Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Birgitta vill ekki blanda ESB saman við stjórnlagaþingskosningu Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, er hætt við að vera meðflutningsmaður tillögu sem lögð hefur verið fram á Alþingi um að kosið verði um að hætta aðildarviðræðum við Evrópusambandið samhliða því sem kosið verði til stjórnlagaþings. 24.10.2010 17:03
Nafn mannsins sem lést í Lettlandi Maðurinn sem lést í Lettlandi í fyrradag hét Árni Freyr Guðmundsson. Hann var fæddur árið 1981. Eins og greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær varð slysið snemma morguns þegar Íslendingurinn fór inn í spennistöð í gamla bænum í Riga. Lögreglan rannsakar nú hvers vegna dyrnar að spennustöðinni voru opnar. 24.10.2010 16:28
Breytingar á strætóferðum vegna kvennafrídagsins Breytingar verða gerðar á akstri Strætó á morgun þegar að kvennafrídagurinn verður haldinn hátíðlegur. Búist er við að talsverður fjöldi fólks sæki hátíðahöldin og götum verður lokað í miðbæ Reykjavíkur vegna þeirra. 24.10.2010 16:20
Gagnrýndi mannréttindaráð Reykjavíkurborgar harðlega Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, gagnrýnir harðlega tillögu mannréttindaráðs Reykjavíkur um að meina fulltrúum þjóðkirkjunnar samskipti við grunnskólabörn á skólatíma. Karl sagði í predikun í Hallgrímskirkju í morgun að kerfisbundið væri unnið að því að fela þá staðreynd að íslensk þjóðmenning væri byggð á kristindómnum. 24.10.2010 15:01
Forsætisráðherra óskaði fimleikakonum til hamingju Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur sent kvennaliði Gerplu í hópfimleikum hamingjuóskir með framúrskarandi og einstæðan árangur á Evrópumótinu í hópfimleikum. Á mótinu, sem fram fór í Malmö í Svíþjóð um helgina, vann kvennalandslið Íslands til gullverðlauna. 24.10.2010 13:53
Vilja uppboðsmarkað með eignir bankanna Opinberum uppboðsmarkaði með eignir sem fjármálastofnanir hafa leyst til sín verður komið á fót, ef Alþingi samþykkir þingsályktunartillögu sem lögð var fram í vikunni. 24.10.2010 13:00
Steingrímur er burðarásinn Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra er burðarás ríkisstjórnarinnar en situr uppi með flokk sem er alltaf að reyna að gera honum erfitt fyrir. Þetta sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, í Sprengisandi á Bylgunni í morgun. 24.10.2010 12:13
Breskur hermaður skaut átta ára stelpu Breskur hermaður skaut átta ára gamla íraska stelpu til bana þegar að hún var að leika sér við vinkonur sínar, segir Phil Shiner mannréttindalögfræðingur. 24.10.2010 11:07
Kólera á Haítí Að minnsta kosti fimm tilvik af kóleru hafa verið greind í Port au Prince á Haíti. Þetta veldur þarlendum yfirvöldum miklum áhyggjum enda tilhugsunin um kólerufarald skelfileg. Kólera veldur niðurgangi og upppköstum sem leiða til mikils vökvataps sem aftur getur dregið sjúkling til dauða á skömmum tíma fái hann ekki aðstoð. 24.10.2010 10:01
Þrír væntanlega ákærðir á Suðurnesjum Margt var um manninn í miðbæ Keflavíkur í nótt og var töluvert um pústra á milli manna að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum. Þrir menn gistu fangageymslur í bænum í nótt. Þeir mega allir búast við ákærum, tveir þeirra fyrir líkamsárásir en sá þriðji fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglunnar. 24.10.2010 09:28
Musso valt við Krossa Musso bifreið valt á Ólafsfjarðarvegi gegnt bænum Krossar um fimmleytið í gær. Ökumaður bifreiðarinnar slasaðist ekki alvarlega en var fluttur á slysadeild til skoðunar. Vegagerðin segir að á Vestfjörðum, Norðurlandi, Austurlandi og á Suð-Austurlandi sé víða nokkur hálka, hálkublettir og snjóþekja, einnig éljar norðanlands. Það er því betra að fara að öllu með gát. 24.10.2010 09:17
Báru logandi sófa út úr íbúð Eldur kviknaði i sófa í íbúðarhúsnæði í Hafnarfirði um tvöleytið í nótt. Þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn voru húsráðendur búnir að bera logandi sófann út úr íbúðinni. Eldurinn læsti sig líka í veggklæðningu og var hann slökktur með duftslökkvitæki. Slökkviliðið reykræsti svo íbúðina. Þrír menn voru í íbúðinni þegar að eldurinn kom upp og voru þeir allir skoðaðir til að fyrirbyggja að þeir fengu reykeitrun. 24.10.2010 08:58
Vilja endurskoða notkun kódeins Sérfræðingar í Bretlandi vilja endurskoða notkun kódeins í lyfjum og hugsanlega banna það alfarið vegna þess hve hættulegt það er. Þeir segja að mörg verkjalyf og hóstasaft sem notuð eru geti verið hættuleg og ávanabindandi. Í mörgum tilfellum ættu börn alls ekki að nota þau. 24.10.2010 08:00
Fjölmörg mál þögguð niður Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem hlaut í gær jafnréttisviðurkenningu Stígamóta fyrir árið 2010, segir að alger viðhorfsbreyting hafi orðið gagnvart sér á Íslandi. Sigrún Pálína hefur búið í Danmörku undanfarin misseri. Hún segir að á tímabili hafi hún talið að hún gæti aldrei komið 23.10.2010 17:13
Bifreið stolið frá bílaleigu Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir bifreiðinni RF-232, sem er ljósgrá Toyota Yaris árgerð 2007. Bifreiðin hvarf frá byggingu við Valhallarbraut að Ásbrú í Reykjanesbæ á tímabilinu 05.-12. október. Bifreiðin tilheyrir CC bílaleigunni. 23.10.2010 20:47
Eru Bandaríkin reiðubúin fyrir samkynhneigðan forseta? Bandaríski borgarfulltrúinn Joel Burns vakti heimsathygli fyrr í mánuðinum þegar hann flutti tilfinningaþrungna ræðu á borgarstjórnarfundi í heimabæ sínum, Fort Worth í Texas. Ræðan fjallaði um þá öldu sjálfsmorða ungra samkynhneigðra pilta og fórnarlamba eineltis sem riðið hefur yfir landið undanfarnar vikur. 23.10.2010 19:53
Þingeyringar ætla að faðma heilsugæsluna Kvenfélagið á Þingeyri ætlar að faðma heilsugæslustöðina á Þingeyri á mánudaginn kemur. Ásta Kristinsdóttir, ein af kvenfélagskonunum, segir í samtali við Vísi að kvenfélagskonur hafi miklar áhyggjur af niðurskurði í heilbrigðismálum á Vestfjörðum. Þingeyringar megi til dæmis alls ekki við meiri niðurskurði. 23.10.2010 16:22
Deilt um umsóknarferlið að ESB Málefnaþingi Vinstri hreyfingarinnar - Græns framboðs um utanríkismál lauk síðdegis í dag. Þar var tekist á um stefnu flokksins varðandi umsókn Íslands að Evrópusambandinu og hvernig umsóknarferlið hefði þróast. 23.10.2010 15:55
Fjórhjól valt við Hafravatn Sjúkraflutningamenn voru kallaðir að Hafravatni á fjórða tímanum í dag. Þar valt fjórhjól. Samkvæmt upplýsingum sem Vísir hefur frá sjúkraflutningamönnum virðist fjórhjólamaðurinn ekki vera alvarlega slasaður. 23.10.2010 15:47
Grunar aðstandendur Wikileaks um samsæri gegn sér Birting á leyniskjölum úr Íraksstríðinu er pólitískt samsæri gegn ríkjandi stjórnvöldum í landinu, segir forsætisráðherra landsins, Nouri al-Maliki. Eins og greint hefur verið frá í dag birti Wikileaks í gær hundruð þúsunda leyniskjala úr Íraksstríðinu. 23.10.2010 14:56
