Fleiri fréttir

Smábær býr sig undir brúðkaup forsetadóttur

Íbúar smábæjarins Rhinebeck í Hudson dalnum fyrir norðan New York eru nú að búa sig undir brúðkaup Chelsea Clinton, dóttur þeirra Bill og Hillary Clinton fyrrum forsetahjóna Bandaríkjanna.

Herkúles vél nauðlenti á Keflavíkurflugvelli

Hætta skapaðist um borð í stórri bandarískri Herkúles herflutningavél, eftir að bilun kom upp í tveimur hreyflum af fjórum, þegar hún var stödd skammt frá Íslandi undir kvöld í gær.

Love Parade: Tuttugasta ungmennið látið

Þrýst er á að borgarstjóri Duisburg, Adolf Sauerland, segi af sér vegna harmleiksins á Love Parade-göngunni um helgina. Tuttugasta ungmennið, 21 árs gömul þýsk kona, lést af meiðslum sínum í nótt. Alls slösuðust ríflega 500 manns.

Fjármálaeftirlitið óttaðist hrun af völdum tilmæla Samtaka lánþega

Hættuástand hefði getað skapast í kjölfar yfirlýsingar Samtaka lánþega þar sem innistæðueigendur voru hvattir til að hætta að greiða af gengistryggðum lánum. Þetta kemur fram í svari Fjármálaeftirlitsins til Umboðsmanns Alþingis vegna tilmæla eftirlitisins um hvernig fjármálafyrirtæki ættu að bregðast við gengislánunum svokölluðu.

Seinfærir foreldrar ekki ofbeldisfyllri en aðrir

Dósent í fötlunarfræðum varar við því að fólk dragi ályktanir um seinfæra foreldra í kjölfar þess að greindarskert móðir var dæmd í þriggja mánaða fangelsi fyrir að lærleggsbrjóta fjögurra vikna son sinn.

BP setur öryggið á oddinn

Nýr forstjóri olíufyrirtækisins BP segir að olíuslysið í Mexíkóflóa sé viðvörun fyrir alla þá sem starfa í olíugeiranum. Hann segir að öryggisatriði verði nú á forgangslista fyrirtækisins.

Tveir dópaðir undir stýri í Eyjum

Lögreglan hefur stóraukið umferðareftirlit í Vestmannaeyjum vegna komu fjölda gesta á Þjóðhátíð sem hefst næstu helgi. Tveir ökumenn voru í dag kærðir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna.

Fjárlagagerð gæti riðið ríkisstjórninni að fullu

Þingmenn Samfylkingarinnar eru afar ósáttir við það sem þeir kalla hótanir óánægjuarms vinstri grænna í garð ríkisstjórnarinnar. Örlög ríkisstjórnarinnar gætu ráðist í haust þegar kemur að fjárlagagerðinni.

Actavis okrar á samheitalyfjum

Lausleg könnun á nokkrum algengum samheitalyfjum sem tekin voru af markaði af Actavis og sett aftur á markað undir öðrum heitum sýnir að sjúklingar á Íslandi greiða margfalt hærra verð fyrir sömu vöru undir nýjum merkjum.

Fannst niðurstaða ríkisstjórnarinnar „tussufín"

Elías Jón Guðmundsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, segist ekki skilja hvernig tölvupóstur, þar sem hann lýsir því hvernig hægt sé að „spinna" atburðarrás fyrir blaðamannafund ríkisstjórnarinnar í dag barst úr tölvunni hans.

Upplýsa Magma Energy um rannsókn

Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur í dag sent HS Orku hf. og Magma Energy Sweden AB bréf þar sem upplýst er að á vegum stjórnvalda sé að fara af stað sjálfstæð og óháð rannsókn sem lúti að lögmæti kaupa Magma Energy Sweden AB á hlutafé í HS Orku hf. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá efnahags og viðskiptaráðuneytinu.

