Fleiri fréttir

Fréttir af andláti ríkisstjórnarinnar stórlega ýktar

Mótmælendur á Austurvelli ærðust af fögnuðu þegar einn þeirra hrópaði yfir hópinn að ríkisstjórnin væri fallin. Að sögn fréttamanns Vísis hófust þá mikil fagnaðarlæti þar sem söngvar á borð við „Ole, Ole, Ole“ voru kyrjaðir.

Geir fundaði með lögreglumönnum um mótmælin

Geir Haarde forsætisráðherra ræddi við forystumenn Landssambands lögreglumanna í morgun vegna þeirra mótmæla sem hafa staðið yfir undanfarnar vikur og náðu hámarki í gær. Geir greindi frá þessu á fundi með fréttamönnum fyrir þingflokksfund sjálfstæðismanna sem hófst um fjögurleytið.

Handtökurnar í Alþingisgarðinum - myndband

Aðfarir lögreglu við handtökurnar í Alþingisgarðinum í gær hafa verið gagnrýndar af mörgum sem þar voru viðstaddir. Fréttastofan hefur undir höndum myndband sem tekið var af sjónarvotti á staðnum í gær en hann náði myndum af handtökunum í garðinum með því að taka þær í gegnum glerbygginguna sem tengir Alþingishúsið við nýju viðbygginguna.

Jarðarförinni lokið - lætin byrjuð aftur

Mótmælendur hafa nú aftur hafið upp raust sína fyrir utan þinghúsið þar sem jarðarförinni í Dómkirkjunni er lokið. Að sögn fréttamanns Vísis eru nokkur hundruð manns á staðnum og er slagorðið „Vanhæf ríkisstjórn“ öskrað.

Þögul mótmæli þar til jarðarförinni lýkur

Mótmælendur sem söfnuðust saman fyrir utan Alþingi um hádegi í dag fluttu sig yfir að Stjórnarráðinu vegna jarðarfarar sem fór fram í Dómkirkjunni. Eftir nokkur læti fyrir utan Stjórnarráðið hélt hersinginn aftur að Alþingishúsinu. En nú heyrist ekki múkk.

Landhelgisgæslan frestar uppsögnum

Fyrirhugaðar uppsagnir hjá Landhelgisgæslu Íslands hafa verið dregnar til baka. Þetta kemur fram á heimasíðu Gæslunnar en þar tilkynnir Georg Kr. Lárusson forstjóri starfsmönnum sínum um að uppsögnunum hafi verið frestað.Til stóð að segja upp 20 til 30 starfsmönnum hjá stofnuninni.

Allsherjarnefnd kölluð saman á föstudag

Atli Gíslason þingmaður Vinstri grænna sagðist í samtali við Vísi í morgun vilja að allsherjarnefnd Alþingis kæmi saman og aðilar kallaðir fyrir hana. Birgir Ármannsson er formaður nefndarinnar en þar sem hann er staddur erlendis mun Ágúst Ólafur Ágústsson gegna formennsku.

Geir frestar blaðamannafundi - þingflokkurinn fundar í Valhöll

Geir H. Haarde forsætisráðherra boðaði blaðamenn á fund sinn klukkan þrjú í dag en hann hefur frestað þeim fundi. Hann varð fyrir aðkasti fyrir utan Stjórnarráðið fyrr í dag en ekki er vitað hvort það hafi orsakað frestun fundarins.

Rúða brotin í Stjórnarráðinu

Mótmælendur sem staddir eru fyrir utan Stjórnarráðið í Lækjargötu brutu rúðu í húsinu fyrir stundu og málningu hefur einnig verið skvett. Kristján Kristjánsson upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytis vissi ekki af rúðubrotinu þegar Vísir hafði samband þar sem hann var staddur í öðru húsi.

