Fleiri fréttir

Mattel framleiðir svifbretti

Leikfangaframleiðandinn Mattel hefur hafið framleiðslu á eftirlíkingu af svifbrettinu sem Marty McFly notaði í kvikmyndunum vinsælu Back to the Future. Því miður svífa brettin ekki en aðdáendur kvikmyndanna geta eflaust sætt sig við það.

Göngumennirnir heilir á húfi

Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, lenti með þrjá göngumenn á Hvolsvelli nú fyrir stuttu. Mennirnir þrír lentu í sjálfheldu í hlíðum Eyjafjallajökuls fyrr í kvöld.

Göngumenn í sjálfheldu á Eyjafjallajökli

Þrír göngumenn lentu í sjálfheldu í hlíðum Eyjafjallajökul í kvöld. Björgunarþyrlan Kná var kölluð út í kjölfarið og lagði af stað frá Reykjavík stuttu seinna.

Adele æf vegna meints kynlífsmyndbands

Hin margverðlaunaða söngkona Adele hefur fyrirskipað lögfræðingum sínum að kæra franskan ljósmyndara fyrir að birta kynlífsmyndband þar sem hún er sögð vera í aðalhlutverki.

Þjóðverjar velja tökuorð ársins: "hægðalægð"

Val á tökuorði ársins í Þýskalandi er lokið. Hópur fræðimanna komst að þeirri niðurstöðu að enska orðið "shitstorm" sé það orð sem hafi haft hvað mesta þýðingu fyrir landið á síðustu 12 mánuðum.

"Stjórnvöld og fjármálastofnanir beittu efnahagslegu ofbeldi"

Hagsmunasamtök heimilanna fagna niðurstöðu Hæstaréttar varðandi gengistryggð lán. Í tilkynningu frá samtökunum segir að stjórnvöld og fjármálastofnanir landsins hafi beitt tugi þúsunda heimila efnahagslegu ofbeldi með verkum sínum.

Slást um að kaupa gull af Íslendingum

Slegist var um að kaupa gull af Íslendingum á hóteli í Reyjavík í dag. Gullkaupmenn segja óvenjumarga vera að reyna að selja dýrgripina sína.

Flugskýli Icelandair hrópar á fleiri flugvirkja

Hlutfall Suðurnesjamanna í viðhaldsstöð Icelandair á Keflavíkurflugvelli hefur fimmfaldast frá því flugskýlið var opnað. Skortur er nú á flugvirkjum. Það þótti ekki endilega sjálfsögð ákvörðun hjá Icelandair fyrir rúmum tuttugu árum að byggja upp fullkomna viðhaldsstöð fyrir flugflota sinn á Íslandi.

Biður fólk um að sýna þolinmæði vegna dóms Hæstaréttar

Efnahags- og viðskiptaráðherra segir svigrúm bankanna til afskrifta ekki vera meira þrátt fyrir að þeir geti tekið á sig tug milljarða tjón vegna gengistryggðra lána. Það sé algjörlega óskylt almennri niðurfærslu lána. Forsætisráðherra segir fólk þurfa að sýna þolinmæði.

Gamlinginn verður kvikmyndaður

Sigurjón Sighvatsson hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á metsölubókinni Gamlingjanum. Myndin er væntanleg í kvikmyndahús undir lok næsta árs.

Hefur áhyggjur af gerð rammaáætlunar

Orkufyrirtækin eru ósátt við hversu langan tíma það hefur tekið að klára rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúruauðlinda og óttast að málið dagi uppi á Alþingi.

Steypubíll rann út af vegi á Akureyri

Ökumaður steypubíls á Akureyri þvertók fyrir að fara í snemmbúið helgarfrí þegar bíll hans rann út af veginum við Glerá í dag. Atvikið átti sér stað um tvöleytið og var beltagrafa notuð til að koma steypubílnum aftur upp á veginn.

Greiðslukortið er á leið í snjallsímann

Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor, segir að Ísland sé leiðandi í þróun á greiðslumöguleikum í gegnum snjallsíma. Viðar var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag.

Ríkissaksóknari: Dómurinn skýr og mikilvægt fordæmi

Niðurstaða Hæstaréttar í máli ákæruvaldsins á hendur Baldri Guðlaugssyni er í takt við það sem ákæruvaldið lagði upp með. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sigríði J. Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara.

