Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mikið vatn í ám við Eyjafjallajökul - en ekki ennþá rignt „Það er búið að vera rosalega dökkt yfir hérna í morgun og ég myndi segja að það séu meiri líkur en minni að það fari að rigna,“ segir Ólafur Eggertsson bóndi á Þorvaldseyri. 25.10.2010 15:18
Óttast metár í alnæmissmitum „Við hörmum þetta að sjálfsögðu en þetta hefur samt legið í loftinu," segir Gunnlaugur Grétarson, formaður Alnæmissamtaka Íslands, en óvanalega margir einstaklingar hafa sýkst af HIV á síðustu þremur mánuðum. 25.10.2010 15:08
Rándýr éta býsnin öll af norskum búfénaði Ríkisendurskoðunin í Noregi hefur gert athugasemdir við himinháar upphæðir sem bændum eru greiddar vegna búpenings sem sagður er hafa orðið villidýrum að bráð. 25.10.2010 14:10
Valdi ranga hárgreiðslustofu til að ræna Vopnaður ræningi komst að því um helgina að það er ekki heiglum hent að ræna hárgreiðslustofur. 25.10.2010 13:26
Ellefu HIV smit á tæpum þremur mánuðum Ellefu manns hafa greinst með HIV smit frá því í byrjun ágúst hér á landi. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum Landlæknisembættisins sem birtar voru í dag en í byrjun ágúst höfðu fimm smitast. Sextán manns hafa því í allt smitast það sem af er ári og sóttvarnarlæknir talar um holskeflu síðustu vikur. 25.10.2010 13:16
Viðvörun: Gæti hækkað snögglega í ám við Eyjafjallajökul Veðurstofan varar við stormi í dag suðvestantil á landinu og spáð er talsverðri úrkomu á Suðurlandi. 25.10.2010 13:07
Konur til sölu í stórmarkaði Gestum í stórmarkaði í Tel Aviv í Ísrael brá í brún þegar þeir komu að verslun sem hét Konur til sölu. Fyrir framan verslunina stóðu ungar konur með verðmiða á sér. 25.10.2010 13:06
Gillz: „Ég elska konur og hef alltaf gert - mamma mín er kona!“ „Daginn eftir tók ég færsluna út og baðst afsökunar enda grófur einkahúmor þarna á ferð. Það mál var afgreitt þá og skil ekki tilganginn að vera að rifja þetta upp núna. Mér er líka gróflega misboðið að þessar konur skuli segja að ég hafi verið að hvetja til nauðgana. Að þær skuli lesa það út úr þessum vitleysisgangi er út hött og í raun ekki svaravert,“ segir Egill Einarsson, oft kallaður Gillzenegger. 25.10.2010 13:00
ESB sendir landamæraverði til Grikklands Grikkir eiga í mestu vandræðum með gríðarlegan straum flóttamanna á landamærum sínum að Tyrklandi. Á öðrum ársfjórðingi þessa árs sexfaldaðist þessi straumur. 25.10.2010 12:46
Mörður vill rannsókn á stuðningi við Íraksstríðið Ákvörðun um stuðning Íslands við innrásina í Írak, virðist hafa verið æ geggjaðri eftir því sem meira kemur fram, segir Mörður Árnason þingmaður Samfylkingarinnar, sem vill að málið verði rannsakað ofan í kjölinn. Aðdragandinn var lengri en áður hefur verið talið. Það sýna skjöl sem hafa komið í leitirnar í utanríkisráðuneytinu. 25.10.2010 12:37
Kvennafrí: Gengið gegn misrétti "Konur, hittumst á Lækjartorgi kl. 2. Framkvæmdanefnd um kvennafrí." Hún lét ekki mikið yfir sér, auglýsingin sem þulurinn las fyrir hádegisfréttatíma útvarpsins, föstudaginn 24. október árið 1975. Þessi hógværa hvatning var þó lokahnykurinn á einum stærsta viðburði hér á landi á síðustu öld. 25.10.2010 12:07
