Fleiri fréttir

Reyna að koma í veg fyrir verkfall

Samningaviðræður hófust á ný í dag á milli yfirmanna British Airways og flugliða fyrirtækisins sem hafa boðað til fimm daga verkfalls frá og með næsta mánudegi.

Hallgrímur Helgason: Förum úr einu bullinu í annað

„Þetta er hálf sorglegt. Við erum að fara úr einu bullinu í annað. Ég er hræddur um að þjóðin endi upp með ennþá meiri þynnku eftir að hafa kosið þetta yfir sig,“ segir rithöfundurinn Hallgrímur Helgason um gott gengi Besta flokksins í skoðanakönnunum.

Allir fá vinnu hjá Vinnuskóla Reykjavíkur

Allir sem skráðir eru í Vinnuskóla Reykjavíkur fá vinnu, en 2700 hafa þegar skráð sig. Formlegur umsóknarfrestur um sumarvinnu hjá Vinnuskóla Reykjavíkur er liðinn en enn er þó opið fyrir skráningar nemenda. Vinnuskólinn segir að erfitt geti verið að uppfylla óskir þeirra sem sækja um núna til dæmis hvað varðar val á vikum. Allir sem skrái sig fái þó vinnu.

Borgarfulltrúi VG vill að skemmtistaðir loki klukkan þrjú

Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, hefur sagt sig úr stýrihóp um staðsetningu og opnunartíma áfengisveitingastaða vegna óánægju með hægagang og vinnubrögð hópsins. Hann vill fara að tillögum íbúa miðbæjarins og loka skemmtistöðum klukkan þrjú.

Meintir kókaínsmyglarar áfram í varðhaldi

Fjórir karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Mennirnir eru grunaðir um aðild á innflutningi kókaíns hingað til lands frá Spáni í apríl. Um er að ræða rúmlega 3 kíló af mjög hreinu kókaíni.

Sækja slasaðan mann á Vífilsfell

Björgunarsveitarmenn af höfuðborgarsvæðinu eru nú á leið upp á Vífilsfell til að sækja slasaðan mann. Maðurinn sem er á sextugsalri er ekki talinn vera mikið slasaður en hann er af öllum líkindum handleggsbrotinn og lemstraður.

Sigurjón Þórðar: 17. júní er ekki pylsu- og blöðruhátíð barna

„Það getur aldrei orðið annað en óhappaverk að afsala Íslandi umráðum yfir fiskveiðiauðlindinni en það er sérstaklega ósmekklegt að hefja slíkt ferli á sjálfan þjóðhátíðardaginn, dýpra verður ekki sokkið,“ segir Sigurjón Þórðarson, formaður Frjálslynda flokksins.

Pabbastelpa hneykslar presta

Viktoría, krónprinsessa Svía, er harðlega gagnrýnd af sænskum prestum þessa dagana. Ástæðan er sú að hún hefur ákveðið að faðir hennar, Karl Gústav konungur, skuli fylgja henni inn kirkjugólfið þegar að hún giftir sig í sumar.

Laumuðust inn í skólann og pöntuðu pizzur

Þrír 12 ára drengir laumu sér inn í Sunnulækjarskóla á Selfossi í gærkvöldi og komu sér vel fyrir. Á sama tíma voru starfsmenn að störfum við ræstingar og lítur allt út fyrir að drengirnir hafi af þeim sökum komist inn um ólæstar dyr. eir unnu engar skemmdir og gerðu sig ekki líklega til stela innanstokksmunum, að sögn lögreglunnar. Aftur á móti höfðu þeir hringt úr síma í skólanum og pantað allmargar pizzur þegar lögregla kom á vettvang. Forráðamenn sóttu drengina og tókst lögreglu að afpanta pizzurnar.

Enn dregur úr gosinu

Enn dregur úr gosinu í Eyjafjallajökli að sögn Sigþrúðar Árnadóttur starfsmanns Veðurstofu Íslands. Nokkrir litlir skjálftar mældust í nótt, flestir voru þeir grunnir en verið er að afla frekari upplýsinga um gosóróan á Veðurstofunni.

Ók ölvaður á hús á Akranesi

Ekið var á hús á Akranesi laust eftir klukkan fjögur í nótt. Ökumaður fólksbílsins er á þrítugsaldri og er talinn hafa verið ölvaður. Hann var einn í bílnum og var handtekinn og færður til sýnatöku. Ekki urðu teljandi skemmdir á raðhúsinu en bifreiðin er gjörónýt.

Þrettán ára á Everest

Þrettán ára gamall drengur frá Bandaríkjunum er yngsta manneskja til að komast á topp Mount Everst fjallsins, að því er fjölskylda hans segir í viðtali við breska ríkisútvarpið.

