Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samkynhneigðir bjóða Friðriki í heimsókn Prestur íslensku krists-kirkjunnar í Reykjavík segir kynlíf einstaklinga af sama kyni vera rangt. Formaður Samtakanna 78 segir prestinn breiða út fordóma og skorar á hann að kíkja í heimsókn og fræðast. 20.9.2011 20:54
Hollywoodstjarna handtekin Hollywoodleikarinn Tom Sizemore, sem lék í myndunum Saving Private Ryan og Black Hawk Down, var handtekinn í Los Angeles í dag. 20.9.2011 20:29
Vilja ekki fjölga borgarfulltrúum Sjálfstæðismenn í borgarstjórn telja óþarft að fjölga borgarfulltrúum líkt og gert er ráð fyrir í lagafrumvarpi sem samþykkt voru á Alþingi þann 17. september. Borgarfulltrúar sjálfstæðisflokksins óskuðu í dag eftir sérstakri umræðu um frumvarpið. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að borgarfulltrúum verði fjölgað úr 15 í 23-31. 20.9.2011 20:26
Synti með selunum í Húsdýragarðinum Selirnir í Húsdýragarðinum fengu óvænta heimsókn í dag þegar róðrarkappinn Fiann Paul gerði sér lítið fyrir og fékk sér sundsprett í tjörninni þeirra. Uppátækinu var meðal annars ætlað að undirbúa hann fyrir samveru með mun hættulegri dýrum. 20.9.2011 19:09
Dæmdur á skilorð fyrir að hóta Piu Fimmtán ára gamall piltur var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi í Danmörku í dag fyrir að birta hótanir, í garð Pia Kjærsgard formanns Danska Þjóðaflokksins, á Facebook. 20.9.2011 18:30
Vilja Torfajökulssvæðið á minjaskrá UNESCO Torfajökulssvæðinu verður bætt á yfirlitsskrá Íslands með tilnefningu til heimsminjaskrár UNESCO í huga, samkvæmt tillögu sem samþykkt var á ríkisstjórnarfundi í morgun. 20.9.2011 18:03
Tekinn af lífi á fimmtudaginn Hinn 42 ára gamli Troy Davis verður tekinn af lífi með banvænni sprautu fangelsi í Georgíufylki aðfaranótt fimmtudagsins, gangi fyrirætlanir yfirvalda þar eftir. Hann var dæmdur sekur um morð í Svannah í Georgíu árið 1989. Aftökunni hefur verið frestað fjórum sinnum og það finnast ekki efnislega sannanir fyrir sekt hans. Amnesty International segjast óttast að verið sé að refsa röngum manni. 20.9.2011 17:41
Þjóðskrá fær alþjóðlega viðurkenningu Alþjóðasamtök sérfræðinga á sviði fasteignamats (The International Association of Assessing Officers - IAAO) veittu Þjóðskrá Íslands í dag æðstu viðurkenningu sína fyrir aðferðir og tæknilega vinnu við nýtt fasteignamat á Íslandi. Þetta var tilkynnt á ársþingi samtakanna, sem stendur yfir í Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum. Þjóðskrá deildi viðurkenningunni með matsstofnun í Seattle í Bandaríkjunum. 20.9.2011 16:59
Álfheiður og Siv kjörnar formenn í Norðulandaráði Álfheiður Ingadóttir og Siv Friðleifsdóttir voru í dag kjörnar formenn í norrænum flokkahópum sínum í Norðurlandaráði í Osló. 20.9.2011 16:40
Karlmaður um sjötugt stunginn í miðborginni Karl um sjötugt var stunginn með hnífi í húsi miðborginni síðdegis í gær. Árásarmaðurinn, sem er nokkru yngri, var handtekinn af lögreglunni á staðnum og vísaði sá á hnífinn, sem var haldlagður. Sá sem var stunginn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en meiðsli hans voru ekki talin ekki alvarleg. 20.9.2011 16:36
Skákeinvígi aldarinnar fagnað í Reykjavík Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag með öllum greiddum atkvæðum tillögu að þess verði minnst á næsta ári að þá verða fjörutíu ár liðin frá heimsmeistaraeinvíginu í skák milli Bobby Ficher og Boris Spassky, sem hefur verið nefnt mesta skákeinvígi síðustu aldar. Einvígið fór fram 1. júlí til 3. september 1972 í Reykjavík. Samþykkt var að efnt verði til sérstakrar afmælisdagskrár og sýningarhalds af þessu tilefni. Í greinargerð tillögunnar segir a það sé vel við hæfi að halda minningunni á lofti og stuðla að því að það geti orðið íþróttinni hérlendis lyftistöng. 20.9.2011 16:27
