Fleiri fréttir

Obama vill byrja upp á nýtt

Barack Obama Bandaríkjaforseti vill nýtt upphaf í samskiptum Bandaríkjanna og Múslimaríkja. Múslimatrú sé ekki vandamálið í baráttunni við öfgamenn heldur eitthvað sem nota skuli til að boða frið. Þetta sagði forsetinn í ávarpi í Egyptlandi í morgun.

Óljóst hvort Baldur snúi aftur

Ekki er enn komið í ljós hvort Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, snúi aftur í ráðuneytið. Hann hefur verið í leyfi frá því í febrúar.

Varfærin lækkun gefur færi á afnámi gjaldeyrishafta

Arnór Sighvatsson aðstoðar Seðlabankastjóri las upp yfirlýsingu peningastefnunefdar á blaðamannafundi í Seðlabankanum nú fyrir stundu en stýrivextir voru lækkaðir um eitt prósentustig úr 13 í 12 prósent líkt og greint hefur verið frá. Hann sagði markaðsvxti hafa lækkað umtalsvert frá maíbyrjun. Skammtímavextir hafi hækkað um u.þ.b fjórar prósentur og raun- og nafnvextir langtímaskuldabréfa um 0,5 og 1,5 prósentur. Fyrir vikið sagði hann að ávöxtunarferillinn hefði orðið flatari en áður, sem hvetur fjárfesta til þess að auka hlutdeild langtímaskuldabréfa í eignasöfnum. Hann sagði innlánsvextir hafa einnig lækkað umtalsvert.

Ákvörðun Seðlabankans rædd á Alþingi

Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að lækka stýrivexti úr 13% í 12% var rædd á Alþingi í morgun en þingmenn vildu almennt sjá meiri lækkun.

Vill stýrivexti niður í fjögur prósent

Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir í samtali við fréttastofu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans mikil vonbrigði. Fyrirtækin komist ekki í gang og kostnaður ríkisins af vöxtum jöklabréfa aukist.

Innbrotsþjófurinn stal Audi Q7 á meðan fjölskyldan svaf

Sigurður Freyr Árnason íbúi í Hafnarfirði fór að sofa klukkan eitt í nótt í einbýlishúsi sínu við Vesturvang í Hafnarfirði. Eiginkona hans vaknað klukkan hálf sex í morgun og uppgötvað þá að það hefði verið brotist inn á heimili þeirra hjóna. Þjófurinn hafði tekið fartölvu, myndavél og veski auk þess sem hússlyklarnir og bíllyklarnir voru horfnir. Fljótlega uppgötvaði Sigurður að Audi Q7 bifreið fjölskyldunnar var horfin og vill hann auglýsa eftir bílnum sem hefur fastanúmerið KM E00.

Ákvörðun Seðlabankans gríðarleg vonbrigði

Stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans er gríðarleg vonbrigði, segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hann hafði vonast að lækkunin yrði meiri.

Stýrivextir úr 13 í 12 prósent

Seðlabanki Íslands tilkynnti nú fyrir stundu stýrivaxtalækkun upp á eitt prósentustig, úr 13 prósentum í 12. Ákvörðun bankans verður rökstudd á blaðamannafundi klukkan 11.

Api tók rafmagn af 7.000 japönskum heimilum

Apa nokkrum tókst að rjúfa rafstraum til um það bil 7.000 heimila í Aomori-héraðinu í Japan á þriðjudaginn. Apinn komst inn í spennistöð svæðisins og tók að fikta þar í ýmsum rofum þar til hann greip um aðalöryggi stöðvarinnar og fékk heiftarlegt rafstuð.

Steingrímur fagnar vasklegri framgöngu

„Ég fagna því að rannsóknarmenn séu að ganga vasklega til verks í þessum málum. Það hefur verið mikil eftirspurn eftir því að þessari rannsóknarvinnu miðaði áfram,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og fulltrúar á vegum sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins gerðu í gær húsleit hjá lögmannastofunni Logos.

Verði útibú erlendra banka

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur heppilegt fyrir atvinnulífið að íslensku ríkisbankarnir færist í eigu erlendra banka og verði jafnvel útibú frá þeim.

Breti dæmdur til lífstíðar í Laos

Tvítug bresk kona, Samantha Orobator, hefur verið dæmd í lífstíðarfangelsi í Laos fyrir að reyna að smygla rúmum 700 grömmum af heróíni þaðan og til Taílands í ágúst í fyrra.

