Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þorskastríðsflugvélum lagt Breski flugherinn er að leggja síðustu Nimrod eftirlitsflugvélum sínum. Þær hafa verið í notkun síðan 1969 og að sögn flughersins bjargað óteljandi mannslífum. 26.3.2010 10:11
TF-Sif fann pramma á reki suður af landinu Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar fann óþekktan pramma á reki um 60 sjómílur suður af landinu, austan við Vestmannaeyjar, og getur skipum stafað hætta af honum. 26.3.2010 09:55
Sjúkraliðar skora á heilbrigðisráðherra Sjúkraliðar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands skora á heilbrigðisráðherra að ganga fram fyrir skjöldu og krefjast þess að stjórnendur virði starfssvið og réttindi sjúkraliða. 26.3.2010 09:37
Neyðast til að senda börn í þrælkun vegna alheimskreppunnar Efnahagssamdrátturinn í heiminum hefur neytt fólk í hinum efnaminni löndum í heiminum til að senda börn sín í þrælkun. Þetta segir Steen 26.3.2010 09:23
Málgagn Vatikansins ver páfa Vatikanið fordæmir ásakanir þess efnis að Benedikt páfi hafi ekkert aðhafst þegar upp komst um prest í bandaríkjunum sem hafði misnotað 200 heyrnarlausa drengi. 26.3.2010 08:30
Sá á fund sem finnur - eða ekki Lögreglan í Ohio í Bandaríkjunum reynir nú að hafa upp á tugum þúsunda dollara sem týndust þegar fullur peningapoki féll út úr peningaflutningabíl á ferð og opnaðist. Seðlarnir fuku um alla götu og ökumenn í öðrum bílum snarstoppuðu og hlupu til og reyndu að týna eins mikið af peningum og hægt var áður en lögregla kom á vettvang. 26.3.2010 08:12
Eldsneytisverð: Munar ellefu krónum hjá sama félaginu Olíufélagið Skeljungur dró ti baka þriggja krónu hækkun á bensínlítranum síðdegis í gær, þegar hin félögin fylgdu félaginu ekki eftir með hækkunum. Samkvæmt athugun snemma í morgun var allt að ellefu króna mismunur á bensínverði hjá sama olíufélaginu. 26.3.2010 08:10
Enn barist við talíbana í Pakistan Átök halda áfram á milli pakistanskra stjórnarhermanna og skæruliða sem halda til í fjallahéruðum landsins á landamærum Afganistans. Í nótt féllu 21 skæruliði og fimm stjórnarhermenn í átökunum og í gær var 61 skæruliði felldur í miklum loftárásum á sama svæði. Markmið stjórnarinnar í Pakistan er að hrekja Talíbana frá völdum á svæðinu. 26.3.2010 08:09
Kolmunnaskipin snúa heim Íslensku kolmunnaskipin, sem fóru til veiða vestur af Skotlandi nýverið, eru nú á heimleið eða komin heim, mörg hver með aðeins slatta um borð. Eftir nokkra góða daga, fór veður versnandi og hefur verið slæmt á veiðislóðinni dögum saman. 26.3.2010 08:04
Bin Laden: Auga fyrir auga Hryðjuverkaleiðtoginn Osama bin Laden hefur hótað því að Al Kaída samtökin muni taka alla Bandaríkjamenn sem þau ná í skottið á af lífi, verði skipuleggjendur árásanna á Tvíburaturnana í New York árið 2001 dæmdir til dauða. Þeir koma fyrir rétt í New York innan skamms. 26.3.2010 08:01
Bátur strandaði við Húsavík Sextán tonna hraðfiskibátur, Lágey ÞH, strandaði á skeri við Héðinshöfða austur af Húsavík um klukkan tvö í nótt, en hvorugan skipverjann, sem var um borð, sakaði. 26.3.2010 07:19
Erill hjá lögreglu í nótt Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna ölvunar á almannafæri og hávaða í heimahúsum í nótt. Hvergi kom þó til átaka. Ökumaður var stöðvaður grunaður um akstur undri áhrifum fíkniefna og fanst lítilræði af fíkniefnum á honum. Og þá var brotist inn í fyrirtæki í vesturborginni og þaðan stolið tölvu, en þjófurinn komst undan. 26.3.2010 07:12