Gert að greiða ríkisstarfsmanni milljónir vegna starfslokasamnings Íslenska ríkinu er gert að greiða fyrrverandi varðstjóra öryggisdeildar á Keflavíkurflugvelli 2,6 milljónir króna samkvæmt starfslokasamningi sem varðstjórinn gerði við þáverandi stjórnanda öryggisdeildarinnar árið 2008. 20.9.2011 16:13
Rauf skilorð Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa í júlí á síðasta ári haft í vörslum sínum þrjátíu og sjö kannabisplöntur. Maðurinn var í febrúar 2009 dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir hótanir, brot gegn valdstjórninni og vopnalagabrot. Hann rauf því skilorð og verður því skilorðsdómurinn tekinn upp. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómara. 20.9.2011 15:55
Sigmundur Ernir vill ekki styrkja Kristskirkju: „Heyr á endemi“ Þingmaður Samfylkingarinnar, Sigmundur Ernir Rúnarsson, telur það vera rétta ákvörðun hjá Reykjavíkurborg að styrkja ekki Kristskirkjuna í Reykjavík, vegna viðhorfa söfnuðarins til samkynhneigðar. 20.9.2011 15:21
Geymdi lík frænku sinnar í frysti til að fá ellilífeyrinn Fjörutíu og sjö ára gamall karlmaður frá bænum Neuhofen í Austurríki hefur játað að hafa geymt lík gamallar frænku sinnar í frysti í marga mánuði. 20.9.2011 14:45
Við höfum aldrei verið veikari - samkvæmt Gallup Mikið var um að fólk fyndi fyrir veikindum á Íslandi í síðustu viku samkvæmt samfélagsmælingum Capacent. 20.9.2011 14:01
Lestarslys í Þýskalandi - 50 slasaðir Um fimmtíu manns slösuðust þegar lest fór út af sporinu í austuhluta Þýskalands í dag. Slysið varð með þeim hætti að lestin rakst á bifreið sem hentist á teinana þegar annar bíll ók á hana. Bílstjórinn náði að forða sér áður en lestin skall á bílnum af fullu afli. Þrír lestarvagnar fóru á hliðina og eru níu alvarlega slasaðir. Hinir farþegarnir slösuðust minna. 20.9.2011 13:49
Leita að veggjakrotara Lögreglan í Lundúnum leitar nú að veggjakrotara sem er grunaður um að hafa krotað á hús, skóla og minnismerki um alla borgina. Tjónið er talið hlaupa á einni milljón punda, eða um 185 milljónum króna. 20.9.2011 13:38
Gaddafí segir Nato skorta úthald Bardagar standa enn yfir í Líbíu, mánuði eftir að uppreisnarmenn náðu völdum í höfuðborginni Trípólí. Uppreisnarmenn segjast nú hafa náð á sitt vald hluta borgarinnar Sabha, sem er eitt af síðustu vígjum stuðningsmanna Gaddafís fyrrverandi einræðisherra. Hann sendi frá sér ávarp í morgun. 20.9.2011 13:34
Tölvuþrjótar réðust á japanskan vopnaframleiðanda Japanski vopnaframleiðandinn Mitsubishi varð fyrir árás tölvuþrjóta á dögunum samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja þrjótana ekki hafa komist í viðkvæmar upplýsingar. 20.9.2011 13:24
Fundarmenn gengu á dyr á Patreksfirði Stærstur hluti þeirra tvö til þrjúhundruð manna sem mættu til fundar við Ögmund Jónasson innanríkisráðherra á Patreksfirði í dag gengu á dyr þegar um hálftími var liðinn. Á fundinum var fjallað um þá ákvörðun Ögmundar að láta Vestfjarðarveg fara yfir tvo ása, fremur en í gegnum Teigsskóg. 20.9.2011 13:03
Um 75 prósent vilja þjóðaratkvæði Þrír af hverjum fjórum vilja að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um frumvarp Stjórnlagaráðs til stjórnarskrár og flestir vilja að þjóðaratkvæðagreiðslan verði látin ráða úrslitum um afgreiðslu frumvarpsins. Þetta er niðurstaða könnunnar MMR. 20.9.2011 10:47
Friðrik Schram: Þeir sem eru á móti samkynhneigð mæta fordómum Friðrik Schram, prestur Kristskirkjunnar í Reykjavík, segist vera hafður fyrir rangri sök þegar honum voru gefnar upp þær skoðanir að honum þætti samkynhneigð synd og glæpsamleg. 20.9.2011 10:44
Sást þú mótórhjól keyra aftan á rauðan gamlan bíl? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á Hjallabraut í Hafnarfirði, þriðjudaginn 13. september síðastliðinn. Óhappið varð til móts við innkeyrslu að húsum 7 til 25. 20.9.2011 10:35
