Fleiri fréttir

Leigjendur lögðu íbúð í rúst

Leigusali í miðbæ Reykjavíkur þurfti að hóta því að siga lögreglu og lögmönnum á leigjendur sína til að koma þeim út úr íbúð sem þeir höfðu nánast lagt í rúst. Tjónið er metið á þrjár milljónir króna.

Inspired by Iceland: Ein og hálf milljón SMS skilaboða

Þegar ferðaiðnaðurinn virtist vera að hrynja vegna eldgosa tóku ríkisstjórnin og félög í ferðaþjónustu saman höndum til þess að laða ferðamenn til landsins og fullvissa þá um að þeir væru ekki í lífshættu ef þeir kæmu í heimsókn.

Gufuvirkni minnkað í Eyjafjallajökli

Gufuvirkni hefur minnkað mikið frá því í síðustu viku í Eyjafjallajökli. Lítil virkni er í jöklinum, en hvít vatnsgufa steig upp frá eldstöðinni miðvikudaginn 2. júní í um 2,5 kílómetra hæð.

Meirihluti myndaður í Álftanesi

Fjórir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, sem fara með meirihluta í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Álftaness, hafa ásamt einum bæjarfulltrúa Framsóknarflokks og einum bæjarfulltrúa L-lista óháð framboð undirritað yfirlýsingu um samvinnu í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Álftanes. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Bæjarstarfsmaður verður bæjarstjóri

Nýr bæjarstjóri hefur verið ráðinn í Kópavogi en það er Guðrún Pálsdóttir sem hefur hingað til starfað sem sviðsstjóri menningarsviðs bæjarins auk þess sem hún hefur verið fjármálastjóri til 20 ára.

Sala nýrra bíla minnkar um 1%

Það sem af er árinu hafa 1.756 ökutæki verið nýskráð samanborið við 1.733 ökutæki eftir jafn marga daga á síðasta ári. Þetta kemur fram í fréttabréfi Umferðarstofu.

Tölvuleikurinn Path to Ares sigrar í tölvuleikjakeppni IGI

Tölvuleikurinn Path to Ares sigraði í fyrstu árlegu tölvuleikjakeppni Samtaka leikjaframleiðenda á Íslandi (IGI, Icelandic Gaming Industry) en úrslitin voru kynnt í lok tölvuleikjadags IGI og Háskólans í Reykjavík um helgina. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Strandsiglingar eru taldar álitlegur kostur

Strandsiglingar eru álitlegur kostur, nægilegir flutningar virðast vera fyrir hendi, þær henta ákveðnum vöruflokkum, áhugi er hjá kaupendum slíkrar þjónustu og flutningsgjöld eru samkeppnishæf við landflutninga.

Metþátttaka í Háskóla unga fólksins

Metþátttaka verður í Háskóla unga fólksins í ár en 1500 grunnskólabörn eru skráð í skólann að þessu sinni. Háskóli unga fólksins opnar upp á gátt á mánudaginn 7. júní og stendur í tvo daga, segir í tilkynningu.

Landsbjörg kaupa björgunarbáta

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa fest kaup á sex björgunarbátum, fimm af gerðinni Atlantic 75 og einn Atlantic 21. Björgunarsveitir landsins hafa undanfarið verið að efla sjóbjörgunarþátt sinn enda ekki vanþörf á. Tilkoma strandveiða og niðurskurður hjá opinberum aðilum gera það að verkum að verkefni hafa reynst ærin, sem dæmi má nefna að björgunarskip félagsins hafa í síðustu viku farið um 15 sinnum til aðstoðar bátum í vanda við Íslandsstrendur.

Ekki stefnir í að listamenn sniðgangi Grímuna

Ekkert bendir til að listamenn muni sniðganga Grímuverðlaunin í ár, þrátt fyrir umræðu um aðkomu ráðamanna að verðlaununum. Formaður stjórnar Grímuverðlaunanna segir engan ráðamann afhenda verðlaun að þessu sinni.

