Innlent

Óku án réttinda og ölvaðir

Átta gistu fangageymslur á lögreglustöðinni á Hverfisgötu.
Átta gistu fangageymslur á lögreglustöðinni á Hverfisgötu. Mynd/Anton Brink
Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fjölmenni var í Miðbænum og talsvert um pústra. Nokkrir voru fluttir á slysadeild til skoðunar en enginn reyndist alvarlega slasaður, að sögn varðstjóra. Lögregla stöðvaði fjóra ökumenn sem óku undir áhrifum áfengis, þar af tvo sem voru án ökuréttinda. Átta gistu fangageymslur á lögreglustöðinni á Hverfisgötu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×