Fleiri fréttir

Her Gaddafi nær bænum Brega

Her Muammar Gaddafi leiðtoga Líbýu heldur áfram að vinna borgir og bæi af uppreisnarmönnum í landinu. Í gærkvöldi náðu þeir bænum Brega á sitt vald en hann er í austurhluta landsins.

Önnur sprenging í Fukushima kjarnorkuverinu

Önnur sprenging varð í Fukushima kjarnorkuverinu í Japan í morgun. Talsmaður stjórnvalda segir að sjálfur kjarnakljúfurinn sé óskemmdur en að ástæða sé til að hafa miklar áhyggjur af ástandinu.

Páfinn bað fyrir fórnarlömbum

Benedikt páfi sextándi bað fyrir fórnarlömbum jarðskjálftans og fljóðbylgjunnar í Japan í sunnudagsblessun sinni í gær. Hann lýsti yfir ánægju sinni með reisn og hugrekki heimamanna í viðbrögðum þeirra við óförunum. Benedikt hvatti einnig hjálparstarfsmenn, sem eru að störfum í Japan, til dáða og sagði að Guð væri með þeim. Talið er að yfir tíu þúsund manns hafi farist í Japan síðan jarðskjálfti af stærðinni 8,9 á Richter reið yfir landið í síðustu viku. -fb

Fá ekki að kjósa um Icesave

Sjómenn á þeim frystitogurum sem fóru til veiða í vikunni, ná ekki í land til þess að kjósa um Icesave-lögin. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst ekki fyrr en 16. mars og kosið verður um lögin 9. apríl. Frystitogarar eru flestir um 30 daga á sjó

Uppreisnarmenn hraktir burt

Leiðtogar Arababandalagsins hvöttu Múammar Gaddafí, einræðisherra Líbíu, til að stíga af valdastóli um helgina. Þeir lýstu yfir stuðningi við alþjóðlegt flugbann um lofthelgi Líbíu.

Óttast öfluga eftirskjálfta

Jarðfræðingar óttast að öflugir eftirskjálftar muni ríða yfir Japan á næstu dögum í kjölfar jarðskjálftans sem skók landið á föstudagsmorgun. Talið er að skjálftarnir geti náð allt upp í 7 á Richter en upphaflegi skjálftinn var af stærðinni 9 á Richter.

Skeiðárbrú lokuð eftir umferðaróhapp

Tafir eru á Suðurlandsvegi yfir Skeiðárbrú eftir að ökumaður missti stjórn á fólksbíl. Brúin er nánast lokuð og er aðstoð á leið á vettvang. Nánari upplýsingar síðar.

Erfitt að hætta við framlög til menningarmála

Borgarfulltrúi segir erfitt að rifta samningum um framlög til menningarmála, en margir þeirra hafi þó verið endurskoðaðir. Reiðir foreldrar beina gremju sinni vegna niðurskurðar í menntamálum meðal annars að útgjöldum til menningar.

Bæjarstjórn skoðar hvort bæjarstjóri eigi að víkja

"Við munum fara yfir málið strax eftir helgina,“ segir Guðmundur Magnússon, forseti bæjarstjórnar Seltjarnarnesbæjar, en lögmaður Ólafs Melsted, fyrrum framkvæmdastjóra Tækni- og umhverfissviðs hjá bænum sem hefur verið frá vinnu vegna eineltismáls í rúmt ár, vill að bæjarstjórn víki Ásgerði Halldórsdóttur, bæjarstjóra Seltjarnaresbæjar, úr starfi sínu sem bæjarstjóri.

Björguðu manni sem flaut á húsþakinu

Björgunarsveitarmenn björguðu sextíu ára gömlum manni í nótt sem flaut á húsþakinu af húsi sínu um fimmtán kílómetrum frá bænum Fukushima.

Stjörnurnar mótmæla niðurskurði

Breskar stjörnur á borð við Helen Mirren, Kenneth Branagh, David Tennant og Victoria Wood og fleiri vara við niðurskurði á opinberum fjárframlögum til lista í heimalandi sínu.