Dópuð móðir með barnið í bílnum Kona um þrítugt var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu í gær en hún var undir áhrifum fíkniefna. Með henni í för var barnið hennar og gerði lögregla viðeigandi ráðstafanir og upplýstu barnaverndaryfirvöld um málið. Móðirin var handtekin og flutt á lögreglustöð. 20.9.2011 10:21
Hasar á Akranesi: Aðkomumaður með barefli Lögreglan var kölluð til í fyrirtæki á Akranesi í síðustu viku eftir að maður kom þangað til að innheimta skuld fyrir þriðja aðila. Svo virðist sem maðurinn hafi talið að fjórði maðurinn ætti vöru inni hjá fyrirtækinu sem hann hafði með einhverjum hætti afsalað til þess sem innheimta átti fyrir. 20.9.2011 10:08
Charlie Sheen sættist við Warner Bros Stórleikarinn Charlie Sheen og kvikmyndaframleiðandinn Warner Bros eru við það að ná samkomulagi vegna málaferla sem sá Sheen efndi til eftir að hann var rekinn úr þáttunum Two and a Half Men. 20.9.2011 09:55
Ekki stætt á að láta pólitík ráða för í Grímsstaðamálinu Innanríkisráðherra er ekki stætt á því að láta pólitík ráða ferðinni þegar hann tekur ákvarðanir um það hvort veitt yrði leyfi til að víkja frá skilyrðum um íslenskan ríkisborgararétt eða lögheimili hér á landi við kaup á fasteign. Hann verður að láta lögfræðileg sjónarmið ráða för. 20.9.2011 09:52
Fjölskylda Milly Dowler fær milljónir frá Murdoch Fjölskylda Milly Dowler, skólastúlkunnar sem var myrt í Bretlandi árið 2002, mun fá tvær milljónir punda, eða 370 milljónir íslenskra króna í bætur frá fjölmiðlarisanum News International. Mál Dowler komst aftur í heimsfréttirnar í sumar þegar í ljós kom að blaðamenn News of the World höfðu brotist inn í talhólf hennar á meðan hennar var enn leitað, og eytt út skilaboðum úr símanum. 20.9.2011 09:51
Lögreglumenn: Lítilsvirðandi framkoma ríkisvaldsins Lögreglumenn á Suðurlandi mótmæla harðlega því sem þeir kalla lítilsvirðandi framkomu ríkisvaldsins í garð lögreglumanna. Á félagsfundi sem haldinn var í gær er bent á þá staðreynd að lögreglumenn hafi nú verið samningslausir í tæpa 300 daga. Á fundinum var gerð sú krafa að laun lögreglumanna verði tafarlaust leiðrétt í samræmi við kröfur samninganefndar Landssambands Lögreglumanna. 20.9.2011 09:50
Vilja banna myndir þar sem reykt er innan átján Tóbaksvarnananefnd Bretlands fer fram á það í nýrri skýrslu að allar bíómyndir þar sem fólk sést reykja verði bannaðar innan átján ára aldurs. Skýrslan er birt í nýjasta hefti British Medical Journal og þar segir að kvikmyndirnar fegri sígarettureykingar og geri þær spennandi í augum ungs fólks og barna. 20.9.2011 09:11
Skora á Össur að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki Félagið Ísland-Palestína skorar á Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra að lýsa þegar í stað yfir viðurkenningu á sjálfstæði og fullveldi Palestínu. Palestínumenn áforma að sækja um fulla aðild að Sameinuðu þjóðunum í New York á föstudaginn kemur en félagið segir enga ástæðu til að bíða eftir því, enda alls óvíst hvort eða hvernig málið verði flutt þar. 20.9.2011 08:50
Hvað ef Lakagígar myndu gjósa í dag? Vísindamenn við háskólann í Leeds hafa reiknað út áhrifin af eldgosinu í Lakagígum árið 1783 ef sambærilegar hamfarir myndu skella á í dag. Vísindamennirnir, með loftslagsfræðinginn Önnu Schmidt í broddi fylkingar bjuggu til tölvuforrit sem reiknar út áhrifin af því ef brennisteinsský líkt og það sem kom upp úr Laka myndi leggjast yfir Evrópu nútímans. 20.9.2011 07:06
Óþverralegt athæfi sem verður rannsakað „Þetta er óþverralegt athæfi og lögreglan mun gera allt sem í hennar valdi stendur til að upplýsa það,“ segir Árni Þór Sigmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, um níðingsverk sem unnin hafa verið á hryssum í Kjós. Lögreglan mun kalla eftir gögnum frá dýralækni í kjölfar athæfisins. Þá hafa lögreglumenn verið í sambandi við eigendur hryssanna til frekari upplýsingaöflunar. Unnið er að því að reyna að áætla hvenær atvikin áttu sér stað og hverjir voru að verki. 20.9.2011 06:30