Drengurinn fundinn

15 ára drengur sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir um miðjan dag í gær, er fundinn. fór frá heimili sínu um miðnætti laugardagskvöldið þann 15. maí síðastliðinn og hafði ekki spurst til hans síðan þegar lögregla lýsti eftir honum. Lögregla þakkar fyrir aðstoð við leit að drengnum.

Hafnaði utanvegar með gröfu

Betur fór en á horfðist þegar umferðaróhapp varð á Biskupstungnabraut skammt frá Selfossi á tólfta tímanum í gærkvöldi. Þar mættust tveir bílar og var öðrum þeirra ekið öfugum vegarhelmingi sem varð til þess að sá sem á móti komi sveigði til hliðar og hafnaði utanvegar. Ökumaðurinn bifreiðarinnar var með kerru í eftirdragi. Á henni var grafa sem þeyttist af og skemmdist talsvert. Engin slys urðu á fólki en mikil þoka var á svæðinu þegar óhappið varð, að sögn lögreglunnar á Selfossi.

Mannskætt flugslys í Indlandi - átta komust lífs af

Átta manns lifðu af og 159 fórust í flugslysi á Indlandi í morgun, þegar farþegaþota hrapaði við borgina Mangalore í suðvesturhluta landsins. Margir hinna átta sem lifðu af slysið eru mikið slasaðir en nokkrir þeirra voru þó með fulla meðvitund og gátu gefið lýsingu á því sem gerðist.

Borgarbúar refsa hrunflokkunum

Besti flokkurinn nýtur stuðnings tæplega 44 prósenta kjósenda og fær átta borgarfulltrúa af fimmtán, og þar með hreinan meirihluta í komandi kosningum. Þetta eru niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var á fimmtudag.

Yngstu þjófarnir voru átta ára

Yngstu einstaklingarnir sem lögregla hafði afskipti af vegna hnupls á síðustu þremur árum voru átta ára, en hinir elstu 88 ára. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra, sem embættið hefur tekið saman fyrir árin 2007 til 2009.

Leita réttar síns eftir þriggja daga fangelsi

Tvær konur frá Rúmeníu leita nú réttar síns eftir það sem þær vilja meina að hafi verið ólögmæt frelsissvipting þegar þær sóttu hér landið heim í síðasta mánuði.

Borgari elti bílþjóf og hélt honum föngnum

„Nei, ég var ekkert hræddur. Þessir strákar eru í mesta lagi fimmtíu kíló með skólatösku,“ segir Andri Þór Sigurjónsson, þrítugur tölvumaður, sem í gær handsamaði bílþjóf eftir eftirför frá Smáralind upp í Grafarholt.

Fá vinnu við gosstöðvarnar

Um fjörutíu störf verða til við aðstoð við búskap í sveitum við Eyjafjallajökul á næstunni. Samkomulag náðist um þetta í gær.

Viðskipti, tækni og lög eiga heima í HR

„Ef til verkaskiptingar kemur þá held ég að fjárhagslegar og faglegar forsendur mæli frekar með því að við tækjum að okkur þessi kjarnafög sem við erum með, viðskipti, tækni og lög," segir Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík. „Við erum tilbúin til að ræða hugmyndir, svo lengi sem þær eru á faglegum forsendum."

Ný hunangsfluga nemur land

Ný tegund af hunangsflugu virðist hafa fest rætur hér á landi. Flugan heitir rauðhumla og er ólík þeim hunangsflugum sem fyrir voru á landinu, því hún er rauð en ekki með gulum og svörtum röndum.

Fundur hjá sáttasemjara

Ríkissáttasemjari hélt fund í deilu kennara og sveitarfélaganna í gær. Deiluaðilar ná ekki saman um hvaða hækkanir kennurum ber samkvæmt stöðugleikasáttmálanum frá júní í fyrra. Þar var gert ráð fyrir að engar hækkanir yrðu greiddar á launataxta yfir 210.000 krónum. Síðan hefur ríkið samið við sína starfsmenn um hækkanir til þeirra sem eru undir 310.000 krónum.

Urriðafossvirkjun deiluefnið

Íbúi í Flóahreppi hefur kært samning sem sveitarfélagið hefur gert við Árborg og Landsvirkjun til samgönguráðherra. Samkvæmt samningnum mun Landsvirkjun greiða vatnsveitu úr Árborg samþykki Flóahreppur aðalskipulag með Urriðafossvirkjun.