Besti flokkurinn nær tveimur mönnum inn Besti flokkurinn fengi 12,7 prósenta fylgi og tvo borgarfulltrúa yrði kosið til borgarstjórnar Reykjavíkur í dag samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins sem gerð var í gærkvöldi. 26.3.2010 06:00
Gera þarf upp á milli krónu og evru „Fjármálafyrirtæki verða ekki hvítþvegin þótt skipt sé um stjórnendur, eigendur, nafn og kennitölu og ógreiddir reikningar eftirlátnir þrotabúum,“ segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann hélt ræðu á ársfundi Seðlabankans í gær. Sama segir hann gilda um Seðlabankann, ekki nægði að endurreisa hann og skipa nýja stjórnendur og fjármagna að nýju. „Gera þarf skýr skil milli fortíðar og framtíðar.” 26.3.2010 05:45
Engin stjórn á flugumferð yfir gosinu Mikill áhugi er á gosinu á Fimmvörðuhálsi og þeir sem hafa yfir loftförum að ráða leggja leið sína að gosinu. Stundum hefur mikið kraðak myndast í loftinu þegar tugir véla og þyrlna sveima kringum gíginn og einn flugmaður líkti því við villta vestrið. Engin stjórn er á flugleiðum einstakra flugvéla. 26.3.2010 05:30
Flugmálastjórn þyrfti sérstaka deild fyrir E.C.A Ef pólitísk ákvörðun verður tekin um að setja upp regluverk til að skrá orrustuþotur E.C.A. Program í íslenska flugflotann þyrfti Flugmálastjórn, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, að koma upp deild með sérfræðingum til að líta eftir starfseminni. Þeir þyrftu fyrst að gangast undir eins árs þjálfun erlendis, í ríki þar sem herþotur eru starfræktar. 26.3.2010 05:30
Vilja stagbrú yfir Ölfusána Ný veglína Suðurlandsvegar og tvær útfærslur brúarstæðis yfir Ölfusá er nú í umhverfismati. Vegurinn verður færður norður fyrir Selfoss og ný brú byggð yfir Ölfusá. Tvær leiðir yfir ána eru í skoðun og tvær mismunandi tegundir af brúm. 26.3.2010 05:30
Ólykt og slysagildrur í ársgömlum rústum Brunarústir við Klapparstíg 17 hafa staðið óhreyfðar og óvarðar í rúmlega ár. Íbúar í nálægu húsi nota ónýtan húsgrunninn sem sorphaug og börn leika sér á svæðinu. Íbúar hafa ítrekað kvartað til borgaryfirvalda vegna málsins. 26.3.2010 05:30
Gagnrýnir rammaáætlun Sigmundur Einarsson jarðfræðingur gerir alvarlegar athugasemdir við rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma, en niðurstöður annars áfanga voru kynntar á dögunum. Þar eru mögulegir virkjunarstaðir metnir og þeim gefin einkunn, meðal annars eftir náttúrufari. 26.3.2010 04:15
Fjölskylduhjálpin gagnrýnd harkalega Fjölskylduhjálp Íslands var harðlega gagnrýnd í gær fyrir fyrirkomulag hennar við úthlutun matvæla á miðvikudag. 26.3.2010 04:00
Ísraelsstjórn vill byggja AP Ráðherrar í ríkisstjórn Benjamins Netanjahú lýstu fullum stuðningi við hann í gær, þegar hann kom heim frá Bandaríkjunum. Þar hafði Barack Obama forseti reynt árangurslaust að fá hann til að stöðva áform um byggingar í austurhluta Jerúsalemborgar. 26.3.2010 04:00
Umferð í grennd við gossvæðið gengur vel Fjölmargir hafa lagt leið sína að eldstöðvunum í Fimmvörðuhálsi í kvöld, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni á Hvolsvelli. Leiðin upp Fimmvörðuháls er opin fyrir göngufólk en umferð um Eyjafjallajökul og Þórsmörk er bönnuð. Að sögn lögreglu hefur umferðin um svæðið gengið afar vel og ekkert óvænt komið upp fyrir utan að bíll bilaði skammt frá gönguleiðinni um Fimmvörðuháls. Unnið er að koma bílnum til byggða. 25.3.2010 21:56
