Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sæfari fékk á sig brotsjó Engan sakaði þegar Grímseyjarferjan Sæfari fékk á sig brotsjó með þeim afleilðingum að rúður brotunuðu í gluggum og sjór komst inn í skipið, þegar það var á leið til Grímseyjar í gær. 20.4.2010 07:41
Öskufallið dreifist umhverfis jökulinn Búist er við að öskufall úr Eyjafjallajökli dreifist umhverfis jökulinn í dag, en ekki aðeins til suðurs og suðausturs, eins og verið hefur. Nú er réttur mánuður síðan gos hófst í Fimmvörðuhálsi, sem flutti sig svo í Eyjafjallajökulinn. 20.4.2010 07:36
„Verðum að bíta í það súra epli“ Fersk jarðarber, kryddjurtir og viðkvæmar káltegundir með stuttan líftíma mun skorta hér á landi til skamms tíma vegna röskunar á millilandaflugi til meginlands Evrópu. Ávextir og grænmeti með lengri líftíma eru yfirleitt flutt hingað sjóleiðina. 20.4.2010 07:00
Hrafn fer fram á stærri lóð Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri segir að lausn kunni að vera í sjónmáli í deilu hans og borgaryfirvalda. 20.4.2010 06:00
Höfuðpaurs í kókaín-smygli leitað á Spáni Átta manns, sjö karlar og ein kona, sitja nú í gæsluvarðhaldi grunuð um að tengjast innflutningi á rúmlega þremur kílóum af mjög sterku kókaíni til Íslands fyrr í mánuðinum. Kókaínið kom í tveimur sendingum frá Alicante á Spáni, og vó hvor sending um 1.600 grömm. 20.4.2010 05:00
Koma í veg fyrir að spennufíklar stelist inn á lokuð svæði Lögreglan á Hvolsvelli hefur gríðarlegt eftirlit með Suðurlandsvegi undir fjöllunum til þess að koma í veg fyrir að óheiðarlegir spennufíklar stelist inn á lokuð svæði. 19.4.2010 22:54
Flugumferð í eðlilegt horf á fimmtudaginn Gera má ráð fyrir að flugumferð geti verið komið í eðlilegt horf á fimmtudaginn eftir gríðarlega röskun frá því í síðustu viku. Þetta er mat Loftferðaeftirlits Evrópu, eða Eurocontrol, að því er AFP greinir frá. 19.4.2010 21:13
Aðsóknarmet á Vísi Aldrei hafa fleiri skoðað Vísi en í síðustu viku. Notendur fóru upp í tæp 407 þúsund samkvæmt vef Samræmdrar vefmælingar og fjölgaði þeim um 47% miðað við fyrri viku. Hver notandi er aðeins talinn einu sinni. 19.4.2010 23:20
Reykjavíkurborg virkjar varúðaráætlanir vegna gossins Reykjavíkurborg hefur í varúðarskyni virkjað viðbragðsáætlanir sínar í samræmi við ákvarðanir Almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins, jafnvel þó að hverfandi líkur séu á að öskufall verði á höfuðborgarsvæðinu að mati Veðurstofu Íslands. Er það gert til að tryggja viðeigandi vöktun og undirbúning í ljósi eldgossins í Eyjafjallajökli. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum og vatnsbólum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. 19.4.2010 19:39
Icelandair breytir flugi á morgun Icelandair hefur tilkynnt um breytingu á flugi félagsins á morgun. Áætluðu flugi síðdegis til Kaupmannahafnar hefur verið aflýst. Sérstöku aukaflugi til Stokkhólms hefur verið seinkað frá kl 08.00 til kl. 11.00. Áætlunarflug til Stokkhólms í fyrramálið er hinsvegar óbreytt. 19.4.2010 20:21
Enn haldið sofandi eftir að hafa drukkið stíflueyði Karlmanni um fertugt, sem innbyrti stíflueyði um helgina, er enn haldið sofandi i öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. Hann er þungt haldinn, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni þar. 19.4.2010 17:49
Deilt um Landsdóm Vafi leikur á hvort Landsdómur standist Mannréttindarsáttmála Evrópu þar sem ekki er hægt að áfrýja niðurstöðu dómsins. 19.4.2010 19:24
Iceland Express stefnir að flugi í fyrramálið Iceland Express stefnir að flugi til Bretlands og Skandinavíu í fyrramálið klukkan 9:00. Þá verður athugað með flug til Berlínar, Alicante og Tenerife á morgun. 19.4.2010 19:14
Þjóðvegurinn opnaður aftur milli Markarfljóts og Skóga Lögreglan á Hvolsvelli hefur ákveðið að hleypa þeim, sem eiga brýnt erindi, áfram veginn milli Markarfljóts og Skóga fram til klukkan 10 í kvöld. Tekið skal fram að skyggni er slæmt undir Eyjafjöllum og á Mýrdalssandi og þar er nú mjög hvasst. 19.4.2010 19:10
