Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segja sig úr VG Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason hafa ákveðið að segja sig úr VG. Lilja er ósátt við margt innan flokksins og hyggst stofna nýtt stjórnmálaafl. 29.10.2011 12:03
Daglega gerðar 600 þúsund tilraunir til tölvubrota Á hverjum degi eru gerðar um 600 þúsund tilraunir til þess að brjótast inn á læstar Fésbókarsíður, eftir því sem fram kemur á vef Daily Telegraph. Með innbrotunum vilja tölvuþrjótar ná aðgangi að skilaboðum, myndum og persónulegum upplýsingum sem almenningur hefur sett á síðurnar sínar. Sérfræðingar í öryggismálum segja að þessar tölur séu allt of háar og að fólk verði að huga betur að því hvaða lykilorð það velur sér og á hvaða hlekki það smellir á fésbókinni. 29.10.2011 11:54
Enn skelfur í Mýrdalsjökli Þrír skjálftar urðu nærri Goðabungu í Mýrdalsjökli á tíunda tímanum í morgun. Sá snarpasti var 3,6 á Richter, en hann var töluvert djúpur eða á 5,9 kílómetra dýpi, samkvæmt mælum Veðurstofunnar. Annar var 2,4 á Richter og sá þriðji var 1,9 á Richter. Hinir tveir síðarnefndu voru öllu grynnri en sá fyrsnefndi. Töluverð virkni hefur verið á svæðinu undanfarnar vikur og mánuði. 29.10.2011 11:34
Jackson sprautaði sig sjálfur Poppstjarnan Michael Jackson sprautaði sig sjálfur með lyfjunum sem drógu hann til dauða fyrir rúmum tveimur árum. Þetta er mat svæfingalæknis sem bar vitni í réttarhöldunum yfir Conrad Murray lækni söngvarans í gær. Hann telur engar sannanir vera fyrir því að Murray hafi gefið söngvaranum svæfingalyfið propofol rétt fyrir andlátið, líkt og áður hefur verið haldið fram, en vitnisburðurinn þykir styrkja vörn Murrays til muna. Réttarhöldin hafa staðið yfir í fimm vikur en svæfingalæknirinn var síðastur til að bera vitni fyrir lokamálflutning beggja málsaðila. 29.10.2011 10:18
Enn leitað að fólki í rústunum Nú sex dögum eftir að jarðskjálfti upp á 7,2 á Richter reið yfir Tyrkland eru þarlendar björgunarsveitir enn að leita að fólki í rústum fjögurra bygginga. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá yfirvöldum hafa fimmhundruð áttatíu og tveir látist í jarðskjálftanum, þar af fleiri en 450 í borginni Ersis í austurhluta Tyrklands, en sú borg varð verst úti í skjálftanum. 29.10.2011 10:14
Rjúpnaskyttur komust til byggða Björgunarmenn úr björgunarsveitunum Brák og Heiðari fundu á tólfta tímanum í gær, skammt frá Hreðavatni, tvær rjúpnaskyttur sem leitað hafði verið að allt kvöldið. Þeir voru slæptir og þreyttir en eftir smá hressingu treystu þeir sér til að ganga með björgunarmönnunum í bíla sem biðu þeirra ofan við Hreðavatn. Gönguferðin var um ein og hálf klukkustund og voru björgunarmenn komnir heim til sín um þrjúleytið, samkvæmt upplýsingum frá björgunarsveitamönnum. 29.10.2011 10:09
Um 500 unglingar á landsmóti hjá kirkjunni Um 500 unglingar og leiðtogar eru samankomnir á landsmóti æskulýðsfélaga kirkjunnar sem var sett á Selfossi í gærkvöld. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, setti landsmótið og þakkaði unglingunum fyrir gott starf og góðan hug. 29.10.2011 10:03
Stunginn í hálsinn Þrir unglingar, tveir piltar og ein stúlka, réðust óboðnir inn í teiti í Mosfellsbæ í gærkvöld. Þegar gestir í teitinu hugðust vísa þeim þeim út brást annar pilturinn við með því að lemja einn gestinn með steikarpönnu í andlitið. Hinn pilturinn tók upp hníf og stakk einn gestinn í hálsinn. Ekki hafa fengist upplýsingar um ástand hinna slösuðu. 29.10.2011 09:10
Eldhætta af lúpínu í byggð "Það er ekki spurning um hvort heldur hvenær það verður stórbruni þar sem lúpínan vex í miklu magni,“ segir Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands. "Ég veit ekki hvort fólk áttar sig á hættunni.“ 29.10.2011 06:00