Aftur þurfti að kalla út frívakt á þyrluna

Tvisvar í þessari viku hefur Landhelgisgæslan þurft að kalla til frívaktir til að fara í björgunarflug á haf út. Dómsmálaráðherra hyggst ræða við forstjóra Landhelgisgæslunnar til að kanna hvort hægt sé að endurskoða leiðir til sparnaðar hjá þyrlusveitinni.

Obama á ferðalagi um Mið-Austurlönd

Barack Obama Bandaríkjaforseti hóf tveggja daga ferð sína um Mið-Austurlönd með því að heimsækja Abdullah, konung Sádi-Arabíu, í gær. Abdullah og Obama ræddu saman stuttlega fyrir framan blaðamenn en héldu síðan til fundar.

Lögregla í Fredericia eykur viðbúnað

Lögregla í bænum Fredericia á Jótlandi er í viðbragðsstöðu og hefur fjölgað í liði sínu á götum bæjarins eftir tvær skotárásir sem áttu sér stað þar nú í vikunni.

Kosið til Evrópuþings

Kosningar til Evrópuþingsins hefjast í dag og ganga Bretar og Hollendingar fyrstir til kjörklefanna. Kosið er í öllum 27 Evrópusambandslöndunum á fjögurra daga tímabili en þingsætin eru 736.

Brown berst í bökkum

Breski forsætisráðherrann Gordon Brown á í vök að verjast þessa dagana en sótt er að honum úr öllum áttum, meðal annars vegna hins eldfima kostnaðarmáls sem heldur betur hefur hrist upp í breskum þingheimi undanfarnar vikur.

Togari strandaði við Sandgerði

Skuttogarinn Sóley Sigurjóns tók niðri í innsiglingunni í Sandgerði í morgun. Björgunarsveitin Sigurvon í Sandgerði var kölluð út og er hún nú á strandstað ásamt lögreglumönnum af Suðurnesjum. Týr, varðskip Landhelgisgæslunnar, var einnig kallað að strandstað auk björgunarskips frá Landsbjörgu og á að freista þess að draga skipið á flot á ný á flóði klukkan hálf fimm.

Stýrivaxtaákvörðun í dag

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands mun tilkynna um ákvörðun um stýrivexti í dag klukkan níu. Sjálf ákvörðunin verður kynnt með stuttri tilkynningu klukkan níu en klukkan ellefu kynnir nefndin rök sín fyrir ákvörðuninni.

Ráðherra ýtir á skilanefnd

Skilanefnd Kaupþings leyfir viðskiptanefnd ekki að sjá „þýska bréfið", þar sem meintar hótanir þýskra yfirvalda í garð íslenskra koma fram. Viðskiptaráðherra sagði á Alþingi í gær að ráðuneyti sitt hefði rekið á eftir skilanefndinni um að skýra sín sjónarmið um þetta, og að skeytið verði birt.

Ríkiskaup sögð sveigja reglur

„Við munum að sjálfsögðu kæra áður en þessi samningur kemst á,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, um þá ákvörðun Ríkiskaupa að semja við Vodafone um fjarskiptaþjónustu fyrir Landspítalann.

Kassinn finnst kannski aldrei

Mögulegt er að svarti kassi flugvélarinnar sem fórst yfir Atlantshafinu á sunnudag finnist aldrei. Flugvélar og skip leituðu að meira braki úr vélinni við mjög erfiðar aðstæður í gær.

Meint ólöglegt lán rannsakað

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra rannsakar meint ólöglegt fimm milljarða króna lán FL Group til Hannesar Smárasonar, fyrrum forstjóra félagsins. Lánið er talið hafa verið notað til kaupa á Sterling-flugfélaginu árið 2005. Einnig er til rannsóknar hvort Hannes hafi orðið uppvís af umboðssvikum.

Aðgangur að torginu bannaður

Erlendum blaðamönnum var meinaður aðgangur að Torgi hins himneska friðar í gær, þegar tuttugu ár voru liðin frá því að friðsamleg mótmæli fyrir lýðræðisumbótum voru brotin á bak aftur.

Skuldavandinn ekki jafn mikill og sagt er

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að skuldavandi heimilanna sé ekki eins víðtækur og ýmsir hafi haldið fram. Nýjar upplýsingar frá Seðlabankanum um eignir og skuldir heimilanna sýni það.

Samræmdar aðgerðir ræddar

Svæðisáætlanir um viðbrögð vegna svínaflensufaraldurs verða ræddar á fundum um allt land á komandi dögum.