Enn talsvert gos í Eyjafjallajökli Talsvert gos er enn í gangi í Eyjafjallajökli, samkvæmt upplýsingum frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Eldvirkni er enn í þremur gígum sem ennþá virðast vera aðskildir. 19.4.2010 17:58
Íbúafundur á Kirkjubæjarklaustri í kvöld Íbúafundur á Kirkjubæjarklaustri í kvöld mánudag 19. apríl kl. 20:30 um almannaverndarmál. Á fundinn koma jarðvísindamaður, veðurfræðingur og fleiri sérfræðingar sem að málum koma vegna náttúruhamfaranna. 19.4.2010 17:07
Enn lýst eftir Emiliönu Lögreglan á Akureyri og Barnaverndarnefnd Eyjafjarðar lýsa enn eftir Emilíönu Andrésardóttur, sem strauk frá meðferðarheimilinu Stuðlum þann 15. apríl síðastliðinn. Síðast sást til hennar í Hafnarfirði á leið til Reykjavíkur. Emilíana er fædd árið 1996. Hún er dökkhærð, um 160 sentimetrar á hæð og grannvaxin. 19.4.2010 17:03
Eiturmálið: Húsráðandi úrskurðaður í tveggja daga gæsluvarðhald Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á miðvikudag vegna rannsóknar á því hvernig annar maður innbyrti stíflueyði um helgina. 19.4.2010 16:41
Eldgosið stórskaðar blómaframleiðslu í Kenía Eldgosið í Eyjafjallajökli er að stórskaða blómaframleiðslu í Kenía. Blómaframleiðendur þar í landi tapa þremur milljónum dollara á dag vegna öskufallsins en öll flugumferð liggur niðri vegna gossins og því geta blómaframleiðendur ekki flutt framleiðslu sína til Evrópu. 19.4.2010 16:28
Rauði krossinn veitir áfallahjálp á gossvæðinu Rauði kross Íslands vinnur nú að því í samvinnu við heimamenn að veita íbúum og þeim sem orðið hafa fyrir áhrifum af völdum eldgossins sálrænan stuðning. 19.4.2010 15:58
Starfshópur skipaður um breytingar á skattakerfinu Fjármálaráðherra hefur skipað starfshóp til að móta og setja fram heildstæðar tillögur um breytingar og umbætur á skattkerfinu. 19.4.2010 15:50
Leiðbeiningar vegna stórra loftræstikerfa og öskufalls Almannavarnir hafa sent frá sér tilkynningu vegna öskufalls við hús sem eru með stór loftræstikerfi. Þar segir að best sé að ræða við þann sem hannaði kerfið til að fá leiðbeiningar um hvað eigi að gera til að búa það sem best undir öskufall. 19.4.2010 15:48
Gæsluvarðhalds krafist yfir manni vegna eitrunarmálsins Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist gæsluvarðhalds yfir húsráðandanum vegna gruns um að hafa átt þátt í því að maður innbyrti stíflueyði af gerðinni Grettir sterki. 19.4.2010 15:32
Landsfundi Sjálfstæðisflokksins flýtt verulega Fundi miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins er lokið en þar var tillaga formanns flokksins, Bjarna Benediktssonar, samþykkt einróma, en hún kveður á um að flýta landsfundinum. 19.4.2010 15:30
Sjónrænt eldgos Þrátt fyrir að eldgosið hafi gert Evrópubúum lífið leitt þá hefur sjaldan verið jafn mikið fjör hjá ljósmyndurum hér á landi. 19.4.2010 15:14
Mikið um þjófnaði á Akranesi 6 þjófnaðir voru tilkynntir til lögreglunnar á Akranesi í síðustu viku. 19.4.2010 15:11
Ungir karlmenn andvígir lögum um bann við nektardansi Ungir karlmenn undir þrítugt eru andvígir lögum um bann við nektardansi samkvæmt könnun MMR sem var framkvæmd á dögunum. Alls voru 70 prósent svarenda í þeim hópi andvígir lögunum. 19.4.2010 15:05
Lögreglan leitar að vitnum vegna eiturmálsins Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum sem voru stödd í heimahúsi í Hlíðunum þar sem karlmaður innbyrti stíflueyði. 19.4.2010 14:47
Fimmtán ár frá árásinni í Oklahoma Fimmtán ár eru í dag liðin frá sprengjuárásinni á stjórnsýsluhúsið í Oklahoma í Bandaríkjunum. Í árásinni létu 168 lífið og yfir 600 slösuðust. 19.4.2010 14:42
Icelandair flýgur til Bretlands og Norðurlanda á morgun Icelandair mun fljúga samkvæmt áætlun á í fyrramálið, þriðjudagsmorgun 20. apríl, til Stokkhólms og Osló. 19.4.2010 14:42
Á annan tug erlendra farþega- og flutningavéla fastar hér á landi Á annan tug erlendra farþega- og flutningaflugvéla eru nú á flugvélastæðum á Keflavíkurflugvelli og bíða átekta að komast til áfangastaða sinna í Evrópu samkvæmt fréttavef Víkurfrétta (vf.is). 19.4.2010 14:21