Enginn réttur til að ganga út í Árborg - bæjarstjórinn þó í fríi Konur í sveitarfélaginu Árborg hafa engan rétt til að ganga út af vinnustöðum í tilefni Kvennafrídagsins. Þetta kom fram bréfi bæjarstjóra Árborgar sem sent var til leikskólastjóra í sveitarfélaginu. 25.10.2010 12:02
Borgarstjórinn í einangrun: Byrjaður að segja brandara á ný Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, er enn í einangrun á Landspítalanum en hann fékk sýkingu í sár sem myndast hafði á handlegg hans, rétt fyrir ofan húðflúr sem hann fékk sér nýlega. Húðflúrið er mynd af skjaldamerki Reykjavíkur en sýkinginuna fékk hann þegar hann var staddur í Svíþjóð. 25.10.2010 11:42
Jóhanna hættir eftir hádegi Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hyggst leggja niður störf klukkan 14.25 og hvetur hún konur sem starfa í forsætisráðuneytinu til að gera slíkt hið sama. Í bréfi sem Jóhanna sendi samstarfsfólki sínu segir: „Kæra samstarfsfólk! Kvennafrídagurinn á Íslandi er einstakur á heimsvísu og hefur vakið verðskuldaða athygli í öðrum löndum. 25.10.2010 11:40
Fjögur hundruð mótmæla Gillz vegna símaskráar Hátt í fjögur hundruð manns hafa skráð sig á Facebook-síðu þar sem samstarfi Egils Einarssonar, oft nefndur Gillzenegger, vegna ritun símaskráarinnar er harðlega mótmælt. 25.10.2010 11:20
Vill sekta fyrir pínupils Bæjarstjórinn í ítalska smábænum Castellamari di Stabia er siðprúður maður. Og hann vill að aðrir hagi sér í samræmi við það. Til dæmis að fólk klæði sig siðsamlega. 25.10.2010 11:05
Velmegun ríkja mæld - Ísland í tólfta sæti Ísland er í tólfta sæti þegar velmegun ríkja er mæld, að því er fram kemur í nýrri skýrslu sem birt verður á morgun í Bretlandi. Skýrslan er gerð árlega og raðar hún ríkjum heimsins á lista og notar til þess ýmsa mælikvarða. Ánægja landsmanna, ríkidæmi og traust til stofnana er meðal annars notað til þess að reikna velmegun í hverju landi fyrir sig. 25.10.2010 10:49
Héldu að djöfullinn væri kominn Fjögurra mánaða gamalt barn lést og margir slösuðust þegar þeir flúðu það sem þeir töldu vera djöfulinn í smábæ vestan við París í morgun. 25.10.2010 10:35
Gnarr um Burns: Meira hjarta minna kjaftæði Jón Gnarr borgarstjóri sendi hvatningarorð til bandaríska borgarfulltrúans Joel Burns sem hélt tilfinningaþrungna ræðu um öldu sjálfsmorða samkynhneigðra pilta. Ræðuna hélt Burns á borgarstjórarfundi í heimabæ sínum, Fort Worth í Texas, fyrr í þessum mánuði og vakt heimsathygli. 25.10.2010 10:28
Vilja aðgang að meintum leynigögnum í níumenningamálinu Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður fjögurra af níu einstaklingum, sem hafa meðal annars verið ákærðir fyrir að ráðast á Alþingi, krafðist þess í fyrirtöku málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að fá aðgang að meintum leynigögnum um málið. 25.10.2010 10:24
Oddný: Ég hef skömm á viðbrögðum biskups Oddnýju Sturludóttur, formanni menntaráðs Reykjavíkur, er misboðið vegna ræðu séra Karls Sigurbjörnssonar biskups um helgina þar sem hann sagði bann við trúboði í leik- og grunnskólum stuðla að „fáfræði, fordómum og andlegri örbirgð." 25.10.2010 09:59
Alda Hrönn verður saksóknari hjá ríkislögreglustjóra Dómsmálaráðherra hefur sett Öldu Hrönn Jóhannsdóttur, staðgengil lögreglustjórans á Suðurnesjum, í embætti saksóknara hjá ríkislögreglustjóra frá og með 25. október 2010 vegna leyfis skipaðs saksóknara Helga M. Gunnarssonar. 25.10.2010 09:47