Margir ná ekki endum saman

Tæplega fjörutíu prósent heimila landsins, eða 39 prósent, áttu erfitt með að láta enda ná saman á síðasta ári. Þetta kemur fram í lífskjararannsókn Hagstofunnar.

Tæplega 80% í Þjóðkirkjunni

Hlutfall landsmanna átján ára og eldri sem eru skráðir í Þjóðkirkjuna hækkar lítillega milli ára samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands. Um 78,8 prósent Íslendinga á kosningaaldri voru skráðir í Þjóðkirkjuna 1. janúar síðastliðinn, en hlutfallið var 78,5 prósent í janúar í fyrra.

Ráðuneyti hefur ekki staðfest

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur ekki staðfest umdeilt álit reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga um að auka megi bókfært eigið fé sveitarfélaga um milljarða með því að verðmeta lönd og leigulóðir í efnahagsreikningi út frá áætluðu söluverði eða framtíðartekjum af lóðaleigu.

Reiðin vex með degi hverjum

Þykk olíuleðja lagðist yfir æ stærra svæði af votlendinu við ósa Missippifljóts. Í heilan mánuð hafa íbúar á svæðinu óttast að þetta gerðist.

Ráðist að rótum talibana

Bandaríkjaher hefur sett sér það markmið að ná Zhari í Kandaharhéraði á sitt vald í sumar. Talibanahreyfingin varð til fyrir meira en áratug í Zhari, þar sem leiðtogi hennar, Muhammad Omar, er fæddur og uppalinn.

Vildu frystar milljónir til baka vegna áfellisdóms

Eigendur félagsins Vindasúlna ehf., sem var í eigu feðganna Arons og Karls Steingrímssonar sem gjarnan er kenndur við Pelsinn, vildu hnekkja úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem heimilaði embætti ríkislögreglustjóra að leggja hald á tæplega 93 milljónir vegna meints fjársvikamáls varðandi nýtt húsnæði kínverska sendiráðsins.

Stórlega dregið úr gosinu

Stórlega hefur dregið úr gosinu og má ætla að kvikuflæðið sé nærri 5 tonn á sekúndu miðað við að það var um 200 tonn þegar mest fyrr í vikunni.

Enn einn pilturinn stígur fram og segist hafa lent í meintum nauðgara

Tvítugur piltur í Hafnarfirði sem segist hafa verið nauðgað af þrítugum karlmanni vonar að hann verði dæmdur í fangelsi. Hann upplifði mikla skömm og niðurlægingu eftir atvikið en hann hefur leitað til Stígamóta og gengið til sálfræðings vegna þess. Annar piltur hefur kært manninn fyrir nauðgun en alls hafa fjórir piltar sakað manninn um að hafa leitað á sig.

Vilja póstsamskipti Jóhönnu við Láru vegna launamáls seðlabankastjóra

Fulltrúar minnihlutans í efnahags- og skattanefnd Alþingis hafa óskað eftir að sjá tölvupóstsamskipti forsætisráðuneytis og formanns bankaráðs Seðlabankans þar sem launamál Seðlabankastjóra eru rædd. Þingmenn vilja fá úr því skorið hvort forsætisráðherra hafi sagt sannleikann í málinu.

Besti flokkurinn með hreinan meirihluta

Besti flokkurinn fær hreinan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur, 8 kjörna fulltrúa af fimmtán, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, en rúm vika er í kosningar.

Mun færri kaupa sér bíla

Nýskráningum ökutækja hefur fækkað um 12,49% á milli ára, samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu. Það sem af er árinu hafa 1.233 ökutæki verið nýskráð en þau voru 1.409 á sama tíma á síðasta ári.

Dýr þvergirðingsháttur

Ekkillinn Philip Bowler var ósköp ánægður með bláu rimlagirðinguna sem aðskildi hús hans frá húsi nágrannans.

Almannaheill samþykkja siðareglur

Á aðalfundi Almannaheilla, samtaka þriðja geirans, voru samþykktar samhljóða siðareglur fyrir samtökin en unnið hefur verið að gerð þeirra í vetur. Á fundinum, sem haldinn var 19. maí síðastliðinn í húsi Krabbameinsfélags Íslands, var því sérstaklega fagnað að samtökin hefðu nú sett sér slíkar reglur og vonandi gætu þær einnig orðið öðrum gott fordæmi.

Sauðburði lokið í Laugardal

Ær Fjölskyldu- og húsdýragarðsins eru allar bornar og fjöldi lamba hefur aldrei verið meiri, samkvæmt upplýsingum frá Unni Sigþórsdóttur, deildarstjóra fræðsludeildar garðsins.

Sjá næstu 50 fréttir