Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Brenndist á fæti í hver Maður brenndist á fæti þegar jörðin gaf sig skyndilega undan honum þar sem hann var á göngu skammt ofan við Gufudal við Hveragerði í gærkvöldi. Annar fótur hans sökk upp að hné en mikill jarðhiti var undir yfirborðinu. 2.2.2009 07:07
Hátt í tíu handteknir vegna hraðbankaþjófnaðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur frá því í gærkvöldi handtekið hátt í tíu manns, grunaða um að hafa tekið þátt í að að stela heilum 500 kílóa hraðbanka úr anddyri verslunarmiðstöðvarinnar Sunnumarkar í Hveragerði í fyrrinótt. 2.2.2009 07:05
Ólýðræðisleg skipun ráðherra "Þarna er verið að styrkja sérfræðiþekkingu innan ríkisstjórnarinnar, en þessar skipanir eru ekki mjög lýðræðislegar. Þessir nýju ráðherrar eru ekki kosnir til þings og hafa því ekki lýðræðislegt umboð þjóðarinnar. Maður veltir því fyrir sér hvort stjórnarflokkarnir búi ekki yfir nógu öflugu fólki á þessum sviðum til að taka þessi ráðherraembætti að sér,“ segir Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor um skipun utanþingsráðherra í nýrri ríkisstjórn sem kynnt var í gær. 2.2.2009 06:00
Stjórnendur kallaðir til vitnis Lögmenn Hafnarfjarðarbæjar ætla að kalla hluta stjórnenda Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og Bjarna Ármannsson, fyrrverandi stjórnarformann Reykjavik Energy Invest (REI), sem vitni í dómsmáli vegna sölu á hlut í Hitaveitu Suðurnesja (HS). 2.2.2009 05:00
Brýnt að hraða uppgjöri banka Nýr viðskiptaráðherra í stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, Gylfi Magnússon, segir sín fyrstu verk í starfi óhjákvæmilega verða tengd fjármálamarkaðinum enda vandamálin á þeim vettvangi fjölmörg. „Fyrst og fremst þarf að manna Fjármálaeftirlitið,“ segir Gylfi. „Þá þarf að hraða vinnu við að gera upp gömlu bankana og skilja milli þeirra og þeirra nýju, svo nýju bankarnir verði starfhæfir.“ Að auki þurfi að leysa úr vandamálum ýmissa smærri fjármálastofnana, sem séu í nokkru uppnámi. - hhs 2.2.2009 04:00
Ánægður með lækkun vaxta „Það sem ég sakna helst í verkefnaskránni er ákvörðun um að hverfa frá ríkisbankafyrirkomulaginu,“ segir Vilhjálmur Egilsson, formaður Samtaka atvinnulífsins um verkefnalista nýrrar ríkisstjórnar. „Það þarf að virkja erlenda kröfuhafa til að koma að eignarhaldi bankanna. Ég hefði viljað sjá nýja ríkisstjórn gefa merki um að það verði gert og að ekki verði byggt hér upp nýtt ríkisbankakerfi.“ 2.2.2009 04:00
Ánægður með nýjar áherslur „Ég fagna því sérstaklega að það standi til að gera veigamiklar breytingar á gjaldþrotalöggjöfinni og varðandi greiðsluaðlögun heimila,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. „Áhersluatriði nýrrar stjórnar fara vel saman við það sem við hjá Alþýðusambandinu höfum lagt áherslu á á undanförnum vikum. En ríkisstjórnin hefur skamman tíma til stefnu. Því ríður á að fulltrúar ríkisstjórnar og aðilar vinnumarkaðar snúi bökum saman og finni leiðir út úr því skelfilega ástandi sem ríkir í atvinnumálum landsmanna.“ - hhs 2.2.2009 03:00
Fólk í kröggum fær sparnað greiddan út Nýmynduð ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hyggst setja lög um séreignarsparnað svo sjóðsfélagar sem komnir eru í fjárhagskröggur geti fengið fyrirgreiðslu úr honum tímabundið til þess að borga skuldir sínar. 2.2.2009 03:00
GSM-endurvinnsla í Grafarvogi Gylfi Gylfason í Símabæ í Hverafold hefur sett á fót GSM-endurvinnslu í búðinni. Endurvinnslan hefur tekið mikinn kipp í kreppunni. „Það er bara svo mikil taktbreyting í þjóðfélaginu núna. Farsímasnobbið er að deyja út,“ segir hann. 2.2.2009 02:45
