Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tveir af þremur áfram í haldi Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir tveimur af þremur sakborningum í umfangsmiklu þjófnaðarmáli. Átta eru ákærðir í málinu, allt ungt fólk af pólskum uppruna. 30.11.2009 02:00
Ísland á kort fuglaskoðunar Meðlimir nýstofnaðra Samtaka um fuglatengda ferðaþjónustu telja mikla möguleika á þessu sviði hérlendis. „Með samtökunum er ætlunin að koma Íslandi almennilega á kortið hjá erlendum fuglaskoðurum sem áfangastað til fuglaskoðunar,“ segir Hrafn Svavarsson, formaður nýju samtakanna, í Útherja, blaði Útflutningsráðs Íslands. Þar kemur einnig fram að sex íslensk félög og fyrirtæki hafi nýlega sótt árlega ráðstefnu fuglaskoðunarmanna í Englandi til að vekja athygli á einstæðum möguleikum á Íslandi. Þá segir að um tuttugu milljónir Bandaríkjamanna fari árlega í fuglaskoðunarferðir.- gar 30.11.2009 02:00
Styttri fæðingarorlof eða lægri greiðslur Verðandi foreldrar munu standa frammi því vali að stytta fæðingarorlof sitt um mánuð eða þiggja sautján prósenta lægri greiðslu frá fæðingarorlofssjóði. 29.11.2009 19:04
Mosfellingar vilja ekki vera afskiptir Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ mótmæla því harðlega að endurbætur á Vesturlandsvegi séu saltaðar en önnur verkefni sett í forgang enda sé kaflinn í gegnum bæinn einn hættulegasti og umferðarþyngsti þjóðvegur landsins. 29.11.2009 18:45
Icesave á dagskrá á morgun Önnur umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna heldur áfram á morgun. Þegar umræðunni var frestað tíunda tímanum í gærkvöldi voru ellefu þingmenn á mælendaskrá. 29.11.2009 17:50
Alþingi kýs nýjan fulltrúa í landsdóm Alþingi kýs á morgun nýjan varamann í landsdóm í stað Unnar Brár Konráðsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Unnur var kjörin varamaður fyrir fjórum árum en tók sæti Alþingi eftir kosningarnar í apríl. 29.11.2009 17:31
Ljósin tendruð á Oslóartrénu Nokkur þúsund manns voru á Austurvelli þegar ljósin á Oslóartrénu voru tendruð klukkan fjögur. Veðrið var gott og jólalegt um að litast. Borgarstjóri tók við jólatrénu sem er gjöf Oslóarbúa til Reykvíkinga og nokkrir jólasveinar skemmtu börnunum. 29.11.2009 16:50
Tæplega 13 þúsund skora á forsetann í Icesave málinu Rúmlega 12.900 manns hafa nú skrifað undir áskorun til forseta Íslands á vefsíðu InDefence hópsins. Undirskriftasöfnunin hófst síðastliðinn miðvikudag. 29.11.2009 16:19
Pakistanar verða að uppræta Al Kaída Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, segir að Pakistanar verði að setja aukinn kraft í að uppræta Al Kaída hryðjuverkasamtökin og handsama leiðtoga þeirra, Osama Bin Laden, og næstráðanda hans, Ayman Zawahiri. 29.11.2009 15:45
Árni Þór: Væla yfir því að fá ekki að borða Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, segir að framferði stjórnarandstöðunnar í umræðum um Icesave að undanförnu sé ekkert annað en skrípaleikur. Stjórnandstaðan væli yfir því að fá ekki að borða. Þingmaðurinn er kjaftfor, að mati Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur varaformanns Sjálfstæðisflokksins. 29.11.2009 15:00
Mannskæð flóð í Saudi Arabíu Yfirvöld í Saudi Arabíu segja að minnsta kosti 100 manns hafi farist í miklum flóðum í landinu en frá því á miðvikudag hefur mikið rignt. Fjölda fólks er saknað og því talið líklegt að fleiri finnist látnir. Flestir eru taldir hafa drukknað í bílum sínum eða kramist þegar brýr hrundu vegna mikilla vatnavaxta. 29.11.2009 14:45