Óprúttnir aðilar safna styrkjum í nafni Geðhjálpar

Geðhjálp hefur undanfarna daga borist tilkynningar um að einhver eða einhverjir séu að hringja í fólk og bjóða því að styrkja ýmis málefni í nafni þeirra samkvæmt tilkynningu sem þeir sendu frá sér.

600 þúsund manns náðu í Íslandsmyndbandið

Inspired by Iceland markaðsherferðin, sem hófst fyrir rúmum tveimur vikum, náði nýjum hæðum í gær í átakinu „Þjóðin býður heim“ en gær höfðu að minnsta kosti ein og hálf milljón smáskilaboða verið send og fimm milljónir Twitter skilaboða.

Vodafone býður viðskiptavinum að hringja frítt

Viðskiptavinum Vodafone býðst um helgina að hringja frítt úr heimilissímanum til útlanda, í tilefni af kynningarátaki Íslensku þjóðarinnar sem ætlað er að laða erlenda ferðamenn til Íslands.

Óku um bæinn og skemmdu bíla

Þrír karlmenn voru handteknir í nótt en þeir höfðu ekið vítt og breytt um bæinn og skemmt bíla, meðal annars með exi. Talið er að þeir hafi skemmt samtals átta bíla en þeir gætu verið fleiri að sögn lögreglu. Mennirnir voru allir í annarlegu ástandi og verða yfirheyrðir síðar í dag og þá kemur mögulega í ljós hvað þeim gekk til.

Fjarðabyggð: Meirihluti myndaður

Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur í Fjarðabyggð hafa náð saman um myndun meirihluta í bæjarstjórn Fjarðabyggðar á kjörtímabilinu sem nú er að hefjast. Í tilkynningu segir að stjórnir og framboðslistar félaganna hafi samþykkt drög að málefnasamningi milli þessarar framboða. Hann verða fullgerður á næstu dögum og birtur opinberlega á heimasíðu sveitarfélagsins þegar ný bæjarstjórn tekur við á fyrsta fundi sínum þann 15.júní næstkomandi ásamt því að hann verður kynntur í endanlegri mynd innan framboðanna.

Ákvarðana um orkuskipti brátt að vænta

Á næstu vikum kunna að liggja fyrir tillögur um skatta­ívilnanir og hvata frá hinu opinbera til fólks og fyrirtækja sem vill færa sig yfir í vistvæn ökutæki, eða breyta ökutækjum sínum þannig að þau verði vistvænni. Starfshópurinn var kynntur á ráðstefnu um visthæfar samgöngur í Háskólanum í Reykjavík í gær.

Fundu stjörnu sem er heill demantur

Stjarnfræðingar hafa fundið stjörnu sem er heill demantur. Stjarna þessi glitrar á himinhvolfinu í 50 ljósára fjarlægð frá jörðinni.

Stöðvaður með fölsuð skilríki á Keflavíkurflugvelli

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði tvö ökumenn í nótt sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum fíkniefna og einn sem ók drukkinn. Tveir gistu fangageymslur, annar þeirra tengist fyrrgreindum málum en í hinu tilfellinu er um að ræða útlending sem stöðvaður var við landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli. Skilríki mannsins reyndust vera í ólagi og var hann því hnepptur í varðhald á meðan nánar er grennslast fyrir um hann.

Írskt flutningaskip á leið til Gaza

Flutningaskip í írskri eigu er nú á leið til Gaza svæðisins með 500 tonn af sementi sem nota á til að endurbyggja skóla, heimili og opinberar byggingar sem eyðilagðar hafa verið í átökum við Ísraelsmenn.

Naoto Kan næsti forsætisráðherra Japan

Japanski Lýðræðisflokkurinn hefur valið Naoto Kan sem næsta forsætisráðherra Japans en sá fyrri, Yukio Hatoyama sagði óvænt af sér í vikunni eftir deilur um framtíð bandarísku herstöðvarinnar á eyjunni Okinawa.

