Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Forsetinn vísar Icesave lögum til þjóðarinnar Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur ákveðið að staðfesta ekki lög um ríkisábyrgð á Icesave skuldbindingar Íslands. Þetta kom fram á blaðamannafundi forsetans á Bessastöðum klukkan ellefu. Forsetinn hefur haft lögin til staðfestingar í fimm sólahringa. 5.1.2010 11:01
Forsetinn afhendir íslensku bjartsýnisverðlaunin Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun afhenda íslensku bjartsýnisverðlaunin fyrir hönd Rio Tinto Alcan klukkan þrjú í dag í Iðnó. 5.1.2010 10:55
Fimm „nýjar“ reikistjörnur Kepler geimsjónaukinn hefur fundið fimm reikisstjörnur utan sólkerfis okkar. Sjónaukanum var skotið á loft á síðasta ári og er honum ætlað að taka myndir af reikistjörnum í öðrum sólkerfum. 5.1.2010 08:48
Lélegri herbergjanýting á hótelum Meðal herbergjanýting á reykvískum hótelum í nóvember síðastliðnum var níu og hálfu prósenti lélegri en í sama mánuði árið áður og á landsbyggðarhótelum var nýtingin sextán prósentum lélegri en árið áður. 5.1.2010 08:42
Sjálfsmorðsprengjumaðurinn þrefaldur í roðinu Sjálfsmorðssprengjumaðurinn sem drap á dögunum sjö bandaríska leyniþjónustumenn í Afganistan á var gagn-gagnnjósnari á vegum Al Kaída að því er bandarískir fjölmiðlar halda fram. Maðurinn er sagður hafa verið jórdanskur læknir sem handtekinn var af þarlendum stjórnvöldum fyrir ári síðan vegna tengsla við hryðjuverkasamtökin. 5.1.2010 08:38
Beatty svaf hjá 12775 konum Nú hefur einni af stærri spurningum sögunnar verið svarað. Ævisöguritarinn Peter Biskind hefur nú lokið við að skrifa ævisögu bandaríska leikarans og glaumgosans Warren Beatty og í bókinni svarar hann því hjá hve mörgum konum Beatty hefur sofið. Það orð hefur löngum farið af Beatty að hann hafi verið duglegur í kvennamálunum í gegnum tíðina en þrátt fyrir það kom samantekt Biskinds á óvart, en hann segir að Beatty hafi sofið hjá 12775 konum, hvorki meira né minna. 5.1.2010 08:08
Mamma og pabbi húðflúruðu börnin Hjón í Bandaríkjunum eru nú á leið fyrir rétt ákærð fyrir að hafa húðflúrað börnin sín sex. Foreldrarnir höfðu búið til sína eigin húðflúrvél úr blekpenna og gítarstreng og æft sig á börnunum sem eru á aldrinum 10 til 17 ára. 5.1.2010 07:31
Innbrotsþjófur tekinn á Selfossi Lögreglan á Selfossi handsamaði þjóf í nótt, sem hafði brotist inn í tölvuverslun í bænum og meðal annars stolið tölvu. Hann reyndi að fela sig, en lögregla fann hann og handtók. 5.1.2010 07:28
Bensínlítrinn yfir 200 krónur innan tíðar Bíleigendur geta búist við að lítraverð á bensíni í sjálfsafgreiðslu rjúfi 200 króna múrinn innan tíðar vegna hækkunar bensín- og olíugjalda um áramótin, samfara nýjum kolefnisskatti og hækkun á virðisaukaskatti á bensín. 5.1.2010 07:19
Bætist á boðflennulista Hvíta hússins Nú er komið í ljós að hjónin sem smygluðu sér inn í veislu í Hvíta húsinu á dögunum voru ekki einu boðflennurnar það kvöldið. Það vakti heimsathygli þegar það uppgötvaðist að hjónin Tereq og Michele Salahi höfðu mætt í veislu í Hvíta húsinu sem haldin var Indverska forsætisráðherranum til heiðurs. Hjónin völsuðu framhjá her öryggisvarða og tóku í spaðann á Barack Obama forseta og heilsuðu upp á Indverska forsætisráðherrann. 5.1.2010 07:16
Halda til loðnuleitar í dag Tvö hafrannsóknaskip halda til loðnuleitar í dag, en eins og við greindum frá nýverið, hefur svo lítið mælst af loðnu hér við land að undanförnu að Hafrannsóknastofnun hefur ekki treyst sér til að leggja til að veiðar megi hefjast. Það hefur því ekki verið gefinn út neinn upphafskvóti, eins og oft hefur verið gert, á meðan frekari mælingar fara fram. Það er því ekkert veiðiskip í startholunum núna, eins og jafnan er á þessum árstíma. 5.1.2010 07:14
