Steingrímur fagnar vasklegri framgöngu 4. júní 2009 08:30 Steingrímur er sáttur. „
Ég fagna því að rannsóknarmenn séu að ganga vasklega til verks í þessum málum. Það hefur verið mikil eftirspurn eftir því að þessari rannsóknarvinnu miðaði áfram," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og fulltrúar á vegum sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins gerðu í gær húsleit hjá lögmannastofunni Logos. Steingrímur segir það vonandi boða gott að tvisvar á stuttum tíma hafi verið gripið til víðtækra rannsóknaraðgerða á þessum málum. „Ekki veitir af. Það er bráðnauðsynlegur hluti þess að þjóðin sættist við þetta að ekkert sé undan dregið í þessum efnum," segir Steingrímur. Húsleitin er meðal annars talin tengjast meintu ólöglegu risaláni FL-Group upp á 46 milljónir dollara, eða fimm milljarða króna, til Hannesar Smárasonar, fyrrum forstjóra FL Group. Lánið á að hafa verið notað til kaupanna á Sterling-flugfélaginu árið 2005. Einnig er til rannsóknar hvort Hannes hafi orðið uppvís af umboðssvikum. Þetta kemur fram í viðtali vefútgáfu danska dagblaðsins Berlingske Tiderne við Helga Magnús Gunnarsson, saksóknara efnahagsbrotadeildarinnar. Logos kom mikið að Sterling í gegnum FL Group. Efnahagsbrotadeildin gerði einnig húsleit á tveimur heimilum Hannesar Smárasonar við Fjölnisveg. Rannsóknin tengist meintum skattalagabrotum nokkurra félaga sem tengjast Hannesi Smárasyni. Félögin eru FI fjárfestingar ehf., sem áður var Fjárfestingarfélagið Primus, og dótturfélög þess, EO eignarhaldsfélag ehf., sem áður var Oddaflug, Eignarhaldsfélagið Sveipur ehf., 3S ehf., Hlíðarsmári 6 ehf. og Fjölnisvegur 9 ehf. Gunnar Sturluson, faglegur stjórnandi Logos, sat í stjórnum félaganna sem tengjast Hannesi fram í lok nóvember síðastliðinn. Rannsóknin er á frumstigi. Gunnar Sturluson staðfesti í samtalið við Fréttablaðið að húsleitin hefði farið fram og afhent hefðu verið þau gögn sem beðið var um. Hann vildi ekki tjá sig nánar um málið að svo stöddu. Ekki náðist í Hannes Smárason vegna málsins.kjartan@frettabladid.is
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Sjá meira