Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Herdís endurkjörin formaður Evrópusamtaka kvenlögfræðinga Dr. Herdís Þorgeirsdóttir var endurkjörin forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga (EWLA) á aðalfundi samtakanna í Berlín nú í nóvember. Í tilkynningu segir að hafi verið sóttur af kvenlögfræðingum víða að úr Evrópu sem og fulltrúum aðildarfélaga samtakanna sem eru félög kvenlögfræðinga og lögmanna víðsvegar um álfuna. „Forseti samtaka kvenlögfræðinga í Þýskalandi sat fundinn en þau samtök hafa verið öflugur bakhjarl EWLA frá upphafi. Fundarstaðurinn að þessu sinni var Mannréttindastofnun Þýskalands en henni veitir forstöðu fyrrum varaforseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga Dr. Beate Rudolp lagaprófessor.“ 7.11.2011 15:47
Salvör formaður samráðshóps í tengslum við ESB viðræður Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, skipaði í dag Salvöru Nordal, heimspeking og forstöðumann Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, formann samráðshóps í tengslum við samningaviðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Varaformenn samráðshópsins eru Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur og forseti Sögufélags og Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. 7.11.2011 15:19
Kannabisræktun í Kópavogi Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Kópavogi á laugardag. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á tæplega 20 kannabisplöntur, auk græðlinga, og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Á sama stað var einnig að finna töluvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Karl um fertugt var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu. 7.11.2011 15:12
Skiluðu fullu veski af peningum Tvær skilvísar og strangheiðarlegar stúlkur komu við á lögreglustöðinni við Hverfisgötu aðfaranótt sunnudags og afhentu peningaveski sem þær höfðu fundið í miðborginni. Í veskinu var talsvert af peningum sem og skilríki og því tókst að finna eigandann. Sá reyndist vera maður á miðjum aldri en viðkomandi var afar þakklátur þegar hann kom og sótti veskið og hefur vafalaust hugsað hlýlega til stúlknanna. 7.11.2011 15:07
Lindsey Lohan laus úr fangelsi eftir fjóra tíma Kvikmyndastjarnan Lindsey Lohan hefur verið sleppt úr fangelsi, aðeins rúmum fjórum klukkustundum eftir að hún hóf afplánum. Hún átti að sitja inni í þrjátíu daga en sökum þess að fangelsið var yfirfullt var ákveðið að sleppa henni að nýju. Leikkonan, sem er 25 ára gömul, átti að fara í steininn en hún stal hálsfesti og braut þar af leiðandi skilorð sem hún var. 7.11.2011 14:39
Hundur beit konu Kona á miðjum aldri var bitin af hundi í Hafnarfirði á föstudag. Hún var á göngu í íbúðahverfi þegar þetta gerðist en konan var bitin í handlegginn. Við það skemmdist úlpan hennar en meiðsli konunnar voru hins vegar óveruleg. Eigandi hundsins féllst á að borga konunni skaðabætur vegna úlpunnar og skildu báðir aðilar sáttir eftir því sem best er vitað. 7.11.2011 14:21
Sjö teknir fyrir ölvunarakstur Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, þrír á laugardag og tveir á sunnudag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er um að ræða karlmenn á aldrinum 20-54 ára og þrjár konur, 32-74 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Þá var einn tekinn fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna en um var að ræða 18 ára pilt sem var stöðvaður á Sæbraut í gærmorgun. 7.11.2011 14:19
