Fleiri fréttir

Sinubruni í Tálknafirði

Slökkviliðsmenn á sunnanverðum Vestfjörðum börðust við sinubruna í Tálknafirði ásamt heimamönnum fram á kvöld. Tilkynning um brunann skömmu eftir klukkan fjögur í dag. Slökkvistarf stóð enn yfir á áttunda tímanum, að sögn íbúa í Tálknafirði. Bruninn kom upp í sinu rétt fyrir utan bæjarfélagið.

Sækir ekki gull í greipar Kópavogsbúa

Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar, segir að fyrrverandi landeigendur lands á Vatnsenda muni ekki sækja gull í greipar Kópavogsbúa. Í fréttum Ríkissjónvarpsins kom fram í gær að Kópavogsbær ætti yfir höfði sér 14 milljarða kröfu vegna lands á Vatnsenda sem tekið var eignarnámi fyrir þremur árum. Lögmaður landeiganda sagði bæjaryfirvöld í Kópavogi ekki hafa staðið við gerða samninga. Hann sagði ennfremur að málið væri á leið fyrir dómstóla.

Búið að loka síðunni

Lögreglan á höfuborgarsvæðinu hefur skoðað uppruna Facebook síðu sem stofnuð var þar sem höfundur gaf til kynna að hann myndi sprengja Melaskóla ef hann fengi ákveðinn fjölda áhangenda að síðu sinni.

Drukknaði í sjónum við Stykkishólm

Karlmaður sem lagðist til sjósunds frá Stykkishólmi um ellefu leytið í gærkvöldi fannst látinn skömmu eftir klukkan eitt í nótt. Maðurinn sem var íslenskur og fæddur árið 1970 var gestkomandi í Stykkishólmi og ákvað að fá sér sundsprett frá tanga sunnan við höfnina.

Ræddu um fund leiðtogaráðs ESB

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, og Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, funduðu í Svíþjóð í fyrradag og ræddu meðal annars um leiðtogaráð Evrópusambandsins sem kemur að öllum líkindum næsta saman til fundar um miðjan næsta mánuð. Á fundinum verður tekin ákvörðun um það hvort sambandið hefji formlegar aðildarviðræður við Ísland.

Fergie sögð miður sín og full iðrunar

Sarah Ferguson, hertogaynja af York, er sögð miður sín og full iðrunar eftir upp komst um tilraun hennar til að selja aðgang að Andrew Bretaprins, fyrrverandi eiginmanni hennar.

Enn skilgreint sem hættusvæði

Verulega hefur dregið úr gosvirkni í Eyjafjallajökli en sérfræðingar segja ótímabært að segja að gosinu sé lokið. Ómar Ragnarsson flaug yfir gosstöðvarnar í morgun og varð ekki var við neinar eldhræringar.

Þétt umferð

Umferð á Suðvesturhorninu hefur verið þétt í dag og gengið afar vel fyrir sig, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu. Hvítasunnuhelgin er jafnan kölluð fyrstu stóra ferðahelgi ársins og árið í ár er engin undantekning.

Stefnir í fimm daga verkfall hjá British Airways

Slitnað hefur upp úr samningaviðræðum á milli samningsaðila yfirmanna British Airways og flugliða fyrirtækisins. Allt stefnir því í að boðað fimm daga verkfall flugliða hefjist á miðnætti.

Mannskæð slys í Kína

32 létust í Kína í dag þegar flutningabíll á röngum vegarhelmingi lenti framan á rútu í Liaoning héraði. Mikill eldur braust út við áreksturinn. Alls létust 29 farþegar rútunnar, en tuttugu og fjórir eru slasaðir, þar af þrír alvarlega. Þeir þrír sem voru í flutningabílnum létust einnig í slysinu. Verið er að rannsaka tildrög slyssins en rútan var á leið frá Tianjin borg skammt frá Peking til Harbin í Helongjiang héraði.