Þykir vænt um Geir Jóhanna Sigurðardóttir sagði að sér þætti vænt um Geir H. Haarde fráfarandi forsætisráðherra þegar hún tók við lyklum af forsætisráðuneytinu úr höndum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur í kvöld. Hún sagði Geir gæddann mörgum mannkostum og bað Þorgerði að skila kveðju til formannsins. 1.2.2009 19:19
Segir Jóhönnu ekki fara vel af stað Björn Bjarnason fyrrverandi dóms- og kirkjumálaráðherra segir Jóhönnu Sigurðardóttur ekki hafa farið vel af stað á blaðamannafundi þar sem ríkisstjórnin var kynnt. Þar segir Björn að hún hafi sakað sig um að vera sveifaseinn sem ráðherra og vísaði þar til frumvarps um skuldaaðlögun. 1.2.2009 19:48
Ætlar að endurskoða útgefnar veiðiheimildir Steingrímur J. Sigfússon fjármála-, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra í nýrri ríkisstjórn segir eitt af sínum fyrstu verkefnum verða að fara yfir aukningu á ákveðnum veiðiheimildum sem gefnar hafa verið út á þessu ári og því næsta. 1.2.2009 19:28
Kolbrún komin með lyklana Kolbrún Halldórsdóttir tók við embætti umhverfisráðherra í dag, sunnudaginn 1. febrúar 2009, af Þórunni Sveinbjarnardóttur sem gegnt hefur embætti umhverfisráðherra síðan 24. maí 2007. 1.2.2009 19:53
Össur fær lyklana í fyrramálið Össur Skarphéðinsson mun taka við lyklavöldum í Utanríkisráðuneytinu af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur klukkan 11:00 í fyrramálið. Össur sest þá í stól utanríkisráðherra en mun einnig gegna embætti iðnaðarráðherra. 1.2.2009 19:44
Rúmlega hundrað létust eftir sprengingu í eldsneytisbíl Að minnsta kosti 111 manns létust þegar eldsneytisflutningabíll sprakk í loft upp í Keníu í morgun. 200 til viðbótar særðust í eina af mannskæðasta slysi í sögu landsins. 1.2.2009 19:01
Gamalt vín á nýjum belgjum Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar gamalt vín á nýjum belgjum. Hún útilokar samt ekki að flokkurinn muni styðja eitthvað að fumvörpum nýju stjórnarinnar. 1.2.2009 18:49
Samstaða á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins Fjölmennur miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins var haldinn í dag í húsnæði Háskóla Íslands við Stakkahlíð í Reykjavík. Mikil stemning og samstaða ríkti á fundinum og kom m.a. fram mikil ánægja með framgöngu nýrrar forystu og þingflokks framsóknarmanna í stjórnarmyndunarviðræðum undanfarna daga. 1.2.2009 17:10
Áframhaldandi samstarf við AGS mikilvægt Jóhanna Sigurðardóttir var beitt á blaðamannafundi nýrrar ríkisstjórnar á Hótel Borg fyrir stundu. Þar sagði hún að allir sínir ráðherrar þyrftu að vinna hratt, af festu og ábyrgð til þess að heimilin í landinu sjái að ný ríkisstjórn ætli að slá skjaldborg um heimilin í landinu. Hún sagði einnig grundvallaratriði að halda áfram samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. 1.2.2009 16:46
Ráðherralisti ríkisstjórnar Samfylkingar og VG Ráðherrar í nýrri ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna voru kynntir á blaðamannafundi fyrir stundu. Tíu ráðherrar verða í ríkisstjórninni. Fimm karlar og fimm konur. Þar af eru tveir utanþings, þau Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra og Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mun ekki sitja í ríkisstjórn. 1.2.2009 16:30
Össur fær fjögur ráðuneyti Samkvæmt heimildum Vísis verður Össur Skarphéðinsson verða iðnaðar-, sjávarútvegs- landbúnaðar og utanríkisráðherra í nýrri ríkisstjórn sem verður kynnt eftir nokkrar mínútur. 1.2.2009 16:05