Sveppi í bíó og reiðhjól í vinning Sjálfur Sveppi mun mæta á sérstaka sýningu á Algjörum Sveppa og töfraskápnum á morgun, 30. október, kl. 12 í Kringlubíói. Bíómiðinn gildir sem happdrætti og verða reiðhjólin sem Sveppi og félagar hjóla á í myndinni í vinning. 29.10.2011 05:45
Mikill hugur í rjúpnaskyttum Rjúpnaveiðitímabilið hófst í gær og eru leyfðar veiðar í alls níu daga fram til 27. nóvember. Rjúpnaskyttur fjölmenna í veiðiverslanir og birgja sig upp af skotum og öðrum nauðsynjum. 29.10.2011 05:30
Ísland staðurinn til að heimsækja 2012 Ferðaþjónusta Ísland og Reykjavík eru mest spennandi ferðamannastaðir heims árið 2012. Þetta er mat lesenda efnis frá fyrirtækinu Lonely Planet, sem er stærsti útgefandi ferðatengds efnis í heiminum. Stutt er síðan bandaríska tímaritið National Geographic valdi Ísland einnig mest spennandi áfangastaðinn 2012. 29.10.2011 04:30
Fyrirmæli voru ekki framkvæmanleg Ákvörðun Reykjavíkurborgar um að afturkalla að hluta byggingarleyfi vegna breytinga við íbúðarhús á Laufásvegi hefur verið ógilt af úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála. 29.10.2011 04:00
Ótvíræður árangur hjá ríkisstjórninni Sjöundi landsfundur Vinstri grænna hófst á Akureyri í gær. Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, flutti setningarræðu þar sem hann leit yfir hið pólitíska svið. 29.10.2011 03:30
Þjónusta sérfræðilækna muni hækka um 15% á næsta ári Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir að nauðsynlegt sé að geta gert kröfu á sérfræðilækna um hvar þeir starfi á landinu og hvernig þeir hagi sínu starfi. Sérfræðilæknar hafa verið samningslausir frá 1. apríl síðastliðnum. 29.10.2011 02:00
Sigur íslamskra umbótasinna í höfn Sigurvegarar þingkosninganna í Túnis um síðustu helgi voru félagar í Endurreisnarflokknum, Ennahda, sem er sagður vera hófsamur flokkur íslamista. Þegar talningu atkvæða var lokið á fimmtudaginn reyndist flokkurinn hafa fengið 41,47 prósent atkvæða og 90 sæti á 217 manna stjórnlagaþingi, sem fær það tvískipta hlutverk að semja nýja stjórnarskrá og skipa bráðabirgðastjórn sem fer með völd í landinu þangað til hin nýja stjórnskipan tekur gildi. 29.10.2011 01:00
Mistök að hafa Grikkland með Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti segir það hafa verið mistök að leyfa Grikkjum að taka upp evruna strax árið 2001. Grísk stjórnvöld hafi ekki verið reiðubúin og að auki beitt blekkingum í ríkisbókhaldinu til að fegra stöðuna. 29.10.2011 00:00
Sannkölluð bylting í öryggismálum Varðskipið Þór kom til hafnar í Reykjavík í gær. Koma skipsins boðar nýja tíma fyrir öryggismál í íslenskri landhelgi. Þór hefur tvöfalt meiri dráttargetu en gömlu skipin, Týr og Ægir, og hefur á að skipa mengunarvarnarbúnaði af fullkomnustu gerð. 28.10.2011 21:00
80 prósent einstæðra foreldrar eiga erfitt með að ná endum saman Einstæðir foreldrar hér á landi standa margir fjárhagslega illa en um áttatíu prósent þeirra eiga erfitt með að ná endum saman samkvæmt nýrri Lífskjararannsókn. 28.10.2011 19:00
Segir marga vini og ættingja Bjarna Ben fara á landsfundinn Á fundi fulltrúaráðs þriggja sjálfstæðisfélaga í Garðabæ í gærkvöldi lagði Auður Finnbogadóttir, sjálfstæðismaður í Garðabæ, fram tillögu um að hún myndi taka sæti á landsfundinum, sem haldinn verður í næsta mánuði, í staðinn fyrir Þóru Margréti Baldvinsdóttur, eiginkonu Bjarna Benediktssonar, formanns flokksins. 28.10.2011 18:30
Hefði heldur betur sett strik í reikninginn ef lögin væru felld "Þetta er stór áfangi fyrir okkur. Skárra væri það nú,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra í viðtali við Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag þar sem hann var inntur viðbragða vegna úrskurðar Hæstaréttar um neyðarlögin. Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem úrskurðurinn var sá að lögin halda. 28.10.2011 17:52