Skólavörðustígurinn iðar af lífi Skólavörðustígurinn iðar af lífi í dag, fyrsta degi vetrar. Súpudagurinn er haldinn hátíðlegur og hafa langar biðraðir myndast fyrir utan gamla fangelsið á Skólavörðustíg. Þar býður Úlfar Eysteinsson kokkur vegfarendum upp á súpu til að ylja sér með. 23.10.2010 14:37
Sigrún Pálína fékk Jafnréttisviðurkenningu Stígamóta Sigrún Pálína Ingvarsdóttir hefur fengið veitta Jafnréttisviðurkenningu Stígamóta fyrir árið 2010. Í rökstuðningi með viðurkenningunni segir að Sigrún Pálína hafi sýnt ótrúlega þrautseigju og hugrekki með því að segja sögu sína, þrátt fyrir ítrekaðar og öflugar þöggunartilraunir. 23.10.2010 13:43
Vill að ríkið hætti gæluverkefnum Það mætti draga úr högginu á heilbrigðisþjónustu landsbyggðarinnar með því að skera niður gæluverkefni í stefnulausu fjárlagafrumvarpi, að mati Kristján Þórs Júlíussonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hann telur til dæmis einboðið að fresta stofnun Byggingarstofnunar, Fjölmiðlastofu og draga úr íslenskri friðargæslu í þessu árferði. 23.10.2010 13:14
Finnst staða kvenna hafa versnað Staða kvenna á Íslandi hefur versnað undanfarin ár, segir Þórhildur Þorleifsdóttir, fyrrverandi þingmaður Kvennalistans. Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, tók Þórhildi tali í tilefni af kvennafrídeginum sem er á mánudag. 23.10.2010 12:00
Á sjöunda hundrað starfsmanna horfnir á braut Starfsmenn á Landspítala eru nú 627 færri en voru í janúar 2009 og rúmum hefur fækkað um 90. Landspítalinn þarf að skera niður um 850 milljónir á næsta ári og verða helstu tillögur að niðurskurði kynntar eftir 2-3 vikur, segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, í pistli á vef Landspítalans. 23.10.2010 11:36
Fordæma birtingu upplýsinganna Stjórn Baracks Obama, forseta Bandaríkjanna, gagnrýnir harðlega birtingu leyniskjala um Íraksstríðið á vefsíðunni Wikileaks í morgun. 23.10.2010 11:13
Gríðarlegar uppljóstranir um Íraksstríðið Hundruð þúsunda af leyniskjölum um Íraksstríðið hafa verið birt á vefsíðunni Wikileaks. Breska Sky fréttastöðin segir að aldrei áður hafi eins mikið af hergögnum verið lekið til almennings. 23.10.2010 10:03
Brutu rúðu á lögreglustöðinni með slökkvitæki Rúða var brotin í húsnæði lögreglunnar á Grindavik um eittleytið í nótt. 23.10.2010 09:58
Eldur í íbúðarhúsi á Ísafirði Betur fór en á horfðist þegar eldur kom upp í risi í íbúðarhúsnæði á Ísafirði um klukkan hálftíu í gærkvöld. Slökkviliðinu tókst að ráða niðurlögum eldsins á skömmum tíma en töluvert tjón hefði getað hlotist af. 23.10.2010 09:42
Sést henda hnífnum í sjóinn Myndband sem sýnir Gunnar Rúnar Sigurþórsson henda hnífi í smábátahöfnina í Hafnarfirði er meðal rannsóknargagna vegna manndrápsins í Hafnarfirði í ágúst. Hann mun þá hafa verið að koma beint af heimili Hannesar Þórs Helgasonar eftir að hafa orðið honum að bana. Myndbandið er úr eftirlitsmyndavél við höfnina. 23.10.2010 09:28
Áverkar á höfði eftir átök á 800 bar Karlmaður var fluttur með áverka á höfði til skoðunar á slysadeild eftir átök á 800 bar á Selfossi í nótt. Ágreiningur á milli tveggja manna endaði með því að annar sparkaði í höfuð hins og þótti ráðlegast að flytja hann með sjúkrabifreið til Reykjavíkur þar sem hægt væri að skoða hann. 23.10.2010 09:11
