Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekkert gagntilboð - senda kurteist svar til baka Fundi stjórnar og stjórnarandstöðu í fjármálaráðuneytinu er nýlokið en þar kom fram að gagntilboð yrði ekki sent til Breta og Hollendinga að sinni. Aftur á móti hafi formenn flokkanna fallist á að senda kurteist svar til baka þar sem vilji Íslendinga til þess að senda samninganefndina aftur út er reifaður. 22.2.2010 13:49
Innbrotsþjófi vísað úr landi Pólskum manni var vísað úr landi eftir að hann var handtekinn á Selfossi í síðasta mánuði vegna innbrota. Samkvæmt lögreglunni á Selfossi þá vaknaði grunur um að hann ætti aðild að innbrotum á Selfossi og á Hvolsvelli auk þess sem hann var grunaður um líkamsárás. 22.2.2010 13:38
Stal bíl foreldranna, ók á þrjá aðra bíla og ljósastaur 13 ára unglingur tók bifreið foreldra sinna ófrjálsri hendi síðasta föstudag. unglingurinn ók svo bílnum frá Hnífsdal til Ísafjarðar að sögn lögreglunnar á Vestfjörðum. 22.2.2010 13:24
Hlaut fangelsisdóm fyrir stolna riffla Tvítugur maður var dæmdur í fimm mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fjölmörg afbrot. Meðal annars hafði hann stolna riffla undir höndum auk þess sem hann gerðist ítrekað sekur um fíkniefnalagabrot. 22.2.2010 13:16
Engin mistök þegar flugskeytum var skotið á hús í Marjah Bandaríkjaher hefur viðurkennt að hafa viljandi skotið flugskeyti á einkaheimili í Marjah í Helmand héraði í Suður-Afganistan. Árásin var gerð fyrir helgi. Að minnsta kosti 12 almennir borgarar voru drepnir í árásinni. Herinn hafði áður haldið því fram að þetta hefði verið óviljaverk. Bandaríski fréttaþátturinn Democracy now hefur eftir hernum að Talibanar hafi verið innandyra og því hafi verið skotið á húsið. Alls hafi 19 almennir borgarar verið drepnir í árásunum fyrir helgi. 22.2.2010 13:05
Vongóðir um lækningu á hnetuofnæmi Læknar við Cambridge háskóla segjast hafa góðar vonir um að geta læknað fólk af hnetuofnæmi. Slíkt ofnæmi getur verið banvænt. 22.2.2010 13:00
Segir draugagang í gamla hersjúkrahúsinu á varnasvæðinu „Við höfum fengið tvær fyrirspurnir en engar formlegar tilkynningar,“ segir Magnús Skarphéðinsson, sérfræðingur í yfirskilvitslegum fyrirbærum, en tveir aðilar hafa sett sig í samband við hann vegna draugagangs á hersjúkrahúsinu að Ásbrú Í reykjanesbæ. 22.2.2010 12:47
Forsvarsmenn Snowmobile kallaðir til skýrslutöku Forsvarsmenn Snowmobile verða kallaðir í skýrslutöku hjá lögreglunni á Selfossi á næstu dögum vegna skosku mæðginana sem týndust á Langjökli fyrir viku. Óhappið er rannsakað sem hvert annað slys. 22.2.2010 12:31
Danska lögreglan finnur dóp í sumarbústað Lögreglan í Danmörku haldlagði um helgina fimmtán kíló af amfetamí og átta kíló af hassi sem hún fann í sumarbústað á Sjálandi. Fjórir karlmenn voru handteknir í kjölfarið, tveir Þjóðverjar og tveir Danir. 22.2.2010 12:05
Nýtt aðalskipulag Urriðafossvirkjunar unnið hratt Sveitarstjórn Flóahrepps hefur ákveðið að hefja aðalskipulagsferli vegna Urriðafossvirkjunar upp á nýtt og vonast til að ljúka því innan sex mánaða. Hreppurinn skoðar enn þann möguleika að höfða mál gegn umhverfisráðherra til að hrinda synjun ráðherrans á fyrra aðalskipulagi. 22.2.2010 11:56
