Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tekinn með ætluð fíkniefni á Akureyri Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn á Akureyri í gærkvöldi eftir að þrjátíu grömm af hvítu efni, líklega anfetamíni eða kókaíni, fundust í fórum hans við húsleit lögreglunnar. 12.5.2009 07:06
Ný ríkisstjórn fundar á Akureyri Nýja ríkisstjórnin ætlar að halda sinn fyrsta fund í bæjarstjórnarsalnum í Ráðhúsinu á Akureyri í dag, og hefst hann í hádeginu. 12.5.2009 07:02
Drap fyrrverandi og dóttur hennar 61 árs gamall íbúi í Nesøya skammt frá Osló í Noregi skaut fyrrum eiginkonu sína (59 ára) og dóttur hennar til bana rétt áður en hann tók sitt eigið líf. Skotárásin átti sér stað rétt fyrir klukkan 18:00 í dag. Það er Aftenposten sem heldur þessu fram í kvöld. 11.5.2009 21:32
Netmorðinginn fékk lífstíðardóm Þjóðverji fékk í dag lífstíðar fangelsisdóm fyrir að stinga ungan mann frá Nottingham 86 sinnum eftir að hann varð yfir sig hrifinn af kærustu hans. David Heiss frá Limburg í Þýskalandi varð yfir sig hrifinn af kærustu Matthew Pyke, Joanna Witton, eftir að þau kynntust á internetinu. Heiss hefur ávallt neitað sök í málinu en hann fékk lífstíðardóm í dag. 11.5.2009 22:18
Bandarískur hermaður skaut fimm félaga sína til bana Pentagon greinir frá því í kvöld að bandarískur hermaður hafi skotið fimm félaga sína til bana á herstöð í Bagdad í Írak. Tveir til viðbótar særðust í skotárásinni en byssumaðurinn hefur verið settur í varðhald. Í yfirlýsingu frá hernum segir að árásin hafi átt sér stað á Camp Liberty herstöðinni nálægt flugvellinum í Bagdad um tvö leytið í dag. 11.5.2009 20:37
Uvg sakna Kolbrúnar af þingi Ung vinstri græn þakka Kolbrúnu Halldórsdóttur fyrir frábært hugsjónastarf í þágu náttúrunnar, kvenfrelsis, félagslegs jafnréttis og friðar í þau 10 ár sem hún hefur setið á þingi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Uvg í kvöld en Kolbrún lætur nú af þingmennsku. 11.5.2009 20:00
Stjórnarandstaðan gæti haldið evrópumálum í herkví Meirihluti er fyrir aðildarviðræðum við Evrópusambandið á Alþingi ef komið verður til móts við skilyrði Framsóknarflokks og Borgarahreyfingar fyrir viðræðum. Sérfræðingur í Evrópusambandsmálum segir að stjórnarandstöðuflokkarnir gætu hins vegar haldið málinu í herkví. 11.5.2009 19:00
Fyrningarleiðin drepur útgerðir á 6 árum Engar ákvarðanir hafa verið teknar um hvenær eigi að hefja innköllun á kvóta né hvernig honum verði síðan deilt út að nýju. Það verður gert í nánu samráði við hagsmunaaðila, segir glænýr sjávarútvegsráðherra, Jón Bjarnason. Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ og útgerðarmaður á Seyðisfirði, segir sjávarútvegisfyrirtæki lifa lengst í sex ár eftir að innköllun hefst. 11.5.2009 18:45
Ítarlegasti stjórnarsáttmáli í árafjöld Ýmis nýmæli eru í stjórnarsáttmálanum sem er einhver sá ítarlegasti á síðari árum. Þar er gert ráð fyrir bráðaaðgerðaáætlun í tíu liðum til að sporna við atvinnuleysi. Beinharðar hugmyndir um niðurskurð í ríkisbúskapnum eru ekki tíundaðar og leiðrétting á skuldum heimilanna er ekki í pípunum. 11.5.2009 18:30
Þrennt skotið til bana í Noregi Þrennt var í dag skotið til bana í smáeynni Nesöya rétt utan við Osló. . Brú er frá fastalandinu yfir í Nesö og henni hefur nú verið lokað meðan sérsveit 11.5.2009 18:10