Osama Bin Laden slapp Bandaríkjamönnum mistókst að hafa hendur í hári Osama Bin Laden, leiðtoga Al Kaída hryðjuverkasamtakanna, þegar hann slapp naumlega í desember 2001. Þetta kemur fram sérstakri skýrslu bandarísku öldungadeildarinnar og BBC greinir frá. 29.11.2009 14:31
Ætla að greiða fjölskyldunum bætur Kínversk mjólkurfyrirtæki hafa gefið það út að þau séu reiðubúin að greiða fjölskyldum barnanna sem veiktust eftir að hafa drukkið eitraða mjólk á síðasta ári bætur. Þá létust að minnsta kosti sex börn og 300 þúsund veiktust eftir hafa drukkið eitraða mjólk. 29.11.2009 14:00
Þurfum ekki varanlegar undanþágur Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, telur að Íslendingar þurfi ekki varanlegar undanþágur hjá Evrópusambandinu þegar kemur að fiskimiðunum. Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, fullyrði að með inngöngu í sambandið afsali Íslendingar yfirráðum sínum yfir helstum auðlindunum. Jón og Styrmir voru gestir Egils Helgasonar í þætti hans í Ríkissjónvarpsinu fyrr í dag. 29.11.2009 13:42
Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um NATO aðild Samtök hernaðarandstæðinga vilja að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu. Samtökin minna á að íslenska þjóðin hefur aldrei verið spurð með beinum hætti um afstöðu sína til aðildarinnar að NATO. Þetta kemur fram í ályktun landsráðstefna samtakanna sem haldin var 27. til 28. nóvember. 29.11.2009 13:15
Niðurstaðan í prófkjöri framsóknarmanna ljós Á kjörfundi Framsóknarflokksins í Reykjavík í gær var kosið í sex efstu sæti listans með meirihlutakosningu og í sæti 7 til 12 með prófkjörsleið. Niðurstaða prófkjörsins liggur fyrir. 29.11.2009 13:04
Foreldrar geymi síðasta mánuðinn í þrjú ár Ríkisstjórnin hefur fallið frá því að skerða greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi. Í staðinn verður fæðingarorlof stytt um einn mánuð. 29.11.2009 12:09
Óvíst hvort Héðinsfjarðargöng dragi úr fólksfækkun Óvíst er að Héðinsfjarðargöng muni verða til þess að draga úr fólksfækkun á Ólafsfirði og Siglufirði eins og vonast er til. Þetta segir Þóroddur Bjarnason, prófessor í Háskólanum á Akureyri sem stýrt hefur umfangsmikill rannsókn sem snýr að mögulegum áhrifum gangnanna. 29.11.2009 12:08
Ræningjarnir voru í annarlegu ástandi Mennirnir sem handteknir voru skammt frá verslun 10-11 í Engihjalla í gærkvöldi voru í annarlegu ástandi. Þeir hafa ekki verið yfirheyrðir en líklegt þykir að mennirnir hafi ætlað að nota féð úr ráninu til þess að fjármagna fíkniefnaneyslu. 29.11.2009 12:00
Flokkar hafa ekki gott af því að vera lengi við völd Ekki er þörf á að stofna nýjan hægriflokk hér á landi, að mati Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Hún telur engan flokk hafa gott að því að sitja samfellt við völd í mörg ár. 29.11.2009 11:28
Frjálslyndir harma stuðningsyfirlýsingu við Ólaf Framkvæmdastjórn Frjálslynda flokksins harmar yfirlýsingu kjördæmisfélaganna í Reykjavík við Ólaf F. Magnússon, borgarfulltrúa F-listans. Stjórnin dregur í efa að fundurinn hafi verið löglegur og bendir jafnframt á að Ólafur sé ekki félagi í Frjálslynda flokknum. 29.11.2009 10:46