Sigurvegarinn færður niður í fimmta sæti Bæjarfulltrúinn Erling Ásgeirsson, sem fékk kosningu í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ í byrjun febrúar var færður niður í 5. sæti á fundi fulltrúaráðsins í kvöld. Áslaug Hulda Jónsdóttir sem hafnaði í 5. sæti var færð upp í 1. sætið. Tillaga í þessa veru var borin fram af Erling fyrir hönd þeirra sem hlutu bindandi kosningu í fimm efstu sæti listans, að fram kemur í tilkynningu. Í prófkjörinu röðuðust karlmenn í fjögur efstu sætin. 25.3.2010 21:45
Baktjaldamakk í Ölfusi - bæjarstjórinn boðar sérframboð „Það er klíka í baklandi Sjálfstæðisflokksins sem hefur ekki geta sætt sig við að ákveðinn meirihluti ráði. Það er hefð fyrir því að hér reyni ákveðnir höfðingjar úti í bæ að stjórna og þeir hafa greinilega tögl og haldir á þessum tveimur bæjarfulltrúum," segir Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi, sem í dag var sagt upp störfum sem bæjarstjóri. Hann boðar sérframboð í vor ásamt bæjarfulltrúanum Sigríði Láru Ásberg. 25.3.2010 20:08
20% sjúkrarýma lokað í sumar Sumarið 2010 verður dregið úr starfsemi Landspítala eins og mögulegt er. Á síðastliðnum árum hefur fjölmörgum legurýmum verið lokað eða breytt í dagrými. Nú eru um 691 legurými til ráðstöfunar á spítalanum auk 50 rýma á sjúkrahóteli. Í sumar verður rúmlega 20% þessara rýma lokað í áföngum á 12 vikna tímabili eða 146. Í fyrra var hlutfalið tæp 13% og 23,5% fyrir tveimur árum. 25.3.2010 21:14
Ekkert nýtt í tillögum framsóknarmanna Steinunn Valdís Óskarsdóttir, varaformaður þingflokks Samfylkingarinnar, segist fagna tillögum Framsóknarflokksins um þjóðarsátt. Aftur á móti sé ekkert nýtt að finna í þeim. 25.3.2010 20:51
Vorhreinsun hefst í Reykjavík eftir helgi Vorhreinsun í Reykjavík hefst á mánudag eftir helgi í miðborginni og hverfum borgarinnar í umsjón framkvæmda- og eignasviðs og umhverfis- og samgöngusviðs. Starfsmenn hverfastöðva hefjast þá handa við almenna hreinsun á rusli á opnum svæðum, trjám og trjábeðum í borgarlandinu auk þess sem starfsmenn verða ráðnir tímabundið til starfa vegna verkefnisins. Þetta kemur fram í bókun sem Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur lögðu fram í borgarráði fyrr í dag. 25.3.2010 20:30
Framsóknarmenn kynntu tillögur sínar um þjóðarsátt Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður, kynntu í dag fulltrúum annarra flokka og framboða á Alþingi tillögur þingflokksins: „Þjóðarsátt 2010 samstaða um endurreisn“ sem kynnt var í gær. 25.3.2010 19:27
Meirihlutinn í Ölfusi sprunginn Tveir bæjarfulltrúar úr meirihluta Sjálfstæðisflokksins í sveitarfélaginu Ölfusi hafa gengið til liðs við minnihlutann og myndað nýjan meirihluta. Frá þessu er greint á vef Ríkisútvarpsins. 25.3.2010 19:16
Yfir 30 þúsund Íslendingar lifa undir fátæktarmörkum Yfir 30 þúsund manns hérlendis lifa undir fátæktarmörkum, sé miðað við skilgreiningu Evrópusambandsins. 25.3.2010 19:13
Hundruð fyrirtæki talin hafa greitt út ólögmætan arð Grunur leikur á að hundruð fyrirtækja hafi greitt út ólögmætan arð sem nemur nokkrum milljörðum króna á undanförnum árum. Ólögmætar arðgreiðslur verða í flestum tilvikum skattlagðar sem launatekjur og beinist skattlagningin að þeim sem þær fengu. Skattyfirvöld hyggjast skoða arðgreiðslur fimm ár aftur í tímann. 25.3.2010 19:02
Gríðarlegur áhugi á eldgosinu Yfir hundrað manns hafa lagt leið sína að eldstöðvunum í Eyjafjallajökli í dag. Unnið er að því að setja upp aðstöðu í Fljótshlíð til að almenningur geti séð gosið þaðan. 25.3.2010 18:55
