Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Reyndu að bera eld að dyrum Alþingishússins Tveir lögreglumenn slösuðust og voru fluttir á slysadeild eftir að mótmælendur grýttu þá með gangstéttarsteinum við Stjórnarráðið í nótt. Annar lögreglumannanna er enn á slysadeildinni, meðal annars með heilahristing. 22.1.2009 07:10
Samflokksmenn þrýsta á Geir Innan úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins heyrist að stjórnarslit sem og tímasetning kosninga hafi verið rædd á þingflokksfundinum í gær. Umræður í samfélaginu séu einfaldlega þess eðlis að ekki hafi verið hjá því komist. 22.1.2009 07:00
Guantánamo lokað innan árs Fyrsti dagur Baracks Obama í embætti Bandaríkjaforseta var annasamur. Hann kallaði saman helstu ráðgjafa sína í bæði efnahagsmálum og hermálum til að fjalla um þau erfiðu verkefni, sem blasa við strax í byrjun embættistíðar hans. 22.1.2009 06:45
Segir ólíklegt að laun lækki Ólíklegt er að ríkið freisti þess að lækka laun opinberra starfsmanna að mati hagfræðings. Auðveldara sé að skera niðurgreiðslur til landbúnaðar, auka álögur á útflutningsgreinar og hækka skatta. 22.1.2009 06:45
Misstu allt sitt í bruna Ungt par frá Þýskalandi og danskur vinur þeirra leigðu íbúð í húsinu við Klapparstíg sem varð eldi að bráð á dögunum. Þau búa nú á gistiheimili Hjálpræðishersins. Þau segjast helst sakna Ingólfs, kattar sem týndist í brunanum. 22.1.2009 06:30
Stjórnin verður að sýna viðbrögð „Engin lýðræðisleg stjórn getur sleppt því að svara jafn umfangsmiklum mótmælum og hafa verið í gangi,“ segir Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt við Háskóla Íslands. Hún segir ríkisstjórninni ýmsar leiðir færar til að bregðast við kröfum almennings. 22.1.2009 06:00
Farið verður yfir valdbeitingu lögreglu Lögreglustjóri segir að athugað verði hvort lögreglumenn hafi gengið of langt í valdbeitingu, en ljósmyndir virðast benda til þess. Lögreglumennirnir verði þá kærðir til ríkissaksóknara. Reglur um valdbeitingarheimildir eru ekki aðgengilegar almenningi. 22.1.2009 06:00
Ekki verður hægt að hjálpa öllum „Ef það tekst ekki að koma bankakerfinu í eðlilegt horf á næstu mánuðum þá dýpkar kreppan, gjaldþrotum fjölgar og atvinnuleysið verður enn meira," segir Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann segir viðreisn bankanna stærsta verkefnið áður en gengið verður til kosninga. Illugi segir að stjórnin eigi að sitja á meðan hún telur að hún geti unnið landinu gagn. Hins vegar kæmi það honum á óvart ef hún starfaði út kjörtímabilið. „Það er heldur engin ástæða til að streða við það í sjálfu sér." Hann segir að þrátt fyrir aðgerðir til að hjálpa heimilunum í landinu sé mikið enn ógert þar. „Það er líka kaldur raunveruleiki að það verður ekki hægt að hjálpa öllum. Það er það hörmulegasta í þessu öllu saman."- shá 22.1.2009 06:00
Ný norðurskautsstefna Meðal síðustu embættisverka George W. Bush Bandaríkjaforseta var að móta nýja stefnu Bandaríkjanna gagnvart Norðurheimskautssvæðinu, sem á næstu árum og áratugum verður væntanlega aðgengilegra en áður vegna hlýnunar jarðar. 22.1.2009 05:45
Ísland hjálpi við endurskoðun sjávarútvegsstefnu ESB Framkvæmdastjórn ESB hefur boðið sjávarútvegsráðuneytinu að skipa íslenskan fulltrúa til að taka þátt í endurskoðun sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu sambandsins. 22.1.2009 05:30