Lyfjastofnun borist 16 tilkynningar um aukaverkanir Lyfjastofnun hafa borist 16 tilkynningar um aukaverkanir sem hugsanlega geta verið af völdum Pandemrix, bóluefnisins sem notað er gegn svínaflensu eðaa inflúensu af stofni A(H1N1). Það er 2,1 tilkynning á hverja 10.000 bólusetta en nú hafa 75.000 Íslendingar verið bólusettir við flensunni. 29.11.2009 10:27
Eiginkonan sögð bera ábyrgð á áverkunum Lögreglan á Flórída hefur enn ekki náð tali af kylfingnum Tiger Woods og eiginkonu hans varðandi bílslysið sem hann lenti í aðfararnótt föstudags. Þau ein eru til frásagnar um hvað gerðist í raun og veru en margt bendir til að áverkar í andliti kylfingsins séu ekki af völdum þess að Tiger keyrði á brunahana og tré. 29.11.2009 10:03
Svisslendingar kjósa um bænaturna múslima Svisslendingar kjósa í dag um hvort banna eigi frekari smíðar á bænaturnum múslima þar í landi. Frumvarpið er sagt njóta talsverðs stuðnings. 29.11.2009 09:57
Hálka á Hellisheiði Það snjóar nokkuð víða á Reykjanesi og þar er snjóþekja. Hálka og snjókoma er á Hellisheiði og í Þrengslum og allvíða á Suðurlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 29.11.2009 09:49
Ógnaði starfsfólki með eggvopni Lögreglan fékk tilkynningu um vopnað rán í verslun 10-11, Engihjalla, í Kópavogi um átta leytið í gærkvöldi. Þar hafði aðili ógnað starfsmönnum með eggvopni. Lögreglan handtók síðan tvo aðila í tengslum við málið á stolnu ökutæki skammt frá þeim vettvangi sem ránið átti sér stað. Enginn meiddist í ráninu að sögn lögreglu. Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur nú tekið við rannsókn málsins 29.11.2009 09:46
Birgir: Ólöglegur þingfundur Annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna var frestað á Alþingi á tíunda tímanum í gærkvöldi. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fullyrti að fundurinn væri ólöglegur. 29.11.2009 09:32
Ljósin á Oslóartrénu tendruð á Austurvelli Ljósin á Oslóartrénu á Austurvelli verða tendruð klukkan fjögur í dag. Athöfnin hefst með því að Dómkórinn syngur nokkur lög undir stjórn Marteins Hunger Friðrikssonar. 29.11.2009 08:00
Framkvæmdastjóri SÞ bjartsýnn Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, er bjartsýnn á að góður árangur muni nást á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn í næsta mánuði. Hann telur líklegt að þjóðarleiðtogarnir sem sækja ráðstefnuna komi sér saman um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. 29.11.2009 07:00
Fimmfaldur næst Fyrsti vinningur verður fimmfaldur næsta laugardag því enginn var með allar tölurnar réttar að þessu sinni. Búast má við að potturinn verði í 37 milljónir. 28.11.2009 20:11
Hallarbylting í Framsóknarflokknum Birgir Guðmundsson, stjórnmálafræðingur við Háskólann á Akureyri, segir hallarbyltingu hafa verið gerð í Framsóknarflokknum í Reykjavík, þegar oddviti flokksins var felldur. 28.11.2009 18:12
Tugir drukknuðu í Kongó Að minnsta kosti 73 drukknuðu þegar bátur sökk í vesturhluta Afríkuríkisins Kongó í dag. Óheimilt var að flytja farþega á bátnum, að fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins. 28.11.2009 17:42
Spyr um kostnað vegna erlendra sérfræðinga í Seðlabankanum Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram á Alþingi fyrirspurn til Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, um kostnað vegna starfa erlendra sérfræðinga í Seðlabankanum. 28.11.2009 17:26