Ekki grunaður um skipulagningu á Brasilíusmygli Vegna fréttar um Sverri Þór Gunnarsson í fréttatíma Stöðvar 2 í gærkvöldi vill fréttastofa koma eftirfarandi á framfæri. Ekki var rétt farið með staðreyndir í inngangi fréttarinnar þar sem Sverrir Þór var sagður vera grunaður um að skipuleggja smygl á fíkniefnum frá Brasilíu. 11.5.2009 18:00
Vegfarendur skotnir í Noregi Mikill viðbúnaður er nú á Nesö skammt frá Osló þar sem óþekktur maður skaut á fólk úr haglabyssu. Fregnir af þessu eru mjög óljósar ennþá. 11.5.2009 17:41
Papeyjarsmyglið: Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Þrír karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við Papeyjarsmyglið svokalllaða á dögunum. Framlengingin er gerð á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 11.5.2009 17:09
Slökkviliðsdeila: Formaður vill ekki tjá sig „Ég vil ekki tjá mig um málið því ég er ekki búin að lesa yfirlýsinguna," svarar Framsóknarkonan Margrét K. Erlingsdóttir og formaður Brunavarna Áborgar um harðvítuga deilu slökkviliðsmanna í Árborg við stjórnina og slökkviliðsstjóra. Alls hafa fimmtán slökkviliðsmenn sagt upp störfum og munu þeir láta af störfum nú um næstu mánaðarmót. 11.5.2009 16:30
Björgvin formaður þingflokks Samfylkingarinnar Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, var kjörinn þingflokksformaður Samfylkingarinnar á þingflokksfundi nú fyrir stundu. 11.5.2009 15:58
Hyggst áfrýja Kjúklingastrætisdómnum Friðrik Már Jónsson, sem varð fyrir árás í Kjúklingastræti í Kabúl í Afganistan, laugardaginn 23. október 2004 hyggst áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í dag. Friðrik greindist með áfallastreituröskun eftir árásina og krafðist hann miskabóta af íslenska ríkinu. 11.5.2009 15:53
Ríkið ekki skaðabótaskylt vegna sprengjuárásar Íslenska ríkið hefur verið sýknað af skaðabótakröfu Friðriks Más Jónssonar, sem var flugumferðastjóri á herflugvellinum í Kabúl í Afganistan. Hann lenti í sprengjuárásinni í Kjúklingastræti árið 2004 og skaddaðist á heyrn. Að auki var hjann greindur með áfallastreituröskun, og hefur ekki starfað eftir það. 11.5.2009 15:41
Spyr hvort Össur fjármagni flokk Browns „Nú verður spennandi að sjá hvaða silkihanskameðferð breski sendiherrann hér á landi fær vegna rangra og meiðandi ummæla Browns um Ísland í breska þinginu í vikunni," segir Sigríður Ásthildur Andersen, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins á vefsíðu sinni. 11.5.2009 15:28
Ráðherrarnir fljúga með áætlunarflugi norður Fyrsti ríkisstjórnarfundur nýrrar ríkisstjórnar verður á Akureyri á morgun. Í ljósi þess að ekki mega fleiri en fjórir ráðherrar fljúga saman í flugvél af öryggisástæðum, mætti ætla að erfitt gæti orðið að koma hópnum norður. Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, segir svo þó ekki vera. 11.5.2009 15:03
Fráfarandi þingmaður umsjónarmaður Þjóðarsálarinnar Fráfarandi þingmaður Frjálslynda flokksins, Grétar Mar Jónsson, hefur nú söðlað um og hafi störf sem útvarpsmaður á Lýðvarpi Ástþórs Magnússonar. 11.5.2009 14:47
Umferðarljósum stolið í annað sinn Bíræfnir þjófar stálu um miðja síðustu viku tveimur umferðarljósum af gatnamótum Sæbrautar og Holtavegar. Ljósahausarnir sem stolið var eru nokkru minni en hefðbundin ljós og voru þeir festir á miðja staura vestanmegin gatnamóta fyrir umferð frá Holtavegi. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að búið sé að kæra þjófnaðinn til lögreglu og eru þeir sem hafa ábendingar beðnir um að láta lögreglu vita. 11.5.2009 14:36
