkomulag að breyta vinsælum götum miðborgarinnar í göngugötur yfir sumartímann. 30.4.2012 16:03
Smygluðu mörgum kílóum af amfetamíni - áfram í gæsluvarðhaldi Fjórir karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 14. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna en mennirnir sem eru allir erlendir ríkisborgarar, eru grunaðir um aðild að innflutningi á umtalsverðu magni af fíkniefnum, eða 8,5 kg af amfetamíni. Í tilkynningu frá lögreglu segir að tveir mannanna hafi kært úrskurðinn til Hæstaréttar. 30.4.2012 15:50
Jóhanna viss um að álit þjóðarinnar á ESB muni batna Jóhanna Sigurðardóttir segist viss um að álitið á Evrópusambandsaðild Íslands muni batna þegar nær dragi að samningsniðurstöðu í málinu. Þetta sagði hún í svari til Sigurðar Inga Jóhannssonar alþingismanns Framsóknarflokksins sem spurði forsætisráðherra að því í dag á Alþingi hvort ekki væri kominn tími til að setja aðildarviðræðurnar við ESB í bið. 30.4.2012 15:43
Guangcheng sagður vera í Peking Blindi andófsmaðurinn Chen Guangcheng, sem slapp úr stofufangelsi í síðustu viku, er sagður vera í bandaríska sendiráðinu í Peking. 30.4.2012 15:07
Ný aðferð við meðhöndlun krabbameins í brisi Breskir vísindamenn hafa þróað nýja aðferð við meðhöndlun krabbameins í brisi. Þessi tiltekna tegund krabbameins er afar mannskæð og er talið að færri en einn af hverjum fimm sem greinast með það séu á lífi ári eftir greiningu. 30.4.2012 14:46
Fangelsi fyrir landabrugg og kannabisrækt á sama staðnum Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í héraðsdómi í átta mánaða fangelsi fyrir kannabisræktun og fyrir að brugga landa, á sama stað í íbúð í Breiðholti. Maðurinn játaði sök að því er varðaði framleiðslu á kannabis og landa en hann neitaði því hinsvegar að framleiðslan væri hugsuð til sölu og dreifingar. 30.4.2012 14:36
Drukknaði þegar bíllinn fór á kaf Yfirvöld í Bretlandi óttast að mikil flóðatíð sé nú að hefjast í landinu. Síðustu daga hefur veður verið afar vindasamt og blautt á Bretlandseyjum og er óttast að ár fari brátt að flæða yfir bakka sína. 30.4.2012 14:09
IKEA gefur viðskiptavinum myndavél Sænski húsgagnaframleiðandinn IKEA hefur opinberað vistvæna myndavél sem fyrirtækið mun gefa viðskiptavinum sínum. Myndavélin er nær eingöngu gerð úr pappa. 30.4.2012 13:19
Tveir handteknir fyrir innbrot og árás á húsráðanda Lögreglan á Suðurnesjum handtók snemma í gærmorgun tvo karlmenn á þrítugsaldri eftir að hópur manna hafði ruðst inn hjá karlmanni á fertugsaldri, með því að brjótast í gegnum framhurð húsnæðisins þar sem hann býr. Að sögn lögreglu leikur grunur á að þeir sem brutust þar inn hafi misþyrmt húsráðandanum, meðal annars barið hann með spýtu sem fannst á vettvangi. 30.4.2012 13:19
Sex skipulagsdagar algjört lágmark Formaður félags stjórnenda leikskóla segir að atvinnulífið þurfi að virða gildi fjölskyldunnar og veita foreldrum svigrúm til að sinna börnum sínum. Hún segir sex skipulagsdaga leikskólakennara á ári algjört lágmark. 30.4.2012 12:03