Vilja opna lofthelgi að hluta til Á símafundi evrópskra flugmálayfirvalda sem haldinn var í morgun var ákveðið að þróa aðferðafræði sem gæti gert kleift að opna evrópskt loftrými án þess að ógna flugöryggi á nokkurn hátt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Flugstoðum. 19.4.2010 13:19
Tveir handteknir vegna eiturmáls- atburðarás óljós Atburðarrásin er óljós varðandi fertugan mann sem innbyrti stíflueyði í teiti um helgina að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 19.4.2010 13:12
Ekki sprenging innanborðs í herskipinu Forseti Suður-Kóreu hefur lofað þjóðinni að gripið verði til ákveðinna aðgerða ef í ljós komi að herskipið sem sprakk í tvennt og sökk í síðasta mánuði hafi orðið fyrir einhverskonar árás. 19.4.2010 13:04
Líkur á öskufalli í Reykjavík hverfandi Samkvæmt Veðurstofu Íslands eru líkur á öskufalli úr eldgosinu í Eyjafjallajökli á höfuðborgarsvæðinu hverfandi. Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að samkvæmt veðurspá muni vindátt breytast á fimmtudag og verða austanstæð en gert er ráð fyrir rigningu sem dregur verulega úr líkum á öskufalli. 19.4.2010 12:40
Sjálfstæðismenn funda vegna afsagnar Þorgerðar Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins kemur saman til fundar í dag til að ræða þá stöðu sem upp er kominn í flokknum eftir að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði af sér sem varaformaður um helgina. Þá verður einnig ræddur sá möguleiki að flýta Landsfundi flokksins. 19.4.2010 12:14
Dæmdur nauðgari einn þeirra sem var handtekinn í kókaínmáli Átta manns, sjö karlar og ein kona, hafa verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til vikuloka. Þau eru grunuð um stórfelldan fíkniefnainnflutning. Europol rannsakar málið í samvinnu við lögregluna hér á landi. Einn hinna handteknu er Davíð Garðarsson, dæmdur nauðgari sem var á flótta undan lögreglunni í tæp tvö ár. 19.4.2010 12:03
Gosið að breytast í hraungos Gosmökkurinn yfir Eyjafjallajökli er talsvert lægri en hann hefur verið að undanförnu, sem talið er vita á að farið sé að draga úr öskugosinu og að gosið sé að verða hraungos. Gosvirkni jókst i gærkvköldi, dalaði aðeins í nótt en óx aftur í morgun. 19.4.2010 11:59
Varðskipið Ægir gleður börn í Senegal Varðskipið Ægir er á leið til Senegal á morgun þar sem stendur til að taka þátt í eftirliti með Frontex, Landamærastofnun Evrópu sem Ísland er aðili að í gegnum Schengen samstarfið. 19.4.2010 11:42
Lögreglan í Vestmannaeyjum gagnrýnir samninganefnd harðlega Lögreglufélag Vestmannaeyja lýsir yfir mikilli óánægju með það sem þeir kalla virðingaleysi samninganefnd ríkisins í ályktun sem þeir sendu fjölmiðlum í dag. 19.4.2010 11:25
Engin aska í tilraunaflugi British Airways Flugfélagið British Airways fann engin merki um ösku á Boeing 747 breiðþotu sem það sendi á loft í gær. 19.4.2010 11:13
Alþjóðleg rannsókn á kókaíninnflutningi Átta manns, sjö karlar og ein kona, hafa verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til vikuloka að minnsta kosti grunuð um stórfelldan fíkniefnainnflutning. Europol rannsakar málið í samvinnu við lögregluna. 19.4.2010 10:57
Bretar senda flotann til að sækja ferðamenn Bresk stjórnvöld hafa ákveðið að senda flota af herskipum til að ná í breska ferðamenn og ríkisborgara sem eru strandaðir víða um Evrópu vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Meðal þeirra herskipa sem nota á eru þau stærstu í flotanum, flugmóðurskipin HMS Ark Royal og HMS Ocean. 19.4.2010 10:49
Átta í haldi grunaðir um stórfellt fíkniefnasmygl Átta menn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til vikuloka að minnsta kosti grunaðir um stórfelldan fíkniefnainnflutning. Heimildir fréttastofu herma að um hvítt efni í kílóavís sé að ræða. Upp komst um smyglið á Keflavíkurflugvelli en reynt var að smygla efnunum í ferðatösku. 19.4.2010 10:29
Neyddur til þess að drekka stíflueyði - liggur á gjörgæslu Karlmaður um fertugt liggur þungt haldinn á gjörgæslu eftir að menn neyddu ofan í hann ætandi stíflueyði um helgina. 19.4.2010 09:50