Landið þolir hesta verr en fjórhjól Hestar eru ekki lengur notaðir við leitir og smölun í Skaftárhreppi. „Menn voru sammála um að fara ekki með hesta á fjall, meðal annars vegna þess að við höfum ekki lengur hesthús við afréttarkofann. Slíkt þótti ekki gott áður fyrr og ekki heldur í dag. Auk þess erum við búin að taka tæknina í þjónustu okkar,“ segir Gísli Halldór Magnússon, fjallkóngur til 25 ára og bóndi að Ytri-Ásum í Skaftárhreppi, um þá hefð sem skapast hefur við smölunina. Hann segir fjórhjól hafa verið notuð með hestum til smölunar í aldarfjórðung. „Undanfarin þrjú til fjögur ár höfum við þó eingöngu verið á fjórhjólum.“ 20.9.2011 06:00
Telja Gaddafí vera í Bani Walid Bráðabirgðastjórn byltingarmanna í Líbíu telur sig hafa öruggar heimildir fyrir því að Saif al Islam, sonur Múammars Gaddafí, sé í Bani Walid. Líklegt þykir að Gaddafí sjálfur sé þar einnig. 20.9.2011 06:00
Segja alla geta notið góðs af aðild Íslands Tveir fulltrúar í sendinefnd Evrópuþingsins sem kom hingað til lands á dögunum rituðu greinar á vef Public Service Europe skömmu eftir heimsókn sína þar sem þeir hvetja Íslendinga til að kynna sér kosti aðildar að Evrópusambandinu (ESB) og telja að það geti orðið bæði sambandinu og Íslandi til góðs. 20.9.2011 05:00
Stjórnvöld virðast ráðþrota Flóðin í Pakistan hafa kostað meira en 200 manns lífið síðustu vikurnar. Nærri 700 þúsund heimili eru ónýt og hátt í tvær milljónir manna hafa hrakist að heiman. Þetta er annað árið í röð sem stórflóð herja á íbúa landsins. Stjórnvöld virðast varla ráða við að takast á við þennan vanda. 20.9.2011 05:00
Svínakjöt hækkaði í verði um 42 prósent „Það er staðreynd að viðvarandi kjötskortur er að hafa áhrif á verðlagið,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga. „Þær aðgerðir stjórnvalda sem koma í veg fyrir innflutning birtast nú í því.“ 20.9.2011 04:00
Reikistjarna á braut um tvær sólir Bandaríska geimvísindastofnunin (NASA) tilkynnti fyrir skömmu um fund reikistjörnu sem gengur á braut um tvær sólir. 20.9.2011 04:00
Stálbrú frá 1899 fær andlitslyftingu "Það kemur eitt og eitt svona verkefni þar sem verið er að halda við minjum áður en þær fara í vaskinn,“ segir Guðmundur Sigurðsson brúarsmiður, sem nú annast endursmíði nítjándu aldar stálbrúar í Borgarfirði. 20.9.2011 04:00
Fá 13 milljónir úr borgarsjóði járhagsvandi Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar virðist leystur eftir að borgarráð samþykkti að veita 13 milljónir króna aukalega til miðstöðvarinnar. Upphæðin á að renna til þess að greiða húsaleigu á þessu ári og til að gera upp vangoldna húsaleigu frá árinu 2010. Vandinn á rætur að rekja til þess að eftir hrunið stóð Landsbankinn ekki við fyrri skuldbindingar um stuðning við verkefnið. 20.9.2011 04:00
Bankakreppa gæti skaðað útflutning og ferðaþjónustu Verði evrópsk bankakreppa að veruleika vegna vandræða Grikklands mun hún ekki hafa veruleg áhrif á íslensku bankana. Áhrifa slíkrar kreppu myndi þó gæta á Íslandi þótt höggið yrði ekki neitt nálægt því sem Ísland fékk í október 2008. 20.9.2011 03:15
Lætur þrýsting ekki hagga sér Mahmoud Abbas, forseti Palestínustjórnar, átti í gær fund með Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, og tilkynnti honum að hann myndi óska eftir viðurkenningu samtakanna á sjálfstæði Palestínu. 20.9.2011 03:15
Lögreglumenn segjast vera lítilsvirtir Lögreglumenn á Suðurlandi segja að ríkisvaldið sýni lögreglumönnum lítilsvirðandi framkomu með þvi að ganga ekki til kjarasamninga við þá. Lögreglumenn hafa verið samningalausir í 300 daga og segja lögreglumennirnir á Suðurlandi, í ályktun sem þeir sendu frá sér í kvöld, að þeir krefjist þess að laun lögreglumanna verði tafarlaust leiðrétt í samræmi við kröfur samninganefndar Landssambands Lögreglumanna. 19.9.2011 23:39