Bergljót söng um kærleikann frammi fyrir þúsundum Bergljót Arnalds flutti lag á hátíðinni Hjertefred í Noregi, sem haldinn var í gær á Allraheilagramessu, þar sem látinna var minnst. Þúsundir sóttu hátíðina, enda var fólk meðal annars komið til að minnast fórnarlamba voðaverkanna í Útey. "Þetta var mikil upplifun,“ segir Bergljót í samtali við Vísi. 7.11.2011 13:50
Kæru kassastráksins í Hagkaupum vísað frá Kærunefnd jafnréttismála hefur ákveðið að vísa kæru Halls Reynissonar frá. Forsaga málsins er sú að VR hratt af stað átaki sem ætlað var að vekja athygli á launamuni kynjanna. Nokkrar verslanir tóku sig til og veittu konum 10 prósent afslátt yfir eina helgi. Hallur, sem starfar á afgreiðslukassa í Hagkaupum á Akureyri, ákvað að kæra fyrirtækin og VR að auki til kærunefndar jafnréttismála. 7.11.2011 13:33
Hrina nauðgana í Noregi - Stoltenberg leitar ráða hjá Dönum Alda nauðgana hefur gengið yfir Ósló það sem af er ári. Tvöfalt fleiri tilfelli en í fyrra þar sem ráðist er á konur að nóttu til. Rannsóknir ganga illa og dómar eru vægir. Stoltenberg leitar ráða í Kaupmannahöfn. 7.11.2011 13:00
Hjólastóllinn kominn í leitirnar Fatlaður maður sem varð fyrir því að hjólastóllinn hans var fjarlægður á meðan hann var í göngutúr með aðstoðarmanni sínum, fær stólinn sinn aftur í dag. Móðir mannsins telur að þarna hafi verið á ferðinni einstaklingur með brenglað skopskyn. 7.11.2011 12:15
Þriðjungur landsmanna í námi í fyrra Tæpur þriðjungur landsmanna lagði stund á einhverskonar nám á síðasta ári, en mun algengara er að konur sæki sér fræðslu en karlar. 7.11.2011 12:02
Lögreglumaður kærður fyrir kynferðisbrot gegn tíu ára stúlku Lögreglumaður hefur verið kærður fyrir að beita tíu ára stúlku kynferðislegu ofbeldi. Lögreglumaðurinn er enn við störf. 7.11.2011 12:00
Kókaínmál á Selfossi: Allir lausir úr haldi - úrskurðaðir í farbann Héraðsdómur Suðurlands féllst ekki á kröfu lögreglunnar á Selfossi á laugardaginn um að þrír Litháar myndu sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi eftir að um 400 grömm af kókaíni fundust í fórum þeirra í sumarbústað í Árnessýslu fyrir um ellefu dögum síðan. 7.11.2011 11:49
Rændu sex þúsund eintökum af Modern Warfare 3 Tveir grímuklæddir menn vopnaðir hnífum og táragasi rændu flutningabíl í París í gær. Þeir höfðu upp úr krafsinu sexþúsund eintök af tölvuleiknum Modern Warfare 3 sem kemur í verslanir um allan heim á morgun. 7.11.2011 11:36
Samkeppni um nýtt hótel við Ingólfstorg Samkeppni um hönnun við sunnanvert Ingólfstorg á að ná fram heildarlausn fyrir skipulag svæðisins, þar á meðal er 130 herbergja hótel. Einnig er ætlunin að „laða fram lausnir á framtíð húsanna við Vallarstræti 4 og Aðalstræti 7“. 7.11.2011 11:00
Rannsóknin gengur ágætlega - gæsluvarðhald rennur út á morgun Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmesta fíkniefnamáli ársins er í fullum gangi og gengur ágætlega, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns. 7.11.2011 10:58