Hugsanlega með lífsýni úr skotmanninum Lögreglan í Malmö í Svíþjóð er vongóð um að hafa náð DNA sýni úr manninum sem skotið hefur á innflytjendur í borginni undanfarið ár. 25.10.2010 08:30
Varað við stormi Veðurstofan spáir að það geri storm á suðvestanverðu landinu og á miðhálendinu undir hádegi með vindstyrk upp á 15 til 23 metra á sekúndu og rigningu, en sumstaðar slyddu á hálendi. 25.10.2010 08:16
Óljóst um orsakir þegar þyrla brotlenti Ekki er enn vitað um orsakir þess að lítil fis- þyrla brotlenti ofan á Esjunni undir kvöld í gær. Tveir menn, sem voru um borð í henni sluppu ómeiddir og gengu til byggða. 25.10.2010 08:13
Kólerusmitum fer fækkandi á Haítí Heilbrigðisyfirvöld á Haítí segja að svo virðist sem dregið hafi úr kólerufaraldri sem geisað hefur í landinu undanfarið. Um 250 manns hafa látist í faraldrinum og rúmlega þrjú þúsund smitast en tilfellum virðist hafa farið fækkandi um helgina. 25.10.2010 08:06
Brutust inn í golfskála á Akureyri Brotist var inn í golfskálann að Jaðri á Akureyri í nótt og þaðan stolið einhverjum verðmætum. Grunur beindist strax að tveimur mönnum, sem áður hafa gerst brotlegir við lög, og fundust þeir á heimili annars þeirra. 25.10.2010 07:09
Neitaði að afgreiða homma Starfsmaður á skyndibitastaðnum Subway við Hringbraut neitaði að afgreiða viðskiptavin um helgina með þeim orðum að hann „afgreiddi ekki samkynhneigða“. 25.10.2010 06:30
Undrast ofsafengin viðbrögð biskups vegna trúboðsbanns Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, oftúlkar tillögu mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar um takmarkanir við aðgangi trúfélaga að skólastarfi í borginni. Þetta segir Margrét Sverrisdóttir, formaður mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar. Henni finnst viðbrögðin ofsafengin. 25.10.2010 06:15
Reyndi að ræna skartgripaverslun Þjófur reyndi að brjótast inn í skartgripaverslun við Laugaveg í Reykjavík í nótt. Hann reyndi að brjóta þar rúðu, en hún var úr öryggisgleri og féll því ekki inn, en þjófavarnakerfi fór í gang og virðist hafa stökkt þjófnum á flótta, því hann var horfinn þegar lögreglu bar að. 25.10.2010 06:03
Ekki gjá milli forystu og grasrótar innan VG Steingímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna (VG), segir ekkert athugavert við áskorun sem lögð var fram á nýliðnu málefnaþingi. Þar var flokksforystan hvött til þess að draga til baka aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu (ESB). 25.10.2010 06:00
Borga skal sjúkraliðum fyrir akstur vegna vinnu Sjúkraliðar á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Garðvangi í Garði eiga að fá greitt fyrir akstur til og frá vinnu búi þeir í nágrannasveitarfélögunum, segir Félagsdómur. 25.10.2010 06:00
Bæði dæluskipin að störfum í höfninni Dýpkun Landeyjahafnar gengur vel og samkvæmt áætlun en ófært hefur verið um höfnina vegna ösku og sands. 25.10.2010 05:30
Vill rannsókn á Wikileaks-skjölum Bagdad, AP Nick Clegg, aðstoðarforsætisráðherra Bretlands, segir að rannsaka þurfi ásakanir um pyntingar hermanna á föngum og dráp þeirra á almennum borgunum sem eru bornar fram í leyniskjölum Bandaríkjahers sem Wikileaks-síðan hefur birt. Í viðtali við breska ríkissjónvarpið, BBC, sagði Clegg að sorglegt væri að lesa upplýsingarnar um fall almennra borgara í Írak og að málið væri grafalvarlegt. 25.10.2010 04:15