Skotárásir í Malmö vekja óhug meðal innflytjenda Undanfarið ár hefur óþekktur byssumaður skotið á allt að fimmtán manns í Malmö. Síðast í fyrrakvöld var skotið á tvær konur inn um glugga í heimahúsi. 23.10.2010 06:00
Grunaðir um framleiðslu á marijúana og amfetamíni Karlmennirnir fjórir, sem handteknir voru í fyrradag vegna rannsóknar lögreglu á framleiðslu fíkniefna, eru grunaðir um að hafa bæði framleitt amfetamín og marijúana. 23.10.2010 06:00
Við samningslok liggja kostirnir skýrt fyrir Samstaða var um að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið (ESB) og að þingmenn kysu um niðurstöðuna, í pallborði og hjá frummælendum á nýafstaðinni morgunráðstefnu samtakanna Sterkara Ísland. 23.10.2010 06:00
EES-samningurinn var versti kostur Finna Juhana Aunesluoma, sem stýrir Evrópufræðastofnun Háskólans í Helsinki, reifaði afstöðu Finna til Evrópusambandsins í gegnum árin. Finnar hefðu, ólíkt Svíum, verið hrifnir af yfirþjóðlegum þætti ESB og fljótir til að finna sinn sess í Brussel. 23.10.2010 06:00
Óttast glæpi en ekki stóra tölvuárás Íslenskum tölvunotendum stafar mun meiri hætta af skipulagðri glæpastarfsemi á netinu en skipulagðri árás sem hefði það að markmiði að setja íslensk fjarskipti á hliðina, að mati sérfræðinga í tölvuöryggismálum. 23.10.2010 06:00
Mannréttindi og öryggi skert Persónuvernd leggst gegn áformum heilbrigðisráðuneytisins um að leggja að mestu af aðkomu stofnunarinnar að leyfisveitingum til aðgangs að sjúkraskrám. 23.10.2010 05:30
Hefur fætt barn í bíl og flugvél „Við náðum ekki á spítalann, það er ekki flóknara en það,“ segir Þórunn Hrund Óladóttir, sem fæddi dreng fyrir utan sjúkrahúsið í Neskaupstað snemma á fimmtudagsmorgun. 23.10.2010 05:15
Byggi stúku eða spili leiki utanbæjar Bæjarfulltrúar í Snæfellsbæ telja að Knattspyrnusamband Íslands hafi stillt bæjarfélaginu upp við vegg þannig að ekki sé umflúið að bærinn styrki byggingu 350 manna stúku í Ólafsvík um sjö milljónir króna. 23.10.2010 05:00
Hópur vildi draga aftur ESB-umsókn Málefnaþing Vinstri Grænna um utanríkismál hófst í gær þar sem mál tengd umsókn Íslands í Evrópusambandið voru meðal þess sem brann á fólki. 23.10.2010 04:30
Bærinn boðar lokun Borgar Bæjaryfirvöld í Kópavogi ætla að loka Steypustöðinni Borg á Kársnesi með valdi næsta föstudag. 23.10.2010 04:00
Hætt að bjóða börnum í sund Hætt verður að bjóða börnum að fara ókeypis í sund á Akureyri og gjaldskrá í Hlíðarfjalli verður hækkuð á næstunni. 23.10.2010 03:30
Elsta vetrarbrautin mynduð „Þetta er fjarlægasta fyrirbæri sem sést hefur í alheiminum hingað til. Ljósið frá þessari vetrarbraut lagði af stað fyrir rúmlega þrettán milljörðum ára, nánar tiltekið aðeins um 600 milljón árum eftir Miklahvell. Það er um átta milljörðum ára áður en jörðin var til," segir Sævar Helgi Bragason, ritstjóri Stjörnufræðivefsins og tengiliður ESO á Íslandi, um nýjustu uppgötvun stjarnvísindanna. 23.10.2010 03:00
15% aukning á sölu nautakjöts Sala á nautakjöti jókst um 15,3 prósent í nýliðnum september samanborið við sama mánuð í fyrra, samkvæmt samantekt Bændasamtaka Íslands. 23.10.2010 03:00
Fagfólk skóla virðist vanmeta eineltið Börn sem eiga erlenda foreldra eru helmingi líklegri til að upplifa einelti en þau sem eiga íslenska foreldra. Þetta kemur fram í rannsókn Þórodds Bjarnasonar, prófessors í félagsfræði við Háskólann á Akureyri. 23.10.2010 02:00