Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Foreldrar áhyggjufullir vegna barnaníðings Foreldrar í Breiðholtsskóla hafa verið boðaðir til fundar vegna áhyggna um að Ágúst Magnússon, margdæmdur barnaníðingur, sé fluttur í hverfið. Foreldrar í hverfinu sem fréttastofa ræddi við kvarta undan skorti á upplýsingum og úrræðum. 20.1.2009 18:30
Vill að Bush og Rumsfeld verði ákærðir vegna pyntinga Austurríkismaðurinn Manfred Nowak, sérstakur fulltrúi Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum í heiminum, hvetur bandarísk stjórnvöld til þess að sækja George Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Donald Rumsfeld, fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, til saka fyrir pyntingar og meðhöndlun fanga í stjórnartíð Bush. 20.1.2009 23:55
Búið að sleppa hinum handteknu Öllum þeim sem handteknir voru í mótmælunum við alþingishúsið í dag hefur verið sleppt. Þeir mega þó eiga von á því að verða kærðir fyrir brot á lögreglusamþykkt. 20.1.2009 22:48
Var læstur í ferðatösku Hinn fimm ára gamli Oliver Chaaning varð fyrir miklum hremmingum þegar að honum var rænt í Danmörku á síðasta ári. 20.1.2009 21:56
Stjórnmálamaður boðar byltingu Magnús Þór Hafsteinsson varaformaður Frjálslynda flokksins segir byltingu í aðsigi. 20.1.2009 21:56
Mótmælendum við alþingishúsið fjölgar Mótmælendum við alþingishúsið hefur fjölgað töluvert eftir því sem líður á kvöldið. Bálköstur sem kveikt var á fyrir utan inngang hússins logar enn glatt, og sækja mótmælendur eldivið í hann úr nærliggjandi byggingarsvæðum. Þá veifa sumir mótmælanda blysum. 20.1.2009 20:38
Dóttir Helgu Völu enn í haldi 17 ára dóttir Helgu Völu Helgadóttur fjölmiðlakonu og laganema er enn í haldi lögreglu eftir að hún var handtekin í mótmælunum við alþingishúsið í dag. Þetta kom fram í viðtali í Kastljósinu í kvöld. 20.1.2009 20:19
Kannabisræktun í Laugardalnum Lögreglan stöðvaði um miðjan dag í gær kannabisræktun í húsi í Laugardalshverfinu. Við húsleit fundust rúmlega 10 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Á sama stað var lagt hald á nokkra gróðurhúsalampa. 20.1.2009 19:34
Bálköstur við Alþingishúsið Búið er að kveikja varðeld við innganginn í alþingishúsið. Eldurinn er töluverður, og bera mótmælendur vörubretti og pappakassa á bálið. 20.1.2009 19:07
Vill fylgjast vandlega með mörkuðum og leita sátta við múslima Barack Obama varð nú síðdegis fertugasti og fjórði forseti Bandaríkjanna þegar hann sór embættiseið fyrstur blökkumanna. Obama segir á valdatíma sínum verði fylgst vandlega með mörkuðum svo þeir fari ekki aftur framúr sér. Herlið yrði kallað heim frá Írak með ábyrgum hætti og friður tryggður í Afganistan. Sátta yrði leitað við múslima um heim allan. 20.1.2009 18:55
Embættistöku Obama fagnað á Íslandi Embættistöku Baracks Obama var fagnað víða um heim í dag þar á meðal hér í Reykjavík. Íslensk Ameríska viðskiptaráðið blés til veislu þar sem fylgst var með valdatöku Obama. Mikil fagnaðarlæti brutust út meðal viðstaddra, þar á meðal Bandaríkjamanna búsettum hér á landi, þegar hann hafði formlega tekið við embættinu. 20.1.2009 18:54
Slegið á putta sýslumanns Sýslumaðurinn á Selfossi er hættur við að gefa út 370 handtökuskipanir á skuldara í sínu umdæmi. Sýslumaðurinn hætti við eftir tiltal frá dómsmálaráðherra sem sló á puttana á honum. Ráðherrann segir að ákvörðun sýslumannsins um handtökuskipanir hafi verið ókskynsamleg. 20.1.2009 18:51
Atburðir dagsins við alþingishúsið Umsátursástand ríkti við Alþingi í dag þar sem um þúsund manns mættu til að krefjast þess að ríkisstjórnin víki. Mikil reiði var í fólkinu og handtók lögregla á annan tug mótmælenda. Lillý Valgerður Pétursdóttir fylgdist með mótmælunum í allan dag. 20.1.2009 18:43