Jóhanna vonast eftir niðurstöðu í dag Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist vonast til þess að samstaða náist um svar við tilboði Hollendinga og Breta í Icesave-deilunni á fundi sem nú er að hefjast í fjármálaráðuneytinu. Þar hitta forystumenn ríkisstjórnarinnar forsvarsmenn stjórnarandstöðunnar. Náist samstaða um svar má búast við því að hægt verði að svara tilboðinu síðar í dag. 22.2.2010 11:52
Gyðingar flýja Malmö vegna ofsókna Talið er að um þrjátíu Gyðingafjölskyldur hafi þegar flúið frá Malmö í Svíþjóð og fleiri eru farnar að hugsa sér til hreyfings. 22.2.2010 10:57
Skrifað undir flugvirkjasamning Millilandaflug Icelandair komst í fullan gang í morgun, strax eftir að fulltrúar flugvirkja og Icelandair handsöluðu nýjum kjarasamning hjá Ríkissáttatsemjara rétt fyrir klukan átta, og verkfallinu var aflýst. 22.2.2010 10:05
Rúta og jeppi í árekstri - níu fluttir á sjúkrahús Níu einstaklingar voru færðir á sjúkrahús eftir að jeppi og lítil rúta skullu saman á Norðfjarðavegi í Fagradal nærri Egilsstöðum. 22.2.2010 09:51
Þrjár unglingsstúlkur lentu undir lest Þrjár unglingsstúlkur létust í Flórída í Bandaríkjunum í gær þegar þær voru að ganga eftir lestarbrú þegar lestin kom aðvífandi. 22.2.2010 09:09
Endeavour lenti heilu og höldnu Geimskutlan Endeavour snéri aftur til jarðar með sex geimfara innanborðs í nótt eftir vel heppnaða ferð að alþóðlegu geimstöðinni. 22.2.2010 09:02
Verkfall hjá Lufthansa Um 4000 flugmenn hjá þýska flugfélaginu Lufthansa hófu í gærkvöldi verkfall sem standa skal í fjóra daga verði kröfum þeirra ekki mætt en flugmennirnir krefjast meira starfsöryggis. 22.2.2010 08:58
Teknir með dóp undir stýri Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt ökumann, grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Á honum fannst poki með kannabisefnum, og fíkniefni fundust líka á farþega hans. Mönnunum var sleppt að loknum yfirheyrslum. 22.2.2010 08:56
Þáttakendur í spítalasamkeppni kynntir í dag Verkefnisstjórn nýs Landspítala mun í dag kynna hvaða fimm arkitekta-teymum verður boðið að taka þátt í hönnunarsamkeppni um nýjan Landspítala við Hringbraut. 22.2.2010 08:31
BAFTA: The Hurt Locker rúllaði þessu upp Bandaríska stríðsmyndin The Hurt Locker kom sá og sigraði á BAFTA verðlaunahátíðinni sem haldin var í gærkvöldi í London. 22.2.2010 08:14
Gordon Brown er hrekkjusvín - undirmenn leita sér hjálpar Þrýstingur eykst nú á stjórnvöld í Bretlandi að rannsókn fari fram á meintum fantaskap Gordons Brown í garð starfsfólks í Downing stræti. 22.2.2010 08:11
Samningar í höfn hjá flugvirkjum Samningar hafa tekist á milli flugvirkja og Icelandair en verkfall hófst á miðnætti í nótt. Enn á eftir að skrifa undir og klára einhver smáatriði en verfallinu hefur verið frestað. 22.2.2010 08:02
19 almennir borgarar féllu í NATO árás Að minnsta kosti 19 almennir borgarar létust þegar herþotur á vegum NATO gerðu árásir í suðurhluta Afganistans í nótt að því er yfirvöld segja. Talsmenn NATO hafa viðurkennt að hafa gert árás á bílalest skæruliða að því er talið var. 22.2.2010 07:25
Neyðarblys sáust á lofti í Eyjum Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út seint í gærkvöldi eftir að neyðarblys sáust á lofti og óttast var að skip eða bátur væri í vandræðum. Björgunarskipið þór var einnig sent út og varðskip, sem var í grennd við Eyjar, hóf einnig leit. 22.2.2010 07:23