Hætta flugi milli Akureyrar og London vegna eldgossins

Iceland Express hefur ákveðið að hætta við reglubundið flug milli Akureyrar og London, sem vera átti í sumar, þar til næsta ár. Ástæða þess er sú, að dregið hefur úr eftirspurn eftir ferðum, bæði hér heima og í öðrum löndum vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.

Prinsinn vissi ekki af samkomulagi Fergie

Enn eitt hneykslið skekur nú bresku krúnuna eftir að Sarah Ferguson var gómuð af rannsóknarblaðamanni þar sem hún krafðist rúmlega 90 milljóna króna fyrir að koma honum í samband við Andrew prins, fyrrverandi eiginmann sinn.

Lögreglumaður verðlaunaður fyrir að skrá fljúgandi furðuhluti

Breskur lögreglumaður hefur unnið alþjóðleg verðlaun fyrir skráningu á fljúgandi furðuhlutum sem lögreglumenn verða vitni að. Gary Heseltine tók við verðlaununum í Washington fyrir vefsíðu sína prufospolicedatabase, sem hann setti á laggirnar árið 2002.

Kosið í Eþíópíu

Gengið verður til kosninga í Eþíópíu í dag í fyrsta sinn síðan 2005, en síðustu kosningar enduðu með blóðsúthellingum. Kosningarnar hafa farið friðsamlega fram það sem af er degi.

Ómar Ragnarsson: Engin aska kemur úr Eyjafjallajökli

Margt bendir til að eldgosinu í Eyjafjallajökli sé að ljúka, en virknin í eldstöðinni hefur snarminnkað síðastliðinn sólahring. Ómar Ragnarsson flaug yfir eldstöðina í morgun og sá enga ösku.

Skólastjóri Melaskóla sleginn yfir hótun á Facebook

Skólastjóri Melaskóla er sleginn yfir hótun á Facebook samskiptaefnum um að sprengja skólann í loft upp. Stofnandi síðunnar segist framkvæma hótunina ef þúsund manns skrái sig á síðuna en nú hafa um ellefu hundruð manns gert það. Skólastjórinn skorar á þann sem stendur fyrir hótuninni að gefa sig fram strax.

Lista fólksins hent út af Facebook

Lista fólksins á Akureyri hefur verið úthýst af samskiptavefnum Facebook. Bæjarfulltrúi L-listans segir ljóst að einhverjir hafi viljað skemma fyrir framboðinu.

Vill faglega ráðinn bæjarstjóra í Mosfellsbæ

Marteinn Magnússon, oddviti Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ, vill að eftir kosningarnar um næstu helgi verði bæjarstjóri bæjarfélagsins ráðinn faglega. Hann segir að stjórnsýslan eigi að vera fagleg og að allar ákvarðanir hennar eigi að byggja á jafnræði og meðalhófi.

Þjóðarleiðtogar senda samúðarkveðjur

Allir helstu þjóðarleiðtogar heims hafa sent indversku þjóðinni samúðarkveðjur vegna flugslyssins á Indlandi í gær þar sem 158 manns létust. Rannsókn á slysinu er hafin, en flugritar flugvélarinnar virðast ekki enn komnir í leitirnar öfugt við það sem haldið var fram í gær.

Hneyksli skekur bresku krúnuna

Sarah Ferguson, hertogaynjan af York, var gómuð af rannsóknarblaðamanni þar sem hún krafðist rúmlega 90 milljóna króna fyrir að koma honum í samband við Andrew prins, fyrrverandi eiginmann sinn.

Eldur kviknaði í vörubíl

Eldur kviknaði í vörubíl við vigtunarplanið við afleggjara í grennd við Hvalfjarðargöngin í gærkvöldi. Slökkviliðsmaður segir að bíllinn hafi staðið þar mannlaus frá því í gær. Ekki sé vitað um upptök eldsins en leiða megi líkur að því að um íkveikju hafi verið að ræða.