Þrefalt fleiri umsóknir hjá Keili í ár „Við mátum stöðuna þannig að margir horfðu fram á gjörbreyttar aðstæður nú í byrjun árs, og ákváðum því að fresta nýju námi sem átti að hefjast strax eftir áramót fram í lok janúar. Svo virðist sem við höfum metið stöðuna rétt,“ segir Runólfur Ágústsson, framkvæmdastjóri Keilis. 22.1.2009 05:30
Líkur á vorkosningum aukast Meirihluti þingflokks Samfylkingar hefur, ýmist nú eða fyrir áramót, sagst vilja kosningar í vor. Um leið verða efasemdaraddir um núverandi stjórnarsamstarf háværari meðal þingmanna flokksins. 22.1.2009 05:30
Geir segir glapræði að kjósa í vor Forsætisráðherra segir ríkisstjórnarsamstarfið ekki í hættu og telur það ábyrgðarleysi að boða til kosninga. Ekki sé ástæða til að bregðast við mótmælum síðustu daga. Hann hvetur fólk til þess að róa sig. 22.1.2009 05:00
Samfylking vill kjósa en bíður átekta Mikil krafa er komin á Samfylkinguna um að boða til kosninga í vor og varaformaður flokksins hefur lagt það til. Ýmsir þingmenn styðja þá tillögu. Enn bíða flokksmenn niðurstöðu landsfundar Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum. 22.1.2009 05:00
Vilja hafa meiri áhrif á herliðin Stjórnvöld í Afganistan vilja fá að ráða meiru um starfsemi herliðs Atlantshafsbandalagsins í landinu. 22.1.2009 05:00
Óttast mengun af mótorhjólum Umhverfis- og skipulagsnefnd Voga óttast að fyrirhugað mótorhjólasvæði á Reykjanesi hafi neikvæð áhrif á framtíðarvatnstökusvæði nálægt Snorrastaðatjörnum. 22.1.2009 04:45
Mun meira magn fíkniefna Lögreglumál Lögreglan á Vestfjörðum lagði hald á mun meira magn af fíkniefnum á árinu 2008 en fimm árin þar á undan. Árið 2008 lagði lögreglan hald á rúmlega 800 grömm af fíkniefnum. Til samanburðar hefur lögreglan í umdæminu lagt hald á um 220 grömm af fíkniefnum að meðaltali á ári hverju, undanfarin fimm ár. Mest af efnunum, sem lagt var hald á í fyrra, voru kannabisefni. Einnig var hald lagt á E-töflur, amfetamín og lítilræði af kókaíni og ofskynjunarefnum. Þess ber að geta að hér eru ekki talin með lyf og sterar. - ovd 22.1.2009 04:00
Úkraínustjórn fagnar sigri Úkraínustjórn fagnaði í gær sigri á Rússum í gasdeilunni, sem varð til þess að skrúfað var fyrir gas til Evrópuríkja í tvær vikur. 22.1.2009 04:00
Tilraun með rafrænar kosningar gerð árið 2010 Unnið er að undirbúningi tilraunar með rafrænar sveitarstjórnarkosningar árið 2010. Kjósa á rafrænt í tveimur sveitarfélögum. Ekki er ákveðið í hvaða sveitarfélögum. 22.1.2009 03:45
Krafa um stjórnarslit og kosningar í vor Samfylkingarfélagið í Reykjavík vill slíta ríkisstjórnarsamstarfinu. Innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins eykst krafa um að flýta kosningum. Forsætisráðherra segir glapræði að efna til kosninga nú. Mótmælt er víða um land. 22.1.2009 03:30
Mótmælendur veittust að Geir Mótmælendur veittust að bíl Geirs H. Haarde forsætisráðherra við stjórnarráðið í gær. Þeir hentu eggjum í bifreið hans og kröfðust þess að boðað yrði til kosninga án tafar. Geir þurfti aðstoð lögreglu við að komast af bílastæði sínu. Aðspurður viðurkenndi Geir að sér hafi verið brugðið við ágang fólksins. - shá 22.1.2009 03:15
Kemur heim í lok vikunnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, er væntanleg til landsins nú í vikulokin. 22.1.2009 03:15