Barack Obama er nýr forseti Bandaríkjanna Barack Hussein Obama yngri var rétt í þessu settur í embætti forseta Bandaríkjanna. Hann er fertugasti og fjórði forseti Bandaríkjanna og jafnframt fyrsti blökkumaðurinn til að gegna því embætti í rúmlega tvö hundruð ára sögu Bandaríkjanna. 20.1.2009 17:06
Átök við Alþingishúsið - myndband Hörð átök urðu á milli mótmælenda og lögreglu í dag þegar Alþingi kom saman á ný eftir jólahlé. Nokkrir voru handteknir og beitti lögregla piparúða á mótmælendur. Hér er hægt að horfa á myndskeið af atburðunum. 20.1.2009 17:01
Joe Biden sver embættiseið Joe Biden var rétt í þessu settur í embætti varaforseta Bandaríkjanna þegar sór embættiseið sinn. Innan skamms tekur Barack Obama formlega við sem 44. forseti Bandaríkjanna. 20.1.2009 16:58
Rannsaka ógn í tengslum við embættistöku Obama Alríkislögreglan og bandaríska heimavarnaráðuneytið rannsaka nú hugsanlega ógn í tengslum við embættistöku Baracks Obama sem sver embættiseið sem næsti forseti Bandaríkjanna innan skamms. Gríðarleg öryggisgæsla er í borginni fyrir embættistökuna. 20.1.2009 16:36
Mótmælendur slettu skyri á lögreglumenn - myndir Mótmælin við Alþingishúsið standa enn yfir og fyrir stundu brugðu nokkrir mótmælendur á það ráð að ata lögregluna skyri. Lögreglumennirnir stóðu gráir fyrir járnum þegar mótmælendur hófu að ata þá skyri. 20.1.2009 16:22
Dóttir Helgu Völu handtekin 17 ára gömul dóttir Helgu Völu Helgadóttur fjölmiðlakonu og laganema er ein þeirra sem handteknir voru við alþingishúsið fyrr í dag. Hún segir dótturina sakhæfa en þar sem hún sé ekki orðin lögráða verði hún að hafa foreldri eða barnaverndaraðila hjá sér. 20.1.2009 16:08
Árni hyggst ekki segja af sér Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, ætlar ekki að segja af sér embætti í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis um skipan Þorsteins Davíðssonar í dómarastöðu við Héraðsdóm Norðurlands eystra fyrir rúmu ári síðan. 20.1.2009 15:39
Hinir handteknu fluttir á lögreglustöðina Mótmælendurnir sem voru handteknir í alþingisgarðinum fyrr í dag voru fluttir inn í þinghúsið og þaðan í lögreglubíla í bílakjallara sem er undir Alþingishúsinu. Pattstaða hefur verið í garðinum þar sem mótmælendur hafa neitað að fara þaðan og lögregla hafði því ekki getað komið hinum handteknu á brott. Þeir hafa nú verið fluttir á lögreglustöðina við Hverfisgötu. 20.1.2009 15:37
Þingfundur hafinn að nýju Þingfundur hófst rétt í þessu á nýjan leik en Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, frestaði fundinum á þriðja tímanum. Í framhaldinu funduðu formenn þingflokkanna með Sturlu og stendur sá fundur ennþá. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, varaforseti, stýrir þingfundinum í fjarveru Sturlu. 20.1.2009 15:22
Embættistaka Obama í beinni á Vísi Barack Obama sver á eftir embættiseið sem fertugasti og fjórði forseti Bandaríkjanna. Hann verður fyrsti blökkumaðurinn til að gegna því embætti í rúmlega tvö hundruð ára sögu Bandaríkjanna. Embættistakan verður í beinni útsendingu á Vísi og hefst hún klukkan 16. 20.1.2009 15:03
Hlé gert á fundi Alþingis - formenn funda með Sturlu Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, ákvað rétt í þessu að gera hlé á fundi Alþingis sem hafði staðið í rúma klukkustund. Fundi verður framhaldið klukkan 15:13. 20.1.2009 14:54