Frostavetur á Bretlandseyjum Ekkert lát er á frostviðri á Bretlandseyjum frekar en hér á landi þessa dagana og í nótt var um 10 gráðu frost á Suður-Englandi. Búist er við því að snjókoman sem verið hefur í Skotlandi og á Írlandi færist suður á bóginn í dag og hefur hraðbrautum í mið-Englandi þegar verið lokað vegna snjókomunnar. 5.1.2010 07:08
Beint frá Bessastöðum klukkan fimm mínútur í ellefu Afstaða Ólafs Ragnars Grímssonar forseta til Icesave laganna mun væntanlega skýrast fyrir hádegi, því hann hefur boðað til blaðamannafundar á Bessastöðum klukkan ellefu. Nú eru fimm dagar síðan hann fékk lögin í hendur og mun þetta vera lengsti frestur sem forseti hefur tekið sér, til að taka afstöðu til nýrra laga. 5.1.2010 07:06
Hitti fjóra ráðherra vegna ríkisábyrgðar Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnir um ákvörðun sína varðandi lög um ríkisábyrgð vegna Icesave á Bessastöðum klukkan 11 í dag. Þá kemur í ljós hvort hann staðfestir lögin eða synjar. 5.1.2010 06:00
Í varðhaldi vegna áreitis á Facebook Maður á þrítugsaldri situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að hafa átt í vafasömum samskiptum við þrjár ungar stúlkur á Facebook. Þær eru þrettán og fjórtán ára. 5.1.2010 06:00
Finnur heldur sætinu heitu Verið er að fara yfir umsóknir um stöðu bankastjóra Arion banka. Frestur til að sækja um starfið rann út 20. desember síðastliðinn og hefur ekkert verið gefið út um umsækjendur og fjölda þeirra. 5.1.2010 05:30
Víða um land er tími kominn á hræringar Jarðfræði Margt bendir til að hafið sé tímabil aukinnar jarðvirkni hér á landi, segir Ragnar Stefánsson, prófessor í jarðvárfræðum við Háskólann á Akureyri. Hann segir Suðurlandsskjálftana 2000 og 2008 kunna að hafa breytt aðstæðum á Suðurlandi og út á Reykjanes. 5.1.2010 05:15
Hvetja forsetann til að skrifa strax undir Icesave Gylfi Arnbjörnsson, formaður Alþýðusambands Íslands, og Elín Björg Jónsdóttir, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, hvetja Ólaf Ragnar Grímsson forseta til að staðfesta sem fyrst frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave. Um 108 þúsund félagsmenn eru í þeim fyrrnefndu, en rúmlega 20 þúsund í þeim síðarnefndu. Þá tekur Vilhjálmur Egilsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, í sama streng. Í þeim samtökum eru um tvö þúsund fyrirtæki, þar sem starfar um helmingur allra launþega í landinu. 5.1.2010 05:15
Erum á tímabili vaxandi jarðvirkni Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur segir vísbendingar um að hafið sé tímabil vaxandi jarðvirkni, frá og með byrjun sjöunda áratugar síðustu aldar, en að meðaltali skilji um 140 ár að virk og minna virk tímabil. 5.1.2010 05:00
Fækkar í hópi reykingafólks Talsvert dró úr reykingum Íslendinga á árinu 2009 og er svo komið að líklega hefur aldrei lægra hlutfall landsmanna reykt. 5.1.2010 05:00
Er prins einn æðstu manna Serbíu? Skrifstofa forseta meðhöndlar bréf forseta Íslands til krónprins Serbíu sem bréf til þjóðhöfðingja eða æðsta forsvarsmanns ríkis. Ísland viðurkennir ekki tilkall krónprinsins til ríkis í Serbíu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál á eftir að fjalla um afhendingu nokkurra bréfa sem rannsóknarnefnd Alþingis fékk frá forseta. 5.1.2010 05:00
