Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bindisskylda þingmanna afnumin Þær markverðu breytingar hafa verið gerðar á reglum um klæðaburð þingmanna að þingmönnum er ekki skylt að ganga með hálstau. Helgi Bernódusson skrifstofustjóri Alþingis tilkynnti nýjum þingmönnum þetta á nýliðanámskeiði sem nú stendur yfir í þingsal. 13.5.2009 10:57
Arnarhreiður í beinni útsendingu Reykhólasveit býður almenningi að horfa á arnarpar ala upp ungviði sitt á afskekktum stað í sveitinni fyrir tilstuðlan vefmyndavélar. 13.5.2009 10:52
Vont fyrir Steingrím J. að búa í Danmörku Í nýafstöðnum þingkosningum kveinkuðu Vinstri grænir sér undan því að einhverjir sjálfstæðismenn hrekktu Steingrím J. Sigfússon með því að birta mynd af honum í auglýsingum. 13.5.2009 10:51
Litlar heimtur hryðjuverkamanna í Bretlandi Yfir 1400 manns hafa verið handteknir í Bretlandi á grundvelli hryðjuverkalaga síðan ellefta september árið 2001. Aðeins þriðjungur þeirra hefur hinsvegar sætt ákæru og enn færri sakfelldir. 13.5.2009 10:13
Fyrsti „skóladagur“ nýrra þingmanna Tuttugu og sjö þingmenn taka sæti á Alþingi í fyrsta sinn næstkomandi föstudag þegar þing kemur saman. Helgi Bernódusson skrifstofustjóri Alþingis tók nýliðina í kennslustund í dag og verða þeir á námskeiði hjá Helga, sem þekkir þingstörfin eins og handarbakið á sér, í allan dag. 13.5.2009 09:48
Aukið samstarf háskóla í deiglunni Til greina kemur að auka samstarf háskóla á Íslandi til þess að ná fram aukinni hagræðingu, að sögn Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra. Katrín segist hafa rætt breytingar á starfi skólanna til að ná fram aukinni hagræðingu. „En ekki sameiningu háskólanna endilega heldur aukið samstarf að minnsta kosti. Jafnvel hvernig hægt er að skipta verkum meira en verið hefur," segir Katrín. 13.5.2009 09:43
Andlátsfregnir óheppilegt auglýsingaefni Bresku fyrirtæki hefur verið bannað að nota mynd af leikkonunni Natösju Richardson til að auglýsa skíðahjálma en auglýsing fyrirtækisins var send viðskiptavinum þess í tölvupósti daginn eftir að Natasha lést í skíðaslysi í Kanada í marsmánuði. 13.5.2009 08:22
Sultarólin hert í sumarfríinu Rúmlega helmingur Bandaríkjamanna hefur úr mun minna fé að moða í sumaleyfinu í ár en í fyrra. 13.5.2009 07:35
Stungu af úr dómsalnum Lögreglan í Borgrundarhólmi í Danmörku leitar nú fanga sem gerði sér lítið fyrir og flúði við annan mann úr dómsal þar í bænum í gær. 13.5.2009 07:29
Kínverskar pöndur með eftirskjálfta Stofn panda-bjarna í Sichuan-héraðinu í Kína hefur átt erfitt uppdráttar eftir jarðskjálftann mikla sem reið yfir héraðið 12. maí í fyrra. 13.5.2009 07:27
Sýknaður eftir 22 ár á dauðadeild Fangi, sem dvalið hefur á dauðadeild fangelsis í Tennessee í 22 ár, hefur verið sýknaður af morðákæru sem hann var dæmdur fyrir árið 1986. Maðurinn heitir Paul House og var honum borið á brýn að hafa nauðgað konu í bænum Luttrell og myrt hana árið 1985. 13.5.2009 07:26
Atlantis skaddaðist í flugtakinu Geimskutlan Atlantis varð fyrir smávægilegu tjóni þegar henni var skotið á loft í fyrrakvöld. Svo virðist sem einangrun hafi losnað af eldsneytistanki og skollið á væng skutlunnar. 13.5.2009 07:24
