Erlent

Björguðu manni sem flaut á húsþakinu

Björgunarsveitarmenn sáu manninn veifa rauðum fána en hann hefur fastur á húsþakinu af húsi sínu síðan á föstudag
Björgunarsveitarmenn sáu manninn veifa rauðum fána en hann hefur fastur á húsþakinu af húsi sínu síðan á föstudag Mynd/AP
Björgunarsveitarmenn björguðu sextíu ára gömlum manni í nótt sem flaut á húsþakinu af húsi sínu um fimmtán kílómetrum frá bænum Fukushima.

Þegar maðurinn fannst var hann í góðu ásigkomulagi. Áður en flóðbylgjan, sem kom í kjölfar öflugs jarðskjálfta, skall á húsið hans á föstudaginn náði hann að koma sér upp á þakið á húsinu. Björgunarsveitarmenn sáu hann svo veifa rauðum fána sem hann hafði útbúið.

Manninum var flogið á spítala í þyrlu þegar hann fannst, en eins og áður segir var hann í góðu ásigkomulagi.

Staðfest hefur verið að fleiri en 1400 manns hafa látist í hamförunum og hundruða er saknað. Þá segir japanska lögreglan að tala látinna í bænum Miyagi, þar sem flóðbylgjan gekk yfir, gæti verið um 10 þúsund. Víða er rafmagnsleysi í landinu og hefur það gert björgunarstarf erfitt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×