Veggjöld forsenda fyrir Vaðlaheiðargöngum Vaðlaheiðargöng verða ekki til nema þau verði framkvæmd með veggjöldum, sagði Ögmundur Jónasson, ráðherra samgöngumála, á opnum fundi í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis í morgun. 7.11.2011 10:33
Íslenski hesturinn í miðborg Berlínar Heimsmeistaramót íslenska hestsins árið 2013 verður haldið í Berlín og er þetta í fyrsta sinn sem mótið er haldið í miðri stórborg. Rúnar Þór Guðbrandsson, tengiliður undirbúningsnefndar á Íslandi, segir mikinn áhuga fyrir mótinu. 7.11.2011 10:00
Veðmálasíða telur meiri líkur á að Hanna Birna nái kjöri Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, bítast um formannsstólinn á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem fram fer daganna 17. til 20. nóvember næstkomandi. 7.11.2011 09:39
Margir sækja símenntun á Íslandi Ísland er í þriðja sæti 33 Evrópuþjóða þegar litið er á þátttöku 25-64 ára í símenntun, með 25,2% þátttöku. Aðeins í Danmörku og Sviss er þátttakan meiri en á Íslandi. Meðaltal Evrópusambandslandanna 27 er 9,1%. Þátttaka í símenntun í Evrópu er meiri í norðvestur Evrópu en minni sunnar og austar í álfunni. 7.11.2011 09:22
Hjólastólnum stolið af fötluðum manni „Ég er orðin svo gömul að ég er nánast alveg hætt að verða hissa yfir nokkrum hlut, en ég er mjög hissa yfir þessu. Ég trúi þessu eiginlega ekki,“ segir Dóra Bjarnason prófessor. Fatlaður sonur Dóru, Benedikt Hákon Bjarnason, varð fyrir því að hjólastól hans var stolið meðan hann brá sér í göngutúr með aðstoðarkonu sinni síðastliðinn þriðjudag. 7.11.2011 09:00
Sjakalinn aftur fyrir rétt í Frakklandi Einn alræmdasti hryðjuverkamaður heimsins, Sjakalinn, kemur aftur fyrir rétt í París í Frakklandi í dag. 7.11.2011 08:04
Lögreglan á Akranesi rannsakar sauðaþjófnað Lögreglan á Akranesi hefur nú meintan sauðaþjófnað til rannsóknar. Málið snýst um hrútlamb, sem hvarf úr girðingu í Skorradal nýverið en sást svo í girðingu frístundabónda við Akranes. 7.11.2011 07:59
Kanna leit að stýri flutningaskipsins Ölmu Verið er að kanna möguleika á að kafarar kafi niður í ósinn utan við Höfn í Hornafirði til að freista þess að finna stýri flutningaskipsins Ölmu, sem datt þar af skipinu aðfararnótt laugardags. 7.11.2011 07:55
Venesúelamær kjörin Ungfrú heimur Það var 22 ára gömul stúlka frá Venesúela sem kjörin var Ungfrú heimur við hátíðlega athöfn í London í gærkvöldi. 7.11.2011 07:54
Ljón truflaði lestarferð í Englandi Farþegum með járnbrautarlest í vesturhluta Yorkshire í Englandi var bannað að stíga af lestinni í bænum Shepley í gærdag þar sem sést hafði til ljóns á vappi um brautarteinanna. 7.11.2011 07:52
Kornhæna í vörslu lögreglunnar á Selfossi Lítil kornhæna er nú í vörslu lögreglunnar á Selfossi og hefst þar við upp á vatn og brauð. 7.11.2011 07:50
Fólk flutt úr miðborg Bangkok vegna flóðanna Fljóðin í Taílandi hafa nú náð að miðborg Bangkok og byrjað er að flytja fólk frá þeim borgarhluta. Þar með hefur þriðjungur borgarbúa neyðst til þess að flýja heimili sín vegna flóðanna. 7.11.2011 07:47
Aurskriður valda manntjóni í Kólombíu Að minnsta kosti 24 hafa farist og tuga er saknað eftir miklar aurskriður í vesturhluta Kólombíu. 7.11.2011 07:46
Nokkur samdráttur í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu Umferð á þremur mælistöðvum Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu dróst saman um rösklega þrjú prósent í síðasta mánuði, sem er heldur minni samdráttur en á hringveginum. 7.11.2011 07:41
Loðnuvertíðin fer óvenjuhægt af stað Loðnuvertíðin fer óvenju hægt af stað, en hún hófst um næstsíðustu mánaðamót. Fyrst voru skipin upptekin við makríl- og síldveiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum. Síðan kom þrálát norðan bræla þannig að skipin gátu ekki veitt, og síðustu daga hafa skipin verið að fá smá slatta norðaustur af Horni, en loðnan hefur verið svo smá að búið er að loka veiðisvæðinu. 7.11.2011 07:25
Fyrrum bankastjóri líklegur sem næsti forsætisráðherra Grikklands George Papandreou forsætisráðherra Grikklands og Antonis Samaras leiðtogi stjórnarandstöðunnar hafa komist að samkomulagi um þjóðstjórn. Jafnframt verður efnt til nýrra kosninga í landinu þann 19. febrúar næstkomandi. 7.11.2011 07:21
Ólögleg lyf flæða yfir Norðurlönd í gegnum netið Ólögleg lyf sem keypt eru á netinu flæða nú yfir Norðurlöndin sem aldrei fyrr. Yfirleitt er um falskar útgáfur af stinningarlyfjum að ræða en sterar eru einnig áberandi. 7.11.2011 07:19
Vilja opinbera rannsókn á tengslum dansks ráðherra við KGB Stjórnarandstaðan á danska þinginu hefur krafist opinberrar rannsóknar á tengslum Ole Sohn viðskiptaráðherra landsins við KGB, fyrrum leyniþjónustu Sovéríkjanna sálugu. 7.11.2011 07:16
Ekki fleiri íþróttahús fyrr en hin fullnýtast Ný íþróttamannvirki með mikla afkastagetu á ekki að byggja á höfuðborgarsvæðinu fyrr en sveitarfélögin á svæðinu hafa komið sér saman um staðsetninguna. Þetta er ein tillagna sameiginlegs starfshóps sveitarfélaganna. 7.11.2011 07:00
Tímamót í aðgangi að rannsóknagögnum Gögn og upplýsingar úr Íslensku kosningarannsókninni, yfirgripsmikilli rannsókn á kosninga- og stjórnmálahegðun Íslendinga allt frá alþingiskosningunum árið 1983, eru nú aðgengilegar á vef Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands (HÍ) www.fel.hi.is. 7.11.2011 06:00
Má ekki hækka stjarnfræðilega „Spurningin er hvar sársaukamörkin liggja,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, um tillögu um verulega hækkun gjalds fyrir stakar ferðir í sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu. Hugmyndin er að ferðamenn og aðrir sem ekki búa á svæðinu greiði stærri hluta af kostnaði við rekstur sundstaða. 7.11.2011 06:00
Snúa baki við einkavæðingu Yfir eitt hundrað orkufyrirtæki í Þýskalandi, sem áður höfðu verið einkavædd, hafa verið keypt til baka til hins opinbera. Þá hafa verið stofnuð 44 ný opinber orkufyrirtæki frá árinu 2007, eins og kemur fram í grein á heimasíðu Evrópusamtaka stéttarfélaga á opinberum vinnumarkaði (EPSU). 7.11.2011 04:00
Klónaræktun í Grasagarðinum Grasagarður Reykjavíkur og Erfðanefnd landbúnaðarins hafa gert með sér samning um að Grasagarðurinn varðveiti safn rabarbaraklóna sem lengi hafa verið í ræktun á Íslandi. Með undirritun samningsins er plöntunum tryggður vaxtarstaður til framtíðar, segir í tilkynningu. Erfðanefnd landbúnaðarins leggur áherslu á að leita eftir samstarfi við grasagarða og 7.11.2011 03:15