Vitnum talin stafa veruleg hætta af mansalsmönnum Vitnum í mansalsmálinu á Suðurnesjum er talin stafa veruleg hætta af fimm karlmönnum sem sitja inni vegna málsins, að því er fram kemur í kröfu ríkissaksóknara yfir framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir þeim. Ríkissaksóknari vísar til hættumats greiningadeildar Ríkislögreglustjóra hvað þetta varðar. 5.1.2010 05:00
Hættur vegna anna á Alþingi Kristján Þór Júlíusson alþingismaður er hættur sem bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri. „Vegna ófyrirséðra anna í störfum Alþingis á þessu ári og fyrirsjáanlegum miklum önnum strax í upphafi næsta árs hef ég nú ákveðið að óska eftir lausn frá störfum í bæjarstjórn Akureyrar frá og með næstkomandi áramótum,“ segir í bréfi Kristjáns sem lesið var upp á síðasta bæjarstjórnarfundi. 5.1.2010 04:45
Óvissa um þjóðaratkvæðagreiðslu Óvíst er hvað gerist neiti forseti Íslands að skrifa undir Icesave-lögin. Engin lög eru til um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu. 5.1.2010 04:45
Bensínlítrinn hækkar um átta krónur Búast má við að lítraverð á bensíni muni hækka um tæplega átta krónur, og lítrinn af dísilolíu um tæpar sjö krónur þegar auknar álögur ríkisins fara út í eldsneytisverðið snemma í janúar, samkvæmt útreikningum Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB). 5.1.2010 04:45
Meiri þekking við Grænland Meiri þekking á olíujarðfræðinni við Grænland en við Ísland er helsta skýring þess að olíuleitarfyrirtæki höfðu meiri áhuga á útboði Grænlendinga á sérleyfum til olíuleitar en útboði Íslendinga. 5.1.2010 04:30
Kjarrval í lagi sem millinafn Mannanafnanefnd hefur breytt fyrri úrskurðum og heimilað millinafnið Kjarrval. Beiðni um að taka Kjarrval á mannanafnaskrá var áður synjað árin 2006 og 2007 þar sem of mikil líkindi væru við ættarnafnið Kjarval. Nú var mannanafnanefnd bent á að líkindi með nöfnum séu ekki einsdæmi. 5.1.2010 04:30
Færist til Landspítala til hausts Landspítalinn tók um áramót við rekstri deildar L-1 á Landakoti, sem áður var í höndum Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar. Á deildinni búa á annan tug aldraðra, einkum fólk með heilabilun. 5.1.2010 04:15
Stálu sófasetti og sjónvörpum Tilkynnt var um innbrot í fimm sumarbústaði í Grímsnesi um síðustu helgi. Í flestum tilvikum var sjónvarpstækjum stolið. Á svipaðan hátt var staðið að innbrotunum og mjög líklegt að sömu aðilar hafi staðið að þeim, að áliti lögreglunnar á Selfossi. 5.1.2010 04:15
Tveir herskáir féllu í átökum Tveir grunaðir hryðjuverkamenn féllu í átökum við öryggissveitir í Jemen í gær, daginn eftir að Bandaríkin og Bretland lokuðu sendiráðum sínum í landinu vegna hættu á hryðjuverkum. 5.1.2010 04:15
Miðast við ódýrustu dagskammta Sjúkratryggingar Íslands miða endurgreiðslur við ódýrustu dagskammta astma- og ofnæmislyfja, frá og með áramótum. 5.1.2010 04:15
Hundar og fólk í gönguferðum Allt að tuttugu manna hópur hundaeigenda gengur vikulega á fjöll í nágrenni Reykjavíkur eða fer aðrar skemmtilegar gönguleiðir nálægt höfuðborginni. Með í för eru hundar af öllum stærðum og gerðum, allt frá chihuahua til rottweiler sem hlaupa frjálsir með og njóta samvista við aðra hunda. 5.1.2010 04:15
Átta innbrot hvern einasta dag í fyrra Innbrotsþjófar létu greipar sópa á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali átta sinnum á dag allt síðasta ár. 5.1.2010 04:00
Bjartsýnisturn vígður í gær Mikið var um dýrðir þegar hæsta bygging heims var vígð í Dúbaí í gær, á fjárhagslegum erfiðleikatímum sem eru þeir verstu í sögu furstadæmisins. 5.1.2010 04:00
Þór Saari: Endalok VG sem öðruvísi stjórnmálaafls staðreynd Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, sé farinn á taugum. Björn grípi til uppspuna til að breiða yfir eigið klúður. 4.1.2010 23:30