„Ég fagna þessari niðurstöðu“

„Ég fagna þessari niðurstöðu," sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á blaðamannafundi nú fyrir stundu. Þar var tilkynnt að það sé ásetningur ríkisstjórnarinnar að vinda ofan af einkavæðingu í orkugeiranum og tryggja að orkufyrirtæki séu í eigu opinberra aðila. Þá verður eign einkaaðila að orkugeiranum takmörkuð með lagafrumvarpi.

Greiðslur til bænda lækka - en samt ekki

Sláturfélag Suðurlands ætlar að lækka greiðslur til sauðfjárbænda um 39 krónur á kílóið að jafnaði fyrir dilka. Greiðslur til þeirra eiga þó ekki að lækka, því þeir fá þær eftir öðrum leiðum.

Clarkson móðgar múslima

Jeremy Clarkson hinn óvægni umsjónarmaður sjónvarpsþáttanna Top Gear er rétt einusinni búinn að móðga fólk. Að þessu sinni eru það múslimar.

Ekið á kyrrstæðan Yaris á Snæfellsnesi

Ekið var aftan á kyrrstæðan bíl, af gerðinni Toyota Yaris, á veginum milli Búða og Arnarstapa á sunnanverður Snæfellsnesi um hálf þrjú í dag. Tveir sjúkrabílar eru á leið til Reykjavíkur með slasaða eftir áreksturinn sem var mjög harður að sögn varðstjóra hjá lögreglunni í Stykkishólmi.

Munu ekki staðfesta samningana

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur ríkisstjórnin ákveðið að greina forsvarsmönnum Magma Energy á Íslandi frá því að áhöld séu um lögmæti samninganna um kaupin á HS orku og því sé ekki hægt að staðfesta þá af opinberri hálfu núna.

Lausn komin á Magma-málið

Ríkisstjórnin hefur komist að niðurstöðu í Magma málinu og verður hún kynnt í dag. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa setið á fundum í allan dag vegna málsins, en eins og kunnugt er lýstu þrír þingmenn Vinstri grænna því yfir um helgina að þeir myndu ekki styðja ríkisstjórnina áfram verði samningurinn um kaup Magma Energy á HS Orku ekki ógiltur.

Ragnheiður Elín: Best að boða til kosninga

Þrír þingmenn Vinstri grænna lýstu því yfir um helgina að þeir ætli ekki að styðja ríkisstjórnina áfram takist ekki að ógilda kaup Magma Energy á HS Orku. Ríkisstjórnin vinnur nú að því að skoða möguleikana í stöðunni.

„Vegir manna á RÚV órannsakanlegir“

„Það er búið að tilkynna mér að það verður ekki framlengdur samningur við mig sem rennur út í lok ágúst," segir Kristinn Hrafnsson fréttamaður á Ríkisútvarpinu. Hann er nú staddur út í London að vinna að málum tengdum Wikileaks en það var í morgun sem honum var tilkynnt að samningurinn yrði ekki framlengdur.

Dómur mildaður vegna farsímanotkunar

Breskur maður hefur fengið eins árs fangelsisdóm skilorðsbundinn vegna þess að ung kona sem hann keyrði á var að tala í farsíma sinn þegar slysið varð.

Segir engan fylgjast með Actavis samfélaginu til tjóns

Heimilislæknir í Reykjavík segir að lyfjafyrirtækið Actavis hafi reglulega tekið lyf úr sölu án nokkurra skýringa sem hafi valdið sjúklingum miklum óþægindum. Hann leiðir líkum að því að fyrirtækið láti gróðasjónarmið ráða för, hætti að selja lyf sem skili litlum gróða og skeyti þannig ekkert um hagsmuni sjúklinga.

Lærbraut fjögurra vikna gamlan son sinn

Kona hefur verið dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir alvarlega líkamsárás gegn fjögurra vikna gömlum syni sínum. Sannað þykir að konan, sem er talsvert misþroska, hafi lærbrotið son sinn. Óútskýrðir áverkar fundust einnig á eins árs gamallri dóttur konunnar.

