Innlent

Kjartan lagði að Geir að afþakka styrkina

Geir H. Haarde tók einn ákvörðun um að þiggja boð til Sjálfstæðisflokksins um háa fjárstyrki frá FL Group og Landsbankanum seint á árinu 2006. Hann taldi nauðsynlegt að veita styrkjunum viðtöku til að rétta fjárhag flokksins af.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var Kjartani Gunnarssyni kunnugt um að flokknum stæðu ofurstyrkirnir til boða. Hann hefur ítrekað neitað því að hafa vitað af þeim.

Heimildirnar herma að Kjartan hafi ráðlagt Geir að afþakka styrkina, enda væru þeir allt of háir til að geta talist eðlilegir og úr takti við styrki sem flokkurinn hafði þegið.

Geir hafði ráð Kjartans að engu og lét venjur flokksins víkja fyrir tækifæri til að greiða niður háar skuldir.

Þegar þetta var hafði Geir verið formaður Sjálfstæðisflokksins í eitt ár og framkvæmdastjóraskipti stóðu fyrir dyrum; Andri Óttarsson var að taka við af Kjartani, sem gegnt hafði starfinu frá 1980.

Haustið 2006 var fjárhagsstaða Sjálfstæðisflokksins mjög slæm. Flokkurinn hafði kostað miklu til í kosningabaráttu sveitarstjórnarkosninganna fyrr á árinu, ekki síst í Reykjavík þar sem háum fjárhæðum var varið til að afla flokknum fylgis sem gæti fleytt honum í meirihluta.

Það tókst, Sjálfstæðisflokkur­inn myndaði meirihluta með Framsókn, en eftir stóð flokkurinn skuldum vafinn.

Til að rétta af fjárhaginn var ráðist í umfangsmikið átak haustið 2006. Þá hafði nefnd, sem fjallaði um fjármál stjórnmálaflokka og undirbjó frumvarp þar um, starfað í rúmt ár.

Fjáröflun sjálfstæðis­manna tók mið af því að ný lög, með miklum takmörkunum á öflun styrkja, vofðu yfir. Um það var almenn vitneskja meðal stjórnmálamanna og vitaskuld sérstaklega þeirra sem sátu í nefndinni. Guðlaugur Þór Þórðarson og Kjartan Gunnarsson voru fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, auk Gunnars Ragnars, sem starfað hefur fyrir flokkinn um árabil.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×