Verslanir lokaðar

Lokað er í verslunum í dag, Hvítasunnudag. Flestar bensínstöðvar og matvörubúðir eru lokaðar, en þó eitthvað um opnanir í smærri matvöruverslunum. Dansleikir og einkasamkvæmi á opinberum veitingastöðum eru bönnuð í dag. Listsýningar, tónleikar, leiksýningar og kvikmyndasýningar eru undanþegnar banni um helgidagafrið eftir klukkan þrjú í dag.

Gerðu áhlaup á bækistöð bandaríska hersins í Kandahar

Afganskir uppreisnarmenn úr röðum talibana gerðu áhlaup á flugvöllinn í Kandahar seint í gærkvöld. Flugvöllurinn er aðalbækistöð bandaríska hersins og bandamanna þeirra í suðurhluta Afganistan. Að sögn vitna ómuðu skothvellir og sprengingar um flugvöllinn í um tvær klukkustundir, en talsmaður herliðsins segir tiltölulega fáa hafa slasast í árásunum. Enn liggur ekkert fyrir um mannfall.

Litlar hræringar í eldstöðinni í Eyjafjallajökli

Mikil rólegheit virðast nú vera við Eyjafjallajökul. Að sögn lögreglumanns á Hvolsvelli gætti þar lítilsháttar öskufalls í gær en ekkert sést nú til gossins. Sérfræðingar á Veðurstofu Íslands segir að smá skot hafi verið í gosinu um hádegisbil í gær en síðan þá hafi dregið úr gosóróa á svæðinu. Þeir segja að ekki sé hægt að slá því föstu að gosinu sé að ljúka en lítið sem ekkert sést til þess ef vefmyndavélar Mílu eru skoðaðar um þessar mundir.

Bíll missti afl og brann

Bíll brann á Suðurlandsvegi við Þrengslaveg um níu leytið í gærkvöldi. Ökumaður fann reykjarlykt og stöðvaði bílinn þegar hann missti afl og drap á sér. Við nánari athugun sá maðurinn eld í framhluta bifreiðarinnar sem breiddist mjög hratt út og bíllinn varð alelda. Slökkvilið kom á staðinn og slökkti eldinn, en bíllinn er gjörónýtur.

Óku án réttinda og ölvaðir

Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fjölmenni var í Miðbænum og talsvert um pústra. Nokkrir voru fluttir á slysadeild til skoðunar en enginn reyndist alvarlega slasaður, að sögn varðstjóra. Lögregla stöðvaði fjóra ökumenn sem óku undir áhrifum áfengis, þar af tvo sem voru án ökuréttinda. Átta gistu fangageymslur á lögreglustöðinni á Hverfisgötu.

Móti viðbragðsáætlun vegna olíuleka

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, segir að tryggja verði að slys eins og það sem varð á Mexíkóflóa fyrir um mánuði síðan endurtaki sig ekki. Það var 20. apríl síðastliðinn sem stór olíuborpallur BP sökk í flóanum með þeim afleiðingum að olía lekur nú í hafið. Um 800 þúsund lítrar af olíu streyma út í hafið úr borholunni á degi hverjum að sögn BP en sérfræðingar telja að magnið sé mun meira.

Fimm vitorðsmenn handteknir í Pakistan

Yfirvöld í Pakistan hafa handtekið fimm menn sem grunaðir eru um að tengjast hinu misheppnaða sprengjutilræði í New York 1. maí þegar sprengju var komið fyrir í jeppa á Times Square. Tveimur dögum síðar var maður handtekinn á JFK flugvellinum á leið til Dubai. Maðurinn sem heitir Faisal Shahzad fæddist í Pakistan en hann fékk bandarískan ríkisborgararétt árið 2007.

Hugmynd um styttri opnunartíma gölluð

Borgarfulltrúi Vinstri grænna hefur sagt sig úr nefnd um endurskoðun opnunartíma skemmtistaða vegna óánægju með vinnubrögð nefndarinnar. Hann hyggst leggja fram tillögu um að öllum skemmtistöðum í miðborginni í nálægð íbúðabyggðar verði ekki lokað seinna en klukkan þrjú. Veitingamaður segir hugmyndina gallaða.