Umræðan villandi

Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, segir það vera áhyggjuefni hversu umræðan á Íslandi um sambandið sé óupplýsandi og jafnvel villandi. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Brussel í morgun að lokinni ríkjaráðstefnu Evrópusambandsins og Íslands.

„Ég er bara á leiðinni upp í sendiráð aftur“

„Ég var handtekinn og keyrður upp á stöð og settur út úr bílnum og mátti fara. Ég er bara á leiðinni upp í sendiráð aftur. Ég er hérna efst á laugarveginum," segir Lárus Páll Birgisson sem var handtekinn fyrir stundu fyrir að fara ekki eftir fyrirmælum lögreglu er hann sat á stétt fyrir utan Bandaríska sendiráðið. Hann ætlar að fara aftur upp í sendiráð nú þegar hann er laus.

Rýrt úran í skotfærum í Írak

Varnarmálaráðherra Bretlands hefur staðfest að breskar hersveitir hafi notað skotfæri með rýrðu úrani í innrásinni í Írak árið 2003.

Lárus Páll mótmælir fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna

Mótmælandinn Lárus Páll Birgisson situr á stéttinni fyrir framan Bandaríska sendiráðið. Að sögn lögreglumanns sem er á vettvangi er verið að vísa honum af svæðinu. Hann situr sem fastast og er lögreglumaður að ræða við hann. „Þetta fer allt saman fram í rólegheitum," segir lögreglumaðurinn.

Slapp tvisvar út af lokaðri deild sömu nóttina

„Ég hef verulegar áhyggjur af því að fólk sem er í svona slæmu ástandi sé ekki undir meira eftirliti en það, að það geti farið út án þess að enginn taki eftir því,“ segir systir 24 ára gamals manns með geðklofa.

Eldur kom upp í húsbíl á Akranesi

Eldur kom upp í bifreið í bílskúr við Skagabraut á Akranesi á miðvikudag. Þegar að slökkvilið kom á staðinn var bifreiðin alelda en greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins. Bifreiðin er gjörónýt.

Norskir bændur fækka nautgripum vegna þurrka

Vegna mikilla þurrka í suðurhluta Noregs í sumar er fyrirsjáanlegt að bændur verða að slátra miklum fjölda nautgripa þar sem þeir ná ekki nægum heyforða fyrir veturinn.

Pyntingastjóri í 19 ára fangelsi

Helsti pyntingastjóri Rauðu kmeranna í Kambódíu hefur verið dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir hlut sinn í dauða að minnsta kosti 14000 manna í hinu illræmda Tuol Sleng fangelsi.

Þreföldun orðið á útlánum AGS

Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) vill stækka útlánagetu sjóðsins í 1.000 milljarða dollara eða rúmlega 122 þúsund milljarða króna. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur staðið í ströngu síðan fjármálakreppan skall á fyrir rúmum tveimur árum. Hann aðstoðar nú fjölmörg ríki víða um heiminn, þar á meðal Ísland.

Verð alfarið í höndum verslana

Verð á kartöflum hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum og vart haldist stöðugt í einn mánuð í senn. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni hefur vísitala neysluverðs haldist nokkuð jöfn á undanförnum 15 árum, þótt hún hafi hækkað um tæp fimmtíu prósentustig síðan í desember 2007. Verð á kartöflum fylgir vísitölu neysluverðs upp að einhverju marki, en þó ekki meira en svo að það fer úr 132 krónum á kílóið í maí 2008 upp í 242 krónur á kílóið í ágúst sama ár. Þetta er um 83 prósenta hækkun á tæpum þremur mánuðum.

Laxar á þurru landi

Óvenju miklir þurrkar hafa verið á Vestfjörðum að undanförnu og er gróður víða orðinn mjög þurr. Þá er vatnsrennsli í laxveiðiánum við Ísafjarðardjúp orðið mjög lítið.

Sjá næstu 50 fréttir