Hafnar ásökunum um „ólögmætt samráð" 12. mars 2011 10:10 Ragnar Önundarson hefur sagt sig úr stjórn Framtakssjóðs Íslands.
Hann fullyrðir í grein í Morgunblaðinu í dag, að fulltrúar bankanna í stjórnum kortafélaga hafi játað á sig ólögmætt samráð gegn betri vitund. Hið raunverulega brot hafi verið „sameiginleg markaðsyfirráð" sem sé á ábyrgð eigendanna, banka og sparisjóða, en ekki stjórnenda eða starfsmanna. Yfirlýsing Ragnars í heild: Ragnar Önundarson hafnar ásökunum um „ólögmætt samráð". Hann fullyrðir í grein í Morgunblaðinu í dag, laugardaginn 12. mars að fulltrúar bankanna í stjórnum kortafélaga hafi játað á sig ólögmætt samráð gegn betri vitund. Hið raunverulega brot hafi verið „sameiginleg markaðsyfirráð" - kartel – sem sé á ábyrgð eigendanna, banka og sparisjóða, en ekki stjórnenda eða starfsmanna. Hann segist hafa fullgildar sannanir fyrir að svo hafi verið og segir í Mbl-grein í dag að sér hafi verið meinað að gefa Samkeppniseftirlitinu skýrslu sína, þrátt fyrir rannsóknarskyldu þá sem stjórnsýslulög leggja Samkeppniseftirlitinu á herðar. Á sér sé brotið með þessu. Hann segir að í raun hafi orðið samkomulag milli banka og sparisjóða og Samkeppniseftirlitsins um að numið væri staðar og látið hjá líða að innifela Reiknistofu bankanna í rannsókninni. Það hefði óhjákvæmilega þýtt niðurstöðu um „sameiginleg markaðsyfirráð". Hjá því hafi eigendur kortafélaganna komist gegn því að greidd yrði væn sekt, - þóknun fyrir vernd - eins og hann orðar það. Hann leggur áherslu á að þegar um sameiginleg markaðsyfirráð sé að ræða feli það í sér að brotið liggi hjá eigendum viðkomandi félaga og að hugtakið „ólögmætt samráð" eigi þá ekki við. Stjórnendur séu þá fyrir lögunum eins og deildarstjórar í einum og sama samrekstri og samráð þeirra í milli sé ekki ólögmætt. Ragnar telur á sér brotið með því að Samkeppniseftirlitið hafi neitað sér um að gefa skýrslu sína meðan á rannsókn málsins stóð. Honum hafi verið neitað um andmælarétt og að njóta þeirrar réttarverndar sem felist í því að vera málsaðili og að geta lagt mál sitt fyrir dómstóla. Stjórnvaldinu beri að standa við sína ákvörðun um að hann sé ekki málsaðili. Nú hafi Samkeppnisyfirvöld hins vegar afhent óviðkomandi aðilum gögn um sig, sem sé ekki málsaðili, og með því séu réttarfarsreglur brotnar. Hann telur einsýnt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins hafi ekki burði til að fara með embætti sitt og krefst afsagnar hans. Ragnar hefur nú þegar dregið sig í hlé sem stjórnarmaður í Lífeyrissjóði verzlunarmanna, vegna þess að í hönd fara kosningar til stjórnar VR. Hann lýsti því yfir í gær að hann muni segja af sér sem stjórnarmaður í Framtakssjóði Íslands slhf. þegar og ef umbjóðandi hans, Lífeyrissjóður verzlunarmanna óskar þess. Nú hefur sú ósk komið fram og mun hann því draga sig í hlé frá störfum i þeirri stjórn. Hann hafnar hins vegar alfarið ásökunum um „ólögmætt samráð" og segir að hann muni halda uppi vörnum í því vanhugsaða fjölmiðlafári sem efnt hafi verið til.
Mest lesið Sigríður fannst heil á húfi Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Innlent Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Erlent Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Erlent Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað Innlent Fleiri fréttir Fjörutíu grindhvalir strand í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Sjá meira