Upplausn á stjórnarheimilinu

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna gefur ríkisstjórninni ekki langan tíma ef hún finnur ekki ráð eða leiðir út úr þeim vanda sem ríkir í samfélaginu. Hann sagði ljóst að hér á landi yrðu kosningar í síðasta lagi í vor. Hann sagði að allra biði risavaxið verkefni á næstunni. Þetta sagði Steingrímur í viðtali í beinni útsendingu á Rúv.

Aðsúgur gerður að Geir Haarde - eggjum rigndi yfir ráðherrabílinn

Gerður var aðsúgur að Geir Haarde forsætisráðherra rétt í þessu við Stjórnarráðið þegar Geir var á leið út úr húsinu. Að sögn sjónarvotta voru mikil læti fyrir framan húsið og rigndi snjóboltum meðal annars yfir ráðherrann. Geir komst við illan leik inn í ráðherrabifreið sína sem var umkringd fólki.

Mótmælendur flytja sig yfir í Stjórnarráðið vegna jarðarfarar

Mótmælendur láta ekki deigan síga og eru mættir á ný á Austurvöll til þess að mótmæla ástandinu og ríkisstjórninni. Um þúsund manns eru á svæðinu og berja þeir í potta og pönnur og þeyta flautur með tilheyrandi hávaða. Þeir hafa hins vegar ákveðið að færa sig um set um stundarsakir og taka upp mótmælastöðu við Stjórnarráðið. Ástæða þess er sú að jarðarför fer nú fram við Dómkirkjuna.

Fundur um stjórnarsamstarfið færður til

Ríkisstjórnarsamstarfið verður til umræðu á félagsfundi í Samfylkingarfélags Reykjavíkur í kvöld. Fundurinn átti að fara fram í húsnæði flokksins við Hallveigarstíg en búist er við afar góðri mætingu og því hefur verið ákveðið að færa fundinn í Þjóðleikhúskjallarann.

Liðsmenn al Kaida féllu í mislukkaðri tilraun

Al Kaida hópur í Alsír þurrkaði sjálfan sig út þegar tilraun með sýklavopn fór úrskeiðis. Bandaríska blaðið Washington Times hefur eftir heimildarmanni í leyniþjónustunni að al-Kaida liðarnir hafi verið að rækta sýkla fyrir kýlapestina Svartadauða sem felldi þriðjung íbúa Evrópu á þrettándi öld.

Ísraelar segjast farnir frá Gaza

Ísraelar segjast hafa lokið brottflutningi allra hermanna sinna frá Gaza ströndinni. Eyðileggingin er óskapleg. Ísraelar höfðu flutt flestalla sína hermenn frá Gaza ströndinni áður en Barack Obama sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna. Fréttaskýrendur telja að þeir hafi vilja forðast spennu í upphafi samskipta sinna við hinn nýja forseta.

Þingfundi frestað vegna mótmælanna

Þingfundi sem stóð til að halda í dag klukkan hálf tvö í dag var frestað vegna mótmælanna sem urðu við þinghúsið í gær, að sögn Ögmundar Jónassonar þingflokksformanns Vinstri grænna.

„Það þarf að hreinsa til eftir partýið“

Jón Magnússon þingflokksformaður Frjálslyndaflokksins segir að ein af ástæðum þess að þingfundi var frestað í dag sé vegna tiltektar. „Það þarf að hreinsa hérna til eftir partýið,“ segir Jón sem var með tvö mál á dagskrá í dag.

Þak sett á innheimtukostnað

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra undirritaði í dag reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar sem öðlast mun gildi 1. febrúar. Í tilkynningu frá ráðherra segir að kjarni reglugerðarinnar sé að sett verði þak á þá fjárhæð sem krefja má skuldara um við innheimtu gjaldfallinna peningakrafna fyrir aðra eða vegna eigin starfsemi.

20 handteknir í gær

Lögreglan handtók um tuttugu manns og færði á lögreglustöð til skýrslutöku eftir að mótmæli við Alþingishúsið í gær. ,,Rúður voru brotnar og eldur kveiktur á minnst tveimur stöðum í miðborginni en beita þurfti bæði varnarúða og kylfum. Lögreglumenn voru grýttir með grjóti, glerflöskum, matvælum, mold og drullu," segir í tilkynningu frá lögreglu.