Átján ára piltur skotinn til bana

Átján ára gamall piltur var skotinn til bana fyrir utan skemmtistað í New Orleans í Bandaríkjunum í gærkvöld. Fjórir aðrir unglingar eru særðir eftir að maður gekk inn á skemmtistaðinn og hóf skothríð. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er skotmaðurinn ófundinn og hefur verið lýst eftir vitnum af atvikinu, en eftir að hann var búinn að skjóta unglinganna flúði hann.

Mestu erfiðleikar síðan í seinni heimsstyjöld

Japanir ganga nú í gegnum mestu erfiðleika sem þeir hafa upplifað síðan í seinni heimsstyrjöldinni vegna afleiðinga skjálftans, flóðbylgju og mikillar hættu á kjarnorkuvá. Þetta segir Naoto Kan, forsætisráðherra landsins.

Píndi fórnarlömbin með söxuðum lauk

Fórnarlömb bandarísks ræningjagengis felldu tár þegar það píndi þau til að afhenda sér verðmæti, enda beittu þeir söxuðum lauk við verkið.

Erlendar björgunarsveitir streyma til Japans

Óttast er að tala látinna á hamfarasvæðunum í Japan geti farið yfir 10 þúsund en um 9500 manns er saknað í bæ sem varð illa úti í skjálftanum á föstudag. Erlendar björgunarsveitir streyma nú til landsins. Sveitir frá Þýskalandi, Sviss, Ungverjalandi og Taívan lentu í Tókýó í morgun með leitarhunda og annan búnað til leitar í rústum.

Bjarni vill endurskoða stjórnarskrána

„Ég lýsi mig reiðubúinn til þess að hefja nú þegar vinnu við endurskoðun stjórnarskrárinnar. Ég tek alvarlega þær athugasemdir sem fram hafa komið um að þinginu hafi mistekist í fortíðinni,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann segir að þau atriði sem menn telji að þurfi hvað helst að endurskoða standi ekki í sér. „Ég er tilbúinn til að setjast niður og ræða þau mál.“

Skotið á mótmælendur í Jemen - einn látinn

Öryggissveitir stjórnarinnar í Jemen skutu á mótmælendur fyrir utan háskólann í höfuðborginni Sanaa í morgun. Að minnsta kosti einn er látinn og 19 eru særðir að sögn Reuters. Fjölmargir mótmælendur hafa haldið til á háskólalóðinni undanfarna daga en þeir vilja að Ali Abdullah Saleh forseti landsins segi af sér.

Alec Baldwin biður Charlie Sheen um að fara í sturtu

„Leggðu þig, farðu í sturtu og grátbiddu um starfið. Aðdáendur þínir krefjast þess,“ segir leikarinn Alec Baldwin, úr sjónvarpsþættinum 30 Rock, um Charlie Sheen sem fyrr í mánuðinum var rekinn var úr sjónvarpsþáttaröðinni Two And A Half Men.

Beckham hjónin flytja til Bretlands

Heimildir herma að David og Victoria Beckham hafi fengið nóg í bili af lífinu í Los Angeles og vilji komast til Bretlands á nýjan leik. Hjónin fluttu ásamt börnunum sínum til borgarinnar eftir að David gerði samning við knattspyrnuliðið Los Angeles Galaxy fyrir nokkrum árum.

Arabababandalagið biðlar til SÞ um flugbann

Arabababandalagið hefur nú biðlað til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að koma á flugbanni yfir Libýu til að koma í veg fyrir frekari loftárásir á saklausa borgara í landinu. Fulltrúar allra aðildarríkja bandalagsins samþykktu flugbannsbeiðnina á fundi í gær, en höfnuðu hernaðarinngripum erlendra ríkja að öðru leyti.

Óttast að 10 þúsund hafi farist

Óttast er að tala látinna á hamfarasvæðunum í Japan geti farið yfir 10 þúsund en nú þegar verið staðfest að tæplega 700 séu látnir og rúmlega 1500 slasaðir. Yfir 10 þúsund manns er saknað í bænum Kesennuma í Miyagí-héraði en ekkert hefur spurst til fólksins frá því að skjálftinn og flóðbylgjan reið þar yfir á föstudag. Yfirvöld óttast að fólkið hafi farist í hamförunum en Miyagí-hérað varð hvað verst úti.