Ásta Ragnheiður verður félagsmálaráðherra Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir þingmaður Samfylkingar verður félagsmálaráðherra í nýrri ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. Þetta herma heimildir Vísis. 1.2.2009 15:47
Ingibjörg Sólrún ekki í nýrri ríkisstjórn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingar verður ekki ráðherra í nýrri ríkisstjórn. Ingibjörg sagði á blaðamannafundi sem nú stendur yfir á Hótel Borg að hún ætlaði nú að einbeita sér að sjálfri sér. 1.2.2009 15:44
Ragna Árnadóttir verður dómsmálaráherra Samkvæmt heimildum fréttastofu verður Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. 1.2.2009 15:37
Bein útsending frá blaðamannafundinum Nú fer fram blaðamannafundur á Hótel Borg þar sem ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna er kynnt. Þar verður aðgerðaráætlun nýju stjórnarinnar einnig kynnt. 1.2.2009 14:57
Ánægður með að Jóhanna sé fyrsta konan Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands lýsti yfir sérstakri ánægju sinni með að Jóhanna Sigurðardóttir yrði fyrsti kvenforsætisráðherra þjóðarinnar. Þetta sagði Ólafur eftir fund sinn með Jóhönnu á Bessastöðum fyrir stundu. Hann sagði þetta ekki einungis vera merkilegan atburð í sögu þjóðarinnar, heldur einnig á heimsvísu. Hann sagði tíðindi dagsins ákveðinn sigur fyrir jafnréttisbaráttuna hér á landi. 1.2.2009 14:21
Vonast til að ná sáttum við þjóðina Jóhanna Sigurðardóttir sagðist eftir fund sinn með forseta Íslands á Bessastöðum þakka það traust og trúnað sem henni er sýnt með því að fá umboð til myndunar nýrrar ríkisstjórnar. Hún sagði minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna með stuðningi Framsóknarflokksins nú vera á lokastigi en verkáætlun tveggja fyrrnefndu flokkanna er tilbúin. Hún sagði því ekkert því til fyrirstöðu að mynda þessa ríkisstjórn og kynna ráðherra hennar fyrir forseta Íslands. Það mun hún gera á ríkisráðsfundi klukkan 18:00 í dag. 1.2.2009 14:08
Hraðbanka stolið í Hveragerði Brotist var inn í anddyri á verslunarmiðstöðinni Sunnumörk í Hveragerði í nótt eða morgun. Þaðan var hraðbanka stolið en hann var numinn á brott í heilu lagi. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er málið tiltölulega ný komið upp og er lögregla að rannsaka málið. Ekki er vitað hverjir voru þar að verki. 1.2.2009 13:41
Sauðfjárbóndi býður sig fram fyrir Framsóknarflokkinn Sindri Sigurgeirsson 34 ára gamall sauðfjárbóndi í Bakkakoti í Borgarbyggð og stundakennari við búfræðibraut Landbúnaðarháskóla Íslands ætlar að bjóða sig fram í prófkjöri Framsóknarflokksins. 1.2.2009 13:02
London er ekki Reykjavík við Thames ána „London er ekki Reykjavík við Thames ánna," sagði Gordon Brown forsæisráðherra Breta á Davos fundinum í gær þegar hann ræddi ástandið í efnahagsmálum heimsins. 1.2.2009 12:26
Alþingishúsið skemmt fyrir á annan tug milljóna Það sem sparast átti í viðhaldi Alþingishússins á árinu til að mæta kreppunni mun gufa upp vegna kostnaðar við skemmdarverk síðustu mánaða. Kostnaður við að lagfæra, hreinsa og gera við Alþingi eftir grjót- og eggjakast undanfarið verður á annan tug milljóna króna. 1.2.2009 12:21
Sjálfstæðisflokkurinn sveik ítrekað gefin loforð Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar segir að forysta Sjálfstæðisflokksins hafi ítrekað gefið loforð um uppstokkun í Seðlabankanum en svikið öll fyrirheit þar af lútandi annað hvort vegna þess að þeir höfðu ekki til þess pólitískan vilja eða afl. 1.2.2009 12:18