Pottur gleymdist á eldavél Slökkviliðið á Höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrir stundu vegna tilkynningar um eld í íbúð á Háaleitisbrautinni. Í ljós kom að pottur hafði gleymst á eldavél og þurfti að reykræsta íbúðina. Því er ekki jafn mikil hætta á ferð og í fyrstu var talið. 28.10.2011 18:00
Bjarni fagnar dómi Hæstaréttar en minnir á mál Geirs Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir ljóst að nú verði ekki bornar frekari brigður á lögmæti neyðarlaganna fyrir dómstólum hér á landi. Bjarni minnir þó á að enn sé lokið landsdómsmálinu gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, en hann mælti fyrir neyðarlögunum á sínum tíma. 28.10.2011 17:18
Fimm mánaða skilorð fyrir vörslu barnakláms Karlmaður var dæmdur í fimm mánaðar fangelsi í héraðsdómi reykjaness í dag fyrir húsbrot og líkamsárás. Maðurinn ruddist í heimildarleysi inn í íbúðarhús með því að brjóta rúðu í útidyrahurð með tréskafti af exi og opna svo hurðina. Maðurinn réðst síðan á fyrrum tengdaföður sinn og hrinti honum þannig að hann féll á hurðarkarm, með þeim afleiðingum að hann hlaut tvo skurði á enni og einn skurð á nefrót. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi en hann hefur þrisvar sinnum áður verið gerst sekur um hegningarlagabrot. 28.10.2011 17:04
Rauði krossinn kaupir tvöþúsund svefnpoka Rauði kross Íslands hefur varið 6 milljónum króna úr neyðarsjóði sínum til kaupa á um 2200 svefnpokum fyrir fórnarlömb jarðskjálftans í Tyrklandi á dögunum. Tugþúsundir manna eru heimilislausir eftir jarðskjálftann og vetur eru harðir á þessum slóðum, og því nauðsynlegt að koma sem flestum í skjól í bráðabirgðahúsnæði eða tjöldum. 28.10.2011 16:51
Ríkisstjórnin segir að óvissunni hafi verið eytt Ríkisstjórnin fagnar niðurstöðu Hæstaréttar frá því í dag þegar ljóst varð að neyðarlögin svokölluðu standa. Í tilkynningu frá ríkisstjórninni segir að með dómum Hæstaréttar hafi „óvissu um mikilvægt grundvallaratriði verið eytt.“ 28.10.2011 15:43
Stolnu Rolex-úrin líklega sett í sölu „Ég er alveg ákveðinn í að veita þau ef einhver kom með ábendingu, en ég veit það ekki fyrr en rannsókn lögreglu er lokið,“ segir Frank Michelsen úrsmiður á Laugavegi en vopnað rán var framið í verslun hans í síðustu viki. 28.10.2011 15:06
Segja fólk ganga niðurbrotið út af Alþingi vegna eineltis Margir hafa velt því fyrir sér undanfarin misseri hvort einelti tíðkist meðal þingmanna á Alþingi. Ísland í dag kafaði í málið í gær. „Það kemur oft fyrir að fólk gangi héðan niðurbrotið út, einelti þrífst á Alþingi," segir þingmaður Hreyfingarinnar. Aðrir segja þó einelti aðeins í hinum flokkunum, ekki þeirra. 28.10.2011 15:00
Buster var í spreng og fann kannabisrækt Fíkniefnahundurinn Buster rambaði á kannabisræktun í nótt. Lögreglumenn voru þá á ferð um um uppsveitir Árnessýslu og var Buster með í för. 28.10.2011 14:46
Í óformlegum viðræðum við son Gaddafís Saksóknarar hjá Alþjóðastríðsglæpadómstólnum hafa verið í óformlegu sambandi við Saif al Islam, son Múammars Gaddafís fyrrum einræðisherra í Líbíu. Saif er eftirlýstur af dómstólnum sakaður um stríðsglæpi en hann hefur farið huldu höfði síðustu mánuði. 28.10.2011 13:32
Dómarinn: Eini tilgangurinn var að fylgjast með ferðum Sivjar Eini tilgangur Þorsteins Húnbogasonar að koma staðsetningarbúnaði fyrir í bifreið sem fyrrum sambýliskona hans, Siv Friðleifsdóttir hafði til umráða, var að fylgjast með ferðum hennar. Þetta er niðurstaða dómara sem dæmdi Þorsteinn til greiðslu sektar upp á 270 þúsund krónur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 28.10.2011 13:25
