Innlent

Flugmálastjórn þyrfti sérstaka deild fyrir E.C.A

Á heimasíðu fyrirtækisins eru birtar myndir frá Keflavíkurflugvelli þar sem það hefur áhuga á að setja upp viðhalds- og þjónustustöð.
Á heimasíðu fyrirtækisins eru birtar myndir frá Keflavíkurflugvelli þar sem það hefur áhuga á að setja upp viðhalds- og þjónustustöð.

Ef pólitísk ákvörðun verður tekin um að setja upp regluverk til að skrá orrustuþotur E.C.A. Program í íslenska flugflotann þyrfti Flugmálastjórn, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, að koma upp deild með sérfræðingum til að líta eftir starfseminni. Þeir þyrftu fyrst að gangast undir eins árs þjálfun erlendis, í ríki þar sem herþotur eru starfræktar.

Flugmálastjórn vinnur enn að skoðun á málum E.C.A. Program fyrir samgönguráðherra. Fyrir liggur að skráning orrustuþotna í íslenska flugflotann myndi ekki samræmast evrópskum flugreglum. Engin fordæmi eru erlendis um skráningu orrustuþotna í borgaralega flugflota, jafnvel þótt þær séu ekki búnar vopnum.

„Það vantar regluverk fyrir slíka skráningu," sagði Valdís Ásta Valdimarsdóttir, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar, við Fréttablaðið. „Það er pólitísk ákvörðun að setja slíkt regluverk."

Ekki er þó talið útilokað að skrá vélarnar borgaralega ef pólitísk ákvörðun um það liggur fyrir.

Valdís sagði að ef af yrði fengju vélarnar sérstakt lofthæfnivottorð hér á landi. Það þýðir að E.C.A. þyrfti að afla sérstaks leyfis fyrir hverri flugferð þar sem flogið væri um lofthelgi erlends ríkis og gæti aðeins flogið um íslenska lofthelgi án sérstaks leyfis hverju sinni.- pg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×