Pattstaða í Alþingisgarðinum Fólki hefur fjölgað á ný fyrir aftan Alþingishúsið og er lögregla að reyna að tæma garðinn. Um tíu manns sem hafa verið handteknir eru í einu horni garðsins og virðist sem lögregla sé að reyna að tæma garðinn til þess að koma þeim handteknu á brott. Að sögn fréttamanns sem er á staðnum er allt á suðupunkti í garðinum og hefur piparýða verið beitt nokkrum sinnum. 20.1.2009 14:41
Óttast mótmæli við landsfund Sjálfstæðisflokksins Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, telur líklegt að mótmælendur muni reyna að trufla landsfund flokksins sem haldinn verður í lok mánaðarins. Hún biður fólk um að beita ekki ofbeldi. Þetta sagði Þorgerður í viðtali við Rás 2 fyrir stundu sem sent var beint úr Alþingishúsinu. 20.1.2009 14:31
Engar skýringar frá Bretum á beitingu hryðjuverkalaga Geir Haarde forsætisráðherra segir að engar skýringar hafi fengist á því afhverju bresk stjórnvöld beitu hryðjuverkalöggjöf sinni gegn íslensku bönkunum í Bretlandi í kjölfar bankahrunsins hér á landi. 20.1.2009 13:59
Piparúða beitt á mótmælendur - tíu í handjárnum Lögreglan hefur hafist handa við að rýma Alþingisgarðinn þar sem hópur mótmælenda hafði komið sér fyrir. Að sögn fréttamanns á staðnum hefur táragasi verið beitt til þess að koma fólkinu í burtu. Þingfundur stendur enn yfir í Alþingishúsinu þrátt fyrir að lúðraþytur og köll heyrist gjörla í sjónvarpsútsendingu frá fundinum. 20.1.2009 13:59
Vilja almannaheillanefndir líkt og á Akureyri Borgarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri græna vilja að verði á laggirnar almannaheillanefndir stofnana og frjálsra félagasamtaka í hverfum borgarinnar. Mælt verður fyrir tillögunni á fundi borgarstjórnar sem hefst klukkan 14. Fyrirmyndin er fengin frá Akureyri. 20.1.2009 13:52
„Snautleg byrjun á þinghaldinu" Þingmenn stjórnarandstöðu lýstu yfir óánægju með störf þingsins við upphaf Alþingis í dag. Þingmennirnir sögðust undrast mjög að ástandið í þjóðfélaginu skyldi ekki rætt við upphaf fundar og farið væri yfir stöðu mála og framtíðarhorfur. 20.1.2009 13:48
Sérsveitarmenn við þinghúsið Lögreglan er með mikinn viðbúnað fyrir framan Alþingishúsið og hefur fjöldi sérsveitarmanna með hjálma, skyldi og kylfur verið kallaðir til. Mótmælendur framkalla mikinn hávaða, berja glugga þinghússin að utan, snjóboltum hefur verið kastað í þinghúsið og þá heyrast vörubíla þeyta flautur í útsendingu frá þingfundi sem hófst núna klukkan hálf tvö. 20.1.2009 13:34
Matarúthlutun Fjölskylduhjálparinnar hefst á morgun Matarúthlutun hefst að nýju hjá Fjölskylduhjálp Íslands á morgun miðvikudag og stendur hún frá klukkan 15 til 17. ,,Við tökum á móti gjöfum, matvælum og fatnaði alla miðvikudaga frá þrjú til fimm á sama stað," segir Ásgerður Jóna Flosadóttir hjá Fjölskylduhjálp Íslands í tilkynningu. 20.1.2009 13:15
Fjármálaeftirlitið auglýsir eftir starfsfólki Fjármálaeftirlitið auglýsir eftir starfsfólki í tímabundin störf. Samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu er um að ræða um það bil fimm störf. Fjöldi starfa fer þó eftir eftir umsóknum. Nú þegar hefur fjöldi umsókna borist. 20.1.2009 13:08
Kröftug mótmæli við Alþingishúsið Rúmlega þúsund manns eru nú á Austurvelli þar sem boðað hefur verið til mótmæla þegar þingfundur hefst á ný eftir jólafrí. Lögregla strengdi borða fyrir framan húsið og upphófust stimpingar á milli lögreglu og mótmælenda sem vildu fara inn fyrir borðann. Hópur fólks hefur einnig komið sér fyrir í Alþingisgarðinum. 20.1.2009 12:58
Endurreisn Gaza kostar 400 milljarða króna Það mun kosta jafnvirði nærri fjögur hundruð milljarða króna að endurreisa Gaza að mati helsta ráðgjafa Hamas-stjórnarinnar á svæðinu. Í viðtali við fréttastofu segir hann að tryggja þurfi eðlilega vöruflutninga til og frá svæðinu eigi það ekki að leggjast í eyði. 20.1.2009 12:52