Víða hálka á Vesturlandi Á Vesturlandi eru víða hálka, hálkublettir og snjóþekja. Þungfært er á Skógarströnd og Snjóþekja og mikil snjókoma á Snæfellsnesi. Snjóþekja og éljagangur er á Holtavörðuheiði. Þæfingsfærð er á Laxárdalsheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 28.11.2009 17:12
Vill að Afganir fjölgi í herliði sínu Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, segir að Hamid Karzai, forseta Afganistan, verði sett ákveðin tímamörk eftir ármót. Stjórnvöld í Afganistan verði að boða hertar aðgerðir gegna öfgamönnum. 28.11.2009 16:57
Jólapakkasöfnunin hófst í dag Fyrr í dag hófst góðgerðasöfnun á jólapökkum fyrir börn undir jólatréð í Kringlunni samstarfi við Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands. 28.11.2009 16:00
Fjölmenni á útifundi Boðaður útifundur Hagsmunasamtaka heimilanna hófst klukkan þrjú á Austurvelli. Vel á þriðja hundrað manns tóku þátt í fundinum. 28.11.2009 15:29
Frjálslyndir í Reykjavík lýsa yfir stuðningi við Ólaf Frjálslyndir í Reykjavík lýsa eindregnum stuðningi við Ólaf F. Magnússon, borgarfulltrúa F-listans, og krefjast þess að Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins, biðji Ólaf afsökunar. 28.11.2009 15:17
Aðskilnaðarsinnar taldir bera ábyrgð á slysinu Grunur leikur á að aðskilnaðarsinnar frá Téténíu séu ábyrgir fyrir lestarslysinu í Rússlandi í gærkvöldi. Að minnsta kosti þrjátíu fórust í slysinu og um eitt hundrað slösuðust. 28.11.2009 14:38
Valgerður sigraði Hall í baráttunni um þriðja sætið Valgerður Sveinsdóttir, lyfjafræðingur, sigraði Hall Magnússon í kosningu um þriðja sætið á lista framsóknarmanna í Reykjavík í kosningunum í maí á næsta ári. Valgerður sigraði með 66% gildra atkvæða en Hallur hlaut 34% atkvæða. 28.11.2009 14:26
„Ég er svöng" Annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna var fram haldið á Alþingi í morgun. Þegar leið á umræðuna hvatti formaður Hreyfingarinnar forseta Alþingis til þess að gera matarhlé þar sem hún væri svöng. Þingflokksformaður Framsóknarflokksins sagði að um réttlætismál væri að ræða. Þingmenn ættu að fá matarhlé. 28.11.2009 14:01
Guðrún skipar annað sætið á eftir Einari Skúlasyni Guðrún Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri SAMFOK, sigraði í kosningu um 2. sætið á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninganna í maí á næsta ári. 28.11.2009 13:32
Nokkur hundruð manns í Hlíðarfjalli Nokkur hundruð manns hafa rennt sér á skíðum í Hlíðarfjalli, skíðasvæði Akureyringa, í dag. Þetta er í fyrsta sinn á þessu hausti sem skíðasvæðið er opið en á síðasta ári opnaði það nokkuð fyrr. 28.11.2009 13:30
Þingmenn á landsfundi norskra ESB andstæðinga Um helgina fer fram landsfundur Nei til EU í Noregi. Samtökin eru systursamtök Heimssýnar sem berst gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Í sendinefnd Heimssýnar sem tekur þátt í fundinum eru meðal annars þingmennirnir Ásmundur Einar Daðason VG, Unnur Brá Konráðsdóttir Sjálfstæðisflokki og Vigdís Hauksdóttir Framsóknarflokki. 28.11.2009 13:15
Samfylkingin í Mosó með prófkjör Félagsfundur Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ samþykkti á fimmtudag tillögu stjórnar um að hafa prófkjör meðal félagsmanna til að velja á framboðslista flokksins í bæjarfélaginu fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. 28.11.2009 13:15