Vandræðaástand í sjávarþorpum Vandræðaástand er að skapast í sjávarþorpum víða um land þar sem markaður með leigukvóta er hruninn. Það leiðir af sér að bátar geta ekki róið þótt þeir eigi til dæmis nægan kvóta af ýsu og steinbít, en ekki þorski. 13.5.2009 07:17
Særok á Skutulsfirði Vindur er nú genginn niður á Ísafirði og er þar nú sól og hæglætisveður. Þar var bálhvasst í hviðum í gær og var um tíma særok á Skutulsfirðinum. 13.5.2009 07:15
Hichem fluttur á sjúkrahús Hælisleitandinn Mansri Hichem, sem verið hefur í hungurverkfalli í rúmlega tuttugu sólarhringa á gistiheimili í Njarðvík, var í gærkvöldi fluttur á sjúkrahúsið í Keflavík og dvelur þar enn. 13.5.2009 07:13
Íbúðalánasjóður lækkar vextina Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að lækka vexti í kjölfar útboðs á íbúðabréfum. Vextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði lækka úr 4,9 prósentum í 4,7 prósent og vextir lána án uppgreiðsluákvæðis lækka úr 5,4 prósentum niður í 5,2 prósent. Lækkunin tekur gildi í dag. 13.5.2009 07:11
Skora á stjórnina að hætta við fyrningarleið Stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva skorar á ríkisstjórnina að afturkalla fyrirhugaða fyrningarleið í sjávarútvegi. Í ályktun samtakanna segir að fyrningarleiðin feli í sér að afkomu sjávarútvegsfyrirtækja og atvinnuöryggi starfsfólksins verði kippt í burtu á fáeinum árum. 13.5.2009 07:03
Ísland verður sjöunda lagið á svið í úrslitunum Eftir að fyrri undanúrslitakeppninni í Eurovision lauk í kvöld var farið í það að draga um númeraröð landanna á úrslitakvöldinu. Keppendur landanna svöruðu einnig nokkrum spurningum. Ísland verður sjöunda atriðið á svið á laugardaginn. Portúgal verður atriðið á undan okkur. 12.5.2009 23:09
Jóhanna Guðrún: „Var orðin frekar svartsýn“ Jóhanna Guðrún Jónsdóttir var í skýjunum eftir að ljóst var að hún komst áfram upp úr undankeppni Eurovison nú í kvöld. Vísir náði tali af henni rétt eftir að kepnninni lauk og sagðist hún ekki geta verið ánægðari. 12.5.2009 21:53
Mexíkóar segjast ekki hafa leynt svínaflensunni Heilbrigðisráðherra Mexíkó neitar ásökunum Fídel Castro um að yfirvöld þar í landi hafi vísvitandi sleppt því að segja frá tilvist svínaflensunnar í síðasta mánuði. Jose Angel Cordova heilbrigðisráðherra segir að yfirvöld þar í landi hafi verið óvenjulega opinská og haft frumvkvæði að því að tilkynna um faraldurinn. 12.5.2009 22:47
Reiknar með að einhverjir þingmenn VG styðji aðildarumsókn Formaður Vinstri grænna reiknar með að einhverjir þingmenn muni greiða aðildarumsókn að Evrópusambandinu atkvæði sitt. Engir hlekki verði settir á þingmenn flokksins og vonandi eigi það einnig við þingmenn annarra flokka. 12.5.2009 21:31
Jóhanna Guðrún komst áfram í úrslit Eurovision Jóhanna Guðrún Jónsdóttir komst áfram upp úr fyrri undanúrslitariðlinum í Eurovision fyrir stundu og tekur því þátt í úrslitakvöldinu sem fer fram á laugardaginn. 12.5.2009 20:21
Sjúkraflutningamaður hraunar yfir hælisleitanda á Facebook ,,Negla ætti frímerki á rassgatið á þessu liði og senda út með fyrstu vél til Órafarrillíu." Þetta er skoðun sjúkraflutningsmanns á Suðurnesjum um flóttamenn og alsírskan hælisleitanda sem verið hefur í hungurverkfalli í tuttugu daga. 12.5.2009 19:45