Tugir látnir eftir sjóslys í Indlandi Að minnsta kosti 35 drukknuðu þegar farþegaferja fórst í Brahmputra ánni í norðausturhluta Indlands fyrr í dag. 30.4.2012 15:49
Ghanem drukknaði í Dóná Ekkert er sagt benda til þess að andlát Shukri Ghanem fyrrverandi olíumálaráðherra Líbíu hafi borið að með saknæmum hætti en lík hans fannst í Dóná í Vínarborg í gær. Að sögn lögreglu drukknaði Ghanem og enn sem komið er bendir ekkert til að hann hafi verið myrtur. 30.4.2012 13:49
Níu látnir eftir að eldingu laust niður í hof Níu létust og 15 særðust þegar eldingu laust niður í musteri í vestur Bengal á Indlandi í gær. 30.4.2012 13:39
Fjörutíu stöðvaðir fyrir að tala í símann undir stýri Fjölmargir ökumenn hafa undanfarið verið stöðvaðir fyrir að tala í síma án þess að nota handfrjálsan búnað. Í tilkynningu frá lögreglu segir að fjörutíu ökumenn hafi til að mynda verið stöðvaðir vegna þessa á höfuðborgarsvæðinu og eiga þeir allir fimm þúsund króna sekt yfir höfði sér. "Lögreglan hvetur ökumenn til að láta af þessu í umferðinni, bæði til þess að koma í veg fyrir auka útgjöld og ekki síst til að stuðla að meira öryggi í umferðinni,“ segir þar. 30.4.2012 13:07
Kínverjar skjóta gervitunglum á sporbraut um jörðu Geimferðastofnun Kína skaut tveimur gervitunglum á sporbraut um jörðu í nótt. Þannig eru yfirvöld í landinu komin skrefinu nær því að fullklára hnattrænt staðsetningarkerfi sitt. 30.4.2012 12:46
Typpi lofuð í hástert Leit stofnanda Hins íslenska reðasafns að mannslim til að fullkomna safnið er umfjöllunarefni nýrrar heimildarmyndar sem verður frumsýnd á Hot Docs Canadian International Documentary Festival á morgun. 30.4.2012 12:30
Hannes forsetaframbjóðandi: Vonbrigði hversu fáir mæta á fundi Hannes Bjarnason forsetaframbjóðandi segir það vonbrigði hversu fáir mæta á framboðsfundi sem hann heldur nú víða um land. Enginn mætti á fund Hannesar á Eskifirði í gær nema blaðamaður Austurgluggans, ekki einu sinni Hannes sjálfur. 30.4.2012 12:28
Mál al-Khawaja tekið fyrir á ný Mál stjórnarandstæðingsins Abdulhadi al-Khawaja verður tekið fyrir á ný af dómstólum í Barein. Abdulhadi, sem er danskur ríkisborgari, var dæmdur í lífstíðarfangelsi af herdómstól í Barein í júní á síðasta ári. 30.4.2012 12:27
Guðbjartur: Tókst að verja lágtekjuhópana á kostnað hinna Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir skýrslu Þjóðmálastofnunar Háskóla Íslands um áhrif hrunsins á lífskjör þjóðarinnar staðfesta árangur stjórnvalda í tekjujöfnun. Tekist hafi að verja lágtekjuhópa á kostnað hinna. 30.4.2012 12:15
Árásir halda áfram í Nígeríu Að minnsta kosti þrír létust í sprengjuárásum í norðaustur Nígeríu í dag. Árásin átti sér stað í bænum Jalingo og beindist hún að bílalest lögreglunnar. 30.4.2012 11:37
Brutust inn og stálu kartöfluflögum - gripnir með kámuga fingur Þrír drengir laumuðust inn lager í verslun á Akranesi í vikunni og stálu þaðan kassa af kartöfluflögum. Í tilkynningu frá lögreglu segir að árvökull borgari hafi séð til þeirra látið lögreglu vita. 30.4.2012 11:20