Loftsteinn rekst næstum á jörðina á þriðjudaginn Stærðarinnar loftsteinn mun hendast milli jarðarinnar og tunglsins á þriðjudaginn kemur. Steinninn er 400 metrar að þvermáli, en svo stór steinn hefur ekki komið jafn nálægt jörðinni í 35 ár. Vísindamenn segjast 100% öruggir um að hann muni ekki skella á jörðinni, en árekstur jarðarinnar og loftsteins af þessari stærð er talinn gerast einu sinni á 100 þúsund ára fresti eða svo. En vísindamenn segja þetta ákveðið tækifæri. Ein kenning gerir ráð fyrir að loftsteinar af þessari tegund hafi borið vatn og lífeindir til jarðarinnar í fyrndinni. Ef vísindamönnum tækist að finna slíkar eindir á þessum steini myndi það styðja þá kenningu. Auk þess er loftsteinn einnig á lista Geimferðastofnunar Bandaríkjanna (NASA) yfir áfangastaði. Hvergi kemur þó fram að NASA ætli að reyna að lenda á steininum. 6.11.2011 21:18
Hreinsi-glaður starfsmaður eyðilagði rándýrt listaverk Listaverk sem metið var á tæpar 130 milljónir króna varð hreingerningargleði starfsmanns listasafns að bráð þegar hann tók málningu fyrir óhreinindi og skrúbbaði hana sómasamlega af verkinu. Verkið var nefnt "Þegar þakið fer að leka" og var eftir samtímalistamanninn Martin Kippenberger. Það var til sýningar á Ostwall safninu í Dortmund. Verkið var einhvers konar gúmmí-trog eða ílát undir viðarvegg. Á trogið höfðu verið málaðar skellur sem áttu að líkjast vatnsblettum. Starfsmaður safnsins rak augun í blettina, hélt þá raunverulegar vatnsskemmdir eða óhreinindi og nuddaði þá af. Nú er að sögn ómögulegt að koma verkinu í fyrra horf eða lagfæra skemmdirnar. 6.11.2011 20:48
Vefsíður hrynja í Ísrael Opinberar vefsíður í Ísrael hrundu í dag. Meðal annars lokaðist síða leyniþjónustunnar Mossad, talsmanns hersins og nokkurra ráðuneyta. Stjórnvöld í Ísrael hafa vísað því á bug að um árás sé að ræða, en margir höfðu spurt sig hvort stuðningsmenn Palestínu ættu sök á hruninu. Stjórnvöld segja að aðeins sé um umfangsmikla tæknilega galla að ræða. Verkalýðsfélög höfðu tilkynnt fyrirhuguð verkföll í landinu. Þau eiga að hefjast á morgun klukkan sex að staðartíma. Verkföllin munu valda því að samgöngur landsins lamast, flugvöllur lokast og fleira. Ekki hefur neitt komið fram um að hrunið á vefsíðunum tengist verkfallinu á nokkurn hátt. 6.11.2011 20:21
Google biðst afsökunar á klúðri Síðasta vika var fremur illa heppnuð hjá tæknirisanum Google. Á miðvikudaginn var birtu þeir ofangreinda tilkynningu á twittersíðu sinni. Ástæðan var póstforritið gmail, sem Google höfðu hannað fyrir stýrikerfi Apple og sent frá sér í vikunni. Og ekki nóg með það, heldur sendi Google einnig frá sér uppfærða útgáfu af Google Reader í vikunni. Því var beinlínis lýst sem "hörmungum". 6.11.2011 18:07
Ekki lagaheimild til að leigja makrílkvóta Bjarni Harðarson upplýsingafulltrúi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins telur grein Magnúsar Orra Schram frá því í gær ómaklega. Í greininni sakar Magnús stjórnvöld um að hafa misst af tekjum upp á 6 milljarða þegar þeir úthlutuðu makrílkvóta án þess að rukka gjald fyrir. "Það er alveg ljóst að ráðherra hefur ekki lagaheimild til að innheimta sérstakt gjald eins og Magnús Orri Schram leggur til," segir Bjarni og bætir við að síðan Íslendingar byrjuðu stórfellda makrílveiði hafi ekki komið fram sérstakar tillögur á Alþingi um að farið væri í slíka gjaldtöku fyrir makríl. Nú sé enda í gangi heildarendurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins. 6.11.2011 16:58