Hjúkrunarfræðingar hætta í BHM Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur samþykkt að segja sig úr Bandalagi háskólamanna en tillaga þess efnis var samþykkt á aðalfundi félagsins í dag. Úrsögnin á að öðlast gildi frá áramótunum 2009 og 2010. 12.5.2009 19:28
Leyfilegt að drepa óbreytta borgara Mannréttindaráðherra Sri Lanka segir að þeim sé leyfilegt að drepa óbreytta borgara meðan það sé í réttu hlutfalli við þá hermenn sem þeir drepi. 12.5.2009 19:15
Bankastjórar verða að lækka laun sín um tæpa milljón Lagabreytingu þarf til að lækka laun sumra ríkisforstjóra, en stjórnir annarra stofnana þurfa að lækka laun sinna forstjóra svo hægt verði að fara að vilja ríkisstjórnarinnar um að engin ríkislaun verði hærri en laun forsætisráðherra. 12.5.2009 18:30
400 þúsund króna ríkisstjórnarfundur Ríkisstjórnarfundurinn á Akureyri hefur líklega kostað um fjögur hundruð þúsund krónu 12.5.2009 18:30
Slökkviliðsdeila í Árborg: Öryggi íbúa tryggt Margrét K. Erlingsdóttir formaður Brunavarna Árborgar segir að öryggi íbúa sé tryggt þrátt fyrir að fimmtán slökkviliðsmenn hafi sagt upp störfum, en þeir munu hætta um næstu mánaðarmót. Nokkuð harðvítugar deilur hafa staðið milli slökkvliðsmannanna og yfirstjórnar en þeir sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem skorað er á stjórnina og slökkviliðsstjórann að segja af sér. Deilan snýst, samkvæmt ályktun þeirra, um samskiptaörðugleika og trúnaðarbrest. 12.5.2009 17:58
Nýr samstarfsráðherra ríkisstjórnarinnar Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra verður jafnframt samstarfsráðherra í nýrri ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Þetta var ákveðið á fyrsta fundi ríkisstjórnarinnar á Akureyri í dag. 12.5.2009 16:56
Óveður undir Hafnarfjalli Óveður er undir Hafnafjalli og á norðanverðu Snæfellsnesi, eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Vegagerðinni. 12.5.2009 16:25
Össur sendir bréf til 1.400 breskra þingmanna Sendiherra Íslands í London hefur, að beiðni Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra, sent öllum þingmönnum breska þingsins bréf þar sem brugðist er við skýrslu fjármálanefndar breska þingsins, sem út kom í apríl sl. Alls er um tæplega 1400 bréf að ræða, en þingmennirnir eru 646 í neðri deild og 738 í efri deild. Lokið var við útsendingu bréfanna í síðustu viku. 12.5.2009 16:24
Formaður Skilanefndar í felum Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans, hyggst ekki tjá sig við fjölmiðla um viðskipti Landsbankans með hlut í Byr sparisjóði. Sagt var frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöld að skilanefnd Landsbankans hefði selt 2,6% hlut í Byr til Reykjavík Invest, sem er lítilð fjárfestingafélag, rúmri viku fyrir 12.5.2009 14:54
Hætta á að börn í efnahagslegum erfiðleikum neyti fíkniefna Efnahagslegir erfiðleikar á heimilum ungmenna eru áhættuþáttur fyrir margvísleg vandamál sem þau glíma við. Þetta segir Jón Gunnars Bernburg, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands. „Þeim líður verr, eru reiðari, eru meira í ofbeldi og afbrotum og fíkniefnaneyslu. Þetta er skýrt mynstur," segir Jón Gunnar. 12.5.2009 14:32