Mæður sem missa börn fái betri aðstöðu „Ég man að ég þurfti alltaf að hafa gluggana lokaða á herberginu svo ég heyrði ekki barnagrátinn yfir til mín. Það var mjög erfitt,“ segir Kristín Guðmundsdóttir handboltakona sem var gengin 19 vikur þegar hún missti tvíburadrengi sína. 30.4.2012 11:00
Kreppan beit mest á hátekjuhópa - áhrifin minni á lágtekjufólk Ný úttekt sem Þjóðmálastofnun Háskóla Íslands gerði að beiðni velferðarráðuneytisins á stöðu lágtekjuhópa í kreppunni og hvernig tekist hafi að ná markmiðum stjórnvalda um að milda áhrif kreppunnar meðal fólks með lágar og millitekju var kynnt í ráðuneytinu í dag. Úttektina unnu þeir Stefán Ólafsson prófessor og Arnaldur Sölvi Kristjánsson hagfræðingur. Niðurstöðurnar sýna að sú kjaraskerðing sem hlaust af hruninu var óvenju stór í sögulegu samhengi. "Umtalsverður árangur náðist þó í að milda áhrif kreppunnar á afkomu lægri og milli tekjuhópa, um leið og hlutfallslega meiri byrðar lögðust á hærri tekjuhópa. 30.4.2012 10:24
Keppni um stað undir „nýja Valhöll“ „Ég held að fáir hafi áttað sig á hvað þeir áttu fyrr en þeir voru búnir að missa Valhöll,“ segir Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar, sem nú undirbýr samkeppni um staðarval fyrir „nýja Valhöll“. 30.4.2012 10:00
1.maí haldinn hátíðlegur um allt land Hátíðarhöld á 1. maí, baráttudegi verkalýðsins verða vítt og breitt um landið í ár eins og undanfarna áratugi. ASÍ hefur birt lista yfir allar þær samkomur sem sambandið hefur vitneskju um og verða samkomur og kaffisamsæti að minnsta kosti á 37 stöðum á landinu. Í Reykjavík verður safnast saman á Hlemmi klukkan eitt og leggur kröfuganga af stað hálftíma síðar niður Laugaveginn. Útifundur hefst síðan á Ingólfstorgi klukkan 14:40. 30.4.2012 09:34
Kannanir benda til aukinnar streitu Átta af tíu samevrópskum skoðanakönnunum sýna að fólk hefur áhyggjur af vinnutengdri streitu. Að könnuninnni stóð Ipsos MORI fyrir hönd Vinnuverndarstofnunar Evrópu. Könnuð voru viðhorf 35 þúsund manns í 36 Evrópulöndum til málefna sem tengjast vinnuvernd. 30.4.2012 09:00
Ósáttir við samskipti við ráðuneytin Fleiri forstöðumenn ríkisstofnana eru óánægðir með samskipti sín við ráðuneyti nú en árið 2007. Verulega hefur dregið úr ánægju stofnananna með samskipti við fjármálaráðuneytið. Þetta kemur fram í könnun á störfum og starfsskilyrðum forstöðumanna ríkisstofnana, sem var gerð á vegum fjármálaráðuneytisins, Félags forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands. 30.4.2012 08:00
Eftirlit og björgun mikilvægari Staðsetning Íslands gerir það að verkum að landið verður í lykilstöðu nú þegar áhersla á norðurslóðir fer að aukast segir sérfræðingur í öryggismálum. Hlutverk Íslands verður ekki síst á vettvangi eftirlits- og björgunarmála á hafinu. 30.4.2012 07:00
Danir orðnir drykkfelldari en Grænlendingar Danir njóta nú þess vafasama heiðurs að verða orðnir drykkfelldari en Grænlendingar. 30.4.2012 06:55
Síðustu hálkublettirnir að hverfa fyrir austan Síðustu hálkublettirnir hverfa væntanlega af Mjóafjarðarheiði og Fjarðarheiði á Austufjörðum í dag, því eftir kalsaveður eystra að undanförnu hefur myndast hálka á fjallvegum þar. 30.4.2012 06:49