Bein útsetning frá eldstöðvunum Í fréttum Stöðvar 2 sem hefjast innan skamms verður bein útsending frá eldstöðvunum á Fimmvörðuhálsi. Kristján Már Unnarsson, fréttamaður, er á staðnum og flytur sjónvarpsáhorfendum nýjustu tíðindi og myndir af gosinu. Hægt er að horfa á fréttatímann hér á Vísi. 25.3.2010 18:22
Samfylkingin boðar til flokksstjórnarfundar Flokksstjórn Samfylkingarinnar kemur saman næstkomandi laugardag á Hótel Loftleiðum í Reykjavík. Þetta er þriðji flokksstjórnarfundurinn frá kosningunum fyrir tæpu ári. 25.3.2010 17:48
Lýst eftir stúlku sem hvarf frá Götusmiðjunni Lögreglan á Selfossi lýsir eftir Svövu Hrönn Þórarinsdóttur 16 ára til heimilis í Hafnarfirði. Svava hvarf frá Götusmiðjunni í Grímsnesi aðfaranótt föstudagsins 19. mars. 25.3.2010 17:41
Fá að halda barninu þrátt fyrir grunsemdir um misþyrmingar Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjaness um móðir ungabarns og sambýlismaður hennar fái að hafa barnið á heimili sínu þrátt fyrir að lögreglan á Suðurnesjum rannsaki meint ofbeldi gegn barninu. 25.3.2010 16:28
Íslenska ríkið ekki skaðabótaskylt vegna sprengjuárasar í Afganistan Íslenska ríkið er ekki skaðabótaskylt gagnvart Friðriki Má Jónssyni, fyrrverandi flugumferðastjóra í Kabúl í Afganistan, vegna sprengjuárásar sem hann varð fyrir þegar að hann var þar við friðargæslustörf. 25.3.2010 16:13
Alþingi fótum treður stjórnarskrána Stjórnarskráin er fótum troðin af Alþingi, segir Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður vegna nýlegra laga sem samþykkt hafa verið og frumvarpa sem þingmenn hafa boðað. 25.3.2010 15:30
Yukk sagði Bush á Haítí -myndband Forsetarnir fyrrverandi George Bush og Bill Clinton hafa heimsótt Haítí til þess að stappa stálinu í heimamenn og fylgjast með hjálparstarfinu. 25.3.2010 15:28
Fréttablaðið stendur við frétt um Fjölskylduhjálp Vegna yfirlýsingar fjölskylduhjálpar vill blaðamaður Fréttablaðsins, sem ritaði frétt um umdeilda forgangsröðun fjölskylduhjálpar, koma áleiðis að hann stendur við frétt sína. 25.3.2010 15:11
Segir slökkviliðsstjóra ekki geta lokað flugvellinum Árni Birgisson, deildarstjóri yfir björgunarmálum hjá Flugstoðum segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóra á höfuðborgarsvæðinu, ekki hafa neina heimild til þess að loka flugvellinum líkt og hann hótar að gera á morgun. Ástæðan fyrir lokuninni að sögn Jóns Viðars er sú að slökkviliðsmenn á flugvellinum séu of fáir. Nú eru þeir tveir en Jón Viðar segir þá þurfa vera fjóra. 25.3.2010 14:55
Stækka brjóst kvenna með sprengiefni Breska leyniþjónustan hefur komist að því að læknar á vegum Al Kaida séu farnir að nota sprengiefni í stað silikons til að stækka brjóst kvenna. 25.3.2010 14:33
Lóan er komin - sást í hádeginu Það er staðfest. Fyrsta Lóan er komin en um hádegisbilið í dag heyrðist og sást til heiðlóu við Sílavík á Höfn. 25.3.2010 14:31
Gosstöðvarnar sjást frá Hellisheiði Ágætis skyggni er á Suðurlandi í dag og því líklegt að hægt sé að sjá til gossins á Fimmvörðuhálsi víða að. Samkvæmt upplýsingum frá Kristjáni má Unnarssyni fréttamanni sést til gossins frá Hellisheiðinni. Þá sést á topp Eyjafjallajökuls frá Rangárvöllum. 25.3.2010 14:17
Svindlarar herja á íslenska Facebook-notendur Nígeríusvindlararnir alræmdu eru farnir að láta á sér kræla á ný en Hilmar Sigvaldsson fékk bréf frá Benjamin T. Dabrah frá Ghana í gegnum Facebook reikninginn sinn. Benjamin segist hafa undir höndum upplýsingar um háar fjárhæðir á reikningi manns sem ber sama föðurnafn og Hilmar. Sá maður á að hafa látist í jarðskjálfta í Kína og láti eftir sig mikið fé. 25.3.2010 14:13