Smyglskútumenn áfram í gæsuvarðhaldi Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir Rúnari Þór Róbertssyni, Árna Hrafni Ásbjörnssyni og hollenskum karlmanni sem handteknir voru á skútunni Sirtaki í síðasta mánuði. 12.5.2009 14:10
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar ræða ESB mál við ríkisstjórnina Formenn allra stjórnararandstöðuflokkanna fara á fund forystumanna ríkisstjórnarinnar í stjórnarráðinu í fyrramálið þar sem drög að þingsályktun um aðildarviðræður að Evrópusambandinu verður rædd. 12.5.2009 12:13
Jóhanna og Össur komin norður Þau Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra lentu á Akureyrarflugvelli fyrir hádegið en ríkisstjórnarfundur hófst í Ráðhúsi Akureyrar í hádeginu. 12.5.2009 12:07
Gæsluvarðhald yfir skútusmyglurum rennur út í dag Gæsluvarðhald yfir Rúnari Þór Róbertssyni, Árna Hrafni Ásbjörnssyni og hollenskum karlmanni sem handteknir voru á skútunni Sirtaki í síðasta mánuði rennur út í dag. 12.5.2009 12:04
Trúarbragðaólga vegna svínaslátrunar Þrátt fyrir aðvaranir Sameinuðu þjóðanna og annarra alþjóðasamtaka ákváðu stjórnvöld í Egyptalandi að öll svín í landinu skyldu drepin vegna H1N1 flensunnar. 12.5.2009 11:41
Norsku morðin vegna deilna um eignir Norskur maður myrti í gær fyrrverandi eiginkonu sína og dóttur hennar í smábæ rétt utan við Osló. 12.5.2009 11:38
Laun bankastjóranna lækka um rúm 800 þúsund Laun bankastjóra Íslandsbanka og Kaupþings munu lækka um að minnsta kosti 815 þúsund krónur verði launum starfsmanna ríkisins breytt þannig að engin ríkislaun verði hærri en laun forsætisráðherra. 12.5.2009 09:56
Hershöfðingjaskipti í Afganistan David McKiernan hershöfðingi, yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Afganistan, var leystur frá störfum í gær en Robert Gates varnarmálaráðherra hefur ákveðið að skipa annan hershöfðingja til að gegna embættinu eftir 11 mánaða starf McKiernans sem einfaldlega stóð sig ekki í stykkinu að mati yfirmanna sinna. 12.5.2009 08:20
Flensan til Finnlands Staðfest hefur verið að tvö tilfelli svínaflensunnar hafi greinst í Finnlandi og eru það þá sjötta og sjöunda tilfelli flensunnar í Skandinavíu. Ef marka má tölur Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar hafa nú um 4.700 manns í 30 þjóðlöndum greinst með flensuna. 12.5.2009 08:17
Fátækrahverfi með eigin banka og gjaldmiðil Í borginni Fortaleza í Norðaustur-Brasilíu er fátækrahverfi sem heitir Palmeiras. Þar er heimili 32.000 manns. Palmeiras er þó ef til vill ekki hefðbundið fátækrahverfi. Það heldur úti sínum eigin gjaldmiðli sem kallast palma og hefur sinn eigin banka þótt húsnæðið sem hann er í sé svo sem ekki í neinum Wall Street-stíl. Það er að hruni komið. 12.5.2009 07:56
Vélmenni í japanskar kennslustofur Saya er enginn venjulegur kennari. Hún lýtur engum kjarasamningum og missir aldrei stjórn á skapi sínu. Henni þarf hins vegar að stinga í samband. 12.5.2009 07:28
Vopn og verjur í ránum verða æ framúrstefnulegri Ekki voru það allt hefðbundin áhöld sem komu við sögu í ráni í kynlífstækjaverslun í Álaborg í Danmörku í gærkvöldi. Ung kona ruddist inn í búðina með kúbein og krafði afgreiðslumanninn um 3.000 krónur ella fengi hann að finna til tevatnsins. 12.5.2009 07:26