Óttast ákvarðanafælni nýrrar ríkisstjórnar Árni Mathiesen fjármálaráðherra segist ekki hafa verið ákvarðanfælinn fjármálaráðherra. Bæði Jón Baldvin Hannibalsson og Jón Daníelsson dósent sögðu í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun að fráfarandi ríkisstjórn hefði forðast að taka ákvarðanir sem lýsti sér í því að lítið hefði gerst síðan bankarnir hrundu. Árni sagði ljóst að veikindi Ingibjargar Sólrúnar hefðu spilað þar stórt hlutverk og Samfylkingin hefði meðal annars tafið fjárlagagerð. 1.2.2009 12:12
Opið í Bláfjöllum og Skálafelli Opið verður á Skíðasvæðunum í Bláfjöllum og Skálafelli til klukkan 17:00 í dag. Frábært færi er í fjöllunum en Skálafell er að opna í fyrsta sinn á þessum vetri. Vegna snjóleysis efst er þó ekki hægt að opna stólalyftu þar. 1.2.2009 10:54
Bein útsending frá Bessastöðum Hádegisfréttir verða á Stöð 2 og Bylgjunni í dag. Vanalega eru fréttir einungis sendar út í útvarpinu en þær verða einnig á Stöð 2 í dag. Í fréttatímanum mun Heimir Már Pétursson fréttamaður vera í beinni útsendingu frá Bessastöðum þar sem formaður Samfylkingarinnar hittir forsetann á fundi. 1.2.2009 10:27
Stærsti stjórnmálaflokkur landsins Vinstri hreyfingin - grænt framboð sem nú er á leið í ríkisstjórn er stærsti stjórnmálaflokkur landsins samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup sem Ríkisútvarpið sagði frá í gærkvöldi. Um 30% þjóðarinnar fylgja Vinstri grænum að málum á meðan 24% kjósenda styðja Sjálfstæðisflokkinn sem fer út úr ríkisstjórn í dag. 1.2.2009 10:25
Kommúnistar að ná völdum í skjóli Framsóknarflokksins Magnús Þór Hafsteinsson varaformaður Frjálslynda flokksins segir að baráttan sé hafin. Í pistli á heimasíðu sinni segir Magnús að kommúnistar séu að ná völdum hér á landi í skjóli hins veikgeðja Framsóknarflokks sem alltaf sé reiðubúinn til að selja hugsjónir og hagsmuni íslensku þjóðarinnar fyrir völd, bitlinga og vegtyllur til handa eigin flokksgæðingum. 1.2.2009 09:40
Ný ríkisstjórn formlega kynnt klukkan 16:00 í dag Ný ríkisstjórn tekur að öllum líkindum við völdum á Bessastöðum seinnipartinn í dag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar sem fer með stjórnarmyndunarumboðið, gengur á fund Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands klukkan tólf á hádegi. Þar mun hún gera honum grein fyrir að flokkur hennar og Vinstri grænir hafi náð saman um ríkisstjórn sem Framsóknarflokkurinn muni verja falli. 1.2.2009 09:28
Rændu debetkorti af fatlaðri konu Um klukkan ellefu í gærkvöldi var framið rán í Hafnarfirði er par hrinti til fatlaðri konu er var að reyna að taka fé úr hraðbanka og stal af henni debetkorti hennar og hljóp á brott . Atvikið náðist á eftirlitsmyndavélar bankans. 1.2.2009 09:24
Eldur í húsnæði Vídeoheima í Grafarvogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um eld í húsnæði Vídeóheima í Gylfaflöt í Grafarvogi rétt fyrir klukkan hálf þrjú í nótt. Í tilkynningu frá lögreglu segir að svo virðist sem sem bruninn hafi komuð upp í skrifstofuhúsnæði á annari hæð hússins. Talsverðar skemmdir af völdum hita og reyks, engann sakaði. Eldsupptök ókunn. Tæknideild LRH fer með rannsókn málsins. 1.2.2009 09:13
Nýja ríkisstjórnin í beinni á Stöð 2 og Vísi Bein útsending verður frá Hótel Borg klukkan 16:00 í dag þar sem minnihlutastjórn Samfylkinar og Vinstri grænna verður kynnt fyrir þjóðinni. Þar má gera ráð fyrir því að farið verði yfir aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar og ráðherralistinn kynntur. 1.2.2009 12:50