BP tókst að koma tappa á olíulekann í Mexíkóflóa

BP olíufélaginu hefur tekist að koma fyrir sérhönnuðum tappa á olíuleiðsluna sem lekur olíu út í Mexíkóflóa. Aðgerð sem þessi hefur aldrei verið reynd áður en nokkur tími þarf að líða til að sjá hvort hún hafi borið árangur.

Fullar fangageymslur og annríki hjá lögreglu

Fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru fullar eftir eftir erilsama vakt í borginni. Tveir menn voru handteknir eftir að þeir höfðu brotist inn í bíla í miðborginni og ein kona er í haldi en hún ók á tvær bifreiðar í Blesugróf fyrir miðnætti. Hún reyndist í mjög annarlegu ástandi af völdum lyfja og áfengis.

Kópavogur: Nýr meirihluti kynntur í dag

Nýr meirihluti í Kópavogi verður kynntur í dag samkvæmt heimdildum fréttastofu en fjórir flokkar, Samfylking, VG, Næst besti flokkurinn og Listi Kópavogsbúa hafa fundað stíft frá kosningum á laugardag.

Öryggi aukið vegna harðari brotamanna

Öryggisbúnaður í fangelsum landsins hefur verið efldur verulega að undanförnu, þar sem harður hópur brotamanna afplánar nú refsingu í sumum þeirra, að sögn Páls E. Winkel, forstjóra Fangelsismálastofnunar. Í lok síðustu viku var lokið við að setja upp svokallað Tetra-kerfi í öllum fangelsum landsins.

Minna fjárlagagat en reiknað var með

Útlit er fyrir að fjárþörf ríkisins á næsta ári verði tæpum tíu milljörðum minni en spáð hafði verið. Fjárlagagatið nemi rúmum 40 milljörðum króna, í stað tæpum 50 milljörðum.

Hraðahindranir kosta Strætó 350 milljónir

Strætó bs. gæti haldið úti þjónustu fyrir hádegi á sunnudögum „og rúmlega það“ ef hraðahindranir yrðu fjarlægðar af helstu akstursleiðum vagnanna. Það gæti sparað allt að tíu vagna í akstri. Framkvæmdastjóri Strætós segir þetta og bendir á að hvergi í Skandinavíu séu hraðahindranir á stofnleiðum vagnanna.

Vörur fyrir 732 milljónir fluttar inn frá Ísrael

Íslendingar fluttu inn vörur frá Ísrael fyrir rúmar 732 milljónir króna á síðasta ári. Innflutningurinn hefur aukist síðustu ár. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands um utanríkisverslun.

Fjármögnun banka skoðuð

ESA, eftirlitsstofnun EFTA, kannar nú upplýsingar sem stjórnvöld hafa látið í té um endurfjármögnun ríkisbankanna, sem fram fór í fyrrasumar.

Þúsundir mættu í jarðarför

Til Tyrklands komu í fyrrinótt alls 466 þeirra 700 manna sem voru um borð í skipalestinni sem Ísraelar réðust á í vikunni. Flestir þeirra eru Tyrkir, en fimmtíu af öðru þjóðerni.

Tilefni morðanna er enn hulin ráðgáta

Rannsóknarlögreglan í Bretlandi hefur reynt að finna vísbendingar um hvað varð til þess að Derrick Bird, 52 ára leigubílstjóri í norðvesturhluta Englands, tók upp á því að skjóta á fólk meðan hann ók um þorp og sveitir á miðvikudagsmorgun.

Önnur ný býfluga til landsins

Komið hefur í ljós að rauðhumla, ný hunangsfluga sem hefur numið land á Íslandi, er ekki ein á ferð. Í raun er um að ræða tvær líkar tegundir og hefur hin tegundin fengið nafnið ryðhumla.

Skera upp herör gegn illgresinu

Náttúrustofa Vesturlands hefur fengið sérfræðinga í landgræðslu til liðs við sig vegna fyrirhugaðra aðgerða gegn ágengum plöntum. Um samstarfsverkefni við Stykkishólmsbæ er að ræða.

Sjá næstu 50 fréttir