Allt bendir til að aðildarumsókn Íslands verði samþykkt 25. júlí 2009 18:06
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir allt benda til þess að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu verði samþykkt á fundi utanríkisráðherra sambandsins á mánudag. Ekki er að vænta andstöðu frá Bretum og Hollendingum. Aðild Íslands getur styrkt Evrópusambandið að mati utanríkisráðherra Litháen. Vikádas Úsakas, utanríkisráðherra Litháens, kom til landsins í morgun og fundaði þá með Össuri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra, um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Litháar hafa lýst yfir fullum stuðningi við aðildarumsókn Íslands. Úsakas leiddi samninganefnd Litháa þegar þeir gengu í Evrópusambandið árið 2004. Hann segir mikilvægt að allt samningaferlið sé gagnsætt og víðtækt samráð haft við alla hagsmunaaðila. „Ég tel að bæði tæknilega og pólitískt séð sé Ísland reiðubúið að semja um aðild að ESB á innan við tveimur árum. Það veltur þó allt á því hvað landið staðsetur sig og hvernig aðildarsamning þið viljið fá," sagði Úsakas. Úsakas segist vonast til þess að Íslendingar nái ásættanlegum samningi við Evróupsambandið sem verði síðan samþykktur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann segir Ísland hafa margt að bjóða þrátt fyrir að landið sé nú að ganga í gegnum efnhagslega erfiðleika. „Við erum öll að ganga í gegnum fjármálakrísu. Öll Evrópuríki eru að ganga í gegnum erfitt tímabil. Saga hagfræði og stjórnmála hefur hinsvegar leidd það í ljós að það koma hæðir og lægðir í efnahagnum og það er ekki hægt að kosti lands meðan það gengur gegnum erfiðleika. Þetta snýst um langtímasjónarmið," segir Úsakas. Eins og fram kom í frétt fyrr í kvöld hafa Hollendinga lýst yfir miklum áhyggjum með framvindu Icesave málsins á Alþingi. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segist þó vera nokkuð viss um að Hollendingar beiti sér ekki gegn aðildarumsókn Íslands á mánduaginn þegar umsóknin verðu tekin fyrir á fundi utanríksiráðherra evrópusambandins. Þá væntir hann ekki andstöðu af hálfu Breta. „Já ég er bjartsýnni í dag en í gær. Vikádas hefur sagt mér það alveg skýrt að hans skoðun eftir að hafa talað við meginleikarana á sviðinu að þetta verði samþykkt."
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Fleiri fréttir Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Sjá meira