Tuttugu tóku þátt í hópslagsmálum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út rétt eftir klukkan fimm í dag vegna hópslagsmála í Hafnarstræti. Þar tókust á tveir hópar sem í voru um 20 unglingsstrákar á aldrinum 14-16 ára. Sumir þeirra voru vopnaðir bareflum og þá var einn með rafstuðtæki, en slík tæki eru ólögleg hér á landi. Hópunum laust saman vegna skeytasendinga í gegnum internetið.

Stjórnmálafræðingur: Besti flokkurinn tekur sig alvarlega

Flestir Reykvíkingar vilja að Jón Gnarr verði næsti borgarstjóri, samkvæmt könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Stjórnmálafræðingur segir nýja aðgerðaráætlun Besta flokksins vísbendingu um að flokkurinn taki sig alvarlega.

Viðræður um orkusölu til Helguvíkur hafnar

Viðræður eru hafnar milli Magma Energy og Norðuráls um sölu á orku til álversins í Helguvík. Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ fagnar kaupum Magma á HS orku, en oddviti A-listans vill að kannað verði hvort bærinn geti fengið aftur rúmlega 6 milljarða hlut í HS orku sem Geysir Green Energy fékk að láni með skuldabréfi frá bænum.

Hugfanginn af einkabílnúmerum - myndir

Egill Ólafsson, tvítugur nemi við MS, byrjaði undir lok apríl að safna myndum af íslenskum einkabílnúmerum sem urðu á vegi hans í myndaalbúm á Facebook. Myndirnar eru nú orðnar 140 talsins og bætist stöðugt við.

Fjórir fluttir á slysadeild eftir aftanákeyrslu

Fjórir voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir harða aftanákeyrslu á gatnamótum Framnesvegar og Hringbrautar skammt frá JL-húsinu á sjötta í tímanum í kvöld. Um minniháttar meiðsl er að ræða.

Flokkarnir hafa ekki svarað kallinu um siðbót

Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir ljóst að nýlegar skoðanakannanir sýni að stjórnmálaflokkarnir hafi ekki svarað kalli almennings um siðbót. Margir upplifi að sami rassinn sé undir öllum stjórnmálamönnum þó það sé ekki raunin, að mati Baldurs.

Einn með allar tölurnar réttar

Einn heppinn lottóspilari var með allar tölur réttar í lottóinu í kvöld og er hann tæpum 10,4 milljónum ríkari fyrir vikið. Vinningurinn kom á miða með tölunum 1, 5, 12, 33 og 39. Miðinn var seldur í Skeljungi við Kleppsveg. Bónustalan var 8.

Fjölmennasta útskrift í sögu FAS

Í dag fór fram fjölmennasta útskrift frá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu til þessa. Að þessu sinnu voru útskrifaðir 19 stúdentar, fjórir af skrifstofubraut, þrír sjúkraliðar og einn stuðningsfulltrúi.

Flugritarnir fundnir

Boeing farþegaflugvél indverska flugfélagsins Air India Express sem fórst við lendingu á flugvellinum í Mangalore í morgun, lenti allt of innarlega á flugbrautinni og skautaði fram af henni niður bratta hlíð þar sem hún brotnaði í sundur í þykku skóglendi. Eldur braust út í brakinu. Flugvöllurinn þykir með þeim erfiðari að lenda á þar sem hann stendur á hæð með brattar hlíðar við báða flugbrautarenda.

Jón Gnarr hafnar Hönnu Birnu

Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, hafnar Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, oddvita sjálfstæðismanna sem borgarstjóra. Þetta kemur fram í þætti Hrafns Gunnlaugssonar „Reykjavík - Hvað næst?“ á sjónvarpsstöðinni ÍNN sem sýndur verður annað kvöld.

Sjá næstu 50 fréttir