Hermaður í Írak myrti fjóra félaga sína Fjórir bandarískir hermenn voru skotnir til bana í Írak í dag. Árásin átti sér stað á einni stærstu herstöð Bandaríkjamanna í höfuðborginni Bagdad í dag en það var hermaður í Bandaríkjaher sem sturlaðist og hóf skothríð á félaga sína. Eftir að hafa myrt fjóra skaut hann sjálfan sig til bana. 11.5.2009 14:30
Brunamálastjóri fylgist grannt með slökkviliðsdeilu „Við fylgjumst mjög grannt með þróun mála," segir brunamálastjórinn Björn Karlsson um þá harðvítugu deilu slökkviliðsmanna í Árborg við slökkviliðsstjóra og yfirstjórn. 11.5.2009 14:29
Gæsluvarðhald í smyglskútumálinu að renna út Gæsluvarðhald yfir þremur mönnum sem handteknir voru í tengslum við smyglskútumálið á Djúpavogi í síðasta mánuði rennur út í dag. 11.5.2009 13:58
Slökkviliðsmenn í Árborg telja öryggi íbúa í hættu Slökkviliðsmenn hjá Brunavörnum Árborgar (BÁ) lýsa yfir vantrausti á yfirstjórn Brunavarna Árborgar og slökkviliðstjóra og óska eftir því að þeir segi af sér hið fyrsta. 11.5.2009 13:40
Brotist inn í fjóra bústaði í Grímsnesi Brotist var inn í fjóra sumarbústaði í Grímsnesi í síðustu viku. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að þeir sem þarna hafi verið að verki hafi brotið sér leið inn í húsin með því að brjóta rúður eða spenna upp glugga. 11.5.2009 13:00
Þrír sækjast eftir þingflokksformennsku Þrír þingmenn munu sækjast eftir að gegna þingflokksformennsku Samfylkingarinnar samkvæmt heimildum Vísis. Fundurinn hefst klukkan hálf tvö í dag og verður niður á þingi. 11.5.2009 12:43
Stjórnlagaþing getur aðeins verið ráðgefandi Stjórnlagaþing mun verða ráðgefandi samkvæmt nýjum samstarfssáttmála ríkisstjórnarflokkanna. Alþingi mun því þurfa að samþykkja tillögur þess til þess að breytingar geti orðið á stjórnarskrá. Þetta er ekki í samræmi við tillögur sem stjórnarflokkarnir lögðu fram fyrir kosningar. 11.5.2009 12:17
ESB tillaga ætti að ná í gegn Miklar líkur eru á að fyrirhuguð þingsályktunartillaga ríkisstjórnar um aðildarviðræður að Evrópusambandinu nái meirihluta atkvæða, standi Framsóknarflokkur og Borgarahreyfingin við fyrri yfirlýsingar. Þetta segir Einar Mar Þórðarsson stjórnmálafræðingur sem telur þó aðferð ríkisstjórnarinnar í málinu heldur óvenjulega. 11.5.2009 12:07
Tvítug stúlka nefbraut strák Tvítug stúlka nefbraut jafnaldra sinn fyrir utan heimahús á Ólafsfirði í lok desember á síðasta ári. Stúlkan, sem hefur meðal annars keppt í Fittness, játaði brotin skýlaust á sig. 11.5.2009 12:06
Kate og Caprio bjarga síðasta farþega Titanic Milvina Dean var aðeins níu vikna gömul árið 1912 þegar hún var borin um borð í Titanic í fyrstu og síðustu ferð skipsins. Henni var bjargað ásamt móður og bróðir, en faðir hennar fórst. 11.5.2009 12:00
Lögreglan leitar vitna að kynferðisbroti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú meint kynferðisbrot gagnvart konu að morgni laugardagsins 2. maí síðastliðinn á tímabilinu frá klukkan korter í fimm til korter yfir fimm. Meint brot er talið hafa átt sér stað í fólksbifreið í bifreiðastæði við Tollhúsið í Tryggvagötu í Reykjavík. 11.5.2009 11:51
Fimm þúsund staðfest inflúensutilfelli Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 5.132 í morgun í 30 ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB. Þar á meðal eru tvö staðfest tilfelli í Noregi, tvö í Svíþjóð og eitt í Danmörku, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sóttvarnalækni og Almannavarnadeild. „Staðfest dauðsföll vegna flensunnar eru 53 talsins, flest í Mexíkó eða 48, þrjú dauðsföll eru staðfest í Bandaríkjunum, eitt í Kanada og eitt í Kosta Ríka,“ segir ennfremur. 11.5.2009 11:32
Býst við að menn vilji lækka laun hjá Lífeyrissjóðunum Verði laun æðstu stjórnenda ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja lækkuð má búast við því að upp komi krafa um að laun stjórnenda Lífeyrissjóðanna verði endurskoðuð líka, að mati Árna Stefáns Jónssonar, formanns Starfsmannafélags ríkisins. 11.5.2009 11:03
Morðóði prófessorinn fannst látinn George Zinkham var fimmtíu og sjö ára gamall. Hann var virtur og vinsæll og hafði átt skínandi feril sem prófessor í markaðsfræðum við ríkisháskólann í Georgíu. 11.5.2009 10:58
Hælisleitandi í hungurverkfalli: Mótmælt í Reykjanesbæ Boðað hefur verið til mótmæla fyrir utan gistiheimilið Fit í Reykjanesbæ í dag til þess að vekja athygli á málum Mansri Hichem, hælisleitanda, sem er á 19. degi hungurverkfalls. Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að ástæða mótmælanna sé viðbragðsleysi stjórnvalda við aðgerðum mannsins auk þess sem stjórnvöld eru sökuð um að hafa sýnt almennt skeytingarleysi um mannréttindi og velferð flóttamanna sem hingað hafa leitað. 11.5.2009 10:32
Obama kynnir áætlun sína í heilbrigðismálum Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, mun í dag kynna áætlun sína um uppstokkun á heilbrigðiskerfinu og reyna að vinna henni brautargengi. 11.5.2009 08:54
Oliver ræðst gegn „feitustu borgum“ Bandaríkjanna Heilu borgirnar í Bandaríkjunum fá brátt að finna fyrir kokkinum Jamie Oliver og megrunarráðum hans. 11.5.2009 08:17
Rússneskt flutningaskip í vanda Rússneskt flutningaskip með tólf manna áhöfn sendi í morgun út neyðarkall eftir að skipið strandaði á eyju, skammt frá Svalbarða. Ekkert er enn vitað um afdrif áhafnarinnar en norskar bjrögunarþyrlur eru á leið á vettvang. 11.5.2009 08:15
Óbreyttir borgarar strádrepnir á Sri Lanka Tæplega 380 óbreyttir borgarar létu lífið í árásum stjórnarhersins á Sri Lanka um helgina. Læknir á svæðinu segir marga hinna látnu vera börn og lík liggi eins og hráviði um allar jarðir. Hann metur það svo, að yfir 1.100 manns hafi særst í árásum stjórnarhersins en talsmaður hersins segir það hins vegar útilokað. 11.5.2009 08:09
Þriðjungur þorir ekki að versla á Netinu Þriðjungur breskra netnotenda þorir ekki að nota kreditkort til að versla á Netinu. 11.5.2009 07:27
Stal fermingarpeningum og var handtekin Lögregla á Fjóni handtók um helgina 35 ára gamla konu sem gert hafði sér lítið fyrir og stolið 9.000 dönskum krónum, jafnvirði um 200.000 íslenskra, í fermingarveislu sem hún var gestur í. 11.5.2009 07:25
Fjórir látnir eftir aftakaveður í Bandaríkjunum Fjórir létu lífið og fjölmargir hlutu meiðsli auk þess sem mikið tjón varð á mannvirkjum þegar aftakaveður gekk yfir Missouri, Kentucky og Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum um helgina. 11.5.2009 07:22
Bresk stjórnvöld banna fíkniefnakstur Bresk stjórnvöld vinna nú að því að breyta umferðarlöggjöf þannig, að akstur vélknúinna ökutækja verði bannaður undir áhrifum fíkniefna. 11.5.2009 07:19
Sjö ný svínaflensutilfelli í Bretlandi Sjö ný tilfelli af svínaflensu greindust í Bretlandi í gær og voru fjögur skólabörn á meðal þeirra sem greindust með flensuna. Þar með eru staðfest svínaflensutilfelli í landinu orðin 55. 11.5.2009 07:17