Fluttur á spítala með augnáverka eftir flugeldaslys Drengur á fjórtánda aldursári var fluttur á slysadeild eftir flugeldaslys í Grafarvogi á sjöunda tímanum í kvöld. Hann hlaut augnáverka og var lagður inn á spítala þar sem gerðar verða frekari rannsóknir. Ekki fengust meiri upplýsingar hjá vakthafandi lækni á slysadeild. 4.1.2010 21:34
Falskur sáttatónn stjórnarandstöðunnar „Vill fólk fá þetta lið við stjórnvölinn – aftur – sama liðið og ber ábyrgð á Icesave-ósómanum? Sama liðið og klessukeyrði samfélagið og skuldsettu íslenskan almenning upp í rjáfur?“ spyr Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjárlaganefndar, í pistli á heimasíðu sinni í kvöld. Hann segir að sáttatónn stjórnarandstöðunnar í Icesave málinu sé falskur. 4.1.2010 22:52
Brýnt að skerpa á ákvæði um þjóðaratkvæði Björg Thorarensen, forseti lagadeildar Háskóla Íslands, segir brýnt að skerpa á ákvæði stjórnarskrárinnar um þjóðaratkvæðagreiðslur. Margir þættir séu afar óljósir. Aldrei hafi reynt á 26. grein stjórnarskrárinnar þar sem kveðið er á um þjóðaratkvæði. Ekki liggi ljóst fyrir hverjir geti kallað eftir þjóðaratkvæðagreiðslum né hvort niðurstaða þeirra sé ráðgefandi eða bindandi. 4.1.2010 22:23
Slökkvilið kallað að Ölduselsskóla Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út skömmu eftir klukkan níu í kvöld eftir að tilkynning barst um eld í Ölduselsskóla í Seljahverfi. Flugeldi komst inn um glugga á skólastofa með þeim afleiðingum að eldur blossaði upp í rusli. Ekki liggur fyrir hvort að miklar skemmdir hafi orðið á skólanum en slökkviliðsmenn vinna nú að því að reykræsta bygginguna. 4.1.2010 21:55
Forsetinn hefur ákveðið sig Forseti Íslands hefur ákveðið hvort hann staðfestir eða synjar Icesave lögunum staðfestingar og greinir frá þeirri ákvörðun í fyrramálið. Töluverðar líkur eru á að ríkisstjórnin segi af sér og boðað verði til kosninga, synji forsetinn því að staðfesta lögin. 4.1.2010 19:32
Hillary: Ógn við umheiminn Hillary Clinton, utanríkisráðherra, telur að órógleiki og óstöðugt ástand í Jemen sé ekki einungis svæðisbundin ógn heldur ógn við umheiminn. Hún segir að stjórnvöld í Jemen verði að grípa til aðgerða gegn hryðjuverkamönnum í landinu annars kunni þau að missa stuðning Vesturlanda. 4.1.2010 21:03
Ráðgjafi forsetans vill að hann staðfesti lögin Sigurður G. Guðjónsson, einn helsti ráðgjafi Ólafs Ragnars Grímssonar í gegnum tíðina, vill að hann staðfesti Icesave lögin sem Alþingi samþykkti 30. desember. Sigurður segist ekki hafa rætt um málið við Ólaf. 4.1.2010 20:29
Ráðuneyti fjarlægt af lista InDefence Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur verið fjarlægt af undirskriftalista InDefence hópsins varðandi áskorun til forseta Íslands um þjóðaratkvæðagreiðslu um ný Icesave lög. Jóhannes Þór Skúlason, einn af forsvarsmönnum InDefence, segir að þetta hafi verið gert strax og ráðuneytið óskaði eftir því í dag. 4.1.2010 20:05
Uppáskriftir lækna misnotaðar í vaxandi mæli Örvandi lyf sem læknar skrifa upp á eru í vaxandi mæli misnotuð af fíkniefnaneytendum. Yfirlæknir á Vogi og framkvæmdastjóri Geðhjálpar segja að að læknar verði að bregðast við en dauðsföll megi rekja til aðgerðaleysis. 4.1.2010 19:16
Fjölskylda reisir glæsihótel í Landbroti Fjölskylda á sveitabæ skammt frá Kirkjubæjarklaustri keypti steypustöð og byggingarkrana, smalaði saman ættingjum og vinum, og er nú búin að byggja eitt stærsta og glæsilegasta sveitahótel landsins, sem tekur 150 manns í gistingu. 4.1.2010 19:12