Innlent

Árni Friðriksson í olíuleit á Drekasvæðinu

Kristján Már Unnarsson skrifar

Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson er komið í olíuleit á Drekasvæðinu. Skipið safnar borkjarnasýnum úr efstu botnlögum til að kanna hvort í þeim leynist olía eða gas. Fréttir af gasfundi við Grænland gætu skipt Íslendinga máli.

Það var borskipið Stena Forth sem fann gasið undan vesturströnd Grænlands en skoska olíuleitarfyrirtækið Cairn Energy notar einnig borpallinn Stena Don við olíuboranirnar, sem munu halda áfram út septembermánuð. Félagið fann ekki aðeins gas heldur skýrði einnig frá því í gær að vísbendingar væru um olíu á svæðinu.

Í dönskum fjölmiðlum er talað um að Grænland hafi dottið í lukkupottinn en grænlenskir ráðamenn binda vonir við að olía muni tryggja fjárhagslegt sjálfstæði Grænlands í framtíðinni. Gasið fannst undir hafsbotni norðvestur af höfustaðnum Nuuk, um 170 kílómetra undan strönd landsins.

Erlendir fréttaskýrendur segja þessar fréttir auka áhuga alþjóðlegra olíufyrirtækja á Grænlandi en næstu olíuleitarútboð eru áformuð síðar á þessu ári og árið 2012, og verður leit og vinnsla við Austur-Grænland meðal annars boðin út.

Allt landgrunnið við austurströnd Grænlands þykir raunar áhugavert, frá sjónarhóli olíuiðnaðarins. Olíufundur þar gæti haft mikil áhrif hérlendis, en staðhættir við Austur-Grænland gera það að verkum að íslenskar hafnir gætu orðið þjónustuhafnir.

Þá spáir orkumálastjóri því að íslenska Drekasvæðið muni fá meiri athygli en hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson er einmitt statt þar þessa dagana og það við olíuleit. Skipið tekur borkjarnasýni af hafsbotninum niður á allt að fimm metra dýpi í setlögin. Sýnin eru djúpfryst um borð í skipinu og verða síðan send til Noregs þar sem rannsakað verður hvort merki um olíu eða gas sjáist í botnlögunum.

Verkefnið er unnið í samvinnu við norsk stjórnvöld en Árni Friðriksson mun einnig kortleggja Jan Mayen hrygginn Noregsmegin með fjölgeislamælingum.

 











Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×