Þak sett á innheimtukostnað Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur undirritað reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar. Hingað til hefur ekki verið þak á þeirri upphæð sem innheimtufyrirtæki, til dæmis Intrum eða Momentum, hafa getað sett á innheimtu sína. 22.1.2009 03:15
Mótmælendur farnir Örlagaríkum mótmælum í miðborg Reykjavíkur lauk um þrjúleytið í nótt. Tveir lögreglumenn slösuðust alvarlega í mótmælunum eftir að múrsteinum var kastað í þá og nokkrir eru lemstraðir, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Ekki hafa fengist upplýsingar að svo stöddu hvers eðlis meiðsl þeirra eru. 22.1.2009 03:15
Piparúðinn vekur athygli „Lögreglan beitir piparúða á íslenska mótmælendur“ er fyrirsögnin á frétt Reuters-fréttastofunnar um mótmælin á Austurvelli. 22.1.2009 03:15
Geir vonar að allir nái áttum Mótmælendur umkringdu bíl Geirs H. Haarde forsætisráðherra við Stjórnarráðið í gær. Þeir köstuðu eggjum í bílinn og börðu hann að utan þar til lögregla skakkaði leikinn og Geir ók burt. Hann segir að sér hafi brugðið. „Ég viðurkenni það fúslega að mér brá. Þetta var ekki skemmtilegt upplifun.“ Geir vonar að þetta sé ekki vísir að því sem koma skal. „Við erum nú vön því hér á Íslandi að sýna samborgurunum virðingu og leyfa fólki að komast óhindrað ferða sinna. Ég vona svo sannarlega að það verði ekki breyting á því og að allir nái áttum í þessu máli.“- bs 22.1.2009 03:00
Átök á milli lögreglu og mótmælenda Átök brutust út á milli lögreglu og hóps mótmælenda á Austurvelli nú fyrir stund, en þangað streymdu mótmælendur eftir að fundi samfylkingarmanna í Þjóðleikhúskjallaranum lauk. Lögreglan handtók einn mótmælanda. Aðrir úr hópnum hugðust þá frelsa hann og veittust að lögreglu. Lögreglan beitti táragasi og kylfum gegn fólkinu, en maðurinn sem lögreglan hugðist handtaka slapp. Ástandið er mjög eldfimt og svo virðist sem pattstaða sé komin upp vegna þessa. 21.1.2009 23:43
Óþol meðal almennra þingmanna Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur segir ómögulegt að segja til um hvort ályktun samfylkingarmanna í Reykjavík þýði að stjórnarslit verði strax á morgun. 21.1.2009 22:58
Arnbjörg á ekki von á stjórnarslitum Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður þingflokks sjálfstæðismanna, segist ekki eiga von á því að stjórninni verði slitið þrátt fyrir samþykkt fundar 21.1.2009 22:20
Samfylkingarmenn í Reykjavík vilja tafarlaus stjórnarslit Samfylkingarmenn í Reykjavík vilja tafarlaus stjórnarslit. Ályktun þessa efnis var samþykkt á félagsfundi í Þjóðleikhúskjallaranum nú fyrir stundu. 21.1.2009 21:59
Vopnað rán í Lyfju Vopnað rán var framið í Lyfju í Lágmúla laust fyrir átta í kvöld. Maður ógnaði starfsfólki með eggvopni, og hafði á brott með sér lyf. 21.1.2009 21:48
Hátt í þúsund mótmælendur við Þjóðleikhúskjallarann Hátt í 1000 mótmælendur eru nú fyrir utan þjóðleikhúskjallarann þar sem flokksfundur Samfylkingarinnar stendur nú yfir. Sem fyrr kyrja mótmælendurnir slagorð og slá á eldhúsáhöld, trommur og annað sem framleitt getur hávaða. 21.1.2009 21:35
Enginn ráðherra sjáanlegur á fundi samfylkingarmanna Enginn ráðherra Samfylkingarinnar er sjáanlegur fréttamönnum Stöðvar 2 og Vísis á fundi reykvískra samfylkingarmanna í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. 21.1.2009 21:34