Þingfundi aflýst og formenn funda

Þingfundi sem stóð til að halda í dag klukkan hálf tvö var frestað og hittust formenn stjórnmálaflokkanna sem sæti eiga á Alþingi á fundi klukkan eitt.

Varaformaður Samfylkingarinnar vill kosningar í vor

,,Ástandið er grafalvarlegt og ég get sagt þér að í þinghúsinu, þá skynja allir mikla reiði almennings", segir Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar sem vill að gengið verði til kosninga í vor.

Atli: Alþingi var notað sem fangelsi og lögreglustöð

Þinghúsið var notað sem fangelsi og lögreglustöð á meðan á mótmælunum stóð í gær, að mati Atla Gíslasonar þingsmanns Vinstri grænna. Hann krefst þess að allsherjarnefnd komi saman og ræði atburði gærdagsins.

Mótmælin í myndum

Þúsundir manna söfnuðust saman á Austurvelli þegar Alþingi kom saman eftir hlé í gær. Fólk var hvatt til þess að mæta og láta í sér heyra. Rétt eftir hádegi fór fólk að safnast saman og mótmælin eru einhver þau kröftugust og háværustu hingað til. Vísir var á staðnum.

Mótmæli og borgarafundur á Akureyri

Boðað hefur verið til mótmælafundar á Ráðhústorginu í dag og er fólk hvatt til að mæta með pott og sleifar sem framkvæmir hávaða svo að ríkisstjórnin vakni.

Gagnrýna fyrirætlanir um niðurskurð

Bandalag háskólamanna lýsir andstöðu við þær fyrirætlanir ríkisstjórnar að hefja niðurskurð í ríkisfjármálum á aðgerðum sem bitna á börnum, ungmennum fötluðu fólki, sjúklingum og öldruðum.

Lögregla efld með tækjum og mannafla harðni mótmæli

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir að lögreglan verði efld bæði með tækjum og mannafla ef mótmæli gegn valdstjórninni harðna. Hann undrast samskipti Álfheiðar Ingadóttur, þingmanns VG, við mótmælendur við þinghúsið í gærdag.

Móðir unga mótmælandans hugleiðir að kæra lögreglu

Pauline McCarthy, móðir ellefu ára drengs sem lögregla tók í mótmælunum við þinghúsið og flutti á lögreglustöð er alls ekki sátt við framgöngu laganna varða í málinu. Hún hugleiðir að kæra lögreglu fyrir mannrán.

Telegraph greinir frá mótmælunum

Breska blaðið Telegraph segir frá mótmælunum við Alþingishúsið á vefsíðu sinni í dag. Í frétt blaðsins er meðal annars greint frá því að nú sé svo komið að ríkisstjórn Geirs H. Haarde og Seðlabankanum sé mótmælt með reglulegu millibili á því sem áður voru rólegar götur Reykjavíkur.

Hátíðarstemmning vestanhafs

Mikil hátíðarstemmning hefur ríkt í Bandaríkjunum síðan Barack Obama sór embættiseið sinn sem 44. forseti landsins að viðstöddu mannhafi í Washington í gær.

Fjölskylduerjur urðu að hópslagsmálum

Um það bil 40 manns tóku þátt í hópslagsmálum sem brutust út um þrjúleytið í gær við verslun Nettó í Árósum í Danmörku. Allir sem að átökunum komu eru innflytjendur og segir lögreglan að eftir því sem næst verði komist hafi deilur innan stórfjölskyldu leitt til slagsmálanna.

Flugáhöfn klyfjuð fíkniefnum

Fimmtán manns úr áhöfn flugfélagsins South African Airlines voru handteknir á Heathrow-flugvellinum í London í gær eftir að 50 kíló af kannabisefnum og fjögur kíló af kókaíni fundust í farangri þeirra.

