Fjárlagagerð gæti riðið ríkisstjórninni að fullu Höskuldur Kári Schram skrifar 27. júlí 2010 19:32 Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Þingmenn Samfylkingarinnar eru afar ósáttir við það sem þeir kalla hótanir óánægjuarms vinstri grænna í garð ríkisstjórnarinnar. Örlög ríkisstjórnarinnar gætu ráðist í haust þegar kemur að fjárlagagerðinni. Yfirlýsingar þingmanna Vinstri grænna um síðustu helgi vegna Magma málsins hafa vakið spurningar um ríkisstjórnarsamstarfið og hvort ríkisstjórnin hafi yfir höfuð getu til að takast á við þau stóru verkefni sem eru framundan. Þó aðeins sé líðið rúmt ár frá því að ríkisstjórnin var mynduð hafa átakamálin verið mörg. Þannig hefur óánægjuarmur Vinstri grænna lýst yfir andstöðu við mörg mál sem sérstaklega er kveðið á um í stjórnarsáttmálum. Þar á meðal ESB málið, samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og frumvarp um fækkun ráðuneyta. Ögmundur Jónasson hætti sem heilbrigðisráðherra til að mótmæla vinnubrögðum ríkisstjórnar í Icesave málinu í september á síðasta ári. Ögmundur greiddi atkvæði gegn Icesave málinu á Alþingi um síðustu áramót og einnig Lilja Mósesdóttir. Þau tvö ásamt Ásmundi Einari Daðasyni, Atla Gíslasyni og Guðfríði Lilju Grétarsdóttur tilheyra óánægjuarminu sem margir vilja meina að sé í raun þriðji ríkisstjórnarflokkurinn. Á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í mars líkti Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra samstarfinu við Vinstri Græna við að smala köttumþ Það hefur jafnvel verið rætt um þann möguleika að taka framsóknarmenn inn í ríkisstjórn til að styrkja stjórnina. Þeir stjórnarliðar sem fréttastofa ræddi við í dag telja að enn sé vilji til áframhaldandi samstarfs en Samfylkingarmenn eru þó afar óánægðir með yfirlýsingar Vinstri grænna í magma málinu. Einn talaði um hótanir og að Vinstri grænir væru sífellt að skella skuldinni á Samfylkinguna þegar kæmi að óþægilegum málum. En ríkisstjórnin mun væntanlega ekki falla á Magma málinu, ESB eða Icesave að sögn þeirra stjórnarliða sem fréttastofa ræddi við. Stóra prófið verður í haust þegar kemur fjárlagagerðinni og þeim niðurskurði sem er framundan. Ef flokkarnir ná ekki samstöðu um leiðir í því sambandi mun ríkisstjórnin liðast í sundur og verður þá væntanlega boðað til
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira