Fleiri fréttir

Rúða brotin í fyrrum höfuðstöðvum Baugs

Rúða var brotin á Túngötu sex, í fyrrverandi höfuðstöðvum Baugs, í gærdag. Rúðan sem var brotin er á annarri hæð hússins við Túngötu. Þar voru höfuðstöðvar Baugs í fjölda ára, en félagið er gjaldþrota og nýjir leigjendur í húsinu. Tilkynnt var um verknaðinn um klukkan fjögur í gærdag en ódæðismaðurinn hljóp á brott þegar hann varð var við að fylgst var með honum.

Vilja byggja munkaklaustur í Hvalfirði

Kaþólska kirkjan stefnir að því að byggja munkaklaustur í Hvalfirði. Þetta kemur fram í þættinum Sjálfstætt fólk sem er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld. Í þættinum eru munkarnir á Kollaleirum við Reyðarfjörð heimsóttir, en einnig er rætt við kaþólska biskupinn á Íslandi, sem sér fyrir sér nokkra klaustursvæðingu á Íslandi.

Uppreisnarmenn drápu 13 í Perú

Uppreisnarmenn í samtökunum Skínandi stíg í Perú hafa undanfarna daga drepið 13 hermenn í tveimur árásum í suðausturhluta landsins. Árásirnar eru sagðar þær umfangsmestu síðastliðin tíu ár.

Upplýst verði um tengsl fjárstyrkjanna og REI

Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, telur að almenningur vilji vita hvort tengsl hafi verið á milli fjárstyrkja til Sjálfstæðisflokksins og ákvarðanatöku um Reykjavik Energy Invest, REI.

Maóistar felldu tvo lögreglumenn

Fjörutíu vopnaðir maóistar drápu tvo lögreglumenn og einn óbreyttan borgara þegar þeir réðust inn í dag á lögreglustöð Chhattisgarh fylki sem er í miðhluta Indlands. Í gær drápu þeir fimm lögreglumenn og særðu þrjá í austurhluta landsins.

Hálfbróður Obama meinað að koma til Bretlands

Samson Obama, hálfbróðir Baracks Obama Bandaríkjaforseti, fær ekki að heimsækja Bretland þar sem móður hans býr eftir að hann framvísaði ekki sínum skilríkjum þegar hann var handtekinn fyrir meint kynferðisbrot í nóvember. Hann var grunaður um að hafa áreitt unga stúlku. Þetta kemur fram í breska blaðinu News of the World.

Stúlka sem lýst hefur verið eftir er fundin

Fimmtán ára stúlka, Eva Lind Guðjónsdóttir, sem lögreglan í Suðurnesjum hefur lýst eftir frá því á fimmtudag er fundin. Hún gaf sig fram við lögregluna í Reykjavík og því er leitinni nú lokið.

Byssumanninum á Akranesi sleppt úr úr haldi

Lögreglan á Akranesi hefur lokið við að yfirheyra karlmann á fimmtugsaldri sem handtekinn var heimili sínu á Akranesi í gærkvöldi ölvaður og vopnaður. Honum hefur jafnframt verið sleppt úr haldi. Maðurinn á við andleg veikindi að stríða og hefur fallist á að leita sér aðstoðar hjá þar til gerðum aðilum, að sögn lögreglu.

Atkvæði í þingkosningum endurtalin

Stjórnlagadómstóll Moldavíu ákvað í dag að öll atkvæði í þingkosningunum sem fram fóru í landinu fyrir viku verði endurtalin. Áður hafði forseti landsins óskað eftir endurtalningu en hann hart verið tekist á um málið í höfuðborg landsins. Stjórnarandstæðingar hafa sakað sitjandi stjórn um kosningasvik.

Biskup: Við erum löskuð þjóð

Fjölmennt var við hátíðarmessu í Dómkirkjunni snemma í morgun þar sem Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, predikaði. Hann sagði peningahyggju hafa leikið okkur grátt.

Herinn kallaður út í Bangkok

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Bangkok höfuðborg Tælands og á nærliggjandi svæðum eftir mótmælaöldu andstæðinga forsætisráðherrans. Hermenn hafa þegar tekið sér stöðu á götum úti.

Borgarahreyfingin býður fram í öllum kjördæmum

Borgarahreyfingin - þjóðin á þing, hefur stillt upp á framboðslistum allra sex kjördæma landsins og mun því bjóða fram á landsvísu í komandi Alþingiskosningum. Kosningarnar fara fram laugardaginn 25. apríl eða eftir 13 daga.

Lið lagadeildar HR náði góðum árangri

Lið lagadeildar Háskólans í Reykjavík hafnaði í fimmta til áttunda sæti í málflutningskeppninni Willem C. Vis, sem haldlin var í Vín fyrir páska, en alls tóku tvöhundruð þrjátíu og þrír háskólar þátt í keppninni, sem er ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum.

Kjartan sagði ósatt ef marka má orð Bjarna

Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, sagði ósatt um vitneskju sína um risastyrkina tvo ef marka má orð formanns flokksins, sem telur að báðir framkvæmdastjórar flokksins hafi vitað af styrkjunum.

Rúmlega 40 bifreiðar á Eyjafjallajökli

Lögreglan á Hvolsvelli með aðstoð Landhelgigæslunnar hefur verið með sérstakt hálendiseftirlit á láði og í lofti um páskahelgina. Sérstaklega hefur verið verður fylgst með ástandi ökumanna, bæði hvað varðar ölvunar-, fíkniefna- og svo utanvegarakstur.

Skapa verður traust á milli almennings og stjórnmálamanna

„Við stöndum frammi fyrir því að skapa verður traust að nýju á milli stjórnmálamanna og almennings. Það varð trúnaðarbrestur í vetur og þessi nýjasta uppákoma hjá Sjálfstæðisflokknum var ekki til að bæta úr því,“ segir Katrín Júlíusdóttir þingmanns Samfylkingarinnar.

Sjóræningjarnir halda enn bandarískum skipstjóra

Lítið hefur þokast í deilu sómalskra sjóræningja og bandaríska hersins en þeir fyrrnefndu hafa bandarískan skipstjóra í haldi. Hópur sómalskra öldrunga reynir að liðka fyrir lausn deilunnar. Öldungarnir hafa nú siglt í átt að sjóræningjunum sem eru á siglingu skammt undan ströndum Sómalíu og ætla að reyna að gera sitt til að miðla málum.

Neyðarástand í Bangkok

Neyðarástandi var í morgun lýst yfir í Bangkok höfuðborg Tælands og á nærliggjandi svæðum. Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að hundruðir mótmælenda stromuðu inn á skrifstofu innanríkisráðuneytis landsins og tókst Abhisit Vejjajiva, forsætisráðherr,a naumlega að sleppa undan hópnum.

Skíðasvæði víða opin

Skíðasvæðið á Siglufirði er opið til klukkan fjögur í dag. Egill Rögnvaldsson, umsjónarmaður, segir að veðrið í fjallinu sé afar gott. Páskaeggjamót hefst klukkan eitt og í framhaldinu klárast ratleikur á skíðasvæðinu. Garpamót hefst klukkan þrjú.

Hálka og hálkublettir víða

Aðalleiðir á Suðurlandi eru auðar en hálkublettir eru á Lyngdalsheiði. Það er hálka og skafrenningur á Holtavörðuheiði en hálkublettir á nokkrum öðrum heiðum á Vesturlandi.

Róleg nótt hjá lögreglu

Gærkvöldið og nóttin virðist hafa verið róleg hjá lögreglunni víðsvegar um landið ef frá er talið þegar sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út á Akranesi í gær vegna ölvaðs og vopnaðs manns.

Beita þurfti klippum á Bústaðavegi

Slökkvilið þurfti að beita klippum til að ná þremur út úr bifreið sem ekið var á ljósastaur á mótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar á þriðja tímanum í nótt. Fólkið var flutt á slysadeild en að sögn lögreglu er þau ekki mikið slösuð.

Sérsveitin kölluð út vegna vopnaðs manns

Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð að einkahúsi á Presthúsabraut á Akranesi í gærkvöldi. Þar var ölvaður og vopnaður maður handtekinn sem gisti fangageymslur lögreglunnar á Akranesi í nótt. Maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, verður yfirheyrður síðar í dag. Hann var einn í húsinu.

Þarf að svara til saka fyrir fjöldamorð

Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa neitað hinum 89 ára gamla Ivan Demjanjuk um undanþágu um að framselja hann ekki til Þýskalands. Hann er sagður hafa aðstoðað við morð á 29 þúsund gyðingum þegar hann starfaði sem fangavörður í útrýmingarbúðum í síðari heimsstyrjöldinni.

„Þetta virtist allt svo dökkt“

Sjónskert kona á níræðisaldri var rænd um hábjartan dag í Vogahverfinu í gær. Þjófurinn náði sjö þúsund krónum, leigubílakorti frá Blindrafélaginu og húslyklum. Þjófurinn er ófundinn en konan biður hann að skila persónulegum munum sínum.

Sigurjón tók einn ákvörðun um risastyrkinn til Sjálfstæðisflokksins

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, tók ákvörðunina um að styrkja Sjálfstæðisflokkinn um 25 milljónir einn og óstuddur. Hinn bankastjóri bankans og bankaráðið komu hvergi nærri ákvörðuninni. Þessi styrkur var meðhöndlaður á allt annan hátt en 5 milljóna króna styrkurinn sem var veittur fyrr á árinu 2007.

Enn er lýst eftir Evu Lind

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir enn eftir Evu Lind Guðjónsdóttur en hennar hefur verið saknað síðan á fimmtudagsmorguninn, 9. apríl. Hún er 15 ára.

Ámælisvert að þiggja tugmilljóna styrki

Varaformaður Framsóknarflokksins segir ámælisvert að Sjálfstæðisflokkurinn skyldi þiggja tugmilljóna styrki frá fyrirtækjum eftir að stjórnmálaflokkarnir höfðu náð samkomulagi um breytingar á lögum varðandi styrki til þeirra og stutt í að ný lög tækju gildi.

„Ég held ekki nei“

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í kvölfréttum Stöðvar 2 að hann teldi að bæði Kjartan Gunnarsson og Andri Óttarsson, fyrrum framkvæmdastjórar flokksins, hafi haft vitneskju um styrkina eftir að styrkirnir komu í hús eins og Bjarni orðaði það.

Meintur árásarmaður ekki lengur í haldi lögreglu

Lögreglan hefur slepp karlmanni um sjötugt sem grunaður er um að hafa stungið konu á fimmtugsaldri í íbúð í Meðalholti í morgun. Maðurinn neitar sök en konan heldur því staðfestlega fram að maðurinn hafi stungið sig. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins.

Steini í Kók sá um FL-styrkinn fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Þorsteinn Jónsson, oft kenndur við Kók, og Steinþór Gunnarsson fyrrverandi yfirmaður verðbréfadeildar Landsbankans segjast hafa staðið fyrir söfnun hárra styrkja frá FL Group og Landsbankanum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það hafi þeir gert eftir að Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður hafði samband við þá og upplýsti að fjárhagsstaða flokksins væri mjög bágborin. Guðlaugur hafi ekki haft frekari afskipti af málinu, segja þeir félagar í yfirlýsingu sem þeir sendu frá sér í dag.

Þing verður rofið um miðja næsta viku

Guðbjartur Hannesson, forseti Alþingis, telur að Alþingi verði rofið um miðja næstu viku vegna komandi þingkosninga. Hann segir að semja verði um frumvörp sem ágreiningur er um.

Bjarni í beinni útsendingu í kvöldfréttum

Rætt verður við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 sem hefjast klukkan hálf sjö. Mikið hefur verið fjallað um risastyrki sem Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 2006 skömmu áður en lög um hámarksframlög til stjórnmálaflokka tóku gildi. Rætt verður við Bjarna um málið.

Ætlaði að smygla 250 milljónum til Gaza

Egypska lögreglan stöðvaði nýverið för manns sem talinn er hafa ætlað að smygla tveimur milljónum dollara til Hamassamtakanna á Gazasvæðinu í Palestínu. Upphæðin samsvarar 250 milljónum íslenskra króna.

Umhverfisfræðingar gagnrýna auglýsingu sjálfstæðismanna

Félag umhverfisfræðinga gagnrýnir nýlega auglýsingu þingmanna Sjálfstæðisflokksins um frumvarp til breytinga á stjórnarskrá. Félagið harmar að Sjálfstæðisflokkurinn skuli slíta úr samhengi umsögn félagsins og frábiður sér að faglegar umsagnir um þingmál séu misnotaðar í pólitískum tilgangi.

Einn látinn eftir skotárás í Hollandi

Einn er látinn og þrír slasaðir eftir að maður hóf skothríð á þéttsetnu kaffihúsi í borginni Rotterdam í Hollandi í dag. Kaffihúsagestir yfirbuguðu manninn og héldu honum föngnum þangað til lögregla kom á staðinn.

Maóistar drápu fimm lögreglumenn

Maóistar drápu fimm lögreglumenn og særðu þrjá í austuhluta Indlands skömmu áður en ráðgert var að Sonia Gandhi, leiðtogi Kongressflokksins, ávarpaði fjöldafund í nágrenni morðstaðarins.

Atvinnulausir rúmlega 17.500

Atvinnuleysi heldur áfram að aukast og nú eru 17.552 manns án atvinnu á landinu öllu. Hafa verður í huga að sá hópur sem ekki er að fullu atvinnulaus fer stækkandi, það er að segja þeir sem eru á hlutabótum á móti hlutastarfi. Á vef Vinnumálastofnunnar segir að yfir 3000 manns eru á hlutabótum.

Ákvörðun um endurtalningu frestað

Hæstiréttur Moldavíu ákvað að fresta í dag umfjöllun sinni um beiðni forseta landsins um endurtalningu atkvæða í þingkosningunum þar í landi síðastliðinn sunnudag.

Stefnir í hörmulegan kosningaósigur Sjálfstæðisflokksins

Hremmingar Sjálfstæðisflokksins nú eru þær alvarlegastu sem hann hefur lent í í rúm 20 ár og jafnvel frá upphafi. Þetta sagði Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Gunnar Helgi sagði jafnframt að það stefni í hörmulegan kosningaósigur hjá Sjálfstæðisflokknum.

Sjá næstu 50 fréttir