Þorsteinn dæmdur sekur í héraðsdómi - þarf að greiða sekt Þorsteinn Húnbogason, fyrrum sambýlismaður Sivjar Friðleifsdóttur alþingismanns, var dæmdur sekur í Héraðsdómi Reykjavíkur dag. 28.10.2011 13:01
Gefa út 20 íslenskar hljóðbækur fyrir jólin Nýtt útgáfufélag, Skynjun, hefur verið stofnað utan um framleiðslu hljóðbóka sem verða fáanlegar á vefnum Tónlist.is. Formleg opnun hljóðbókasvæðis Tónlist.is, sem er á slóðinni tonlist.is/audiobook, er 1. nóvember en nú þegar eru nokkrir titlar fáanlegir. 28.10.2011 12:30
Neyðarlögin fyrir Hæstarétt Hæstiréttur Íslands mun í dag klukkan tvö birta dómsniðurstöður í ellefu málum sem varða innistæður sparifjáreigenda og svokölluð heildsöluinnlán en í málunum reynir á stjórnskipulegt gildi neyðarlaganna, þ.e hvort neyðarlögin standist stjórnarskrá. 28.10.2011 11:56
Síbrotamaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Karl um þrítugt hefur verið úrskurðaður í síbrotagæslu til 24. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Að sögn lögreglu hefur maðurinn ítrekað komið við sögu hjá lögreglu en hann var síðast handtekinn í fyrrinótt. „Þá ók kauði um á stolnum bíl og var auk þess í annarlegu ástandi,“ eins og segir í tilkynningu. 28.10.2011 11:46
Guðmundar- og Geirfinnsmál - fólk hvatt til að hafa samband Starfshópur sem innanríkisráðherra skipaði til að fara ofan í gögn um Guðmundar- og Geirfinnsmál hefur nú tekið til starfa. Í fyrstunni er hópurinn að viða að sér gögnum og eru þeir sem telja sig búa yfir upplýsingum um málin hvattir til að hafa samband. 28.10.2011 11:06
Þingmannsfrú rændi ketti viðhaldsins Eiginkona þingmanns á breska þinginu hefur verið dæmd í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela ketti frá hjákonu eiginmannsins. Christine Hemming, sem er gift John Hemming þingmanni frjálslyndra jafnaðarmanna var einnig dæmd til að vinna 150 klukkustundir í samfélagsþjónustu og borga þúsund pund í málsvarnarlaun. 28.10.2011 10:57
Lögreglan stöðvaði kokteilpartí á hjólum Lögreglumenn stöðvuðu í nótt heilt kokteilpartí á hjólum, á mótum Hafravatnsvegar og Suðurlandsvegar. 28.10.2011 08:59
Rjúpnaveiðin hefst í dag Rjúpnaveiðitímabilið hefst í dag og má veiða rjúpur í níu daga samanlagt, eða helmingi færri daga en i fyrra, þar sem stofninn er í lægð. 28.10.2011 08:56
Strokupiltarnir fundust heilir á húfi Drengirnir þrír sem struku frá meðferðarheimilinu Háholti í Skagafirði í gærkvöldi eru fundnir, heilir á húfi. 28.10.2011 08:43
Mikil leit að þremur strokupiltum í Skagafirði Björgunarsveitarmenn Landsbjargar hafa í nótt leitað þriggja unglingspilta, sem struku af meðferðarheimilinu Háholti í Skagafirði í um tíuleitið í gærkvöldi. 28.10.2011 08:00
Clinton myndi vinna stórsigur á frambjóðendum Repúblikana Könnunin sýnir að Hillary Clinton utanríkisráðherra landsins myndi vinna þrjá af helstu forsetaframbjóðendum Repúblikanaflokksins með miklum mun ef kosningarnar yrðu haldnar í dag. Obama Bandarríkjaforseti einnig vinna þessa menn í kosningum í dag en munurinn á Clinton og frambjóðendunum er sláandi mikill. 28.10.2011 07:42
Átök í Túnis eftir úrslit þingkosninganna Mikil átök brutust út í miðhluta Túnis eftir að úrslit fyrstu lýðræðislegu kosninganna voru gerð opinber í gærdag. 28.10.2011 07:39
Flugfreyjur samþykktu kjarasamning Flugfreyjur hjá Icelandair hafa samþykt nýgerðan kjarasamning við félagið og hafa aflýst tveggja dag verkfalli, sem átti að hefjast eftir helgi, og ótímabundnu verkfalli, sem átti að hefjast síðar í næsta mánuði. 28.10.2011 07:37
Par í haldi eftir háskaakstur og eltingarleik Karl og kona eru enn í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að þau voru handtekin í bíl skammt frá Egilshöll í gærkvöldi, eftir háskaakstur ökumannsins í tilraun sinni til að stinga lögregluna af. 28.10.2011 07:28