Tveir lögreglumenn mikið slasaðir Tveir lögreglumenn eru mikið slasaðir og þurfti að flytja þá með sjúkrabifreið á slysadeild, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 21.1.2009 00:01
Samfylkingarmenn í Kópavogi vilja líka stjórnarslit Stjórn Samfylkingarfélagsins í Kópavogi samþykkti í kvöld samhljóða eindreginn stuðning við ályktun félagsfundar Samfylkingarinnar í Reykjavík, sem samþykkt var fyrr um kvöldið 21.1.2009 23:04
Skýr krafa um stjórnarslit á Samfylkingarfundi Skýr krafa um stjórnarslit hefur komið fram í almennum umræðum á fundi Samfylkingarinnar sem nú stendur yfir í Þjóðleikhúskjallaranum. Hver ræðumaðurinn á fætur öðrum hefur stigið í pontu og lýst yfir vilja sínum til að forráðamenn Samfylkingar slíti ríkisstjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn. Þeim hefur jafnan verið mætt með dynjandi lófataki fundarmanna. 21.1.2009 21:28
Samfylkingarfólk klappaði fyrir mótmælendum Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík hefur lagt fram tillögu um að boðað verði til kosninga ekki síðar en í maí á þessu ári. 21.1.2009 20:31
Um 500 mótmælendur fyrir utan Samfylkingarfund Mótmælendur eru farnir frá Austurvelli og eru nú komnir að Þjóðleikhúskjallaranum þar sem flokksfundur Samfylkingar hefst eftir hálftíma. Lögregla hefur tekið sér stöðu fyrir utan Þjóðleikhúskjallarann. 21.1.2009 20:03
Fjöldi fólks mótmælti á Akureyri Fjöldi fólks kom saman á Ráðhústorginu á Akureyri til að mótmæla í dag. Fjöldi fólks er á reiki. Lögreglan segir að á annað hundrað manns hafi komið saman, en mótmælendur segjast hafa verið um 300. Fundurinn hófst klukkan fimm og stóð í tvo tíma. Í kvöld er borgarafundur í Deiglunni á Akureyri um menntamál. Hann hefst klukkan átta og til stendur að honum ljúki klukkan tíu. 21.1.2009 19:55
Ungir jafnaðarmenn krefjast kosninga Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að sitjandi ríkisstjórn boði til kosninga í vor. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn Ungra jafnaðarmanna hefur samþykkt. Þar segir að hvorki Alþingi né ríkisstjórnin hafi lýðræðislegt umboð lengur, 21.1.2009 19:32
Mun ekki boða til kosninga Geir Haarde forsætisráðherra býst við því að hann verði formaður Sjálfstæðisflokksins eftir landsfund. Þetta sagði hann í samtali við Sindra Sindrason í Íslandi í dag. 21.1.2009 19:19
Obama hóf daginn á kirkjuheimsókn Hinn nýi forseti Bandaríkjanna hóf daginn á því að fara í kirkju ásamt Bill og Hillary Clinton. Þaðan fór hann á skrifstofuna sína til þess að byrja að stjórna landinu. 21.1.2009 19:05
Geir segir stjórnarsamstarfið traust Forsætisráðherra fullyrðir að stjórnarsamstarfið standi traustum fótum og segir að formaður Samfylkingarinnar hafi staðfest það í samtali við sig síðast í dag. Honum fannst að sér hafi verið ógnað þegar mótmælendur gerðu aðsúg að honum og bíl hans við stjórnarráðið í dag. 21.1.2009 18:30
Algjör óvissa um endurkomu Ingibjargar Fullkomin óvissa eru um hvenær Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra snýr aftur til starfa. Hún verður lögð inn á Landspítalann þegar hún kemur heim úr meðferð í Svíþjóð í vikulokin. 21.1.2009 18:30
Kylfur á lofti annan dag í röð Annan daginn í röð sá lögregla ástæðu til að draga upp kylfur; Í dag þegar gert var hróp að forsætisráðherra við stjórnarráðið. Þúsundir hafa mótmælt ríkisstjórninni í miðborginni nánast sleitulaust frá því á hádegi í gær. 21.1.2009 18:30