Nauðgaði konu til að hljóta enskukennslu í fangelsi

Rúmenskur flækingur nauðgaði ungri konu og rændi hana í undirgöngum í West Yorkshire í Bretlandi í þeim tilgangi að komast í fangelsi þar sem hann gæti lært ensku og fengið fæði og húsaskjól. Þetta játaði maðurinn fyrir fangelsisgeðlækni.

Stjórnarsamstarfið rætt á félagsfundi Samfylkingar

Stjórnarsamstarfið verður umræðuefnið á félagsfundi í Samfylkingarfélagi Reykjavíkur í kvöld. Frummælendur verða Mörður Árnason varaþingmaður og Lúðvík Bergvinsson þingmaður en Mörður segir að innan flokksins séu verulegar efasemdir um núverandi ríkisstjórnarsamstarf.

Stóðu íslenskan togara að meintum ólöglegum veiðum

Norska strandgæslan stóð íslenskan togara að meintum ólöglegum veiðum í norskri lögsögu í fyrradag og færði skipið til hafnar í Hammerfest. Strandgæslan gerði athugasemdir við veiðarfæri togarans en hann hafði hins vegar heimildir til veiða í lögsögunni.

Mótmælt fram á rauða nótt

Mótmælum við Alþingishúsið lauk ekki fyrr en á fjórða tímanum í nótt og höfðu þá tveir mótmælendur verið teknir úr umferð. Annar er að sofa úr sér ölvímu en hinum var sleppt undir morgun.

Uppivöðsluseggir stöðva ekki þingstörf

„Hér varð skipulögð aðför að þinghúsinu,“ sagði Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, undir kvöld í gær þegar mótmælendum við húsið hafði snarfækkað frá því sem var fyrr um daginn. „Ég harma þetta og vona að til þessa þurfi ekki að koma aftur. Þingmönnum gengur ekki annað til en að vinna að þeim málum í þjóðarþágu.“

Ætlar að kæra lögreglu fyrir ofbeldi

„Ég hef hugsað mér að kæra þessa konu. Hún er ekki starfi sínu vaxin,“ segir Páll Hilmarsson ljósmyndari. „En ef hún er það, þá er eitthvað að verklagsreglum lögreglunnar.“

Kjósendur geti knúið fram kosningar

Tíu þingmenn Samfylkingarinnar vilja breyta kosningalögunum á þann veg að meirihluti kjósenda, hvort heldur er í einstöku sveitarfélagi eða á landsvísu, geti knúið fram kosningar.

Obama bestur fyrir veröldina

„Ég fagna embættistöku Obama mjög og hún vekur hjá mér vonir um að það bregði til betri tíðar hvað varðar utanríkismál og almenna stefnu bandarískra stjórnvalda. Mikið óskaplega er ég líka feginn að losna við Bush, og þótt fyrr hefði verið,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, um embættistöku Baracks Obama í gær.

Vonast til að fá að kæra aftur

Hæstiréttur hefur vísað frá kæru saksóknara í skattamáli Jóns Ólafssonar og fleiri vegna handvammar sækjanda. Sækjandi hefur óskað eftir leyfi til að kæra málið að nýju til Hæstaréttar.

Helvítis lyddugangur

„Helvítis lyddugangur er þetta,“ sagði Helga Sigrún Harðardóttir, Framsóknarflokki, eftir að forsætisráðherra hafði tíundað verk ríkisstjórnarinnar í átt til endurreisnar samfélagsins í jólaleyfi Alþingis.

Óbeinn sigur fyrir Framsókn

„Við í Framsóknarflokknum höfum skilgreint Obama sem framsóknarmann þannig að okkur þykir þetta ákveðinn sigur fyrir flokkinn, þótt óbeinn sé," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins.

Formannsstarfið ekki launað

„Formenn flokksins hafa ekki verið launaðir fram að þessu, en þetta er bara eitthvað sem við þurfum að skoða," segir Sigfús I. Sigfússon, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, spurður hvort Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, nýkjörinn formaður flokksins, fái laun fyrir formannsstarfið.

Sjá næstu 50 fréttir