Einn flottasti bíllinn í Evrópu Björgunarsveitirnar á höfuðborgarsvæðinu hafa tekið í notkun nýjan stjórnstöðvarbíl sem ber heitið Björninn. 25.10.2010 04:00
Öll sex ára börn fá frí merki Skátahreyfingin dreifir endurskinsmerkjum á næstu dögum til allra 6 ára barna á höfuðborgarsvæðinu og í pósti til allra barna á landinu. Tilefnið er endurskinsmerkjaherferð Arion banka, Skátahreyfingarinnar, Umferðarstofu og ríkislögreglustjóra, Láttu ljós þitt skína. 25.10.2010 04:00
Þingmaður telur starfsreglur hafa verið brotnar Bankasýsla ríkisins braut starfsreglur um skilvirka og gagnsæja ferla við sölu á eigum Landsbankans til Arion, félags í eigu lífeyrissjóða, að mati Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks. 25.10.2010 03:00
Konur styðji útlendar starfssystur „Ég bið íslenskar konur um að styðja erlendar samstarfskonur sínar og hvetja þær á Kvennafrídaginn,“ segir Sabine Leskopf, formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna. 25.10.2010 03:00
Sláturbólan landlæg í kindum „Þessi veirusýking sem kölluð er sláturbóla, smitast af lifandi sauðfé og af sláturdýrum,“ segir Katrín Andrésdóttir, héraðsdýralæknir Suðurlandsumdæmis, sem kveðst hafa fengið staðfestingu á því að óvanalega mikið sé um þessa veirusýkingu í fólki þessa dagana. 25.10.2010 02:00
Öryggi sjúklinga stefnt í hættu Hjúkrunarráð Landspítala telur að boðaður niðurskurður í fjárlagafrumvarpi ársins 2011 hafi neikvæð áhrif á þjónustu við sjúklinga og stofni öryggi þeirra í hættu. 25.10.2010 01:45
Hvetur Tyrki til að virða trúfrelsið „Kristni á tvímælalaust heima í Tyrklandi,“ sagði Christian Wulff, forseti Þýskalands, þegar hann ávarpaði tyrkneska þingið í Ankara fyrir helgi, fyrstur þýskra forseta. 25.10.2010 01:30
208 hafa látist og 2.700 sýkst Haítí, AP Heilbrigðisyfirvöld á Haítí telja að að minnsta kosti 208 manns hafi látist úr kóleru og um 2.700 til viðbótar hafi sýkst í Artibonite-héraðinu, norður af höfuðborginni Port-Au-Prince. 25.10.2010 01:00
Grasrót VG skoraði á flokksforystuna Á málþingi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs um utanríkismál sem fram fór um helgina var lögð fram áskorun,í nafni 100 kjósenda og félaga í VG, um að flokksforystan stöðvi yfirstandandi aðlögunarferli að ESB. Þeir sem standa að áskoruninni vilja að stefnu VG verði fylgt í orði og á borði. Þeir sem að áskoruninni standa segja að ekki hafi verið um eiginlega undirskriftasöfnun að ræða heldur sjálfsprottið framtak og fleiri nöfn hafi bæst í hópinn síðan að áskorunin var birt á föstudag. 24.10.2010 22:07
Stofnandi Wikileaks treystir ekki íslenskum stjórnvöldum Dagblaðið New York Times fullyrðir að Julian Assange, stofnandi Wikileaks, treysti ekki Íslandi vegna mikilla tengsla stjórnvalda við bandarísk stjórnvöld. Þetta kemur fram í grein um Assange sem birtist á vef New York Times í gær. 24.10.2010 21:49
Enginn aðgangsharðari en LÍN og skatturinn Menntamálanefnd Alþingis ætlar að funda með forsvarsmönnum LÍN um innheimtuaðgerðir gagnvart skuldurum. Tilefnið er bréf sem að einstæð tveggja barna móðir sendi á alla Alþingismenn vegna stöðu sinnar sem skuldari. 24.10.2010 20:23