Mikil aukning á hjólreiðum í Reykjavík

Mikil aukning hefur orðið á hjólreiðum í Reykjavík samkvæmt nýrri og viðamikilli ferðavenjukönnun sem gerð hefur verið fyrir höfuðborgarsvæðið. 3,8% aðspurðra fara allra ferða sinna á reiðhjóli, en aðeins 0,8 % svöruðu á þennan veg árið 2002 þegar sambærileg könnun var gerð. Talan hækkar í 4,6% ef aðeins svör Reykvíkinga eru skoðuð. Flestar ferðir voru farnar á reiðhjóli í Miðborginni, Vesturbæ, Laugardal og Árbæ eða 6-7%. 61% aðspurðra segjast hjóla allt árið um kring eða hluta úr ári, en 39% aldrei.

Ólafur Börkur vildi vísa málinu frá

Einn dómari skilaði sérákvæði í Hæstarétti í dag í máli Baldurs Guðlaugssonar. Það var Ólafur Börkur Þorvaldsson. Hann vildi vísa málinu frá dómi. Í þeim hluta sératkvæðisins er hann fjallar um efnislega hlið málsins kemst hann jafnframt að þeirri niðurstöðu að ef ekki séu efni til að vísa málinu frá dómi, beri að sýkna.

Jóhanna tók á móti japanskri sendinefnd

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók í morgun á móti sendinefnd frá Japan, sem leidd er af hópi japanskra þingmanna, með þátttöku fulltrúa japanskra fyrirtækja og stofnana. Þetta kemur fram á vef forsætisráðuneytisins.

Ungir jafnaðarmenn vilja frjálsa opnunartíma skemmtistaða

Hallveig Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík, telja að opnun skemmtistaða í miðborg Reykjavíkur eigi að vera gerð frjáls. Þetta kemur fram í ályktun frá félaginu. Þar segir ennfremur að stjórnin Hallveigar UJR telji að það sé ekki í verkahring borgaryfirvalda að stjórna opnun skemmtistaða.

Frosti vill fá nefið sitt aftur

Sá dularfulli atburður gerðist á dögunum að óprúttinn þjófur stal nefi af risastórum snjókarli sem er staðsettur á Ráðhústorginu á Akureyri.

Menningarfylgd Birnu fagnar 10 ára afmæli sínu

Á morgun, laugardag, fagnar Menningarfylgd Birnu ehf. tíu ára afmæli. Í tilefni afmælis býður Birna Þórðardóttir upp á klukkutíma afmælisgöngu um ljúfa staði miðborgarinnar.

Fimm mánaða fangelsi fyrir rangar sakargiftir

Rúmlega þrítugur karlmaður var dæmdur í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Maðurinn varð uppvís af því að aka margsinnis undir áhrifum fíkniefna auk þess sem hann braust inn á veitingastað en þaðan stal hann spilapeningum.

Átökin harðna dag frá degi

Sýrlandsher lagði til atlögu gegn borginni Daraa í Sýrlandi í gær, en þar í borg hófust mótmælin gegn Bashar al-Assad forseta í mars á síðasta ári.

Þurftu að laga dóminn yfir Baldri

Hæstiréttur hætti við að kveða upp dóm í innherjasvikamáli Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, í gær eins og til hafði staðið samkvæmt dagskrá. Dómurinn verður í staðinn kveðinn upp klukkan 13.30 í dag.

Bílskúr brann til grunna

Eldur kom upp í frístandandi bílskúr úr timbri við einbýlishús við Keilufell í Reykjavík um klukkan hálf tvö í nótt.

Reyndu að fela fíkniefni í nærbuxunum

Lögreglumönnum á Selfossi þótti mannskapurinn eitthvað grunsamlelgur, um borð í bíl sem þeir stöðvuðu við venjulegt eftirlit í gærkvöldi og var kallað eftir fíkniefnahundi til að kanna málið nánar.

Evrópuþingið vill skákkennslu í alla grunnskóla

Evrópuþingið vill að skák verði kennd við alla grunnskóla í Evrópusambandinu. Ganga á til atkvæðagreiðslu um málið í næsta mánuði og það yrði þá sent framkvæmdanefnd sambandsins til afgreiðslu í framhaldinu.

Vafasamt greiðslumat leysir fólk undan ábyrgð á lánum

Héraðsdómur leysir mann undan ábyrgð á láni bróður síns því að Íslandsbanki á engin gögn um greiðslumat. Getur haft áhrif á fjölmarga, segir umboðsmaður skuldara. Fallið frá ábyrgð í þriðjungi vafamála.

Ólíkar væntingar um vöxt fjárfestingar

Talsverður munur er á nýbirtum hagvaxtarspám Seðlabankans og ASÍ. Seðlabankinn spáir 2,5% hagvexti á þessu ári en spá ASÍ hljóðar upp á 1,5% vöxt. Skýrist munurinn að stórum hluta af ólíkum væntingum um vöxt fjárfestingar í hagkerfinu.

Sjá næstu 50 fréttir