Ekki hætta á að ESB tvístrist í kreppunni Það verður að horfa til heimilanna, fyrirtækjanna og hins alþjóðlega fjármálamarkaðar þegar kostir og gallar evru eru metnir, segir Aðalsteinn Leifsson, lektor í viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Hann telur ekki hættu á að efnahagsástandið muni tvístra evrópusambandinu, þrátt fyrir óánægjuraddir meðal annars á Írlandi. 20.1.2009 12:49
Þétt dagskrá hjá Obama í dag Barack Obama sver í dag embættiseið sem fertugasti og fjórði forseti Bandaríkjanna. Hann verður fyrsti blökkumaðurinn til að gegna því embætti í rúmlega tvö hundruð ára sögu Bandaríkjanna. Dagskrá Obama hjónanna í dag er þéttskipuð. Gríðarleg öryggisgæsla er í borginni fyrir embættistökuna sem verður sýnd í beinni útsendingu hér á Vísi og hefst útsendingin klukkan fjögur. 20.1.2009 12:38
Hávær krafa um kosningar í Samfylkingunni Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, segir mikilla efasemda um núverandi ríkisstjórnarsamstarf gæta í flokknum og margir vilji að boðað verði til kosninga. Sjálfur segist Mörður vera á þessari skoðun þar sem ríkisstjórnin hafi ekki umboð þjóðarinnar. Samfylkingin í Reykjavík hefur boðað til fundar annað kvöld þar sem þessi mál verða rædd. 20.1.2009 12:13
Dómsmálaráðherra setur ofan í við sýslumann Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, setur ofan í við Ólaf Helga Kjartansson, sýslumann á Selfossi vegna ákvörðunar um að gefa lögreglu fyrirmæli um að handtaka 370 einstaklinga í Árnessýslu sem höfðu hefðu ekki skilað sér í fjárnám hjá embætti hans. 20.1.2009 12:07
Aðalbjörg leiðir lista Vöku Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, hefur kynnt framboðslista sína til Stúdentaráðs og Háskóþings Háskóla Íslands 2009, en kosningar innan Háskóla Íslands fara fram dagana 4. og 5. febrúar næst komandi. 20.1.2009 11:43
Skattsvikamáli Jóns Ólafssonar vísað frá Hæstarétti Hæstiréttur vísaði í dag frá dómi kæru Ríkislögreglustjóra í máli Jóns Ólafssonar, Hreggviðs Jónssonar og Ragnars Birgissonar. Héraðsdómur vísaði málinu frá dómi þann 17. desember en þeir félagar voru ákærðir fyrir skattsvik í tengslum við rekstur Norðurljósa og annara tengdra félaga. 20.1.2009 11:30
Skjálftavirkni í Krýsuvík All nokkur skjálftavirkni hefur verið við nágrenni Kleifarvatns, Krýsuvíkur og Sveifluháls undanfarnar tvær vikur. Tæplega tíu skjálftar hafa mælst þar í morgun flestir litlir. Í gær varð hinsvegar skjálfti á þessum slóðum upp á 2,1 að stærð 3,4 km norðvestur af Krýsuvík. 20.1.2009 10:57
Vilja jafnt kynjahlutfall í stjórnum fyrirtækja Frumvarp fjögurra þingmanna Samfylkingarinnar um jafnt hlut kynjanna í stjórnunar- og áhrifastöðum fjármálafyrirtækja verður tekið til fyrstu umræðu í dag þegar Alþingi kemur saman að nýju eftir jólaleyfi. Frumvarpið sem var lagt fyrir í lok október á seinasta ári felur í sér að við stjórnarkjör skal tryggt að í stjórnum skuli sitji sem næst jafnmargar konur og karlar. 20.1.2009 10:57
Áfram í gæsluvarðhaldi vegna íkveikju á Tryggvagötu Karlmaður um fimmtugt hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 16. febrúar að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Maðurinn var handtekinn síðast liðinn miðvikudag en hann hefur játað að hafa kveikt í húsi við Tryggvagötu í Reykja þann sama dag. Maðurinn og kona sem búsett er í húsinu, sem skemmdist mikið, höfðu átt í erjum. 20.1.2009 10:32
Alþingi kemur saman á eftir Alþingi kemur saman í dag eftir jólaleyfi og hefst þingfundur klukkan 13:30 á óundirbúnum fyrirspurnartíma. Fimm ráðherrar verða viðstaddir óundirbúinn fyrirspurnartíma. 20.1.2009 10:24