Þjóðarsorg lýst yfir í Portúgal Búist er við því að stjórnvöld í Portúgal lýsi yfir þriggja daga þjóðarsorg í landinu en að minnsta kosti 42 létust í miklum flóðum á eyjuni Madeira á laugardag. 22.2.2010 07:21
Götur í Reykjavík rykbundnar Helstu umferðargötur í Reykjavík voru rykbundnar í nótt til að koma í veg fyrir svifryksmengun. Hún fór nokkrum sinnum yfir viðmiðunarmörk í nýliðinni viku og ef veðurspá stenst út vikuna, verða skilyrði til þess að það geti gerst aftur. 22.2.2010 07:19
Fundað í hádeginu vegna Icesave Formenn ríkisstjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar náðu ekki samkomulagi um viðbrögð við tilboði Breta og Hollendinga vegna Iceve málsins á þriggja klukkustunda fundi, sem lauk um átta leitið í gærkvöldi. 22.2.2010 07:17
Tafir vegna flugvirkjaverkfalls Verkfall flugvirkja hjá Icelandair hófst á miðnætti, en samningafundur, sem hófst hjá Ríkissáttasemjara í gær, stendur enn. Tafir hafa orðið á öllum brottförum nú í morgunsárið hjá Icelandair og verða næstu upplýsingar gefnar klukkan hálfníu að því er fram kemur á heimasíðu flugstöðvarinnar. 22.2.2010 07:14
Gróður hefti fok á Kársnesi Garðyrkjustjóri Kópavogs á að gera tillögur um frágang á landfyllingu vegna bryggjuhverfis á norðanverðu Kársnesi. Að því er kom fram í bæjarráði á fimmtudag frestast framkvæmdir á svæðinu og á meðan er það til vandræða. Úrgangur sé losaður í óleyfi og fok frá svæðinu valdi íbúum í grenndinni angri. 22.2.2010 06:45
Jarðhiti annar allri orkuþörf landsins Framleiðsla á rafmagni með jarðhita hefur aukist mikið undanfarin ár og nú er svo komið að fræðilega væri hægt að anna allri almennri orkuþörf landsins með rafmagni þannig framleiddu. Þetta kom fram í erindi Sigurðar Inga Friðleifssonar, framkvæmdastjóra Orkuseturs, á aðalfundi Samorku á föstudag. 22.2.2010 05:00
Þriðjungur heimila er í vanda Búast má við að tæplega þriðjungur íslenskra heimila safni upp skuldum, gangi á eignir til að standa undir daglegri neyslu og afborgunum af lánum, eða hafi dregið svo mikið úr neyslu að lágmarksviðmið samfélagsins eiga ekki við hjá þeim. 22.2.2010 04:00
Gæti bylt krabbameinsmeðferðum Bandarískir vísindamenn hafa þróað nýtt blóðpróf sem getur sagt til um hvort krabbameinsæxli hefur myndast á nýjan leik eða hvort lyfjameðferð hefur áhrif. Prófið er talið geta bylt rannsóknum á krabbameini og meðferðum við því. Sagt er frá prófinu í breska blaðinu Times. 22.2.2010 03:30
Sofandi í öndunarvél Maðurinn sem var fluttur til Reykjavíkur með þyrlu frá Stykkishólmi í dag er sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild. Hann er alvarlega veikur eftir að raðhús sem hann var í brann í morgun. 21.2.2010 21:05
Starfsfólk hringdi í hjálparsíma fyrir þolendur eineltis Starfsfólk úr breska forsætisráðuneytinu hringdi í hjálparsíma sem er rekinn af samtökum sem berjast gegn einelti, segir Christine Pratt í samtali við BBC. Pratt veitir samtökunum forstöðu. 21.2.2010 20:16
Íbúarnir flýja álögurnar á Álftanesi Fjöldi Álftnesinga ætlar að flytja lögheimili sitt yfir í annað sveitarfélag til að koma sér undan hærri álögum vegna fjárhagsvandræða Álftaness, eftir því sem kom fram í fréttum RÚV. Pálmi Másson bæjarstjóri segir, í samtali við Vísi, að bæjaryfirvöld hafi verið meðvituð um það að þær aðgerðir að hækka útsvar og fasteignaskatt gætu haft þetta í för með sér. 21.2.2010 18:13