Rifbeinsbraut lögreglumann

Karlmaður um þrítugt hefur verið ákærður fyrir umferðarlagabrot og brot gegn valdstjórninni, en honum er gefið að sök að hafa veist að lögregluþjóni eftir að hafa verið handtekinn fyrir ölvunarakstur í október árið 2006.

Slysum fækkar um fjórðung

Slysum í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað um fjórðung á einu ári ef miðað er við fjóra fyrstu mánuði ársins og þeir bornir saman við sama tímabil í fyrra. Umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið saman fjölda slysa sem sýnir að fækkunin nemur 25 prósentum.

Marel slær taktinn í Kauphöll

Stjórn Marel Food Systems ákvað í gær að efna til áskriftarútboðs fyrir fagfjárfesta með það fyrir augum að styrkja lausafjárstöðu félagsins. Gefið verður út nýtt hlutafé í útboðinu sem lýkur á föstudag. Þetta er fyrsta hlutafjárútboðið hjá skráðu félagi í Kauphöllinni það sem af er árs.

Aftur orðin aðstoðarmaður

Helga Valfells hefur verið ráðin á ný sem aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra. Hún hætti rétt eftir kosningar 25. apríl, ásamt Þorfinni Ómarssyni fjölmiðlafulltrúa.

Ísland svarar til um Helguvík

Fjármálaráðuneytið hefur svarað viðbótarspurningum ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, um fjárfestingarsamning ríkisins við Century Aluminium, vegna álvers í Helguvík. Frestur til svars rann út á þriðjudag, en ráðuneytið svaraði 26. maí.

Kveðja hundana sína grátandi

Sjö hundar voru í óskilum á hundahótelinu á Leirum í gær. Sumir hafa hreinlega ekki efni á að leysa hundana út og koma til að kveðja þá. Aðrir fara þá leið að losa sig við hunda sína.

Starfa ekki með meirihlutanum

„Ég frábið mér að lesa í blöðum frá Hönnu Birnu Kristjánsdóttur að hún sé að lýðræðisvæða borgina. Hún er ekki að því heldur er hún að framsóknarvæða borgina,“ segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans.

Telja um fyrirslátt að ræða

Fyrri umræða um ársreikninga Hafnarfjarðarbæjar átti að fara fram á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag. Bæjarstjóri bar hins vegar upp breytingatillögu og frestaði umræðunni þar sem ekki hafi náðst að undirrita þá. Ástæðuna sagði hann vera að annar skoðunarmannanna hefði verið erlendis.

Getur vel orðið arðbær iðnaður

Hjarðeldi á þorski getur vel verið arðbært, segir Jón Eðvald Halldórsson, en hann hefur nýlokið við meistaraverkefni um efnið frá Háskólanum á Akureyri. „Alla vega benda mínar niðurstöður til að þetta geti orðið arðbær iðnaður,“ segir hann

Á von á eigendastefnu fljótlega

Formaður viðskiptanefndar, Álfheiður Ingadóttir, segist innan skamms eiga von á tillögu frá ríkisstjórninni um eigendastefnu ríkisins gagnvart bönkunum. Hún krafðist stefnunnar í blaðinu fyrir um viku, og minnti á að þessu væri heitið í stjórnarsáttmála.

Lífeyrissjóðirnir styrki krónuna

„Ef Seðlabankinn lækkar ekki vexti þá höfum við ekkert annað að gera en að fara heim og undirbúa sautjánda júní,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem vill að stýrivextir lækki niður í eins stafs tölu í dag.

Vinstrisigur á Grænlandi

Vinstriflokkurinn Inuit Ataqatigiit sigraði í þingkosningunum á Grænlandi. Flokkurinn hlaut 44 prósent atkvæða og 14 af 31 þingsæti.

Hvetur Kínverja til þess að viðurkenna fjöldamorð

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Hillary Clinton, þrýsti á kínversk stjórnvöld að viðurkenna fjöldamorðin á Torgi hins himneska friðar árið 1989. Í ræðu sinni sagði hún einnig að kínversk yfirvöld ættu að sleppa þeim sem eru enn í haldi eftir mótmælin og hætta að ofsækja þá sem yfirvöld gruna að hafa tekið þátt í mótmælunum eða þeim tengdum.

Bréf til Brown: Kæri forsætisráðherra segðu af þér

Nauðavörn Gordons Browns, forsætisráðherra Bretlands heldur áfram en samflokksmenn hans eru nú að safna undirskriftum svo þeir geti sent bréf þar sem hann er hvattur til þess að stíga til hliðar svo nýr leiðtogi geti leitt Verkamannaflokkinn inn á nýjar sigurbrautir.

Sjá næstu 50 fréttir