Innbrot í dýraspítala og fjölmörg rúðubrot

Nóttin var heldur erilsöm hjá lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu. Nokkuð var um pústra í miðbænum en þeir voru minniháttar og þá var brotist inn í Dýraspítalann í Víðidal í kringum miðnætti. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu liggur ekki fyrir hvort einhverju hafi verið stolið en enginn hefur verið handtekinn.

Fréttaskýring: Land þrýstist upp en ekki til hliðar

Risajarðskjálftinn sem varð í gær undan ströndum Japans er allt annars eðlis en skjálftar sem þekkjast hér á landi. Orkan sem leystist úr læðingi í stærsta skjálftanum er um 900 sinnum meiri en þekkist í stærstu skjálftum hér.

Ástandið alvarlegt á meðan kælibúnaður er í ólagi

Eðlisfræðingur hjá Geislavörnum Ríkisins segir ástandið í kjarnorkuverinu í Japan vera mjög alvarlegt á meðan ekki hefur verið náð tökum á kælingarbúnaði versins. Almennt er þó talin lítil hætta á því að kjarnakljúfurinn springi.

Ótrúlegar loftmyndir frá Japan

Ótrúlegar myndir berast frá Japan eftir að jarðskjálfti upp á 8,9 stig reið þar yfir í gærmorgun. Talið er að yfir 1300 manns séu látnir og fjölmargra er saknað. Eignatjónið á svæðinu er gríðarlegt og hafa heilu bæirnir þurrkast út.

Grípa til aðgerða til að stöðva blóðbaðið

Yfirvöld á Vesturlöndum hafa gefið í skyn að það komi til greina að grípa til aðgerða til að stöðva blóðbaðið í Líbýu. Enn berjast uppreisnarmenn og herlið ríkisstjórnarinnar um yfirráð yfir lykilborgum í Líbýu.

Eiturgufur leka frá kjarnorkuverinu

Sprengingin í kjarnorkuverinu í borginni Fukushima í morgun var gríðarlega öflug en fjórir starfsmenn kjarnorkuversins slösuðust þegar þeir unnu að viðgerð á kælikerfi sem hafði laskast í skjálftanum í gær. Mikinn reyk leggur nú frá kjarnorkuverinu og hafa japönsk yfirvöld staðfest að leiki hafi komið komið þar upp.

Þór óskemmdur eftir flóðbylgjur í nótt

Varðskipið Þór, sem hefur legið við bryggju í bænum Conceptíón í Chile, er óskemmt eftir að þrjár flóðbylgjur gengu yfir svæðið í nótt. Sú hæsta mældist 2,4 metrar á hæð. Óttast var skipið gæti orði fyrir skemmdum og var það því dregið út í flóann sem liggur að bænum.

Skíðasvæði landsins opin í dag

Öll helstu skíðasvæði landsins eru opin í dag. Í Bláfjöllum er ellefu stiga frost og heiðskýrt. Skíðasvæði Tindastóls verður opið frá klukkan tíu til fjögur. Þar er logn og fimmtán stiga frost. Í Hlíðarfjalli er sjö stiga frost og nánast logn.

Íslensku björgunarsveitamennirnir fara ekki til Japans

Ljóst er að íslenska alþjóðabjörgunarsveitin kemur ekki til með að fara til Japans að sinna rústaleit vegna jarðskjálftans. Þetta staðfestir Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar, í samtali við fréttastofu.

Sex ölvaðir undir stýri í Reykjavík - einn á Akureyri

Nokkrir gistu fangageymslur sökum ölvunar á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í Reykjavík. Sjötíu verkefni komu inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, flest smáverkefni en sex ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun við akstur.

Fullur á stolinni bifreið

Lögreglan á Selfossi tók einn ökumann grunaðan um ölvunarakstur klukkan hálf þrjú í nótt. Auk þess að vera ölvaður reyndist maðurinn vera á stolinni bifreið.

Öflug sprenging í japönsku kjarnorkuveri

Öflug sprenging varð í kjarnorkuveri í borginni Fukushima í Japan í morgun sem talin er ógna öryggi landsins. Mikinn reyk leggur nú frá kjarnorkuverinu og hafa japönsk yfirvöld staðfest að leki hafi komið þar upp.

Sjá næstu 50 fréttir