Tamíl Tígrar í íslensku fangelsi Fjöldi erlendra ríkisborgara sem afplánar fangelsisdóma í íslenskum fangelsum hefur aukist griðarlega að undanförnu. Af þeim 319 sem afplánuðu dóm í íslenskum fangelsum á Íslandi í fyrra voru 67 útlendingar, eða um 21%. Árið 2000 afplánuðu hins vegar 313 fangar í íslenskum fangelsum en þá var fjöldi erlendra ríkisborgara 7, eða 2,2%. Talan tekur til þeirra fanga sem luku afplánun á árinu eða voru í fangelsi í lok þess. 21.2.2010 15:24
Bílvelta við Höfðabakkabrú Bíll velti við Höfðabakkabrú í Reykjavík um þrjúleytið í dag. Þrír voru í bílnum. Þeir slösuðust ekki alvarlega eftir því sem Vísir kemst næst en einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynningar 21.2.2010 18:31
Tala látinna hækkar Að minnsta kosti fjörtíu létu lífið þegar mikill stormur reið yfir portúgölsku eynna Madeira í gær. Mikil rigning og aurskriður fylgdu storminum sem hreif með sér bíla og hús. 21.2.2010 17:17
Maðurinn kominn á gjörgæsludeild Maðurinn sem var fluttur með þyrlu til Reykjavíkur eftir að það kviknaði í raðhúsi í Stykkishólmi er kominn á gjörgæsludeild samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Frekari upplýsingar hafa ekki fengist ennþá af líðan hans 21.2.2010 14:15
Aflvana trilla komin til hafnar Ásgrímur S. Björnsson, bátur Slysavarnafélagsins Landsbjargar, kom með litla trillu að höfn laust eftir klukkan tólf í dag, samkvæmt upplýsingum frá lóðsinum í Faxaflóahöfn. Báturinn varð aflvana norður af Viðey fyrir hádegi og því þurfti aðstoð við að koma honum að landi. Bátinn hafði rekið í átt að Viðey en slapp framhjá henni. 21.2.2010 13:27
Vonar að samkomulag takist fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu Forsætisráðherra vonar að samkomulag náist í Icesave deilunni áður en kemur til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið og telur æskilegt að það gerist. Viðbrögð Íslendinga við gagntilboði Breta og Hollendinga í Icesavedeilunni gætu legið fyrir að loknum fundi forystufólks stjórnmálaflokkanna í dag en líklega þó ekki fyrr en á morgun. 21.2.2010 13:05
Davíð Oddsson bauð Hreini að gerast Útvarpsstjóri Davíð Oddsson bauð Hreini Loftssyni að gerast Útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins haustið 1997. Þetta segir Hreinn í aðsendri grein á Pressunni. 21.2.2010 12:06
Bruni í Stykkishólmi Þyrla Landhelgisgæslunnar er að flytja mann á slysadeild Landspítalans eftir að eldur kom upp í íbúðarhúsi í Stykkishólmi í morgun. Óttast er að hann hafi hlotið alvarleg brunasár. 21.2.2010 11:42
Óviss um hvort spillingarumræðan hafði áhrif á niðurstöðuna Ármann Kr. Ólafsson er að vonum ánægður með árangur sinn í prófkjöri sjálfstæðismanna í Kópavogi í gær. Ármann hreppti fyrsta sætið í prófkjörinu og mun þar af leiðandi leiða sjálfstæðismenn í komandi kosningum. 21.2.2010 10:53
Fæðingum fækkar í Danmörku vegna efnahagsástandsins Fæðingum hefur fækkað í Danmörku síðan að alheimsefnahagskreppan skall á. Danmarks Radio segir að efnahagssamdrátturinn virðist leggjast meira á þau pör sem þurfa hjálp lækna til að frjóvgunar en önnur pör. 21.2.2010 09:42